Morgunblaðið - 21.06.1991, Síða 10
reet jwOi .rs auo^auTgö’í aia/uaiíUóaoM
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR "2T. JUNI 1991
Flaututónleikar
Guðrún S. Birgisdóttir
Martial Nardeau
_________Tónlist______________
Jón Ásgeirsson
Guðrún S. Birgisdóttir og Mart-
ial Nardeau flautuleikarar héldu
tónleika í Listasafni Sigutjóns
Ólafssonar sl. þriðjudag og fluttu
tónverk eftir Telemann, Kuhlau,
Migot og Atla Heimi Sveinsson.
Tónleikarnir hófust á tveimur
þáttum úr sónötu fyrir tvær flaut-
ur, eftir Telemann og léku hjónin
þessa þætti á barokkflautur. Tónn
tréflautunnar er veikari en málm-
flautunnar og óstyrkari en býr
yfir einhveijum náttúrulegum
þokka, sem kom mjög vel fram í
frábærlega samstilltum leik
þeirra.
í tveggja þátta úrtaki úr Grand
duo cencertante í e-moll, eftir
Kuhlau var blásið á málmflautur
og var leikur hjónanna ekki síður
vel útfærður en í fyrra verkinu.
Sex litlar prelúdíur heitir verk
eftir Georges Migot en þar leikur
hann sér að því að herma eftir
ýmsum tegundum lævirkja og
annarra smáfugla. Ekki eru um
að ræða beinar náttúrulíkingar
heldur tónlist, þar sem reynt er
að framkalla stemningar, en
minna á atferli fugla og söng
þeirra. Þetta eru mjög fallega
unnin verk og voru sérdeilislega
vel leikin.
Lokaverkefni tónleikanna var
verk fyrir tvær flautur og segul-
band, eftir Atla Heimi Sveinsson,
er hann nefnir Handanheimar.
Verkið er í ijórum þáttum og eru
fyrsti og síðasti þátturinn fyrir
flaututvíleik en í miðþáttunum eru
hljóð og tónar af tónbandi eins
konar mótvægi við flautuleikinn.
Þtjár söngkonur iögðu til raddir
sínar, Inga Bachmann, Margrét
Pálmadóttir og Johanna Þórhalls-
dóttir, svo og börn úr leikskólan-
um Gullborg. í heild er verkið vel
samið, sérílagi þó jaðarþættirnir
en einnig var innsetning hljóðanna
oft skemmtileg áheyrnar, sérstak-
lega þátttaka barnanna í Gull-
borg.
Leikur Guðrúnar S. Birgisdótt-
ur og Martial Nardeau var tækni-
lega vel útfærður, gæddur sterkri
tilfinningu fyrir formgerð og stíl,
hvort sem viðfangsefnin voru bar-
okk, rómantík, franskar náttúru-
stemmningar eða nútímatónlist.
Jóhannes í Bónus:
Engar kvartamr
frá neytendum
JOHANNES Jónsson í Bónus
sagði í samtali við Morgunblaðið
að engar kvartanir hefðu borist
frá neytendum út af verðmerk-
ingu grænmetis hjá Bónus. Hins
vegar virtist samkeppnisaðilum
Bónusverslananna ekki falla að
grænmeti væri selt í stykkjatali.
Jóhannes sagði að núgildandi
reglugerð um vigtarstuðul hefði
ekki verið í gildi þegar Bónus hóf
starfsemi sína. Hins vegar hefði hún
verið sett nokkrum mánuðum síðar.
Jóhannes sagði að Bónus hefði
hunsað þessa reglugerð. „Kúnnam-
ir eru okkar húsbóndi og þeir eru
harður húsbóndi. Engar kvartanir
hafa borist frá viðskiptavinum okk-
ar út af verðmerkingu á grænmeti.
Við höfum enda verið að reyna að
gera eitthvað fyrir fólkið og það
hefur kunnað að meta það. Þess
vegna höfum við reynt að þybbast
við að breyta þessu fyrirkomulagi.
Okkur kemur ekki til hugar að
svindla á viðskiptavinum okkar
enda er fólk of vel upplýst til að
það sé hægt.“
Jóhannesi þykir einkennilegt að
reglugerð um vigtarstuðul skuli
hafa verið sett nokkrum mánuðum
eftir að Bónus tók til starfa. „Það
er engu líkara en þetta sé gert
okkur til höfuðs. Þó eru margar
vörutegundir seldar í stykkjatali hér
á landi. En Bónus má ekki selja
grænmeti í stykkjatali enda þótt
það sé greinilega það sem fólkið
vill.“ Aðspurður kvaðst Jóhannes
myndu hafa samband við verðlags-
stjóra þegar hann kemur frá útlönd-
um og ræða málin við hann.
Evrópumótið í brids:
Island í þriðja sæti eft-
ir sigur á Þýskalandi
Alslemma dæmd af íslenska liðinu en vannst aftur með áfrýjun
__________Brids_____________
GuðmundurSv. Hermannsson
ÍSLAND átti góðan dag í gær á
Evrópumótinu í brids. I 9. um-
ferð vann íslenska liðið það
þýska, 21-9 og einnig vannst
áfrýjun dóms í tapleiknum við
Pólland frá kvöldinu áður, sem
gaf Islandi 2 stig til viðbótar.
Island var í 3. sæti eftir 9 umferð-
ir en toppbaráttan er mjög hörð.
Staðan að loknum 9 umferðum
var þessi: Svíþjóð 185, Pólland_173,
ísland 169, Bretland 164,5, Ítalía
161, Sovétríkin 156, Frakkland
155, Noregur 154, Austurríki 146.
ísland spilaði við Austurríki í 10.
umferð í gærkvöldi og spilar við
Svisslendinga og Svía í dag.
Viðureign íslendinga við Evrópu-
meistara Pólvetja var nokkuð sögu-
leg. Guðmundur Páll Arnarson,
Þorlákur Jónsson, Aðalsteinn Jörg-
ensen og Jón Baldursson spiluðu
allan leikinn og staðan í halfleik
var 18-47, Pólvetjum í vil. í fyrri
hálfleiknum gerðist það að keppni-
stjóri dæmdi alslemmu af íslending-
um. Málið var þannig vaxið, að einn
íslenski spilarinn hækkaði í al-
slemmu eftir að félagi hans hafði
hugsað lengi áður en hann sló af í
hálfslemmu. Spilað er með skerm-
um þannig að meðspilararnir sjá
ekki hvorn annan, og því eiga svona
stöður síður að koma upp, en keppn-
isstjóri taldi að sá sem hækkaði í
alslemmuna hefði vitað að félagi
hans var að hugsa, og það hafi
getað haft áhrif á að sögnina. Þess-
um dómi var áfrýjað til dómnefnd-
ar, og hún breytti úrskurði keppnis-
stjóra í gær og taldi að hækkunin
í alslemmu hefði verið réttlætanleg
þrátt fyrir umhugsunina.
Seinni hálfleikurinn fór 14-42
fyrir Pólvetja. Eftir úrskurð dóm-
nefndar bættust svo 13 stig við
inneign íslands úr fyrri hálfleikn-
um, þannig að leikurinn fór 45-89
eða 8-22.
Fyrr á miðvikudaginum spiluðu
íslendingar við Tyrki í 7. umferð,
og unnu hann 21-9. Jón Baldursson
og Aðalsteinn Jörgensen spiluðu
allan leikinn en Guðmundur Páll
Arnarson og Þorlákur Jónsson, og
Örn Arnþórsson og Guðlaugur R.
Jóhannsson spiluðu sinn hálfleikinn
hvort._ Staðan í hálfleik var 43-26
fyrir ísland og seinni hálfleikur fór
48-30_. Leikurinn endaði því 91-56
fyrir ísland.
Alslemmur voru oftar sögulegar
hjá íslenska liðinu en í leiknum við
Pólveija. Önnur slík kom fyrir í leik
íslenska liðsins gegn Búlgurum í
4. umferð.
A/NS
Vestur
♦ G4
♦10862
♦ KG4
♦ 9863
Norður
♦ ÁD9753
♦ DG74
♦ -
♦ KD2
Austur
♦ 6
♦ 953
♦ ÁD98762
♦ 75
Suður
♦ K1082
♦ ÁK
♦ 1053
♦ ÁG104
í lokaða salnum var þetta síðasta
spilið í fyrri hálfleiknum og spila-
mennskan hafði gengið frekar
hægt. Aðeins tvær mínútur voru
eftir af leiktímanum en mjög
strangt er tekið á timabruðli á
mótinu og vinningsstigasektum
beitt miskunnarlaust. Þetta hefur
ef til vill haft áhrif á sagnir:
Vestur Norður
Örn
4 grönd 5 tíglar
pass 5 spaðar
Austur Suður
Guðl.
3 tíglar pass
dobl pass
pass 7 spaðar!
Sagnirnar tóku aðeins eina og
hálfa mínútu þótt Búlgarinn í vest-
ur reyndi að rugla andstæðingana
í ríminu með því að spyija um ása.
En fyrst Örn treysti sér til að spila
á 5. sagnstigi taldi Guðlaugur sig
eiga fyrir hækkun í að minnsta
kosti alslemmu. Þegar útspilið kom
á borðið voru 18 sekúndur eftir.
En Örn gat lagt upp um leið og
hann sá blindan og þeir Guðlaugur
forðuðu íslenska liðinu ekki aðeins
frá tímabruðlssektum heldur
græddu 13 stig á að ná þessari al-
slemmu.
Skýrsla OECD um íslensk efnahagsmál:
Mikilvægt að vinna að
frekari hjöðnun verðbólgu
MIKILVÆGT er að festa í sessi
þann árangur sem náðst hefur í
viðureigninni við verðbólgu og
vinna að frekari hjöðnun hennar,
segir í ársskýrslu OECD, Efna-
hags- og framfarastofnunarinn-
ar í París, um islensk efnahags-
mál sem birt var í gær. Þar seg-
ir jafnframt að stjórnvöld verði
að halda áfram þeim efnahags-
umbótum sem þegar hafi verið
byrjað á og mikilvægt sé að af-
nema þær takmarkanir sem enn
gildi á fjármálasviðinu.
I skýrslunni segir að meginvið-
fangsefni stjórnvalda á næstu árum
verði að mestu leyti hin sömu og á
síðustu árum en þróunin að undan-
förnu hafi engu að síður gert
íslenskt efnahagslíf betur í stakk
búið til að takast á við verkefni
tíunda áratugarins en það var í
upphafi þess níunda.
I skýrslunni er talað um að þrátt
fyrir að íslenskur sjávarútvegur,
sérstaklega fiskveiðar, séu vel rekn-
ar á alþjóðlegan mælikvarða, sé
engu að síður hægt að auka veru-
lega tekjur í greininni með hagræð-
ingu. Þá er bent á að mikilvægt sé,
til lengri tíma litið, að auka fjöl-
breytni í útflutningi, jafnvel þótt
væntanlegt álver sé tekið með í
reikninginn. Smæð landsins er þó
talin fela í sér að tiltölulega mikil
sérhæfing sé nánast óhjákvæmileg
en tæknilegar nýjungar, einkum á
sviði fjarskipta, geti komið til með
að opna nýja möguleika í þjónustu-
greinum. Til að nýta þessa mögu-
leika er talað um að mikilvægt sé
að færa sér í nyt sveigjanlegan
vinnumarkað og aðgang að alþjóða-
mörkuðum á sviði vöru- og fjár-
magnsviðskipta.
b
r\
Vr/
DÆLUR, VATNSHELDIR DUKAR, STUTAR OG FLEIRA SEM
ÞARF TIL AÐ GERA FALLEGA TJÖRN MEÐ GOSBRUNNI
REYNSLA - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA
SÖLUFÉLAG
GARDYRKJUMANNA
SMtÐJUVEGI 5. 2DOKÓPAVOGUR. SÍMI 43211