Morgunblaðið - 21.06.1991, Qupperneq 36
86
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1991
Wélagslíf
m VEGURINN
^ Krístið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kóp.
Vineyard-ráðstefna verður hald-
in á Smiðjuvegi 5, Kópavogi,
dagana 21.-23. júní. Laugardag
og sunnudag stendur ráðstefn-
an yfir frá kl. 10.00-17.00. í
tengslum við ráðstefnuna verða
kvöldsamkomur alla dagana kl.
20.30. Öilum heimil þáttaka.
„Helgist þitt nafn".
Skíðadeild KR
Næstkomandi sunnudag þann
23. júní verður áburðar- og sán-
ingarferð í Skálafell. Mæting í
fjalli er kl. 11.00 árdegis. Allir
félagar deildarinnar eru hvattir
til að mæta og hafa með sér
hrifur og skóflur. Grillveisla verð-
ur að loknum vinnudegi.
Stjórnin.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLOUGÖTU 3 & 11798 19533
Fjölbreyttar helgarferðir
um Jónsmessuna
21.-23. júní
Notið góða veðrið til ferðalaga
1. Jónsmessuhelgi í
Þórsmörk
Mörkin skartar sínum fegursta
sumarskrúða. Styttri og lengri
gönguferðir við allra hæfi. Gist
í Skagfjörðsskála, Langadal, eða
tjöldum. Fjölskylduafsláttur. Far-
arstjóri: Leifur Þorsteinsson.
Munið ennfremur sumardvöl
og dagsferðir i Þórsmörk. Farið
á föstudagskvöldum, sunnu-
dögum og miðvikudögum.
2. Sólheimaheiði - Mýr-
dalsjökull á gönguskíðum
Gist í Þórsmörk og farin dags-
ferð á jökulinn frá Sólheimum i
Mýrdal. Spennandi ferð.
3. Snæfellsnes
a) Snæfellsjökull um sumarsól-
stöður. Sólstöðuganga á Jökul-
inn. Ganga um Bláfeldarskarð
og fleira. b) Hella- skoðun í
Purkhólahrauni, einu hellaauð-
ugasta hrauna landsins. Enn-
fremur litast um á ýmsum stöð-
um undir Jökli. Svefnpokagist-
ing. Sundlaug. Ölkelda.
Ferðafélag íslands,
ferðir fyrir þig!
H ÚTIVIST
GRÓFINHII • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVARI11606
Laugardagur 22. júní
Kl. 08 Hekla
Önnur fjallgangan í fjallasyrpu
Útivistar '91 og fyrsta ferðin á
Heklu í ár.
Brottför frá BSÍ-bensinsölu.
Mögulegt að koma í rútuna á
leiðinni.
Munið helgarferðirnar Jóns-
messugleði á Snæfellsjökli og
Básar á Goðalandi.
Sjáumst!
Útivist
FERÐAFEIAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Kvöldferðir um
sumarsólstöður
Föstudagur 21. júní kl. 20
a) Esja - Kerhólakambur. Árleg
Esjuganga um sumarsólstöður.
Það er sérstök upplifun að
ganga á Esju á þessum tíma.
Gengið frá Esjubergi á Kerhóla-
kamb. Verð 900,- kr. Brottför frá
Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Þátttakendur geta einnig
komið að Esjubergi á eigin
bíium. Heimkoma eftir miðnætti.
B) Sólstöðuferð í Viðey. Gengið
um eyjuna m.a. út á Sundbakka
(minjar um þorp). Viöey ættu
allir að kynnast, ekki síst núna.
Verð 500,- kr. Brottförfrá Viðeyj-
arbryggju, Sundahöfn.
Sunnudagur 23. júní
Kl. 08 Þórsmörk. Dagsferð eða
til sumardvalar. Verð kr. 2.400
í dagsferðina.
Kl. 13 Herdísarvík - Stakkavik
- Strandakirkja. Verferð nr. 3.
Kl. 20 Jónsmessunæturganga
frá Nesjavöllum. Gengið um fal-
lega dali og fjalllendi norðan
Hengils. Nýtt gönguland. Ekið
um Nesjavallaveginn nýja. Brott-
för frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Sunnudagsferðir
nánar auglýstar um helgina.
Ferðafélag íslands.
skemmta í kvöld
OP/Ð FRÁ /9 T/L 3.
HOT E L SAGA
UPPISTAND A
ALMANNAFÆRI
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóhöllin:
„Scenes from a Mall“
Leikstjóri og handritshöf-
undur Paul Mazursky. Að-
alleikendur Bette Midler
og Woody Allen.
Bandarísk. Touchstone
1991.
Mazursky er einn þeirra
kvikmyndargerðarmanna
sem teljast verða óvenjulega
mistækir, þó myndir hans
séu jafnan nokkur viðburður
og svo er um þessa þó hún
verði seint talin með hans
betri verkum. Hér eru sögu-
persórnar tvær, miðaldra
hjón í góðum efnum, hann
(Allen) lögfræðingur og hún
(Midler) sálfræðingur og
metsölubókahöfundur.
Myndin. gerist á einum degi
í verslunarmiðstöð í Los
Angeles. Þar virðist flest falt
annað en hamingja. í miðri
höll hégómans gera svo
hjónakomin upp mál sín. Þau
eru nefnjlega flóknari en þau
virðast á yfirborðinu. Þetta
indælis hjónaband er á
brauðfótum eftir allt saman.
Hann viðurkennir langvar-
andi framhjáhald og þegar
mesta fárviðrið — frammi
fyrir fánýtinu — er um garð
gengið stynur frúin því svo
upp að hún hafí nú reyndar
ekki hreinan skjöld í þessum
efnum heldur. Og gamandr-
amað berst um þessa risav-
öxnu LA-kringlu uns kvölda
tekur og parið heldur — til-
tölulega sátt — til síns heima.
All-leiksviðsleg og yfir-
gengilega málglöð mynd en
að mestu leyti um áhyggjur
sem koma lítið við mann og
gerðar eru að gamanmálum.
Það virðist ekki hafa verið
mikið púður í þessu hjóna-
bandi frá upphafi og persón-
urnar eru í í órafjariægð á
tjaldinu. En vissulega era
margar uppákomurnar bráð-
fyndnar og ekki er við leik-
endurna að sakast. Þó er
Allen aldrei beint sannfær-
andi í þeim Don Juan-hlut-
verkum sem hann virðist
kunna svo afar vel við. Sviðs-
myndin er ádeilin og sprett-
irnir góðir en maður hefur á
tilfinningunni að hér hafi
verið gert of mikið veður
útaf litlu.
Sýning í Krmglunni:
Regnskógar og
mikilvægi þeirra
DAGANA 18.-30. júní
stendur yfir í Kringlunni,
er fjallar um mikilvægi
regnskóganna fyrir líf
mannsins. Þessi sýning var
unnin af nemendum í
líffræði við Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja á vorönn.
Alls tóku 32 nemendur
þátt í gerð sýningarinnar, en
kennari og leiðbeinandi var
Bjöm Lárus Örvar.
Sýninginn er unnin með
það í huga að gefa almenn-
ingi innsýn í heim regnskóg-
anna á sem aðgengilegastan
hátt.
yfir strikiö og stjarnan kynna:
CARNlVZUu
-kynlífskómedía á jónsmessunótt-
bein útsending á stjörnunni
-oi
stjörnusnúöurinn Kiddi Bigfoot meö sólartónlist sumarsins
'Yí
eldgleypir og töframaöur ( móttökunni
zoí.
/ N
kampavin og jarðarber fyrir miönœtfi
'OÍ.
sólstólar á þakinu
töstudagskvöldið 21. júnl
'OC.
aðgangur 850.- / 20 ár
y
INGÓLF5 CAFÉ
Att þn frænkn?
Kannski verður hún í Ingólfscafé
í kvöld
Frítt inn til kl. 23.30
Snyrtilegur klæðnaður
Eyjólfur Kristjánsson
skemmtir gestum á efri hæð
Ingólfscafé, Ingólfsstræti, sími 14944.
Pósthússtræti l 7,
sími l 3344.
Föstudagskvöld:
Hilmar Sverris er mættur aftur
til aó sjá um fjörið.
Opið til kl. 03.
Laugardagskvöld:
Feðgabandið spilar á
laugardagskvöld.
Mætið öll. Opið til kl. 03.
Sunnudagskvöld og
mánudagskvöld:
Trúbadorinn Guðmundur Rúnar
spilar á sunnudags- og
mánudagskvöld.
Opió til kl. 01.
HUÓMSVEITIN SJÖUND
frá Vestmannaeyjum
Miðaverð kr. 700. Snyrtilegur klæðnaður.
Matargestir
Mongolian Barbecue:
Matur + miði = kr. 1.480,-
PANSBARINN
Grensásvegi 7, símar 688311 og 33311