Morgunblaðið - 21.06.1991, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1991
Istess verði tekið til gjaldþrotaskipta:
Fjórir eigenda
tílbúnir að stofna
annað fyrirtæki
STJÓRN ístess hf. hefur óskað eftir því við skiptaráðanda
bæjarfógetans á Akureyri að félagið verði tekið til gjaldþrota-
skipta. Eignaraðilarnir fjórir, Akureyrarbær, Byggðastofnun,
Kaupfélag Eyfirðinga og Hraðfrystistöð Þórshdfnar hafa
ákveðið að taka þátt í stofnun nýs fyrirtækis um fóðurfram-
leiðslu.
Eyþór Þorbergsson skiptaráð-
andi sagði í gær að hann myndi
taka sér umhugsunarfrest áður en
hann kvæði upp úrskurð um hvort
fyrirtækið yrði tekið til gjaldþrota-
skipta, en það myndi hann væntan-
lega gera í dag, föstudag.
Einar Sveinn Ólafsson verk-
smiðjustjóri ístess sagði að fyrir-
tækið hefði reynt að eiga þriggja
til fjögurra daga birgðir af fóðri á
lager og því hefði verið unnt að
útvega viðskiptavinum félagins
fóður.
Að T. Skretting undanskildum
hafa hinir eignaraðilar ístess hf,
Akureyrarbær, Byggðastofnun,
KEA og Hraðfrystistöð Þórshafnar
ákveðið að taka þátt í stofnun nýs
fyrirtækis um fóðurframleiðslu, að
sögn Einars Sveins, en hann sagði
að áður en nokkuð yrði fastákveð-
ið varðandi nýtt fyrirtæki þyfti að
bíða eftir ákvörðun væntanlegs
bústjóra um á hvern hátt honum
þætti hag búsins best borgið.
„Það er brýnt að hlutirnir gerist
hratt, nýtt fyrirtækið þyrfti að
vera tilbúið til framleiðslu upp úr
helginni, því við þurfum að afla
okkur hráefnis og viðskiptavina,"
sagði Einar Sveinn. Reiknað er
með að 8-10 manns starfi við nýtt
fyrirtæki í upphafi og sagði Einar
Sveinn að stefnt væri að því að
efla starfsemina með útflutningi
síðar meir.
Píanókennarar á
Suzuki-námskeiði
UM HELGINA stendur yfir
námskeið Suzuki-píanókennara
í Tónlistarskólanum á Akureyri
á vegum islenska Suzuki-sam-
bandsins.
Suzuki-kennsluaðferðin byggist
m.a. á mikilli hlustun nemenda á
námsefnið, virkari þátttöku for-
eldra og sífelldri upprifjun, auk
þess að börnin byrji ung að læra,
gjarnan þriggja til fjögurra ára.
Þátttakendur á kennaranám-
skeiðinu hafa flestir lokið 1. stigi
kennaranámsins og stefna nú að
rétindaprófi á 2. og 3. stigi, en
stigin eru alls 5. Til að ljúka hveiju
stigi þurfa þátttakendur að hafa
lokið 5 námskeiðshelgum. Leið-
beinandi á námskeiðinu er Peter
Hagn-Meincke frá Danmörku.
Helga Ingólfs-
dóttir - Minning
Fædd 9. júlí 1928
Dáin 14. júní 1991
í dag verður til moldar borin frá
Fossvogskirkju tengdamóðir mín
Helga Ingólfsdóttir, Hringbraut 63,
Reykjavík, er lést á Landspítalanum
14. júní sl. eftir stutta en erfiða
sjúkdómslegu.
Helga fæddist á Vopnafirði 9.
júlí 1928. Foreldrar hennar voru
Þórunn Elísabet Magnúsdóttir frá
Böðvarsdal í Vopnafirði og Ingólfur
Erlendsson, skósmiður, Vopnafirði.
Ingólfur og Þórunn bjuggu á Hóli
ásamt Erlendi og Ásbjörgu foreldr-
um Ingólfs, en þeir feðgar ráku þar
skósmíðaverkstæði og útgerð en
einnig smá búskap til heimilis eins
og þá var venja í sjávarþorpum.
Þau Þórunn og Ingólfur eignuð-
ust tvær dætur, Helgu og Ásbjörgu
Hönnu. Ásbjörg er skrifstofumaður
á Selfossi, gift Magnúsi Gíslasyni,
bankaútibússtjóra.
Á Vopnafirði ólst Helga upp til
níu ára aldurs en þá veiktist móðir
hennar af berklum. Fjölskyldan
fluttist þá til Akureyrar en móðir
hennar dó á Kristneshæli 1938.
Ingólfur kvæntist aftur, Önnu
Valgerði Jónsdóttur frá Vopnafirði.
Þau stofnuðu heimili á Akureyri og
eignuðust eina dóttur, Erlu Þór-
unni, sölustjóra, Kópavogi. Erla er
i t SréÁtm i m íá lii
gift Sveini Gústavssyni, viðskipta-
fræðingi.
Helga gekk í skóla á Akureyri
og lauk gagnfræðaprófi frá Mennt-
askólanum á Akureyri 1944.
Ung gekk hún að eiga fyrri mann
sinn, Halldór Guðmundsson frá
Görðum á Álftanesi. Þau eignuðust
tvö börn: Ingu Þórunni, yfirkennara
Húnavallaskóla, en maki hennar er
Þorsteinn H. Gunnarsson, bóndi,
Reykjum, og Halldór, stærðfræðing
í Reykjavík, en maki hans er Ragn-
heiður Héðinsdóttir, matvælafræð-
ingur. Helga og Halldór slitu
samvistum.
Helga bjó lengstum með börn sín
í foreldrahúsum og naut þar stuðn-
ings stjúpmóður sinnar og föður,
allt þar til hún giftist seinni manni
sínum, Snæbirni Jóhannssyni cand.
mag. frá Litlu-Fellsöx, Skilmanna-
hreppi. Þau eignuðust tvær dætur:
Ónnu, húsmóður, Húsavík, gift
Ragnari L. Þorgrímssyni, tónlistar-
kennara, og Þórkötlu, háskóla-
nema, Hafnarfírði.
Helga og Snæbjörg settu saman
bú í Hafnarfirði þar sem Snæbjöm
var kennari við Flensborgarskóla.
Seinna fluttu þau til Akraness og
þjuggu þar í 11 ár.
Helga var fremur hávaxin,
grönn, liðlega vaxin og bauð af sér
kvenlegan þokka. Göngulag og
'I.iííí í:: a,
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fjölmenni var á Háskólahátíð sl. laugardag, frá
hægri á myndinni eru Ólafur G. Einarsson,
menntamálaráðherra, Haraldur Bessason, há-
skólarektor, Margrét Björgvinsdóttir, Sigrún
Stella Haraldsdóttir, Stefán G. Jónssson, for-
stöðumaður rekstrardeildar, og Sigríður Jóns-
dóttir. Á innfelldu myndinni er Sonja Sveins-
dóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri FSA að af-
henda Elísabetu Hreiðarsdóttur nýútskrifuðum
hjúkrunarfræðingi viðurkenningu frá sjúkra-
húsinu.
Fyrstu hjúknmarfræðingam-
ir útskrifaðir á háskólahátíð
HÁSKÓLAHÁTÍÐ var haldin í Akureyrarkirkju á laugardag að
viðstöddu fjölmenni. Fyrstu hjúkrunarfræðingarnir voru braut-
skráðir frá skólanum, alls 11, en einnig voru 6 brautskráðir úr
rekstrardeild.
Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra var viðstaddur Há-
skólahátíð og flutti ávarp, en einn-
ig voru þeir Sighvatur Björgvins-
son heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra, Halldór Blöndal,
landbúnaðar- og samgönguráð-
herra og Sverrir Hermannsson
bankastjóri Landsbankans og
fyrrverandi menntamálaráðherra
viðstaddir er fyrstu hjúkrunar-
fræðingarnir voru brautskráðir
frá skólanum.
Við heilbrigðisdeiid voru 65
stúdentar við nám síðasta vetur
og hafa um 30 nýnemar sótt um
nám við deildina fyrir næsta vet-
ur. Margrét Tómasdóttir hefur
veitt deildinni forstöðu frá upp-
hafí, en hún sóttist ekki eftir
áframhaldandi starfi við deildina.
Margrét mun starfa við Háskól-
ann á Akureyri fram í ágúst, en
síðan fara í rannsóknarleyfi.
Sex rekstrarfræðingar voru
einnig útskrifaðir á laugardag og
hafa þar með 27 lokið námi á
rekstrar- eða iðnrekstrarbraut, en
þetta er í þriðja sinn sem útskrif-
að er úr rekstrardeild. Aldrei hafa
jafnmargir innritað sig í deildina
og nú, en 40 umsóknir nýnema
hafa borist og um 20 nemar eru
á öðru ári, þá hafa 10 sótt um
framhaldsnám á gæðastjórnunar-
braut, en þar er um að ræða
tveggja ára viðbótarnám við deild-
ina er lýkur með BS-prófi. For-
stöðumaður rekstrardeildar er
Stefán G. Jónsson.
limaburður var fjaðurmagnaður og
léttleiki hvíldi yfir hreyfingum
hennar. Hárið var svart og liðað.
Hún var fríð sýnum og þetta sá
meistari Kjarval er hann dró upp
af henni mynd 1954.
Eg var svo lánsamuur að eignast
dóttur Helgu fyrir konu. Þá bjó
Helga ásamt manni sínum á Akra-
nesi, en hann var þá bókavörður.
Mér var vel tekið á heimili Helgu
og þar áttum við Inga griðland í
okkar fríum. Þar sem bókasafnið
var vinnustaður og bækur áhuga-
mál þeirra hjóna voru eðlinu sam-
kvæmt bækur ofarlega á umræðu-
lista fólks á heimilinu. Helga hafði
alist upp við bókahefð, faðir henn-
ar, Ingólfur, var mikill bókasafnari
og áhugamaður um bóklestur.
í þessu umhverfi fékk ég að
dvelja og umgekkst því Helgu all-
nokkuð og áttum við ágætlega skap
saman. Þarna var gott að ganga
til' stofu og taka orðaglímu við hús-
bóndann um stjórnmál, lífið og til-
veruna. Helga fylgdist vel með
umræðum og lagði sitt til málanna
og alltaf gat maður verið viss um
að manni væri borið kaffi inn í stofu
eftir kvöldmat.
Heimilið var í föstum skorðum
og húsbændur mátulega íhaldssam-
ir hvað varðar skipan húsbúnaðar.
Mér fannst Helga skemmtilega sér-
vitur hvað þetta varðaði, sérstak-
lega man ég eftir tveimur bókum,
sem alltaf lásu frammi hvor á sínum
sama stað, en það voru Passíusálm-
arnir og íslensk nútímalýrikk.
Á heimilinu voru að alast upp
tvær dætur Snæbjörns og Helgu,
Anna og Þórkatla, og lífguðu þær
upp á heimilið með ærslum sínum
og stelpuskap.
Frá Akranesi flyst Helga með
fjölskyldu sinni að Móabarði 12,
Hafnarfirði, en Snæbjörn hafði þá
hafið kennslu aftur við Flensborg-
arskóla. Þar átti Hélga sitt heimili
og garð sem hún vann mikið í og
hafði yndi af. Þau ár starfaði hún
hjá Félagsmálastofnun Hafnar-
fjarðarbæjar við heimilishjálp.
Hafði hún yndi af samvistum við
eldra fólk og átti auðvelt með að
deila lífsreynslu með því. Hún átti
frá unglingsárum við veikindi að
stríða og eftir því sem árin liðu
urðu þau veikindi henni erfiðari.
Hún hætti því að starfa utan
heimilis og helgaði krafta sína
heimili og barnabörnum, sem voru
orðin 10 er hún lést. Þau Snæbjörn
slitu samvistum og Helga bjó eftir
11, '' r ii ii i u*. ( i s
það ein. Héldu þau samt góðum
tengslum í gegnum fjölskyldur
barna sinna.
Síðustu veikindi hennar bar
skjótt að og hún varð að heyja
harða en stutta orustu sem allir
tapa, en fullviss þess að hún vinni
stríðið kveð ég hana með þessum
ljóðlínum Þorgeirs Sveinbjarnarson-
ar:
Feijan
sem bar
bros þitt yfir hafíð
hvarf ! djúpið
En tárinu er borgið
sem tók sér með henni
far.
(Þ.S.)
Þorsteinn H. Gunnarsson
Kveða frá dóttur og dóttursyni
Fæðast og deyja í forlögum
frekast lögboð eg veit,
elskast og skilja ástvinum
aðalsorg mestu leit,
verða og hverfa er veröldum
vissasta fyrirheit,
öðlast og missa er manninum
meðfætt á jarðar reit.
Kærleikur hreinn þá knýtir bönd
kringum tvö blómguð strá,
dregur fyrst saman önd að önd,
einingu myndar þá,
samverkar munni sál og hönd,
sínum tilgangi ná,
verkið er stórt, en völt sú rönd,
sem verður að byggjast á.
(Bólu-Hj álmar)
Þórkatla og Jóhann Ingi
■