Morgunblaðið - 21.06.1991, Side 25
ör tuui tc írimAnTjTPO'i mni,T!Ti/!iQ?TOM
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 21. JUNI 1991
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
25
20. júní.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 83,00 70,00 77,41 151,713 11.744.462
Þorskur/st. 77,00 77,00 77,00 0,753 57.981
Smáþorskur 70,00 67,00 67,74 5,073 343.643
Ýsa 103,00 65,00 76,78 42,759 3.282.917
Karfi 36,00 10,00 33,27 28,703 955.Ö12
Ufsi 52,50 50,00 51,23 28,380 1.453.833
Steinbítur 50,00 41,00 47,04 4,911 231.049
Langa 56,00 40,00 51,44 1,764 90.709
Lúða 375,00 75,00 314,59 0,484 152.103
Grálúða 79,00 79,00 79,00 3,968 313.487
Koli 69,00 35,00 49,20 14,112 694.338
Samtals 68,36 282,620 19.319.534
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 93,00 76,00 80,43 57,567 4.630.225
Ýsa 100,00 69,00 73,99 10,332 764.498
Karfi 40,00 20,00 24,76 33,667 833.595
Ufsi 49,00 43,00 48,22 13,259 639.349
Steinbítur 20,00 20,00 20,00 0,114 2.280
Langa 60,00 46,00 48,23 0,427 20.594
Lúða 295,00 265,00 286,30 0,069 19.755
Skarkoli 72,00 60,00 72,00 7,484 538.848
Keila 20,00 20,00 20,00 0,143 2.860
Blandað 28,00 28,00 28,00 0,067 1.876
Undirmál 69,00 37,00 66,89 1,940 129.764
Samtals 60,64 125,069 7.583.644
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 99,00 50,00 74,84 74,609 5.584.109
Ýsa 99,00 30,00 92,60 8,210 760.263
Karfi 52,00 32,00 37,33 12,474 465.591
Ufsi 42,00 20,00 39,30 9,980 392.196
Steinbítur 60,00 18,00 46,56 0,995 46.326
Langa 59,00 37,00 54,33 1,694 92.035
Lúða 325,00 100,00 219,61 0,656 144.065
Skarkoli 44,00 15,00 43,05 0,491 21.140
Keila 35,00 18,00 32,24 3,012 97.107
Rauðmagi 15,00 15,00 15,00 0,128 1.920
Skata 83,00 83,00 83,00 0,013 1.079
Skötuselur 250,00 120,00 201,24 0,129 25.960
Lýsa 15,00 15,00 15,00 0,020 300
Náskata 5,00 5,00 5,00 0,036 180
Koli 36,00 36,00 36,00 0,021 756
Blálanga 51,00 51,00 51,00 0,031 1.581
Undirmál 60,00 40,00 53,84 0,484 26.060
Samtals 67,80 112,983 7.660.668
Selt var úr Þresti og dagróðrarbátum. í dag verður selt úr Eldhamri, dagróðr-
arbátum og humarbátum.
FISKMARKAÐURINN í Þorlákshöfn
Þorskur 93,00 74,00 86,34 3,504 302.525
Ýsa 102,00 73,00 76,59 0,574 43.961
Karfi 33,00 28,00 28,82 30,930 891.324
Ufsi 50,00 50,00 50,00 1,547 77.350
Steinbítur 35,00 35,00 35,00 0,157 5.495
Langa 75,00 71,00 71,68 0,559 40.069
Lúða 250,00 250,00 250,00 0,038 9.500
Skarkoli 45,00 45,00 45,00 0,007 315
Keila 35,00 35,00 35,00 2,448 85.680
Skötuselur 410,00 160,00 585,26 0,097 56.770
Samtals 37,96 39,861 1.512.989
Bubbi Morthens
Rúnar Júlíusson
Bubbi og Rúnar á þakinu á Berlín
I DAG munu Bubbi Morthens og
Rúnar Júlíusson og félagar
þeirra í rokksveitinni GCD halda
útgáfutónleika af þakinu á veit-
ingastaðnum Berlín í Austur-
stræti.
Tónleikarnir munu hefjast klukk-
an 17 og munu þeir félagar leika
lög af nýútkominni hljómplötu
þeirra og jafnframt mun þar vera
samankomið upptökulið í þeim til-
gangi að taka upp efni fyrir tónlist-
armyndbönd þeirra í sumar.
Ranglát ummæli
Athugasemdir frá
Gísla Alfreðssyni,
Þj óðleikhússtj óra
ALMANIMATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar
1. júní 1991 Mánaðargreiðsiur
Elli / örorkulífeyrir(grunnlífeyrir) 12.123
'h hjónalífeyrir 10.911
Fulltekjutrygging 22.305
Heimilisuppbót 7.582
Sérstök heimilisuppbót 5.215
Barnalífeyrirv/1 barns 7.425
Meðlag v/1 barns 7.425
Mæðralaun/feðralaun v/1 barns 4.653
Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja barna 12.191
Mæðralaun/feðralaun v/ 3ja barna eða fleiri 21.623
Ekkjubætur/ekkilsbætur6mánaða 15.190
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða 11.389
Fullurekkjulífeyrir 12.123
Dánarbæturí8ár(v/slysa) 15.190
Fæðingarstyrkur 24.671
Vasapeningarvistmanna 7.474
Vasapeningarv/sjúkratrygginga 6.281
Daggreiðslur
Fullirfæðingardagpeningar 1.034,00
Sjúkradagpeningar einstaklings 517,40
Sjúkradagpeningarfyrir hvert barn á framfæri .. 140,40
Slysadagpeningareinstaklings 654,60
Slysadagpeningarfyrir hvert barn á framfæri ... 140,40
Vegna ummæla Nönnu Ólafs-
dóttur og Maríu Gísladóttur, í
fréttum Morgunblaðsins um
síðastliðna helgi, um málefni list-
dans á Islandi, óskar Gísli Al-
freðsson, Þjóðleikhússtjóri að
koma eftirfarandi á framfæri:
“Ég tel þessi ummæli mjög ós-
anngjörn í garð stjórnar Þjóðleik-
hússins, þar sem bæði ég og for-
maður Þjóðleikhússráðs, höfum
setið ótal fundi með ráðuneytis-
mönnum um málefni dansflokksins
og höfum sennilega eytt meiri tíma
í umfjöllun um málefni íslenska
dansflokksins en um nokkurt annað
málefni Þjóðleikhússins.
Ég vil líka taka fram, að í fyrsta
lagi, er dansflokkurinn óhemju dýr
í rekstri og skilar litlum tekjum. í
öðru lagi, hefur hann fengið stóran
skerf af framlagi til leikhússins og
Nýlistasafnið:
Sýningu Þór-
• •
dísar Oldu
og Nönnu
að ljúka
Á sunnudagskvöld lýkur skúlpt-
úrsýningu Þórdísar Öldu Sigurðar-
dóttur og Nönnu Skúladóttur, sem
staðið hefur yfír að undanförnu.
Góð aðsókn hefur verið að sýning-
unni og hún hlotið góða dóma.
langt því frá að hann hafi verið
afskiptur með eina fasta kortasýn-
ingu frá árinu 1983, nema núna
síðustu tvö árin, þar sem húsið
hefur verið í viðgerð. Á meðan
hefur flokkurinn sýnt í Borgarleik-
húsinu. I þriðja lagi, vil ég taka
fram að dansararnir í flokknum eru
í hæsta gæðaflokki, en því miður
bíða engir dansarar fyrir utan hann
þessa stundina, sem hæfir eru og
þarf væntanlega að bíða eftir þeim
í tvö ár. Því þyrfti, samkvæmt
kröfu væntanlegs listdansstjóra, að
flytja inn erlenda dansara. Það er
spurning um peninga sem ekki eru
til, eins og stendur. Það er stjórn:
valda að svara hvort þeir fást. Í
fjórða lagi, hefur rekstur dans-
flokksins verið erfíður, einkum
vegna þess að íslenskir danshöf-
undar hafa nánast aldrei náð að
höfða til áhorfenda hér á landi. Því
hefur þurft að flytja inn erlenda
danshöfunda, með ærnum kostn-
aði.
Á síðasta ári fór dansfiokkurinn
nær 50% fram úr fjárlögum og það
stefnir hugsanlega í enn hærri upp-
hæð á þessu ári. Þennan mismun
hefur Þjóðleikhúsið tekið á sig.
Það er rétt að ef hér á að reka
almennilegan dansflokk, verður að
horfast í augu við að það kostar
peninga, en það er ekki við stjórn
Þjóðleikhússins að sakast í því efni,
því leikhúsið hefur gert allt sem í
þess valdi stendur til að greiða
götur flokksins og er því afar rangl-
átt að kenna stjórn leikhússins um
það ástand sem ríkir.“
Réttarháls 2 og
Skógarhlíð 8:
Brunavörn-
um áfátt
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu byggingarnefndar um
að dagsektum verði beitt við
Réttarháls 2 þar sem bruna-
vörnum er enn áfátt. Meðal fyr-
irtækja sem þar eru til húsa er
Gúmmívinnustofan hf., þar sem
stórbruni varð í janúar árið
1989.
í byijun maí samþykkti bygg-
ingarnefnd að veita eigendum
Réttarháls 2, frest til að skila
verkáætlun um úrbætur vegna
brunavarna. Samþykkti r.efndin
að beita dagsektum að upphæð 5
þús. krónur frá og með 26. júní
1991 þar til fullnægjandi upp-
dráttum og verkáætlun hefur ver-
ið skilað.
Á sama fundi byggingarnefnd-
ar, var samþykkt að beita 5 þús.
króna dagsektum vegna úrbóta í
brunavörnum við hús Krabba-
meinsfélagsins í Skógarhlíð 8,
hafí fullnægjandi uppdráttum og
verkáætlunum ekki verið skilað
fyrir 26. júní 1991.
Olfus:
Skjálfta-
kippir í
Hveragerði
ÍBÚAR Hveragerðis urðu varir
við nokkra jarðskjálfta sem
mældust í kringum 1,5 stig á
Richter-kvarða á milli klukkan
9 og 10 að kvöldi 19. júní sl.
Það hefur þó dregið verulega
úr skjálftavirkni í Ölfusi eftir
jarðskjálftana tvo er mældust 4
stig á Richter-kvarðanum að
morgni 19. júní.
Að sögn Barða Þorkelssonar hjá
Veðurstofu íslands dró verulega
úr skjálftavirkni eftir tvo stærstu
jarðskjálftana sl. þriðjudagmorg-
un. Jarðskjálftahrinan er hefur
staðið undanfarna daga í Ölfusi
virðist því í rénun. Að kvöldi 19.
júní urðu þó nokkrir jarðskjálftar
í kringum 1,5 stig á Richter-kvarð-
anum í nágrenni Hveragerðis er
margir íbúar þar fundu fyrir.
I [ðSkífr
Meira en þú geturímyndað þér!
Tveir fíkniefnaleitarhund-
ar á Keflavíkurflugvöll
LÖGREGLUSTJÓRAEMBÆTT-
IÐ á Keflavíkurflugvelli hefur
fengið tvo Labrador fíkniefna-
sem munu leita að
Flugstöð Leifs
leitarhunda
fikniefnum
Eiríkssonar.
Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu tíu vikur, 10. apríl - 19. júní, dollarar hvert tonn
SVARTOLIA
125-
68/
"67
12A 19. 26. 3M 10. 17. 24. 31. 7J 14.
Hundarnir munu vinna hjá toll-
gæslunni þar og annars staðar hjá
embættinu eftir þörfum. Reiknað
er með að þeir hefji störf um næstu
mánaðarmót. Sérþjálfaður lög-
reglumaður mun stjórna þeim.
Þannig verður fíkniefnaleit á
Keflavíkurflugvelli verulega efld en
fram að þessu hefur embættið feng-
ið fíkniefnaleitarhunda frá lög-
reglustjóranum í Reykjavík.
Hundar þessir voru fengnir frá
dönsku ríkislögreglunni. Þeir komu
til landsins í vor og hafa verið í
sóttkví og frekari þjálfun. Dóms-
málaráðuneytið kostaði kaupin á
hundunum og sérþjálfun lögreglu-
manns til að stjórna þeim í Dan-
mörku.
Þessir fíkniefnaleitarhundar lög-
reglustjóraembættisins á Keflavík-
urflugvelli verða einnig notaðir við
fíkniefnaleit í nágrannasveitarfé-
lögum ef önnur lögreglustjóraemb-
ætti óska þess.