Morgunblaðið - 21.06.1991, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1991
15
Kvennahlaup 22. júní
eftir Lovísu
Einarsdóttur
Þá er að renna upp dagurinn sem
fjöldi kvenna um land allt hefur
beðið eftir. Margar hafa æft sig af
kappi og stefnt markvisst á þátt-
töku í hlaupinu, göngunni eða
skokkinu. Sl. laugardag mættu 130
konur til æfinga í Garðabænum.
Þar vaknaði sú hugmynd að halda
áfram að hittast á laugardögum kl.
11.00 og æfa saman. Þetta er gott
til eftirbreytni og sannar þá vellíðan
og þann árangur sem skilar sér í
reglubundinni þjálfun, samveru og
útiveru. Vonandi verða fleiri hópar
sem koma á eftir. Höldum allar af
stað!
Fáir kunna sig í fögru veðri heim-
an að búast segir gamalt máltak.
Þetta er vert að hafa í huga í
kvennahlaupinu. Gott er að hafa
með skjólgóðan og léttan fatnað
sem auðvelt er að binda um sig ef
KVENNAHLAUP
GARÐABÆR
1991
vel viðrar. íslenskt veðurfar er þess
eðlis að það er vissara að vera við
öllu búin. Betra er að koma snemma
á svæðið, helst ekki seinna en kl.
13.00. Skráning og afhending bola
hefst kl. 11.00. Það flýtir allri af-
greiðslu ef konur mæta tímanlega.
Áfram stelpur!
Ég vona að allar konur eigi
ánægjuríkan dag og hafi fundið sér
lífsstíl í formi góðrar hreyfingar.
Það er einn tilgangur hlaupsins
að vekja til vitundar ástundun í
íþróttum og líkamsrækt, sem skilar
sér í betri líðan í dagsins önn. Betri
líðan — bætt þjóðfélag.
Konur, höldum af stað!
Willem Brons í Is-
lensku óperunni
TÓNLEIKAR Willem Brons pían-
óleikara frá Hollandi verða í Is-
lensku óperunni Iaugardaginn
22. júní. Brons leikur þijár síð-
ustu píanósónötur Franz Schu-
berts. Tónleikarnir hefjast kl.
14:30.
Willem Brons fæddist í Arnhem
í Hollandi. Hann lærði m.a. hjá
Vlado Perlemuter í París og Louis
Hiltbrand í Genf. Árið 1968 vann
hann tvenn verðlaun í alþjóðlegu
píanókeppninni í Genf: „Prix avec
distinction á l’unanimité" og „Prix
Philippinetti á la memoire de Pad-
erwsky."
Brons leikur gjarnan tónlist Beet-
hovens, Schuberts og Schumanns.
Fyrir túlkun sína á verkum þessara
tónskálda hefur hann hlotið sérs-
takt lof gagnrýnenda. Brons hefur
alltaf haft mikið dálæti á tónlist
Schuberts og hefur um árabil sér-
hæft sig í túlkun verka hans.
Þrjár síðustu sónöturnar samdi
Schubert haustið 1828, tæpum
tveimur árum fyrir andlát sitt og
er þetta í fyrsta sinn sem þær eru
fluttar hérlendis á sömu tónleikun-
um. Willem Brons mun einnig fjalla
Willem Brons píanóleikari
um sónöturnar á tónleikunum.
Mánudagskvöldið 24. júní kl.
20:30 mun píanónleikarinn halda
tónleika á ísafirði í tengslum við
alþjóðlegt tónlistarnámskeið, sem
þar verður haldið dagana 24. til 30.
júní.
Fréttatilkynning.
Sunna Sigurðardóttir.
Doktorsritgerð
um vefjaflokka
í nautgripum
SUNNA Sigurðardóttir varði
doktorsritgerð sína við Sveriges
Lantbruksuniversitet í Uppsölum
6. júní. Nefnist ritgerðin Studies
of the class 11 genes of the major
histocompatibility complex in
cattle og fjallar um fjölbreytileika
vefjaflokka í nautgripum.
Andmælandi við vörnina var pró-
fessor Öysten Lie frá Norges Veteri-
nærhögskole í Osló. Sunna lauk B.
Sc. námi frá Líffræðideild Háskóla
íslands 1973. Hún er dóttir Oddrún-
ar Pálsdóttur og Sigurðar Ágústs-
sonar, gift Ólafí Pétri Jakobssyni
lækni og eiga þau þtjú börn.
I
sem slá í gegn!
ÁRMÚLA 11 - REYKJAVÍK - SÍMI 681500
Hefur þú kynnt þér hið ótrulega lága verð á sumarvörum IKEA.
Nokkur dæmi:
Sandmilla og bíll
Servíettur (50 stk. í pakka)
Diskamottur (4 í pakka)
290,-
Garðkanna (hvít)
\ \
Pappadiskasett með hnífapörum (fyrir 25 manns)
LONOborð
í sumarskapi
TOPI leiktjald
KRINGLUNNI 7 • SÍMI91-686650