Morgunblaðið - 21.06.1991, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1991
31
Hjörtur Þorsteinsson,
Eyri íKjós - Minning
Fæddur 28. október 1902
Dáinn 9. júní 1991
í dalnum ljúfa í austurátt, þar
átti hún mamma hans heima.
Hann Hjörtur var fæddur að
Eyvindartungu í Laugardal 28.
október, 1902. Þau voru þijú börn-
in, sem fæddust að Eyvindartungu,
Hjörtur; móðir mín Sesselja, sem
var fædd 28. desember 1904 og
Georg, fæddur 12. desember 1907.
Börnin voru alls níu sem lifðu,
og voru eldri börnin fædd að Úthlíð
í Biskupstungum, þar sem foreldr-
arnir bjuggu, þar til þeir fluttu að
Eyvindartungu um aldamótin. Móð-
ir Hjartar, Arnheiður, var systir
hins þekkta bændahöfðingja Böð-
vars á Laugarvatni. Laugarvatn er
næsti bær við Eyvindartungu.
Hjörtur ólst upp í Laugardalnum,
fyrst að Eyvindartungu og síðan
hjá systur sinni, Jónínu, sem bjó
að Efra-Apavatni. Ungur að árum
fluttist hann suður til Reykjavíkur
til að leita sér atvinnu, eins og
margir aðrir ungir menn í þá daga.
Hann var svo heppinn að ráða sig
til Thors Jensen og hefja störf við
bú hans að Korpúlfsstöðum. Kynni
hans af Thor Jensen hafa líklega
haft varanleg áhrif á Hjört, því
hann varð sjálfstæðismaður til ævi-
loka, og engan mann dáði hann
meira en Ólaf Thors.
Á Korpúlfsstöðum kynntist hann
fyrri konu sinni, Sigrúnu. Þau flutt-
ust að Stíflisdal og bjuggu þar
nokkur ár. Þau eignuðust tvo börn,
Arnheiði og Þorstein. Hjörtur og
Sigrún voru nýflutt að Eyri í Kjós
þegar Sigrún lést kornung langt
um aldur fram. Þetta var mikill
missir fyrir Hjört. En Hjörtur var
ekki öllum heillum horfinn. Hann
var svo heppinn að til hans réðst
ung ráðskona, Kristín, sem síðar
varð seinni kona hans og lifír hún
mann sinn. Þau Kristín eignuðust
þijú börn.
Það má segja um Hjört, að hann
hafí verið heppinn með lífsföru-
nauta og að eignast fimm yndisleg
börn. Kristín reyndist öllum bömun-
um besta móðir og börn Hjartar
af fyrra hjónabandi elska hana eins
og eigin móður.
Við bræðurnir kynntumst Hirti
ungir að árum, því hann kom alltaf
í heimsókn á heimili okkar þegar
hann kom til Reykjavíkur. Hann
var sérstaklega léttur í lund og allt-
af hrókur alls fagnaðar hvar sem
hann var. Örn bróðir minn var svo
heppinn að fá að dvelja sumarlangt
hjá Hirti og Kristínu þegar hann
var 13 ára. Á meðan var ég kúa-
smali í Flóanum.
Ég öfundaði Örn alltaf af að fá
að dvelja hjá Hirti. Á seinni árum
komum við öðru hvoru í heimsókn
að Eyri. Þar var alltaf gaman að
koma og ræða landsmálin við Hjört.
Hann var alltaf sami hörku sjálf-
stæðismaðurinn og mátti ekki heyra
minnst á framsókn, og hélt því
fram, að stefna framsóknar í land-
búnaðarmálum hefði verið röng frá
byijun. Hann virtist hafa haft rétt
fýrir sér allan tímann.
Hann stundaði búskap langt
fram á síðasta ár þegar heilsan tók
að bila. Síðan hefur hann öðru
hvoru orðið að dvelja á spítala.
Hann fékk heimfararleyfi þennan
sunnudag 9. júní og dvaldi að Eyri
þennan dag. Þar fékk hann hægt
andlát. Svona hefði Hjörtur óskað
sér að fá að fara, því hann vildi
aldrei flytja frá Eyri. Eftir er minn-
ingin um góðan dreng og elskuleg-
an frænda. Ég kveð Hjört með
söknuði.
Haukur Ciausen
Nágranni og góður samstarfs-
maður er fallinn í valinn, eftir lang-
an og gifturíkan starfsdag.
Hann var aldamótamaður,
hörkuduglegur og lét hvergi deigan
siga. Hjörtur var búhöldur góður,
sem marka má af því, að hann var
einn af þeim er fengu það ábyrgð-
armikla verk að velja líflömb fyrir
bændur árið 1951 á Vestfjörðum
vegna fjárskiptanna eftir mæðiveik-
iniðurskurðinn í Kjósarsýslu.
Hjörtur var ættaður frá Eyvind-
artungu í Laugardal. í Kjósina flutti
hann á manndómsárum sínum með
konu sína Sigrúnu Einarsdóttur frá
Flatey á Breiðafirði. Hún varð ekki
langlíf og stóð hann einn uppi með-
tvö ung börn þeirra.
Síðari kona hans var Kristín
Jónsdóttir frá Þúfu í Kjós, lifir hún
mann sinn ásamt þremur bömum
þeirra.
Allt líf Hjartar hefur einkennst
af sterkri skaphöfn og lífsgleði.
Hann var mikill hestamaður og
söngmaður góður, enda einn af
stofnendum Karlakórs Kjósveija,
sem að margir munu minnast með
aðdáun. Þá var hann einn af stofn-
endum Kirkjukórs Saurbæjarkirkju
á Kjalamesi. Þar vann hann mikið
og gott starf. Þegar söngæfingar
vom á heimili þeirra hjóna, var það
ekki átroðningur eða ónæði, þvert
á móti heiður og var hann hrókur
alls fagnaðar.
Frú Kristín bar svo fram íjúk-
andi kaffi og meðlæti, þau voru
vissulega góð heim að sækja þessi
heiðurshjón á Eyri.
Heyrt hefi ég því fleygt að þegar
hús þeirra hjóna var í byggingu,
hafi Hjörtur bent á eina vistarver-
una og sagt: „Þetta verður nú söng-
stofan.“
Honum var ekki fisjað saman
honum Hirti. í rúma tvo áratugi
var hann í sóknarnefnd Saurbæjar-
kirkju og fáir hafa skipað þann
sess betur. Þá Var hann einnig
meðhjálpari rúma tvo áratugi, á
eftir Ólafi Eyjólfssyni kirkjubónda,
en hann andaðist árið 1959. í hjarta
og huga þessara manna var það
mikill heiður að hljóta þann sess
að skrýða prestinn sinn og lesa
bænarorð. Þá vom kirkjur vel sótt-
ar og hver jörð setin.
Kærar þakkir fyrir það óeigin-
gjarna starf sem Hjörtur vann
kirkju sinni í fj'ölda ára.
Eiginkonu, börnum og öðrum
ástvinum votta ég innilega samúð.
Blessuð sé minning hans.
Fyrir hönd sóknarnefndar Saur-
bæjarkirkju, Kjalarnesi,
Hulda Pétursdóttir, Útkoti.
Ég stóð í pokabuxum og hand-
pijónaðri lopapeysu, sem mamma
hafði saumað og pijónað, með
sveitaklippingu og í gúmmískóm,
tilbúinn til þess að fara í sveit í
fyrsta sinn á ævinni. Þetta var á
stríðsárunum. Pabbi og mamma
óku mér í sveitina á Fordbíl árgerð
1934. Ferðinni var heitið að Eyri í
Kjós tii Kristínar Jónsdóttur, hús-
inu en ég á Karlagötunni, og hefur
okkar vinskapur staðið síðan.
Alla okkar barnaskólagöngu sát-
um við saman og þá var nú margt
brallað.
Ég man sérstaklega eftir skíða-
ferðalagi sem að við áttum kost á
að fara í með skólanum. Þá voru
ekki til skíði á hveiju heimili. Við
Helga fengum lánuð hjá skólanum
ein skíði til afnota og þótti okkur
þetta góður kostur, því þá gátum
við rennt okkar saman niður brekk-
ur, og þannig fór að þegar upp í
brekku kom, settum við skíðin sam-
an, Helga settist fyrir framan og
ég fyrir aftan og þannig renndum
við okkur niður, hveija bununa eft-
ir aðra. Ég held ég megi segja að
þetta hafl verið ein af fáum skíða-
ferðum okkar Helgu, ef ekki sú ein-
asta.
Já, þetta voru unglingsár okkar,
mín og vinkonu minnar, og þa'var
nú margt sér til gamans gert.
Svo vildi til að ég og fjölskylda
mín fluttum í Drápuhlíð 7 árið 1947.
Á svo til saman tíma flutti Helga
með sinni fjölskyldu í Drápuhlíð 48.
Okkur stöllum þótti þessi Drápuhlíð
afar langt úr bænum, og þótti okk-
ur þá gott að vera ekki langt frá
hvor annarri.
í Drápuhlíð kynntumst við Helga
okkar góðu vinkonum og stendur
sá vinskapur enn þann dag í dag.
Hún vinkona mín var sérstök
manngerð að mínum dómi. Hun var
ljúf, sérstaklega góð, og með ólík-
indum þolinmóð, vildi allt fyrir alla
gera og hefur sjálfsagt ekki sagt
oft „nei“ um ævina.
Helga giftist eftirlifandi manni
sínum Erlingi Bjarna Magnússyni,
þann 8. júní 1957, og hófu þau
búskap á Bæ í Reykhólasveit.
Fyrstu búskaparárin sín bjuggu þau
á bæ, sem Erlingur er ættaður frá,
en reistu sér síðan nýbýli á þeirri
jörð, sem nefnd var Melbær.
Þangað var gott að koma, enda
oft gestkvæmt. Þar naut ég og mín
fjölskylda gestrisni þeirra hjóna í
ríkum mæli.
Helga og Erlingur eignuðust sjö
börn. Þau urðu fyrir þeirri miklu
sorg að missa son sinn Hinrik af
slysförum í nóvember 1989.
Elst þeirra barna er: Johanna
fædd 7. janúar 1957. Þá er Ragnar
Sævar fæddur 4. apríl 1958. Næst-
ur er Höskuldur Geir fæddur 7.
október 1960, Hinrik fæddur 23.
september 1962, látinn 23. nóvem-
ber 1989. Svo Guðbjörg Erna, fædd
14. nóvember 1964. Síðan Ellen
fædd 4. ágúst 1970, og yngst er
María Erla fædd 8. janúar 1972.
Guðbjörg mín, þér og börnum
þínum votta ég mína inniiegustu
samúð.
Megi Guð geyma minninguna um
kæra dóttur og systur. Erlingur
minn, ég og Páll biðjum Guð að
blessa þig og börnin þín.
Minningin um góða eiginkona og
móður mun eftir lifa. Ég kveð mína
æskuvinkonu með þessari bæn:
Nú legg ég augun aftur,
ó, guð þinn náðar kraftur,
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfír láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.“
(Sv. E.)
Hrafnhildur Magnúsdóttir
freyju og Hjartar Þorsteinssonar,
bónda. Pabbi og Hjörtur höfðu
kynnst á Korpúlfsstöðum er þeir
unnu þar báðir við sveitastörf hjá
Thor Jensen stórbónda með meiru
og urðu góðir vinir uppfrá því. Síð-
ar treystust vináttuböndin þegar
faðir minn hóf akstur á mjólk um
Kjalames og Kjós.
Á Eyri var ég í nokkur sumur
og hafa þau orðið mér ógleyman-
leg. Það er óhætt að segja að lengi
býr að fyrstu gerð. Þar lærði ég,
óharðnaður unglingur í faðmi fag-
urrar sveitar að umgangast náttúr-
una og skepnurnar af þeirri virð-
ingu og alúð sem þessi sæmdarhjón
innprentuðu í barnssálina. Áhugi
minn fyrir gróðri, fuglum og öðrum
dýrum má hiklaust rekja til dvalar
minnar á Eyri.
Hjörtur Þorsteinsson var Bóndi,
með stórum staf, af lífí og sál.
Hann var ekki menntaður maður
úr skólum menntakerfisins, en hann
var lærður maður á sínu sviði,
menntaður úr skóla lífsins, besta
skóla sem til er.
Eftir að ég hætti að vera sumar-
langt á Eyri liðu árin og ég kom
við hjá þeim hjónum af og til. En
að mörgum árum liðnum var þráð-
urinn tekinn upp á ný. Við hjónin
komum að Eyri 17. júní 1972 og
ræddum við þau hjón um möguleika
á því að fá skika til þess að reisa
okkur sumarhús og gróðursetja tré.
Okkur var tekið opnum örmum, ég
gleymi aldrei þeim móttökum.
Hjörtur sagðist fagna því að fá
okkur til sín því hann hefði í raun
ávallt litið á mig sem hálfgildings
son sinn eftir sumardvölina hjá
honum forðum. Við gengum um
landið og hann benti mér á ýmsa
staði og alveg sérstaklega á einn
sem honum sjálfum fannst fallegur.
Það var skjólgóður staður við bæ-
jarleikinn fyrir neðan veg.
En ég hafði svo sterkar tilfinn-
ingar til hólmans Búðarhöfuðs, trú-
lega vegna þess að hann tengist
bernskuminningu úr sveitinni um
fyrstu ábyrgðina sem mér var falin
í lífinu — að gæta þess að kýrnar
flæddi ekki úti í hólmanum. Þar
valdi ég mér stað og hef verið þar
síðan með bústað og tijárækt. En
á skikanum skjólgóða við bæjarlæk-
inn hefur Sigrún, dóttir Hjartar og
Kristínar nú reist sér bústað og
einnig Adda og Steini þar í grennd-
inni og fer vel á því.
Þegar við Hjörtur gerðum samn-
ing um skikann ítrekaði hann að í
raun þyrfti engan samning því að
hann liti á mig eins og eitt af börn-
um sínum, en ef ég endilega vildi
gætum við gert skriflegan samning.
Hann vildi helst af öllu láta hand-
sal nægja að góðum og drengilegum
sið, sem nú er kallað heiðursmanna-
samkomulag og það varð úr.
Orð skulu standa. Því miður fer
þeim fækkandi sem þetta hafa í
heiðri. En orð Hjartar Þorsteinsson-
ar stóðu, hann var heiðursmaður.
Ég átti því láni að fagna að hitta
Hjört að máli 9. júní, þegar hann
var að koma heim að Éyri í heim-
sókn en hann hafði dvalið á Reykja-
lundi eftir stutta sjúkrahúsdvöl í
Reykjavík. Við áttum saman stund
tveir einir í herbergi hans og rædd-
um um margvísleg efni en þó aðal-
lega um gróðurinn, veðrið og bú-
skaparhorfur en það stóð honum
ávallt svo nærri. Hann var svo án-
ægður og glaður að vera kominn
heim að Eyri og í sveitina sína
kæru, Kjósina.
Síðar sama dag var ég kallaður
upp að Eyri og þá var hann allur.
Hann hvíldi í herberginu sínu og
það var mikil friðsæld yfir honum.
Að leiðarlokum vil ég þakka hon-
um allt sem hann veitti mér af
gæðum þessa mannlífs og þá miklu
vinsemd og föðurlegu umhyggju
sem hann sýndi mér alla tíð.
Ég bið guð að blessa hann og
við hjónin sendum Kristínu, börnun-
um öllum og öðrum vinum og ætt-
ingjum, samúðarkveðjur. Minningin
lifír um drengskapannanninn Hjört
Þorsteinsson.
Olafur Jensson
k ; '--a ”
Gistiheimilið Ósk á Akranesi.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Akranes:
Gistiheimilið Osk
hefur starfrækslu
Akranes.
GISTIHEIMILIÐ Ósk á Akranesi hefur nú hafið sumarstarfsemi
sína og verður það opið sumarmánuðina út ágústmánuð. Gistiheimil-
ið er á vetrum notað seni heimavist Fjölbrauteskóla Vesturlands
og er nokkuð miðsvæðis í bænum við hlið skólans á Vogabraut 4.
í gistiheimilinu er 31 tveggja
manna herbergi sem eru vel búinn
í alla staði. í hveiju herbergi er
eldunaraðstaða, ísskápur og bað.
Þá er setustofa með sjónvarpi og
eins er aðstaða til að þvo og þurrka
flíkur. Undanfarin ár hefur gisti-
heimilið notið vinsælda bæði hjá
innlendum sem erlendum ferða-
mönnum. Nokkuð er um að hópar
dveljist þar, enda er góð aðstaða
til fundarhalda og fyrir ráðstefnur
svo og aðrar samkomur. Hægt er
að fá bæði morgunverð og aðrar
máltíðir en það þarf að panta sér-
staklega.
Það eru tveir kennarar við skól-
ann, þeir Gunnar Magnússon og
Kári Haraldsson sem annst rekstur
heimilisins í sumar. Að sögn Kára
eru bókanir fyrir sumarið þegar
orðnar góðar og er hann bjartsýnn
á framhaldið. Kári segir að verði
á herbergjum sé stillt í hóf. Þann-
ig sé verð á eins manns herbergi
kr. 3.000 og tveggja manna her-
bergi kr. 4.400.
- J.G.
Útiskákmót á
Lækjartorgi
HIÐ árlega Útiskákmót á
Lækjartorgi verður haldið á
vegum Skáksambands íslands,
föstudaginn 21. júní 1991.
Þetta er í 10. sinn sem Lækjar-
torgsmótið er haldið og búist er
við þátttöku u.þ.b. 40 fyrirtækja
og tefla margir okkar bestu skák-
menn fyrir þeirra hönd. Mótið
hefst klukkan 15.