Morgunblaðið - 14.07.1991, Qupperneq 24
24 jC
: MQRgUNBIiAPIP IWINNINGARéPní&cue ÍM.-JÚLÍ T991
Auðunn Amason —
Sigríður Guðmunds-
dóttir - Hjónaminning
Bróðir minn, Auðunn Guðmundur
Árnason, fæddist á Tjaldtanga á
Folafæti við Djúp 14..október 1901.
Fyrsta árið var hann hjá móður sinni
í Súðavík. Var þá tekinn í fóstur af
ágætum hjónum í Tröð, frændkonu
sinni Sigríði Bjarnadóttur hrepp-
stjóra í Tröð Jónssonar og manni
hennar Hjalta Páli Hjaltasyni
Sveinssonar. Foreldrar Auðuns voru
Anna laundóttir Þórðar í Hattardal
Magnússonar og Árni Híerónýmus-
sen, bæði ógift hjú í Ögursveit. Árni
var ættaður úr Sigluvíkursókn í
Landeyjum,_ fæddur í Skógtjörn á
Álftanesi. Árni var síðar bóndi á
Hymingsstöðum í Reykhólasveit,
kvæntur þar og átti mörg börn.
10 ára að aldri missti Auðunn
fóstra sinn, Hjalta, en ekkjan lét
hann ekki frá sér fara fyrr en hann
gat séð um sig sjálfur. Ungur hóf
hann róðra með Bjarna Hjaltasyni í
Tröð, fósturbróður sfnum, en mun
hafa farið þaðan um 1920, ári síðar
er hann kominn norður að Byrgisvík
í Strandasýslu með þrem bræðrum
Sigríðar er síðar varð kona hans,
hún er þá 14 ára. Bræðrunum hafði
Auðunn kynnst er þeir voru við sjó
í Hnífsdal og á ísafirðk Hann fór
stundum með þá heimVtil móður
okkar á ísafirði. Bræðurnir voru
Guðmundur, Sveinn og Ingimundur.
Með Guðmundi reri Auðunn í
Hnífsdal 1927 þegar þeir fóru ró-
andi á árabát úr Hnífsdal og norður
í Steingrímsfjörð.
23. mars 1928 kvæntist Auðunn
Sigríði Guðmundsdóttur fra'Byrg-
isvík, í Strandasýslu. Veturinn eftir
var hann háseti á Valbirninum, ein-
um af Samvinnufélagsbátunum á
ísafirði. Skipstjóri var Jón Krist-
jánsson af Snæfjallaströnd, mikill
aflamaður og traustur stjórnandi.
Hjá Jóni átti Auðunn ávallt víst pláss
enda afbragðs verkmaður að hveiju
sem hann gekk.
Vorið 1929 réðst ég til Auðuns
bróður míns en hann var þá að fara
til Byrgisvíkar að hefja búskap móti
foreldrum Sigríðar og sagði sig
vanta mann til að róa með sér á
árabát. Eg fór svo vestur um haust-
ið. 1931 fluttu hjónin inn í Hamars-
bæli á Gautshamri á Selströnd. Þar
hafði þá skapast til að verka fisk
og gera út litla báta. Vinnu fékk
Auðunn hjá Árna Andréssyni er
verkaði fisk fyrir kaupfélagið á
Hólmavík. Þau fengu eitt herbergi
í sjóbúð á staðnum. Hugur Auðuns
mun hafa stefnt til búskapar en á
þessum árum var hvergi jörð að fá
og hvert kot var setið, eyðijörð var
ekki til á þessum slóðum. 1932 fékk
Auðunn landskika í landi Hafnar-
hólms þar sem heitir Helganes og
er nafnið þekkt úr Sturlungu. Þar
reisti hann snoturt timburhús og
keypti trilluna Sæbjörgu sem hann
gerði út þaðan meðan hann átti þar
heima. Stundaði jafnframt fískvinnu
hjá Árna í Bælini.
Römmm er sú taug er rekka dreg-
ur föðurtúna til, segir skáldið. Bæði
munu þau hjón hafa saknað æsku-
stöðvanna á nesinu við ysta haf. Það
varð því úr að 1942 fluttu þau aftur
til Byrgisvíkur og bjuggu þar tvö
ár með foreldrum Sigríðar en jafn-
framt var leitað eftir betra jarð-
næði. Svo fór að þau festu kaup á
jörðinni Dvergasteini vestur í Álfta-
fírði skammt frá þeim stað þar sem
Auðunn var uppalinn. Með þeim
hjónum stóðu að þessum kaupum
Steinunn systir Sigríðar og maður
hennar Júlíus Árnason frá Kol-
beinsvík, næsta bæ við Byrgisvík.
1944 var svo lagt af stað vestur
með eina kú, var hún leidd norður
á Djúpavík þar sem varðskipið Þór
tók búslóð þeirra og flutti vestur að
Langeyri í Álftafírði. Varð sjóliðun-
um á varðskipinu starsýnt á bál-
óletta konu sitja við að mjólka kú á
dekkinu norður af Horni en hafíð
var spegilslétt svo langt sem augað
eygði. Skömmu eftir að þau komu
að Dvergasteini varð Sigríður léttari
og fæddi son daginn sem lýðveldi
var stofnað á íslandi, 17. júní 1944.
Tveim árum síðar keypti Áuðunn af
Júlíusi sem flutti til Skagastrandar
og gerðist þar skipstjóri og útgerðar-
maður. Auðunn bjó svo einn á
Dvergasteini til haustsins 1979 er
þau hjón keyptu sér hús á Suður-
eyri, en voru þó á Dvergasteini á
sumrum. Kona hans lést 24. ágúst
1983, árið eftir veiktist Auðunn og
fór á Hrafnistu í Hafnafirði. Hann
andaðist eftir fárra daga !egu á St
Jósepsspítala í Hafnafírði 30. júní
1991.
Þegar þau hjón komu að Dverga-
steini var bærinn að falli kominn en
1950 fluttu þau í nýtt timburhús er
þau höfðu byggt. Ennfremur var
túnið í órækt og engar jarðabætur
höfðu þar verið gerðar. Auðunn gekk
strax í búnaðarfélagið og var lengi
ritari þess sem sjá má á gerðabók
félagsins og starfaði í nefndum þess.
Gekkst hann fyrir því ásamt fleirum
að keyptur var traktor og ræktun
hófst á flestum bæjum þar. Auðunn
fékkst nokkuð við örnefnasöfnun í
landi sínu. Nú er allt túnið á Dverga-
steini ein slétt hallandi grængresis-
breiða. Ekki hefur verið búið á
Dvergasteini síðan þau hjón fluttu
þaðan en börn þeirra-fjögur dvelja
þar á hvetju sumri enda var þeim
afhent jörðin.
Sigríður kona Auðuns Árnasonar
var fædd í Byrgisvík 10. desember /
1907. Foreldrar þennar voru Guð-
mundur Jónsson lengi bóndi þar og
Sigríður Ingimundardóttir frá Veiði-
leysu af Tröllatunguætt. Bæði voru
þau hjón ættuð út Strandasýslu.
Sigríður var 14 ára þegar Auðunn
kom fyrst til Byrgisvíkur með bræð-
rum hennar, sjö árum síðar, 23
mars 1928, gengu þau í hjónaband
sem entist í 55 ár eða meðan bæði
iifðu. Hún var mikil myndar og
mannkosta kona. Hún stóð jafnan
við hlið manns síns í blíðu og stríðu.
Vann með honum í fiskverkun, fór
með honum á sjóinn á litla bátnum
þeirra í Helganesi, fór suður til
Reykjavíkur til að læra saumaskap
og eitt sumar var hún á Siglufirði í
síld. Á Langeyri í Álftafirði unnu
þau bæði mörg ár og þá var nú
ekki verið að spytja um heyskapinn
hvort sem var heima á túni eða uppi
á fjöllum á Hafnarhólmi. Þar sem
sofið var í tjaldi og unnið fram á
nótt. Hún var frábærlega þrifin og
drífandi að hvetju sem hún gekk.
Sigríður var hjálpsöm og mikil ágæt-
is kona. Ég, sem þessar línur rita,
var vel kunnur þessum ágætu hjón-
um og átti heima hjá þeim lengi
þegar ég var ungur og heimilislaus.
Auðunn og Sigríður eignuðust 5
börn, ein stúlka dó á fyrsta ári, hin
eru: Hjalti skipasmiður í Hafnar-
firði, Erling skipstjóri og útgerðar-
maður á Suðureyri í Súgandafirði,
nú búsettur í Kópavogi, Sigríður
hjúkrunarfræðingur í Reykjavík og
Svanur lærður skipstjórnarmaður í
Reykjavík.
Eins og ég hef sagt var búskapur
í sveit aðalstarf Auðuns og Sigríðar
konu hans. Svo kvað Jónas Hall-
grímsson, vort ástkæra skáld:
Bóndi er bústólpi
bú er landsstólpi
þvi skal hann virður vel.
Guðmundur Guðni Guðmundsson
BLÓM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.
108 Reykjavík. S(mi 31099
Opið öil kvöid
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
+
Eiginkona mín og móðir okkar,
GUÐRÚN M. KRISTJÁNSDÓTTIR,
verður jarðsungin mánudaginn 15. júlí kl. 13.30 frá Kópavogs-
kirkju.
Þeir sem vilja minnast hennar, eru beðnir að láta hjúkrunarheimi-
lið Sunnuhlíð njóta þess.
Erlendur Jónsson,
Kristján Erlendsson,
Valdís J. Erlendsdóttir,
Ævar Þ. Erlendsson,
Þorbjörg Erlendsdóttir.
Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
ÞORGRÍMS KRISTINSSONAR
fyrrverandi bifreiðastjóra,
Sörlaskjóli 17,
Reykjavik,
sem lést 8. júli, verður gerð frá Neskirkju þriðjudaginn 16. júlí
kl. 15.00.
Kristin Sigurðardóttir,
Sigurður Þorgrímsson, Þorbjörg Skarphéðinsdóttir,
Amalía Þorgrímsdóttir, Halldór Tjörvi Einarsson
og barnabörn.
+
Sambýlismaður minn,
EINAR EÐVALDSSON,
Gyðufelli 10,
verður jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju mánudaginn 15. júlí
kl. 13.30.
Antonía Björnsdóttir
og aðrir aðstandendur.
+
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
ÁSDI'S ÞÓRÐARDÓTTIR,
Hegranesi 24,
Garðabæ,
sem andaðist í Landspítalanum 7. júlí, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 16. júlí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á líknarstofnanir.
Jón Guðmundsson,
Arnar Þór Jónsson, Guðmundur Theodór Jónsson,
Sigríður Ásdís Jónsdóttir.
+
Eiginkona mín, móðirokkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ELÍNBORG DAGMAR SIGURÐARDÓTTIR,
Hamraborg 38,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 16. júlí
kl. 10.30.
Friðgeir Guðmundsson,
Svava Friðgeirsdóttir,
Kjartan Friðgeirsson,
Sigríður Friðgeirsdóttir,
Sigrún Friðgeirsdóttir,
Elínborg Friðgeirsdóttir,
Sólveig Friðgeirsdóttir,
Hrefna Friðgeirsdóttir,
Sævald Pálsson,
Þorgerður Þorgeirsdóttir,
Lárus Lárusson,
PéturÓlafsson,
Kristján Valgeirsson,
Böðvar I. Benjamínsson,
Jónas H. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Legstelnar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
_______um gerð og val legsteina._
|| S.HELGASON HF
ISTEINSMKMA
mr"-....
I SKEMMUVEGI 48 SlMI 76677