Morgunblaðið - 21.06.1991, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1991
Hugmyndir Islendinga og Norðmanna
í EES-viðræðunum:
Svar EB kann
Morgunblaðið/Þorkell
Sjávarútvegsráðherra, utanríkisráðherra og embættismenn á fundi með fulitrúum í Samstarfs-
nefnd atvinnureúenda í sjávarútvegi í sjávarútvegsráðuneytinu í gær.
Ræða um gagnkvæmar veiðiheimildir
SAMSTARFSNEFND atvinnu-
rekenda í sjávarútvegi áttu í
gær fund með Þorsteini Páls-
syni sjávarútvegsráðherra og
Jóni Baldvini Hannibalssyni ut-
anríkisráðherra í gær þar sem
kynntur var samningsgrun-
dvöllur sá sem náðist á ráð-
herrafundi EFTA og EB í Lúx-
emborg á þriðjudag og hug-
myndir um gangkvæmar veiði-
heimildir á milli Islands og EB
um 2.600 þorskigildi af hálfu
beggja aðila.
Fulltrúar sjávarútvegsfyrir-
tækjanna vildu ekkert segja um
samningsdrögin eftir fundinn en
munu koma saman og ræða þetta
mál á fundi í dag. Rætt er um
að EB-ríki fái að veiða vannýttar
fisktegundir í íslenskri landhelgi
gegn því að íslendingar' fái að
veiða loðnu og rækju við Græn-
land.
að lig-gja fyr-
ir í Salzburg
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FASTAFULLTRÚAR aðildarríkja Evrópubandalagsins (EB) í Brussel
ræddu á fundi í gær hugmyndir Norðmanna og Islendinga til lausnar
deilunum um sjávarútvegshagsmuni í samningaviðræðunum um Evr-
ópska efnahagssvæðið (EES). Ákveðið var að vísa hugmyndunum til
vinnuhóps sérfræðinga sem á að skila áliti í dag, föstudag, en þá
munu fastafulltrúarnir freista þess að komast að niðurstöðu fyrir helg-
ina og er því hugsanlegt að hún verði kynnt á ráðherrafundi EFTA í
Salzborg í Austurríki á þriðjudag.
Það var samdóma álit þeirra emb-
ættismanna EB sem rætt var við í
gær að enn hefði ekkert samkomulag
verið gert við Fríverslunarbandalag
Evrópu (EFTA) um leiðir til lausnar
deilunum um sjávarútvegshagsmuni.
Samstaða hefði á hinn bóginn orðið
um það á ráðherrafundinum í Lúx-
emborg á þriðjudag að leysa deilu
þessa farsællega. Spænskur embætt-
ismaður lagði á það áherslu að EB
hefði enn ekki fallið frá kröfunum
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Skref í átt til sigurs íslendinga
Skrifað undir samninga um efnahagssvæði 28. júlí
FORMAÐUR utanríkismálanefndar segir fulla ástæðu til að ætla, að
með þeirri niðurstöðu, sem fékkst á fundi ráðherra EFTA og Evrópu-
bandalagsins í Luxemborg á þriðjudag, hafi verið stigið skref í áttina
að sigri í réttindabaráttu íslendinga. A fundi utanríkismálanefndar i
gær, kom fram að áætlað er að skrifa undir samning um evrópskt
efnahagssvæði til bráðabirgða í Helsinki þann 28. júlí.
„Það verður ekki sami hraði á
þessu og áður var búist við. Aðal-
samningamenn munu ekki sétja upp-
hafsstafi sína á samning í Saltsburg
24. júní, heldur 28. júlí i Helsinki.
Það eru því fimm vikur þar til nokk-
ur skuldbinding verður gefin og því
gefst tími til að undirbúa málið bet-
ur,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson
formaður utanríkismálanefndar við
Morgunblaðið í gær.
Ráðherrar hafa lýst því yfir, aði
í Lúxemborg hafí Evrópubandalagið
fallið frá kröfum um veiðiheimildir
í íslenskri landhelgi í stað tollfrjáls
aðgangs fyrir sjvarafurðir á mörkuð-
um bandalagsins. Hins vegar sé nú
rætt um að semja við bandalagið
um gagnkvæmar veiðiheimildir sem
nemi 2.600 þorskígildum. Eyjólfur
Konráð hefur talað mjög hart gegn
hugmyndum um slíka samninga, og
þegar hann var spurður um þetta í
gær, sagðist hann hafa alla fyrir-
vara á samþykki við slíkt.
„Það er ekki búið að semja endan-
lega um neitt. Og það verður ekki
gert nema í samráði við utanríkis-
málanefnd. En ég vakti sérstaklega
athygli á því á fundinum, að við
ættum enn óleyst mál við Noreg og
Danmörku á svæðinu frá Grænlandi
til Færeyja og á milli Jan Mayen og
Noregs. I annan stað, að við færum
inn í málaferli milli Dana og Norð-
manna um hvort miðlína eigi að
vera milli Jan Mayen og Grænlands.
Og að lokum að við skoðuðum sér-
staklega Jan Mayen samkomulagið
frá 1941. Allt snýst þetta meira og
minna um að leyfa einhveijar veiði-
heimildir á Svalbarðasvæðinu og við
getum mjög vel skoðað það hvaða
hlutdeild við gætum átt í slíku sam-
komulagi.
Þetta er einn liður í okkar baráttu
fyrir því að friða allt svæðið, frá
Noregsströndum til Kanada, með því
að færa út fullveldisréttindi sam-
kvæmt hafréttarsáttmálanum, ýmist
einir eða í samstarfi við aðra. Þar
eru hafsbotnsréttindi fyrsta skrefið,
og svo kæmu veiðiréttin.din á eftir,
og ég teldi allar líkur á að með .því
að vinna vel í þessu næstu fimm
vikumar, gætum við náð einu skref-
inu lengra í okkar baráttu," sagði
Eyjólfur Konráð.
Fundi utanríkismálanefndar verð-
ur haldið áfram í dag en honum var
frestað í gær. Utanríkis-, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra munu
koma á fund nefndarinnar í dag.
um veiðiheimildir fyrir aðgang að
mörkuðum bandalagsins og sagði að
verið væri að meta hvort hugmyndir
EFTA-ríkjanna um mögulegan
samningsgrundvöll væru aðgengileg-
ar. Hann sagði að Norðmenn hefðu
á miðvikudag lagt fram skriflegar
tillögur að samningsgrundvelli en
íslendingar hefðu ítrekað munnlega
hugmyndir sínar frá tvíhliða fundi
þeirra með fulltrúum framkvæmda-
stjómar EB fyrir hálfum mánuði um
lítilvæg, gagnkvæm skipti á veiði-
heimildum.
Embættismenn innan þeirrar
stjórnardeildar sem fer með sjávarút-
vegsmál eru sagðir mjög tortryggnir-
á að hugmyndir íslendinga og Norð-
manna gangi nógu langt fyrir EB.
Samkvæmt heimildum innan fram-
kvæmdastjórnarinnar telja þeir að
eina mögulega lausnin sé pólitísk
málamiðlun sem sniðgangi að um-
talsverðu leyti þá hagsmuni sem þeir
telja sig vera að veija. Bent er á að
fullt tollfrelsi á öllum sjávarafurðum
geti ekki verið þessari atvinnugrein
til framdráttar innan EB. Ekki er
búist við að neins konar samkomulag
liggi fyrir í þessu efni á fundi EFTA-
ráðherra með fulltrúum EB í Salz-
borg í Austurríki á þriðjudag.
Aðalsamningamenn EFTA áttu í
gær fund með starfsbræðrum sínum
frá EB um stöðuna í viðræðunum
eftir fundinn í Lúxemborg. Mjög erf-
iðlega hefur gengið að afla frétta
af þessum fundi og í gær voru tveir
norskir blaðamenn reknir út úr for-
stofu EFTA-byggingarinnar með
þeim orðum að þeir ættu þar ekkert
erindi þar sem mikilvægur fundur
færi fram í húsinu.
Starfsfólk Álafoss hf. á Akureyri:
Bæjaryfirvöld hafí forgöngn
um stofnun rekstrarfélags
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Ármann Helgason, starfsmaður Iðju, félags verksmiðjufólks á
Akureyri, á tali við nokkra starfsmenn þrotabús Álafoss hf. eftir
starfsmannafélagsfundinn í gær.
STARFSFOLK Alafoss hf. á Ak-
ureyri samþykkti á fundi sem
haldinn var í gær, eftir að fyrir-
tækið hafði verið úrskurðað
gjaldþrota, að beina því til Akur-
eyrarbæjar að hann hafi for-
göngu um að stofnað verði rekstr-
arfélag, sem leiti eftir að taka á
leigu vélar og viðskiptasambönd
þrotabús Álafoss hf. í þeim til-
gangi að tryggja þau störf og
hagsmuni sem í húfi eru. Jafn-
framt lýsti starfsfólk yfir ákveðn-
um vilja um að taka þátt í slíkum
rekstri með einhvetjum hætti.
Ólafur Ólafsson fyrrverandi for-
stjóri Álafoss hf. átti fund með
starfsfólki fyrirtækisins eftir að það
hafði verið úrskurðað gjaldþrota í
gærmorgun. Viðar Már Matthíasson
lögfræðingur gerði starfsfólki grein
fyrir lagalegri stöðu þess gagnvart
þrotabúinu og Olga Loftsdóttir trún-
aðarmaður upplýsti m.a. um at-
vinnuleysisbætur. Hún hvatti starfs-
menn til að taka höndum saman og
reyna til þrautar að koma í veg fyr-
ir að ullariðnaður í _bænum leggist
af. Fleiri starfsmenn fyrirtækisins
tóku í sama streng og lýstu jafn-
framt áhyggjum yfír hinni alvarlegu
stöðu sem upp væri komin, en tæp-
lega 200 manns starfa hjá fyrirtæk-
inu.
„Fólk er ekki bjartsýnt, en þó má
segja að heldur hafi birt yfir þegar
ljóst varð að rekstrinum verður hald-
ið áfram fram til 5. júlí,“ sagði Ár-
mann Helgason starfsmaður Iðju,
félags verksmiðjufólks á Akureyri.
Hann sagði að menn vonuðust til
að þessi umþóttunartími yrði notað-
ur til að tryggja áframhaldandi
rekstur fyrirtækisins, því vissulega
óttaðist starfsfólkið hvað við tæki.
Starfsfólki var sem kunnugt er
Ólafur Ólafsson, fyrrv. forstjóri Álafoss hf. kemur út af fundi
með starfsfólki Álafoss á Akureyri í gær. Á bak við hann má sjá
Viðar Má Matthíasson lögmann Álafoss.
sagt upp störfum um síðustu mán-
aðamót og taka fyrstu uppsagnir
gildi nú um mánaðamót, júní/júlí.
Ármann sagði að væntalega yrði því
starfsfólki boðlh tímabundin atvinna
hjá þrotabúinu þar til lokað yrði 5.
júlí.
Á starfsmannafundinum í gær
voru sjö starfsmenn kosnir í starfs-
mannaráð, sem hefur það hlutverk
að hefja samstarf við Ákureyrarbæ
og aðra þá hagsmunaaðila sem hlut
kunna að eiga að væntanlegu
rekstrarfélagi.