Morgunblaðið - 21.06.1991, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1991
27
Steinunn Hannes
dóttir — Minning
Fædd 12. júlí 1900
Dáin 14. júní 1991
Mig langar til að segja nokkur
orð um Steinu frænku mína núna,
þegar hún kveður þennan heim.
Steina var alltaf til taks. Alltaf
tilbúin að hlusta og telja í mann
kjark. Alltaf tilbúin að miðla reynslu
sinni og innsæi.
Steina var fjölskyldu okkar ákaf-
lega mikilvæg og eftir að pabbi dó,
þá tók hún að sér að fylla það skarð,
sem varð við missi hans.
Það var alltaf svo gott að koma
til hennar, í eldhúskrókinn heima
hjá henni á Hofsvallagötu 16, setj-
ast niður, fá kaffi og pönnukökur.
Mér fannst eins og að Steina frænka
yrði alltaf. Heimurinn er einhvern
veginn fátæklegri nú, þegar hún er
ekki lengur hér.
Steina var manneskja sem hægt
var að deila með gleði og sorg. Allt-
af tilbúin að taka þátt í skemmtileg-
um uppákomum. Hún var alltaf að
og hélt sambandi við fólk á víð og
dreif.
Eftir að bömin mín fæddust,
fengu þau að njóta þess sama og
ég naut í æsku og þótt árin færðust
yfir þá var hún enn hin sama.
Að leiðarlokum finnst mér mikil-
vægt að þakka fyrir ævi frænku
minnar, sem skipti mig svo miklu
máli í öllu lífi mínu.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Anna Þ. Kristbjörnsdóttir
A þessari stundu langar mig til
þess að minnast Steinu, eins og hún
var kölluð, í fáeinum orðum. Það
má segja að hún hafi verið fastur
punktur í lífi okkar systkinanna síð-
an við misstum föður okkar á svip-
legan hátt. Alltaf var hún reiðubúin
að taka þátt í öllu sem maður var
að gera bæði í stóru og smáu. Dæmi
um það er þegar við hlupum saman
niður í geymslu nokkrum sinnum til
þess að hita og reyna og beygja
krossviðarplötu og búa þannig til
magasleða. Þegar ég varð eldri og
smíðaði mér seglskútu þá hjálpaði
hún mér af lífi og sál við seglsaum-
inn. Nú þegar ég minnist á sauma-
skap þá voru það ófáar flíkurnar sem
hún saumaði á okkur, ég minnist
sérstaklega úlpnanna og jakkanna.
Ekki má gleyma þeim fróðleik
sem hún miðlaði okkur af kjörum
fólks og basli á fyrri hluta aldarinn-
ar. Hún var hluti af gömlu kynslóð-
inni sem átti ekki neitt og skóp þær
allsnægtir sem okkar kynslóð nýtur.
Alltaf var gott að heimsækja hana
á Hofsvallagötuna, þar var passað
vel upp á það að ég fengi mitt uppá-
halds meðlæti með kaffinu. Þá var
oft gantast yfir borðum.
Nú síðustu ár ævi hennar þegar
heilsu hennar hrakaði kom berlega
í ljós nægjusemi hennar og góðvild
gagnvart þeim sem hún átti sam-
neyti við. Alltaf birti yfir henni þeg-
ar ég kom með fjölskyldu mína í
heimsókn á Elliheimilið Grund þar
sem hún dvaldist síðustu árin. Ætíð
átti hún gott í pokahorninu handa
Ólafi Svavari litla syni mínum sem
hún kallaði „litla heldri manninn“.
AUtaf mun minningin um Steinu
ylja mér og mínum.
Fari frænka mín í Guðs friði.
Ninni
Enn eitt aldamótabarnið, Stein-
unn Hannesdóttir, hefur kvatt þenn-
an heim södd lífdagá þótt ekki léti
hún það í ljós við kunningjana er
heimsóttu hana síðustu árin er hún
dvaldi á Elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund. Hún var alltaf létt í skapi
og ánægjulegt að hitta hana þar.
Ávallt var hún mannbætandi. Ég
reyni hér að minnast hennar með
þessum línum og þakka frænku
minni góð kynni af henni og fjöl-
skyldu hennar í yfir 60 ár.
Steinunn fæddist í Króki í Grafn-
ingi 12. júlí árið 1900, dóttir Hann-
esar Gíslasonar, bóndasonar þar, og
Sigríðar Björnsdöttur frá Bakkar-
holtsparti í Ölfusi, f. 28. október
1877, dáinn 30. júní 1955. Sigríður
fór 22ja ára gömul vinnukona að
Króki. Með henni og Hannesi tókust
ástir sem báru svo þennan ávöxt.
Ekki gat orðið af frekari kynnum
þeirra, þótt víst ekki á þeim tíma
efnilegt að bindast stúlku er ekkert
átti, ekki einu sinni foreldra, því
móður sína missti Sigríður tveggja
ára gömul og svo föður sinn þremur
árum seinna. Hann fórst með róðra-
skipi frá Þorlákshöfn 29. mars 1883.
Mæðgurnar dvöldust þarna um eins
árs bil, en þaðan fór Sigríður með
dóttur sína að Auðholtshjáleigu þar
sem hún kynntist Kristjáni Hjartar-
syni, bóndasyni þar. Þau giftu sig
1906, hófu búskap að Bakkarholti
og bjuggu þar eitt ár, en urðu þá
að víkja af jörðinni. Þaðan fóru þau
tii Reykjavíkur þótt það væri þeim
báðum þvert um geð. Jarðnæði lá
ekki á lausu í Ölfusinu. Ekki tók
betra við í Reykjavík, lítið var um
vinnu fyrir húsbóndann og sífellda
hrakningar úr einum ómanngengum
kjaliaranum í annan eða urðu að
sæta því að búa í köldum og þröng-
um risíbúðum. Því get ég þessa hér
að svona var líf þessa fólks er uppi
var á þessum tíma og því niiður var
alitof algengt. Unga fólkið í dag á
erfitt með að skilja þetta sem von-
legt er.
Lítt er mér kunnugt um skóla-
göngu Steinunnar, en trúi að fremur
hafí hún menntast af kynnum henn-
ar af baráttunni fyrir daglegu brauði
og kynnum af samferðafólki er hún
átti gott méð að umgangast, vinnu-
félögum er ávallt báru virðingu fyrir
mannkostum hennar og vandaðri
vinnu er hún skilaði bæði húsbænd-
um sínum og þá ekki síður vinum
og vandalausum, því margur leitaði
til hennar ef sauma þurfti flík. Ég
hef orð Unnar Eiríksdóttur, feld-
skera, fyn-verandi verkastjóra henn-
ar fyrir því, en þær störfuðu saman
í Feldinum í 23 ár, að Steinunni
hefði verið óhætt að trúa fyrir vönd-
uðustu saumum á fatnaði og iðulega
fékk hún hana til að segja til nýliðum
á saumastofunni og benda á ef hægt
væri að gera betur. Unnur sagði að
Steinunn hefði átt gott með að lægja
öldur ef risið hefðu á fjölmennri
saumastofunni og hlotið virðingu
stúlknanna fyrir. 1974, á ellefu
hundrað ára afmæli landnáms, hafði
Unnur verið beðin um að útvega
nokkra möttla og bað hún þá Stein-
unni að sauma þá fyrir sig, því fáar
konur kunnu til þeirra verka. Þessu
verki lauk hún með prýði.
Steinunn átti nokkur systkini
samfeðra er ég kann lítil skil á og
tvö systkini sammæðra er hún ólst
upp með.
Kristbjörn, bróðir hennar, fæddur
28. apríl 1907, dáinn 28. janúar
1956, járnsmiður, kvæntist Sigur-
laugu Sigfúsdóttur og áttu þau fjög-
ur börn. Hann lést af slysförum og
var það þungt högg fyrir heimili
hans. Þá var gott að eiga góða
frænku er reyndist því vel næstu
árin. Þegar hún svo þurfti á hjálp
að halda stóð ekki á fjölskyldunni.
Hún hefur bókstaflega borið Stein-
unni á höndum sér seinni árin og á
þakkir fyrir.
Anna Þuríður, systir hennar, fædd
3. júlí 1915, lést 11. maí 1945. Hún
giftist Gísla Jónssyni, sjómanni frá
Þingeyri, og eignuðust þau einn son
er drukknaði við fjöruborð fyrir vest-
an tveggja ára.
Fjölskylda Steinunnar var ákaf-
lega samhent frá fyrstu tíð, gestris-
in svo af bar og vinamörg alla tíð.
Ég kynntist þessu frændfólki mínu
barn að aldri, en þá bjó það í risi
að Bergstaðastræti 15 í þröngum
húsakynnum, en ekki þó þrengri en
svo að ávallt var nóg rúm þegar
frændfólkið úr Ölfusinu kom til
bæjarins og ekki var matur talinn
eftir þótt oft væri þröngt í búi. Fjöl-
skyldan bjó þar um 10 til 15 ára
skeið, en fluttist svo að Hofsvalla-
götu 16 árið 1935. Þar bjó Steinunn
með móður sinni og stjúpföður með-
an ævi þeirra entist. Ekki giftist
Steinunn né varð neinum bundin svo
vitað sé.
Lýk ég svo þessum orðum með
ósk um að hún eigi eftir að hitta
og njóta sinna nánustu sem áður eru
gengnir. Blessuð sé minning Stein-
unnar Hannesdóttur.
Magnús Þorbjörnsson
RÝMINGARSALA
llt að 60% afsláttur!!
Nýjar og notaöar tölvur,
jaðartæki og rekstrarvörur
Við rýmum til fyrir nýjum vörum og seljum því
takmarkað magn af ýmsum tækjum og rekstrar-
vörum með VERULEGUM AFSLÆTTI!
Dæmi um verð:
Notaðar PCtölvur...............frákr. 15.000
Nýjar PC tölvur................frá kr. 39.000
Nýjar AT tölvur m/hörðum diski.frá kr. 79.900
Ferðtölvur.....................frá kr. 189.000
Tölvuprentarar 15“.............frá kr. 19.900
Tölvumýs.......................frá kr. 1.990
Tölvuborð......................frá kr. 6.900
Pappírstætarar.................frákr. 19.900
Disklingar pr. stk.............frákr. 20
Reikniörgjörvar 08387SX-16.....frá kr. 29.000
Segulbandsstöðvar, frístandandi ...frá kr. 33.000
Faxpappír........................ótrúlegt verð
Þar að auki skjákort, harðir diskar
og margt, margtfleira.
Nú er um að gera að hafa hraðar hendur, því
aðeins er um takmarkað magn að ræða.
aiÆKNIVAL
Skeifunni 17, sími 68 16 65.