Morgunblaðið - 14.07.1991, Síða 15

Morgunblaðið - 14.07.1991, Síða 15
Sumarbústaðurinn... Paradísin Gola; fullbúin á ellefu dögum „Þetta var töff en skemmtilegur tími." Iðnaðarmennirnir mættir og byggingin rauk upp. Isumarbústaðnum er albúm sem geym- ir byggingarsöguna í máli og mynd- um. Til marks um hvað bústaðurinn var vel frágenginn er sú staðreynd að nán- ast engu hefur verið breytt, einstaka smáhlutir hafa bæst við innbúið en það er líka allt og sumt. Þetta er vel búinn bústaður með rafmagni og heitu vatni og fleiri þægindum. „Ég er ekki spennt fyrir frumstæðu sumarbústaðalífí," seg- ir Guðlaug um leið og hún gefur tíkinni Töru að borða. „Ég vil helst hafa huggu- legt og fallegt í kringum mig og ég held að fólk gefist fljótt upp á því að lifa einhveiju frumstæðu lífi og verði latara að fara í bústaðina en ella. En auðvitað er þetta smekksatriði hvers og eins,“ bætir hún við. Guðlaug nefndi bústaðinn Golu vegna þess að henni finnst aldrei vera alveg logn á Þingvöll- um. Síðar komst hún svo að því að hin- um megin við vatnið er kennileiti sem kallað er Gola. „Það er alveg ómetanlegt að eiga svona athvarf fyrir utan bæinn,“ segir Guðlaug þegar hún er spurð um það hvað hún fái út úr því að eiga sumarbú- stað. Það tekur ekki nema hálftíma að keyra austur þannig að hægt er skreppa í skottúr hvenær sem er. Það er ótvíræð- ur kostur að mati Guðlaugar því þá getur hún farið hvenær sem henni dett- ur í hug. Hún segir þau hjónin einmitt oft hafa farið einungis til þess að eiga þar kvöldin sem væru yndisleg þama við vatnið og ekki væru morgnamir síðri, „það voru bara við og nokkrar kindur á stjái þegar við fórum í bæinn eld- snemma á morgnana." Guðrún Valgerð- ur, dóttir Guðlaugar, og kærasti hennar hafa einmitt oft farið í bústaðinn í sum- ar eftir vinnu. Þeim finnst það tilbreyt- ing sem bætir þeim að nokkru leyti upp að þau komast ekki í sumarfrí. „Við erum ekkert hraðbátafólk en við eigum árabát sem við notum, ég er svo mikið fyrir kyrrðina og ég vil bara njóta hennar og fegurðarinnar," segir Guð- laug. Það verða sennilega fáir til þess að mótmæla því að fjailasýnin á Þing- völlum er nánast ómótstæðileg í björtu veðri. Auðvelt er að gleyma borgars- tressinu dólandi úti á vatni og ekki sak- ar að egna fyrir eina og eina murtu í leiðinni. Guðlaug segist þó ekki vera neitt fyrir veiðiskapinn en maður hennar og dóttirin Guðrún Valgerður hafi átt góðar stundir með stöngina. Tíkin Tara tekur öll við sér þegar minnst er sveit- ina og hún skemmtir sér ekki síður þar en aðrir fjölskyldumeðlimir, enda fyrir- tak að fara í rannsóknarleiðangra vítt og breitt um móana. Reyndar fær Tara góða hreyfingu með því að fylgja hús- móðurinni eftir á gönguferðum því Guð- laug gengur mikið dag hvern og vega- lengdir vaxa henni lítt í augum. Gola stendur á nokkurs konar íjöl- skylduþúfu og þykir Guðlaugu mikil- vægt að hafa fjölskylduna í kringum sig. Bústaðimir eru þó fáir og ekki er fyrirsjáanlegt að þeim muni fjölga í framtíðinni. Mikill ttjágróður er í kring- um flesta bústaðina en Guðlaug segir að hún vilji fyrir alla muni láta villta gróðurinn halda sér svo fremi sem það er hægt. Bygging Golu raskaði gróður- jafnvæginu svolítið’ þannig að síðustu ár hefur alltaf eitthvað verið gróðursett en lyng og villt birki nýtur sín ágætlega í skjólinu af Golu. Guðlaug var að hugsa um að selja bústaðinn fyrst eftir að hún varð ekkja, „en svo ákvað ég að minnka frekar við mig í bænum og eiga paradís- ina mína áfram. Það er mikið á sig leggj- andi til þess að geta haldið svona stað. Ég hef aldeilis ekki séð eftir því, það er ótrúlega afslappandi að dvelja í bú- staðnum og helgamar eru ómögulegar ef ég kemst ekki þangað.“ Garðurinn... Blóm frá öllum heims- hornum Ánægö „gróöurhján": „Þaó þarf fyrst og fremst aó hafa áhuga." ÞEGAR ekið er eftir Langagerðinu í blíðskaparveðri og gróðurang- an fyllir loftið er erfitt að ímynda sér að fyrir nokkrum áratugum var hér einungis berangurslegt holt. Umhverfis nýtt hús þeirra Ól- afs Björns Guðmundssonar og Elínar Maríusdóttur gaf þá að líta holtagrjót og aftur holtagrjót og hvergi sást í jarðveg utan örlítið leirflag í einu horni þessa steingarðs. í dag er grjótið horfið og grænir fingur Ólafs hafa galdrað í garðinn óteljandi tegundir jurta og blóma sem sumar hverjar eiga heimkynni sín í fjarlægum og framandi löndum. Ljúfur og eilítið sætur gróðurilmur, sem minnir | kannski á útlönd, tekur á móti manni þegar kom- ið er inn í garðinn. A lítilli verönd sitja svo þau hjón og lesa dagblöðin í síðdegissólinni. í þessum garði er þó ekki gert ráð fyrir því að fólk sé að flatmaga mikið, allt rými er haganlega nýtt undir piöntur. Elín segir sposk frá því að sóipaliar hafi aldrei fengið að vera í friði í þessum garði, þeir hafi alltaf fyllst af blómum. „En það er kannski þess vegna sem ég er engin ýstrukona," segir hún og pikkar í manninn sinn sem segist lítið vera fyrir það að flatmaga, helst vilji hann alltaf vera eitthvað að dunda. Þau hjdnin eru full af fjöri og engin leið að sjá að þau séu um sjö- tugt, útiveran í garðinum.gerir þeim greinilega gott. Ilmandi gullsópur og neðst til hægri á myndinni glittir í lewisíur. Það þarf ekki glögga manneskju til að átta sig á þvi að þeim Ólafi og Elínu þykir ákaflega vænt um garðinn sinn enda hafa þau eytt lunganum úr sínum tómstundum í það að byggja hann upp. „Þetta er nú aðallega hans hobbý,“ segir Elín og kímnin er aldrei langt und- an, „en það væri nú druslulegra ef mín nyti ekki, ég er svona fagur- fræðilegur ráðunautur." Blóma- ræktin er meira en áhugamál hjá Ólafí, hún er ástríða. Arið um kring snýst hugur hans um ræktina. Þeim fáu vetrarmánuðum sem ekkert er hægt að gera í garðinum eyðir hann í félagsstarf með garðyrkjufé- laginu þar sem hann er ritari. Auk þess hefur hann ritstýrt Garðyrkju- ritinu í rúma tvo áratugi. Það eru eingöngu fjölærar jurtir í þessum ótrúlega gróskumikla garði og allar ræktaðar upp af fræj- um eða græðlingum. Olafur fær fræ frá erlendum klúbbum, auk þess sem hann hefur aðgang að fjölmörgum grasagörðum. Raunar má segja að garður hans og Elínar sé nokkurs konar grasagarður. Þar er að finna jurtir frá Japan, Kletta- fjöllum, Kína og eyjum suður í höf- um svo eitthvað sé nefnt. Við hús- vegginn er til dæmis heljar mikill gullsópur ættaður úr Pyreneafjöll- um. Ólafur segir hann vera fyrstu tegundina af gullsóp sem þrifist hafi hér á landi en almennt sé ákaf- lega lítið vitað um hvaða tegundir geti vaxið hérlendis. Það komi mörgum útlendingum mikið á óvart að sjá það sem hann hefur ræktað í garðinum sínum. Aðstæður eru þó alls ekki eins og þær geta best- ar verið. Garðurinn snýr í norður og nærliggjandi hús og tré gera það að verkum að hann er ekki mjög sólríkur. „Það þarf fyrst og fremst að hafa áhuga, öðruvísi þrífast plönturnar ekki,“ segir Ól- afur og á þessum bæ er hann brenn- andi enda eru alls staðar blóm í ræktun, komin mislangt, og bíða þess að verða plantað í garðinn. Umhverfísmál eru á allra vörum og flokkun sorps hefur verið í brennidepli síðustu mánuðina. Fólk hefur til dæmis verið hvatt til þess að útbúa safnhauga í görðum sín- um og nýta þannig allan úrgang er fellur tii í garðinum. Þetta er ekki ný speki fyrir Ólafí því fyrir tveimur áratugum skrifaði hann grein í Garðyrkjuritið um safn- hauga og auðvitað hafa þau hjónin slíkan haug í sínum garði og hafa því alitaf næga gi'óðurmold. Það er þriggja ára ferli að búa til gróð- urmold og hún er svo fín að hún jafnast á við besta neftóbak. Þau hjón neita því alfarið að þau hafi mikið fyrir garðinum, „það er mesta vinnan við að setja stuðning og bönd við plöntur sem eru að stækka og af því að garðurinn er frekar dimmur þarf alls ekki að vökva oft,“ segir Ólafur. „Ég elska lewisiur,“ segir Elín, „sjáðu, finnst þér þær ekki falleg- ar? Mér finnst þær alveg dýrlegar. Ég er svo hrifin af litlum blómum en það er nú kannski af því að ég er svo lítil sjálf,“ segir hún hlátur- mild. Þessi blóm eru upprunnin í Klettafjöllum en Bandaríkjamenn sem heimsóttu þau hjónin sáu jew- isiur í fyrsta skiptið hjá þeim. Ólaf- ur á erfítt með að benda á ein- hvert eitt uppáhaldsblóm, þau eru öll í uppáhaldi og hvert blóm á sinn tíma. „í raun eru þetta þrír garð- ar, vor-, sumar- og haustgarður og hver garður hefur sinn sjarma,“ segir ðlafur að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.