Morgunblaðið - 21.06.1991, Qupperneq 34
34
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) **
Þó að áfram miði í vinnunni
hjá hrútnum er ýmislegt heima
fyrir sem gerir honum erfitt
fyrir að ástunda áhugamál sín.
Honum fínnst á vissan hátt
þrengt að sér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Jafnvel þótt nautinu finnist
sumir vera tiliitssamir í
hvívetna er ekki víst að þeir
séu að sama skapi einlægir.
Það getur treyst á maka sinn,
en ætti að hafa allan vara á
sér varðandi önnur sambönd.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn er sáttur við fram-
göngu sína við að leysa ákveð-
ið verkefni af hendi, en á erf-
itt með að neita beiðni sem
honum berst.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ef krabbinn fer að grafast
fyrir um þær hvatir sem liggja
að baki ákvarðana fólks verður
hann ruglaðri í ríminu en
nokkru sinni fyrr. Það er eitt-
hvað óljóst í ástarsambandi
hans núna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið kann að hafa rétt fyrir
sér í því að einhver sé að reyna
að misnota góðvild þess. Slíkt
verður að stöðva þegar í stað.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Meyjan er áhrifagjöm í róm-
antískum skilningi í dag og
kann að vera nokkuð giám-
skyggn á fólk. Hún má njóta
kertaljósanna og kliðmjúkrar
tónlistar, en heilbrigð skyn-
semi verður einnig að fá sitt
rúm.
(23. sept. - 22. október)
Vogin er nógu óákveðin fyrir
þó að hún sé ekki að láta aðra
teyma sig út og suður. Hún
verður að taka afstöðu sjálf
og standa við hana.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) 9)j(0
Sporðdrekanum fínnst hann
vera innblásinn í þankagangi
sínum í dag, en hann ætti ekki
að gera hvem sem er að trún-
aðarvini sínum.
Bogmaöur
(22. nóv. -21. desember)
Bogmaðurinn ætti .aldrei að
láta teija sig á að aðhafast
eitthvað sem stríðir gegn heil-
brigðri skynsemi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Einlægni skortir á hjá stein-
geitinni eða ættingja hennar
eða vini. Þar þarf þó ekki að
vera neitt sviksamlegt á ferð-
inni.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1991
DÝRAGLENS
FERDINAND
SMÁFÓLK
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Vatnsberinn hjálpar oftlega
þeim sem er í nauðum, en
hann verður að gæta þess að
það sé ekki aðeins til að friða
samviskuna.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Fiskurinn er í vafa um ásetn-
ing náins ættingja eða vinar.
Það verður að fara að öllu með
gát þegar tilfinningasambönd
eru annars vegar.
Stjörnusþána á að tesa setn
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum gmnni
visindalegra staóreynda.
Hér stendur, að Joe Garagiola sé nú staddur í Hornaboltahöllinni!
Er það ekki frábært? Það þýðir að það er ennþá von fyrir okkur öll ,
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Hjónin Matthew og Pamela
Granovetter skrifa fastan dálk í
mánaðarrit bandaríska brids-
sambandsins, þar sem þau rífast
fyrir opnum tjöldum um sitt
hjartans mál - brids. í einum
pistlinum kvartar Matthew und-
an því að geta ekki boðið vinum
í heimsókn án þess að þurfa að
hlusta á konu sína segja söguna
um „hræðilegasta spil ferilsins".
Pamela tók upp þessa hönd í
rúbertubrids í Cavendish-
klúbbnum, á hættu gegn utan:
Norður
y ÁKG1098
♦ K1098532
Vestur Norður Austur Suður
- - 3 lauf 3 spaðar
Pass ?
Á þessu stigi sögunnar eru
áhorfendur undantekningar-
laust spurðir álits.
„Ja - segja hlustendur - hvað
myndu 4 lauf þýða? Lofar sögn-
in stuðningi við spaðann eða
sýnir hún hina litina?"
„Hvur veit,“ skýtur Matthew
inn í, “ en Pamela stóðst ekki
mátið að segja 4 lauf.“
Vestur Norður Austur Suður
- - 3 lauf 3 spaðar
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 5 grönd Pass 7 lauf
Dobl 7 tíglar Pass ???
Matthew hefur enn orðið:
„Eru 4 tíglar suðurs endilega
litur? Veit hann nákvæmlega
hvað er að gerast?“
Pamela: „En þegar ég býð upp
á alslemmu í tígli, hlýtur það
að liggja ljóst fyrir. Og hvað
eiga 7 lauf að þýða?“
„Að hann er ekki viss um
tromplitinn," svarar Matthew.
Jæja, til að stytta lehgri sögu,
þá breytti suður í 7 spaða með:
Suður
♦ ÁK9753
¥4
♦ ÁG4
♦ 1062
Lesendur eru svo skildir eftir
með tvö úrlausnarefni, mismun-
andi erfið. Þyngri þrautin er:
hvað ættu 4 lauf að þýða? Sú
léttari: hver var suður?
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á öflugu opnu móti í Peking í
Kína í vor kom þessi staða upp í
skák enska stórmeistarans Tony
Miles (2.585), sem hafði hvítt og
átti leik, og sovézka alþjóðameist-
arans A. Bykhovskys (2.490).
34. Hxf6! - Kxf6 35. hxg5+
og svartur gafst upp, því eftir 35. ;
— Ke7 36. gxh6 er kóngur hans j
berskjaldaður gegn drottningu og i
biskupapari hvíts. Miles sigraði á ;
mótinu með 7 'A v. af 10 möguleg- '
um, ásamt óþekktum Sovétmanni,
Budnikov að nafni, á undan
fremstu skákmönnum Kínverja og
nokkrum sovézkum stórmeistur-
um.