Morgunblaðið - 21.06.1991, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1991
9
Sláturfélagið stefnir Goða hf.:
Málsliöfðimin hlægileg
- segir framkvæmdastj óri Goða hf.
ÁRNI S. Jóhannsson, frani-
kvæmdastjóri Goða hf., segir að
málshöfðun Sláturfélags Suður-
lands á hendur Goða hf. fyrir að
nota í pylsuauglýsingum slagorðið
„... og vera grennstir fyrir bragð-'
ið“ sé hlægileg, og hann sé sann-
færður um að Sláturfélagið muni
tapa málinu. Málið fór fyrir bæjar-
þing Reykjavíkur í gær, fimmtu-
dag.
Eins og greint hefur verið frá í
Morgunblaðinu telur Sláturfélagið
að með orðalaginu brjóti Goði hf.
gegn óskráðu vígorði sínu „Fremstir
fyrir bragðið", og krefst þess að
Goða hf. verði dæmd óheimil notkun
á því í auglýsingum, og auk þess
greiða Sláturfélaginu kr. 500.000 í
skaðabætur.
„Að mínum dómi er þetta hlægi-
legt og reyndar allt að því gráthlægi-
legt. I fyrsta lagi tel ég alveg ljóst
að þeir munu tapa málinu, og í öðru
lagi eru þeir að gera miklu harðari
kröfur til annarra en þeir gera til
sín. Ef þeir hefðu meint þetta þá
hefðu þeir væntanlega krafist lög-
banns á auglýsinguna, en til þess
þurfa þeir að leggja fram peninga
sem tapast ef þeir vinna ekki málið.
Það segir okkur einfaldlega að þeir
séu ekki tilbúnir til að leggja neitt
undir og beijast fyrir málstað
sínum,“ sagði Árni S. Jóhannsson.
EvirmuDE
UtanborSsmótorar
Lrtlir 09 meðferilegir
Stórir og krafhnildir
2,3 til 300 hp
EWFIRUDE
létta j>ér róðurinn!
m
ÞÓRf
ARMULA 11
91-681500
OPID VIRKA DAQA KL. ð.00
18.00 OQ LAUQARDAQA 10.00
14.00
MMC Lancer GLX, órg. 1989, vélotst. 1500,
sjólfsk., 4ra dyra, brúnn, ekinn 30.000.
Verð kr. 850.000,- stgr.
AMC Cherokee Limitet, órg. 1989, vélarst.
4000, sjólfsk., 5 dyra, vínrouður, ekinn
23.000.
Verð kr. 2.500.000,- stgr.
MMC Colt GIi 16V, érg. 1989, vélarst. 1600,
5 gíra, 3ja dyra, rauður, ekinn 19.000.
Verð kr. 1.080.000,- stgr.
MMC Lancer HB GLX, órg. 1990,
1500, sjólfsk., 5 dyra, rauður, ekinn 18.000.
Verð kr. 950.000,- >
MMC Galant GTi 16V, órg. 1989, vélarst. MMC Pajero SW, órg. 1988, vélarst. 2600,
2000,5 gíro, 4ra dyra, hvítur, ekinn 27.000. 5 gira, 5 dyra, grór, ekinn 57.000.
Verð kr. 1.500.000,- stgr. Verð kr. 1.750.000,- stgr.
ATH!
Inngangur
frá
Laugavegi
il OTAÐIfí fíl/ Ml
LAUGAVEGI 174 — SIMI 695660
AATH!
Þrlggja Ara Abyrgðar
skirleini lyrir Milsubishi
bilreiðir gildir frá
tyrsU skrAningardcgi
■j.uitir.nu.
EMŒlittlxlnfflnm
Minnihlutinn og nýr borgarstjóri
Eins og við mátti búast, eru skiptar skoðanir um þá niðurstöðu,
sem varð í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna í fyrradag um
kjör nýs borgarstjóra í stað Davíðs Oddssonar. í Staksteinum
í dag er vitnað til ummæla þriggja borgarfulltrúa, Alþýðubanda-
lags, Framsóknarflokks og Nýs vettvangs um niðurstöðu Sjálf-
stæðismanna.
Ekkivalinní
kosningnm
I viðtali við Tímann í
gær um kjör Markúsar
Arnar Antonssonar i
embætti borgarstjóra,
segir Sigurjón Péturs-
son, borgarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins m.a.:
„Þessi maður hefur
reynslu í borgarmálum.
Hann var ekki valinn til
þess í kosningum af
Reykvíkingum að gegna
þessari stöðu, heldur ein-
ungis af Davíð Oddssyni.
Þetta sýnir ljósast, hvað
ósamkomulagið er mikið
hman Sjálfstæðisflokks-
ins og hve vandræða-
gangurinn er mikill. Það
hefur aldrei gerzt fyrr,
að það hafi þurft að leita
út fyrir borgarsljómar-
flokk Sjálfstæðismaima
vegna skorts á hæfum
mönnum þar.“ Sigurjón
Pétursson sagði jafn-
framt: „Það er greinilegt
að í síðustu kosningum
var bara kosinn eiim
borgarfulltriii Sjálfstæð-
ismauna og hinir eru við-
hengi við hann.“
Uppgjöfhjá
Sjálfstæðis-
mönnum
Sigrún Magnúsdóttir,
borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, sagði i
viðtaU við Tímann i gær:
„Þetta er mikil uppgjöf
hjá Sjálfstæðismönnum.
Þetta opinberar algjör-
lega sundnmgina og
vandræðaganginn, sem
ríkir í röðum Sjálfstæðis-
marnia. Þess verður ekki
langt að biða, að flokkur-
inn klofni. Það sést hvar,
sem borið er niður, hvort
sem það er innan flokks-
ins eða í Iandsmáiunum.
Það hefur verið aðal bar-
áttumál þeirra og þeir
hafa alla tið haldið því
fram, að þeir myndu ekki
velja sér liorgarstjóra
nema úr sínum röðum.
Þeir hafa ætíð sagt, að
borgarstjóri ætti að vera
kjörinn fuUtrúi með at-
kvæðisrétti. Með þessu
eru þeir að bijóta gegn
borgarbúum, því þeir
sögðu í kosningabarátt-
unni, að verið væri að
kjósa m.a. borgarstjóra
tU fjögmja næstu ára ...
Markús Öm verður ekki
með atkvæðisrétt. Hami
er embættismaður en
ekki kjöriim fuUtrúi og á
því er töluverður munur.
Eg býð samt Markús vel-
komhm til starfa og
vænti góðs samstarfs."
Alitshnekkir
fyrir fulltrúa
Sjálfstæðis-
flokks
Ólína Þorvaröardóttir,
borgarfuUtrúi Nýs vett-
vangs, segir í samtali við
Alþýðublaðið í gær: „Sú
staðreynd, að þeir verða
að leita út fyrir raðir eig-
in borgarfulltrúa þrátt
fyrir ítrekaðar yfirlýs-
ingar um, að það væri
ekki við hæfi, þá hlýtur
þessi niðurstaða að vera
álitshnekkir fyrir sitjandi
fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins. Það hefði verið
skemmtilegra fyrir
Markús Om og Sjálf-
stæðismenn í þessu til-
felli að leita álits Reyk-
víkinga í þessu máli, eins
og borgarfulltrúar Nýs
vettvangs lögðu reyndar
tíl.
Nýgerð skoðanakönn-
un gefur til kynna að vilji
borgarfuiltrúa var á þá
lund, að þeir iiefðu eitt-
hvað um þetta niál að
segja. Við því varð ekki
orðið og það segir sitt
um vinnubrögð imian
Sjálfstæðisflokksins. Um
manniim sjálfan hef ég
það að segja, að hann
hefur staðið sig vel sem
útvarpsstjóri, hann hefur
sinnt málefnum stofnun-
arinnar af faglegri þekk-
ingu og borið hag hennar
fyrir bijósti og ég vænti
þcss að sjálfsögðu, að
hann muni viðhafa sömu
vhmubrögð sem borgar-
stjóri. Ég óska honum til
hammgju með tilnefning-
una og get ekki annað
en látið velfarnaðaróskir
fylgjæ Hvað sem um
ágæti Markúsar Arnar
er að segja, þá verður
haim ekki dæmdur af
öðru en verkunum, þau
eiga eftir að koma í Ijós.
Hins vegar er þetta nöt-
urleg niðurstaða fyrir þá
borgarfulltrúa Sjáifstæð-
isflokksins, sem voiu
fmuir að renna vonar-
auguni tíl borgarstjóra-
stólsins.“
JWTR
SÍMINN ER
689400
BYGGT & BUIÐ
KRINGLUNNI
FOSTUDAGUR TIL FJAR
GARDÚÐARAR
i DAG
Á KOSTNAÐARVERÐI