Morgunblaðið - 21.06.1991, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JUNI 1991
19
Perlan opnuð í dag
NÚ ER verið að leggja síðustu hönd á Perluna, útsýnishús Hita-
veitu Reykjavíkur, sem verður opnuð í dag. Þá verður þar sam-
kvæmi á vegum Bjarna Ingvars Arnasonar veitingamanns sem sér
um allan rekstur í húsinu en í framhaldi af því hefst kvöldverður
fyrir boðsgesti Borgarstjórnar Reykjavíkur.
í tilefni af opnun Perlunnar efn-
ir Hitaveita Reyjavíkur til tveggja
daga ijölskylduhátíðar sem hefst
með því að húsið er formlega opn-
að almenningi kl. 14 á laugardag-
inn en síðan hefjast fjölbreytt
skemmtiatriði sem standa fram
undir kvöid. Má þar m.a. nefna
leik Lúðrasveitar Reykjavíkur,
Brúðubílinn, götuleikhús og Tóta
trúð, píanóleik, kórsöng og atriði
frá Listahátíð æskunnar, en hátíð-
in á að fara fram jafnt úti sem
inni eftir því sem veður leyfir.
Báða dagana verða barnaleiktæki
fyrir utan Perluna á meðan hátíð-
arhald stendur.
Myndlistarsýning verður í
tengslum við Vetrargarðinn sem
er á fystu hæð Perlunnar en þar-
er fyrirhuguð margvísleg starf-
semi, ss. sýningar, tónleikar og
markaður. í kjallara hússins er
fundasalur.
Engin starfsemi er á annarri og
þriðju hæð en á milli fyrstu og
fjórðu hæðar er lofthæð yfir tíu
metrar. A fjórðu hæð er veitinga-
búð þar sem framreiddir verða fjöl-
breyttir réttir á verði sem er við
allra hæfi, að sögn Bjarna Ingvars
Árnasonar. Á sömu hæð er einnig
„ísævintýrið", nýstárleg ísgerð
sem öll fer fram á staðnum úr
fersku hráefni. Af þriðju hæðinni
er gengið út á útsýnispalla Perl-
unnar en þar hefur verið komið
fyrir útsýnisskífum með öllum
ijaljahringnum.
Á fimmtu hæð Perlunnar er
veitingasalur sem getur rúmað
á þrðja hundrað manns í sæti
og snýst í heilan hring á klukku-
stund þannig að gestirnir sjá
yfir alla Reykjavík og nágranna-
byggðirnar úr sætum sínum. Á
sjöttu hæð er vínstúka staðarins.
Síðdegis á laugardag verður
þar viðhafnarveisla með
skemmtidagskrá þar sem fram
koma ýmsir af helstu skemmti-
kröftum landsins en fyrir all-
löngu var hvert sæti skipað í
þessari fyrstu opinberu veislu í
Perlunni.
■ NÚ um helgina munu Móeið-
ur Júníusdóttir ogKarl Olgeirs-
son, spila fyrir gesti á Hótel Borg
í nýuppgerðum skuggasal. Þau
Móeiður og Karl munu leika jazz
með blús ívafi. Móeiður hefur áður
sungið með jazzbandi Reykjavíkur
og lenti í öðru sæti í söngvara-
keppni framhaldsskólanna fyrir ári.
Karl hefur áður leikið með hljóm-
sveitinni Possibillies ásamt ýmsum
öðrum sveitum.
&HAMBORGARAR
VíLgosi og franski'
999--
HAMBORCARI iqq^
nV frönskum og sósu 325i
nVosti, frönskum og sósu 34S-
m/bacon, frönskum og sósu 37S-
2.faldur HVfrönskum og sósu 425*
GrtUkfuklíngitr
599%.
2 GrittkfúUBttgur
ADEINS 299&
BONVS
BORGARI
Leifur Breiðfjörð
Gallerí Kot;
Sýning Leifs
Breiðfjörð
SÝNING Léifs Breiðfjörð opnar
í Gallerí Koti í Borgarkringlunni
n.k. laugardag og stendur til 13.
júlí. Leifur sýnir þar steinda
glugga, olíumálverk og pastel-
myndir. Sýningin er opin á al-
mennum verslunartíma Borgar-
kringlunnar.
Leifur Breiðfjörð er fæddur 24.
júní 1945. Þetta er áttunda einka-
sýning hans hérlendis en einnig
hefur hann sýnt í Dresdner Bank í
Freuenstadt og Mainz í Þýskalandi.
Auk þess hefur hann tekið þátt í
samsýningum í Reykjavík, Stokk-
hólmi, Malmö, Hasselby, Edinborg,
Rostock, Taunusstein, Toronto,
New York, Tokyo og Kyoto.
Verk eftir Leif eru í mörgum
opinberum byggingum og kirkjum
heima og erlendis þ.á.m. í St. Giles
dómkirkjunni í Edinborg, Flugstöð
Leifs Eiríkssonar, Reykjalundi,
Landsspítalanum, Fossvogskapellu,
Bústáðakirkju og kirkjum víða í
Þyskalandi. Leifur hlaut Bjartsýnis-
verðlaun Bröste 1990.
Leifur er annar listamaðurinn
sem sýnir í Gallerí Kot í Borgar-
kringlunni. Sá sem fyrstur sýndi í
hinu nýja galleríi var Hringur Jó-
hannesson.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Vigdís Finnbogadóttir forseti og Jaques Mer sendiherra Frakka
gróðurselja eina birkiplöntuna í Vinarskógi.
Gjöf Mitterrands gróð-
ursett í Vinarskógi
Búðardalur:
Dagskrá um Jó-
hannes úr Kötlum
ÞEGAR sumarið gengur 'í garð
breytist starfsemi Frístunda-
hópsins Hana-nú í Kópavogi, á
þá lund að nánast öll starfsemi
felst í útiveru og gönguferðum.
Laugardaginn 22. júní munu fé-
lagar í bókmenntaklúbbi heimsækja
bernskuslóðir Jóhannesar úr Kötl-
um og flytja í því tilefni samfellda
dagskrá i tali og tónum úr verkum
skáldsins í Grunnskólanum í Búð-
ardal á laugardagskvöldið.
Ragnar Þorsteinsson, Hana-nú
félagi og fyrrverandi kennari, kynn-
ir. Dagskránni lýkur með því að
Sveinbjörn Beinteinsson kveður
rímur eftir Jóhannes úr Kötlum.
Soffía Jakobsdóttir leikari und-
irbjó og æfði dagskrána.
Selfossi.
FORSETI íslands, Jacques Mer
sendiherra Frakklands og
starfsfólk franska sendiráðsins
gróðursettu 74 birkiplöntur í
svonefndum Vinarskógi í landi
Kárastaða í nágrenni Þingvalla
s.l. þriðjudag.
Plönturnar eru gjöf Mitterrands
Frakklandsforseta til forseta ís-
lands og er ein planta fyrir hvert
ár sem Frakklandsforseti hefur lif-
að. í Kárastaðalandi eru 16
hektarar af nýtanlegu landi undir
skóg. Land þetta er nýtt af Land-
græðsluskógaátaki sem hófst í
fyrra og er fram haldið 1991. 16.
júni gróðursetti starfsfólk sendi-
ráða á íslandi 1000 plöntur á þess-
um stað.
Sig. Jóns.
ilmandi
w
Þeir rækta kaffijurtina af aldagamalli hefð við bestu
aðstæður í frjósömum fjallahlíðum Colombiu.
Við veljum bestu baunimar þeirra.
Þú færð ilmandi nýbrennt Colombiakaffi í
stjörnuflokki nánast beint úr kvörninni - njóttu þess.
m KAFFIBRENNSLA AKUREYRAR HF
Höföar til
. fólks í öllum
starfsgreinum!