Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 29
'ifH! r ijCn. ,u fluoAouvsnue ICfcyiAffiAIUEV qiQAjaviuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1991
C 29
Flekarnir voru
bornir uPP í víkina.
Pálína Guðjónsdóttir
og Ragnar Jónsson
smiður (til hægri) af-
henda Gylfa Sigurðs-
syni formanni björgun-
arskýlanefnar Hall-
varðsbúð.
hörundið. Sagt var að Hallvarður
væri skáldmæltur og að hann hefði
einstaklega fallega rithönd, á hann
að hafa álasað Magnúsi Gíslasyni
amtmanni fyrir hrafnaspark og tekið
að sér að skrifa bréf fyrir hann. Eins
og oft er með stóra og hrausta menn
þá voru Hallvarður og bróðir hans,
Jón hinir mestu mathákar og einu
sinni á Hallvarður að hafa borðað
12 sauðahausa en Jón 60 æðaregg
með skurn í mál. Hallvarður var tal-
inn traustur og því oft í sendiferðum
með embættisbréf milli iyrirmanna.
Á ferðum sínum um landið fór oftast
um fjöll og heiðar. Gekk hann þá í
selskinnsstakk eða kufli með hettu
úr selskinni og með selbelgi á fótum.
Hann svaf í þessum kufli hvemig sem
viðraði þegar hann lá úti á flöllum
og sagði hann betri en nokkurt tjald.
Ein saga segir að Hallvarður hafi
legið sofandi og að honum hafi kom-
ið smalastrákur. Smalinn varð mjög
hræddur því hann hélt að þetta væri
skrímsli í selslíki. Hallvarður vaknaði
við hræðsluvein drengsins er hann
lagði á flótta en Hallvarður elti hann
uppi. Meðan á eltingarleiknum stóð
varð stráksi ennþá hræddari, en
Hallvarði tókst þó að lokum að róa
hann og fullvissa hann um að hann
væri mennskur en ekki af skrímsla-
kyni, þrátt fyrir tröllslegan vöxt sinn
og klæðnað. Þegar Hallvarður fór á
fund embættismanna klæddist hann
iðulega sauðsvartri belghempu með
mórauða hettu og spælahatt yfír sem
hann batt undir kverkina, hann girti
sig með ól og hafði birkirenglu í
höndinni, Svo sjaldan sem hann fór
til kirkju þá klæddist hann þessari
múnderingu og þótti heldur ósjálegur
á að líta. Hallvarður var löngum upp
á kant við kirkjuna og kirkjunnar
menn, hann sótti illa kirkju og að
lokum fór svo að fundið var að þessu
við hann, en hann sagði að ekki
mætti þröngva nokkrum manni til
kirkju. Eftir þetta fór hann_ samt
öðru hveiju til kirkju í Árnesi. í einni
ferðinni færði hann sóknarpresti
brennivínskút með þeim orðum að
þetta væri það sem presti nýttist
verst. I einni messu er sagt að hann
hafi setið á krikjudyraþröskuldinum
þar sem hann gat ekki gert upp hug
sinn hvort hann ætti að vera úti eða
inni. Hallvarður neitaði ætíð að
greiða sýslumanni gjöid. Hann hélt
því fram að allir búendur ættu að
verajarðeigendur, því allir væru jafn-
ir að jörðu komnir og væri því óhæfa
að selja lönd til leigu. Hann bjó alla
sína búskapartíð með ráðskonu sinni,
Þorgerði, sem eiginkonu en neitaði
ávallt að giftast henni og ekki áttu
þau börn saman. Hallvarður stundaði
sjóróðra og hvalveiðar eins og aðrir
Strandamenn á þessum tíma, hann
þótti góður skipasmiður og höfðu
menn þá trú á skipum þeim sem
hann smíðaði að þeim hlekktist aldr-
ei á. Ekki var hann allur þar sem
hann var séður og eitthvað kunni
hann fyrir sér. Hann réð niðurlögum
tveggja magnaðra sjódrauga í Reka-
vík, með því að grafa upp lík þeirra
og reka járnfleina fyrir brjóst þeirra
og iljar, að lokum festi hann stóra
steina við þá og varpaði þeim í sjó-
inn. Áður en Hallvarður lést brenndi
hann skræður sínar og tók saman
tölu sem hann bað um að yrði lesin
yfír kistu sinni. Þegar flytja átti lík
hans til kirkju gerði í tvígang óveður
og ófærð á'sjó og landi. Hallvarður
var jarðaður í túninu í Skjaldarbjam-
arvík án vitundar sóknarprests og
án yfirsöngs, á legstað sem hann
valdi áður en hann dó. Almennt var
talið að Hallvarður væri engu minni
galdramaður en Hallur faðir hans,
en Hallvarður fór vel með kunnáttu
sína og gerði engum manni mein.
- V. Hansen
MótKFUM
ogKFUKí
Vatnaskógi
Mót KFUM og KFUK var nýlega
haldið í Vatnaskógi og var
að því mikil blessun.
Sérstök gleði var að sjá unga
fólkið ijölmenna til þessa móts og
taka með djörfung þátt í því með
tali og tónum. Einnig góður sólar-
geisli í rykugu þjóðlífi landsins, sem
verður að bæta og allir að hjálpast
að til þess ef ekki á að halda áfram
niður hjarnið.
Frásagnir fólksins á mótinu voru
stórkostlegur vitnisburður hve guð
hefur margt fyrir þá sem til hans
leita og af máli kristniboðanna
mátti ráða, hversu mikil neyð er í
heiminum, sem kristið fólk er að
beijast við.
Það hefðir verið mikil blessun
fyrir landslýð að fá þessar samkom-
ur teknar á myndbönd og sýndar í
sjónvarpi, þótt ekki væri til annars
en að fólk fengi að bera þær saman
við allan sorann, sem þar er réttur
að hinum almenna borgara.
Árni Helgason, Stykkishólmi.
----------------
Þegar menn
vilja ekki
læra lengur
Mér var bent á það með rökum
í vetur að Evrópska samfé-
lagið væri réttara nafn en Evrópu-
bandalagið. Ég tek stundum rökum
og svo var í þetta sinn og því tók
ég upp nýja nafnið enda var eldra
nafnið svo nýtt að það er yngra en
flest nýyrði málsins.
Eðlilegt er að leiðréttingin taki
nokkurn tírna. Hitt er verra að
menn beri því við þegar þeir halda
í gamla nafnið og viðurkenna þó
að rangt sé farið með að fólk,
þ.e.a.s. aðrir en þeir, eigi of erfitt
með að skilja breytinguna. Það er
slæmt að ætla almenningi að geta
ekki lært það sem maður kannast
þó við að sé einfalt mál.
Það varðar litlu hvernig eldra
nafnið var valið, aðalatriðið er að
nota nafn í samræmi við upphaflegt
heiti. Svo er gert í nálægum löndum
(í Noregi fellesskap, í Danmörku
fællesskab og í Svíþjóð orðið gem-
enskap, sbr. þýska orðið gemeinsc-
háft). Af því hafa verið myndaðar
skammstafanimar EF í norsku og
dönsku og EG í sænsku og þýsku.
Björn S. Stefánsson
Fóksfélagar
Síðustu forvöð að tilkynna þátttöku íferð
félagsins um verslunarmannahelgina eru
mánudaginn 15. júlí.
Nánari upplýsingar í síma 622424 (Agn-
ar) eða 71582 (Marinó) og á skrifstofunni
ísíma672166.
Ferðanefnd.
London
KR. 18.900?
Fast verð án flugvallarskatts og forfallatryggingar.
Til samanburðar: Ódýrasta superpex til
London á 31.940 kr. Þú sparar 13.040 kr.
Flogið alla miðvikudaga.
Frjálst val um hótel, bílaleigur og framhaldsferðir.
=. FLUGFEROIR
= 5QLRRFLUC
Vesturgata 12, Símar 620066, 22100 og 15331
Kvikmyndin 'Veggfóöur'
^ ^^rólísk ástarsaga
Kvikmyndafélag íslands hf. óskar eftir fólki í eftirtalin
hlutverk í Kvikmyndinni Veggfóöur sem tekin verður upp
í Reykjavík i ágúst n.k..
Danni - góölegur karl, 40-60 ára.
Uggi - hommi, 15-30 ára.
Andrea - kona 16-30, þarf að koma nakin fram.
Drottning - kona 16-30, þarf aö koma fram á undirfötum (leður).
Gugga - kcerasta Danna, 20-30 ára.
Dísa - húsmóöir, 40-55 ára.
Kótilettukarl - 40-50 ára.
Myndlistarkennari - maöur meö sterkan svip, 35-50 ára.
Ruddi - ruddalegur karl, 18-30 ára.
Tvíburar - tveír brœöur, 6-12 ára.
Menntskœlingur - menningarlegur drengur, 16-20 ára.
Tvœr berbrjósta - stúlkur meö löguleg bijóst, 16-25 ára.
Fimm feitlagnar konur - konur 40-70 ára til aö koma fram í sundi.
Auk þess vantar fullt af hip-hopp-urum og ungu fólki í aukahlutverk
Starfsfólk óskast.
Hljóðmann, skriftu, aöstoðarmenn í leikmynd, búninga, föðrun
og í kameru-deild vantar á meðan á tökum stendur frá
ó.ágúst til 1 .sept.
Áhugasamir sendi umsóknir til: Kvíkmyndafélags íslands hf.,
Vitastíg 14, 101 Reykjavík. Fyrir 21. júlí.
_______Ljósmynd þarf að fylgja umsóknum um hlutverk.___
Forkastanleg fréttamennska
Eg var að horfa á viðræðuþátt í
ríkissjónvarpinu, Kastljós,
þriðjudagskvöldið 9. þ.m. Þessi
þáttur átti að vera tveggja manna
tal, þ.e. rökræður um hugsanlegt
afsal hluta fullveldis þjóðarinnar til
útlendinga og þá uppgjöf sem virð-
ist hafa heltekið hugi ýmissa íslend-
inga.
Bjarni Einarsson framkvæmda-
stjóri og Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra áttu að skiptast
á skoðunum um þetta alvarlega
mál, en það fór nú á annan og verri
veg. Utanríkisráðherrann og frétta-
maðurinn Ingimar Ingimarsson
skiptu umræðutímanum á milli sín
að mestu, þótt ráðherrann hefði þó
mun betur. Þá sjaldan að utanríkis-
ráðherrann þagnaði eitt andartak,
til þess að draga andann, reyndi
fréttamaðurinn að brúa bilið með
„gjammi“, að því er virtist til þess
að koma í veg fyrir að Bjarni Ein-
arsson næði að komast að í umræð-
unni. Það sætir furðu að ríkissjón-
varpið skuli hafa á sínum snærum
fréttamenn, sem ekki gæta betur
hlutleysis en gert var í þessum
þætti og hafa ekki heldur burði til
þess að stjórna umræðum um mikil-
I væg mál af meiri festu en í þetta
skipti. Hvort umræddur fréttamað-
ur var aðdáandi Evrópubandalags-
ins eða ekki, kom málinu' hreinlega
ekkert við, hann átti að deila tíman-
um milli hinna raunverulegu við-
mælenda sem næst jafnt, og láta
persónulegar skoðanir liggja á milli
hluta, enda skipta þær þjóðina engu
máli, nema þá helst að fara í taug-
arnar á öllum heilsteyptum Islend-
ingum.
Orðaflaumur utanríkisráðherr-
ans var í þessum þætti á þann veg,
að hafi einhver Islendingur verið í
vafa um að verið sé að framselja
verulegan hluta fullveldis okkar í
hendur útlendinga með EES-samn-
ingi, þá mun sá maður varla vera
í neinum vafa lengur. Utanríkisráð-
herrann fór eins og köttur í kringum
heitan graut þegar kom að kjarna
málsins. Hann taldi að þótt 11.000
blaðsíður laga, tilskipana og reglu-
gerða EB, sem skv. prófessor í lög-
um við Háskóla íslands, séu nú
þegar í meginatriðum sömu lög og
EFTA-ríkin hafa samþykkt, þá sé
það ekki nein skerðing á fullveldinu
af þvi að þingmenn krata og sam-
starfsflokks á Alþingi séu samþykk-
ir. Hvað með þjóðina? Fólkið sem
trúði því að ekki væri verið að kjósa
um örlög þess í sl. alþingiskosning-
um? Eða var kosið um afsal fullveld-
isins? „Gjamm“ fréttamannsins um
málið og augljós hlutdrægni var á
þann veg, að full ástæða er fyrir
stjórnendur þessa ríkisfjölmiðils að
vanda betur til vals á fréttamanni
næst þegar þættir af þessu tagi eru
sendir þjóðinni til uppfærslu. Hóg-
værð Bjarna Einarssonar sitjandi á
milli manna, sem að því er virtist
höfðu samantekin ráð um að koma
i veg fyrir að hann kæmi máli sínu
á framfæri og gæti svarað fyrir
sig, verður að teljast honum til
mikils sóma og þeim þjóðlega mál-
stað sem hann var fulltrúi fyrir.
Jóhannes R. Snorrason
heimili landsins!
Sóf asett 3+1+1, sóf aborð og 2 litlir stólar.
Áklæði drapplitað, bleikt og rautt.
Allt þetta 168.000 kr. stgr.
EURO og VISA greiðslukjör.