Morgunblaðið - 14.07.1991, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR ^unnudagur
14. JÚLÍ 1991
C 25
Þórður Eyjólfsson,
Goddastöðum
Föstudaginn 21. júní sl. var útför
Þórðar Eyjólfssonar á Goddastöðum
gerð frá Hjarðarholtskirkju í Lax-
árdal. Hann andaðist 14. júní.
Þórður fæddist 25. júlí 1909 á
Lambastöðum í sörnu sveit. Foreldr-
ar hans voru Eyjólfur Böðvarsson
frá Sámsstöðum og Gróa Margrét
Jónsdóttir fra Hömrum. Eyjólfur
drukknaði með sviplegum hætti í
Miðá í Dölum 7. ágúst 1910. Þórði
var þá komið í fóstur að Kambs-
nesi, þar sem hann ólst upp til full-
orðinsára hjá Gísla Sigurðssyni og
Sigurfríði Baldvinsdóttur.
Þórður var snemma dugmikill og
góður félagi við leik og störf, vin-
sæll og vel metinn af öllum, sem
kynntust honum. Hann batt tryggð
við hugsjönir ungmennafélaganna
frá morgni aldarinnar og vann þeim
vel og lengi. Um skeið var hann
fonnaður UMS Dalamanna. Þórður
var ævinlega kátur og hress í bragði
á hverju sem gekk og boðinn og
búinn að greiða götu manna, sem
þurftu á hjálp eða aðstoð að halda.
Annan dag júnímánaðar árið
1940 gekk Þórður að eiga Fann-
eyju Guðmundsdóttur frá Borðeyri.
Hjónaband þeirra var farsælt. Þau
eignuðust fimm börn, fjóra sonu og
eina dóttur. Þau eru þessi: Eyjólf-
ur, búsettur í Reykjavík, var kvænt-
ur Svanborgu Tryggvadóttur frá
Ólafsvík. Hann á tvær stjúpdætur.
Guðmundur Heiðar í Búðardal,
kvæntur Báru Aðalsteinsdóttur frá
Torfastöðum í Vopnafirði. Þau eiga
tvö börn. Gísli Sigurvin, bóndi á
Spágilsstöðum. Sambýlisko'na hans
er Guðrún Vigfúsdóttir og eiga þau
eina dóttur. Erla, búsett á Akra-
nesi. Var gift Pétri Óskarssyni og
áttu þau fimm börn. Sambýlismað-
ur hennar er Guðmundur Gunnars-
son frá Hofsstöðum í Helgafells-
sveit og eiga þau tvö börn saman.
Fanney, eiginkona Þórðar, and-
aðist 5. apríl 1981 og var það fjöl-
skyldunni mikið áfall.
Þórður byijaði búskap ungur að
árum. Hann bjó í Hvammi í Dölum
1944-1946 hjá Pétri T. Oddssyni,
prófasti, en fluttist þaðan að Godda-
stöðum í Laxárdal, þar sem hann
átti heima tii æviloka. Þar byggði
hann upp og bætti jörðina. Þar uxu
börn hans úr grasi og ijölskyldunni
farnaðist vel. Þar var hann árum
sanfan, haust eftir haust, ijallkóng-
ur á Ljárskógaijalli og réttarstjóri
í Gillastaðarétt. í september 1990
vígði hann nýja ijárrétt í landi Ljár-
skóga og dró þar fyrstu kindina í
dilk. Hann átti traust sveitunga
sinna, vina og samheija. Þó að hann
yrði að vinna hörðum höndum til
að sjá búi sínu borgið, átti hann
alltaf stund til að sinna hugðarefn-
um sínum. Við vorum eitt sinn í
nefnd saman ásamt Óskari Sumarl-
iðasyni til að undirbúa byggingu
félagsheimilis í Búðardal. Þá vökt-
um við eina bjarta, ógleymanlega
vornótt og starfinu miðaði nokkuð
áleiðis. Við Þórður áttum einnig
samleið í stjórnmálum. Þar var hann
traustur sem klettur, hollráður og
úrræðagóður og er margs að minn-
ast af þeim vettvangi.
Þegar ég heyri Þórðar getið\kem-
ur mér iðulega í hug hið alþé^kta
latneska kvæði eftir Hóras skáld,
sem Grímur Thomsen íslenskaði svo
snilldarlega, eins og sjá má af þess-
um erindum:
Minning:
Vammlausum hal og vítalausum fleina
vant er ei, boglist þarf hann ei að reyná,
banvænum þarf hann oddum eiturskeyta
aldrei að beita. -
Einar Eðvaldsson
Þau döpru tíðindi bárust okkur
hingað heim, miðvikudaginn 3. júlí
sl., að Einar Eðvaldsson hefði and-
ast daginn áður, eða 2. júlí, eftir
stutt en snörp veikindi. Mann setti
hljóðan, alltaf er maður óviðbúinn
dauðanum, ekki hvað síst er í hlut
eiga menn sem ekkert virðast vera
að, og virðast í fullu fjöri. Ég undir-
ritaður hafði ekki þekkt Einar lengi,
eða aðeins nokkuð á þriðja ár, en
nógu lengi samt, til að átta mig á
að þar fór drengur góður, og sér-
staklega var atburður er átti sér
stað á Spáni fyrir um ári þess vald-
andi að virðing mín fyrir Einari óx,
og tók ég betur og betur eftir þeim
eðliskostum, sem hann var búinn,
, og brá aldrei þar út af. Ekki er
ástæða til að rekja það nánar, en
við hittumst síðasta sinn fyrrihluta
júnímánaðar, eða 2 dögum áður en
hann hélt í fríið sitt, ásamt konu
sinni Antoníu Björnsdóttur. Hann
var m.a. að fá hjá mér ýmsar upplýs-
ingar um markverða staði, bæi og
borgir sem hann hugðist reyna að
sjá og skoða sig um í á Spáni, nán-
ar tiltekið á Suðaustur-Spáni,
Costa-Blanca-svæðinu.
Við ræddum fram og aftur ýmis-
legt, s.s. um báta, en þar var hugur
Einars allur; við sjóinn, sem var
hans starf, og hef ég það frá merk-
um skipstjóra, sem Einar var hjá
lengi, að vandfundnir væru betri sjó-
menn og duglegri og ósérhlífnari en
Einar, og þessu trúi ég vel. Einar
gældi við þá tilhugsun, að þegar
fram í sækti, væri gaman að geta
eignast bát á Spáni og reyna fyrir
sér um vinnu við sjóinn í „ellinni"
eins og hann sjálfur sagði, og hló
við. Ekki grunaði mig að þetta væri
okkar síðasti fundur, en það varð
nú samt, og minnir á það er sagt er
í hinni helgu bók Bíblíunni á einum
stað: „Vertu sáttur, við mótstöðu-
mann þinn, meðan þú er enn á vegin-
um með honum.“ Hversu satt er
þetta ekki. Og hversu oft gleymum
við ekki hverfulleika lífsins að við
eigum aðeins ráð á augnablikinu,
en nýtum það alls ekki sem skyldi,
a.m.k. sjaldnast.
Mig langar hér í þessum fáu og
fátæklegu orðum, að minnast vinar
míns, sem ég leyfi mér að kalla svo,
Einars Eðvaldssonar, og þakka fyrir
þann tíma sem mér auðnaðist að
þekkja hann. Ég tel alla þá sem
hann þekktu ríkari eftir að kynnast
og þekkja svo hreinan og beinan
drengskaparmann, sem vissulega
Einar var. Ég kveð nú Einar hinstu
kveðju fyrir hönd okkar hjónanna
og er viss um að landtaka hans á
eilífðarströnd, er ljúf og mjúk, svo
er um drengi sem Einar. Megi Guð
gefa ættingjum og vinum hans styrk
í þeirra sorg, og huggun konu hans,
sem með honum var, allt til enda,
og þoldi raun þá að fríið þeirra
brejrftist í sorg. Megi Guð einnig
blesa minningu þessa drengskapar-
manns, og gefa honum eilífan frið.
Ódáða-hvort sem yfir hraunið fer hann,
eður hann gengur Vatnajökul þveran,
ellegar Köldu-kvíslar kvíðvænlip
kannar hann stip.
Leifur Núpdal Karlsson
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR ÁSGEIRSSON
stórkaupmaður,
Efstaleiti 14,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 16. júlí kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er vinsamlegast bent á að
láta Sólheima í Grímsnesi njóta þess. Símar 33129 og 98-64430.
Stefán Gunnarsson,
Valgerður Stefánsdóttir,
Þórhildur Gunnarsdóttir,
Gunnar Gunnarsson,
Valgerður Gunnarsdóttir,
Árni Gunnarsson,
Agla Marta Marteinsdóttir,
Guðlaug Konráðsdóttir,
Magnús Jónsson,
Stefán Ólafsson,
Elín Þórðardóttir.
Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför
FRIÐVINS S. ÞORBJÖRNSSONAR,
múrara,
Holtagerði 9.
Vigdís Ólafia Jónsdóttir,
Oddbjörn Friðvinsson, Sólveig Katrín Ólafsdóttir,
Jón Þór Friðvinsson, Jódís Lára Gunnarsdóttir,
Lilja Guðný Friðvinsdóttir, Ófeigur Guðmundsson
og barnabörn.
Afmælis- og minningargreinar
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðslætt er með greinar aðra daga.
Þannig gekk Þórður áfram á
lífsbrautinni. Hann tók hverju sem
að höndum bar með rósemi" og
æðruleysi, gerði kröfu til sjálf sín
og mátti aldrei vamm sitt vita. Þess
vegna birti alltaf upp í kringum
hann, þó að skýjað væri á köflum.
Að leiðarlokum keð ég góðan vin
með virðingu og þökk og sendi
ættingjum hans og ástvinum inni-
legar samúðarkveðjur.
Friðjón Þórðarson
+
Otför bróður okkar,
AGNARS EYLANDS HALLDÓRSSONAR,
Njörvasundi 5,
fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 16. júlí kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á Krabba-
meinsfélagið.
Lilja Halldórsdóttir,
Stefanía Halldórsdóttir.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ARTHUR SIGURBERGSSON,
Markarflöt 55,
Garðabæ,
sem lést 5. júlí sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 17. júlí kl. 13.30. Jarðsett verður að Görðum á Álftanesi.
Lára J. Karlsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu mér og fjölskyldu minni
samúð og hlýhug við fráfall mannsins míns,
ÞÓRÐAR KRISTJÁNSSONAR,
Bræðraborgarstíg 23A.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og eigenda Vörukaupa.
Einnig sendi ég samstarfsfólki mínu hjá Pósti og síma mínar
bestu þakkir.
Guð blessi ykkur öll.
Pálina Hafsteinsdóttir.
+
Innilegar þakkir færum við öllum, sem sýndu okkur hluttekningu
við fráfall og jarðarför systur okkar,
INGIBJARGAR J. HELGADÓTTUR,
Miklubraut 50,
sem lést 27. fyrra mánaðar.
Valgerður Helgadóttir,
Katrín Helgadóttir,
Torfhildur Helgadóttir,
Jóhanna Helgadóttir,
Magnús Helgason.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
ÁSLAUGAR E. ÁRNADÓTTUR
PROPPÉ.
Sérstakar þakkir sendum við læknum
hennar á Landakotsspítala og hjúk-
runarfólki á deild 2-B.
Gunnar Proppé,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vináttu við andlát og jarðarför
GUNNARS INGÓLFSSONAR,
Týsgötu 5,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk og vöru-
bifreiðastjórar á vörubílastöðinni Þrótti.
Ingibjörg Gunnarsdóttir, Sveinbjörg Gunnarsdóttir,
Guðbjörg Gunnarsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir,
Oddfríður Sæmundsdóttir,
Sæmundur Ingólfsson, Guðmundur Ingólfsson.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
HALLDÓRU AÐALSTEINSDÓTTUR,
Smyrlahrauni 17,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks St. Jósefsspítala, lyflækningadeild,
fyrir góða umönnun í veikindum hennar.
Hafdis Jóhannesdóttir, Eiríkur Ólafsson,
Viðar Sæmundsson, Aðalsteinn Sæmundsson,
Sigurður Sæmundsson, Lísbeth Sæmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.