Morgunblaðið - 11.08.1991, Page 1
Stólsnríöi
Iþætti sínum Smiðjan útskýrir
Bjarni Ólafsson, hvernig
smíða má stól. Hann fjallar um
efnisval, útlitshönnun, sam-
setningu o. fl. og gerir þar ráð
fyrir, að notuð verði fura, en
auðvitað geti hver notað þann
við, sem hann vill sjálfur. Smíði
úr harðviði, sé erfiðari smíði,
en stóllinn kunni að notast
lengur. Bjarni segir, að bezt sá
að nota vel brýndan pússhefil
til að strjúka af öllum flötum
og að hefla sárustu brúnirnar
svolítið rúnnaðar. Nákvæmar
ráðleggingar fylgja um, hvernig
Ifma skuli stólinn saman. Líma
skal bakið saman fyrst og f ram-
hliðina næst. O
Fagmenn
skoói
sölueisnl
SUNNUDAGUR 11. AGUST 1991
BLAÐ
Hafnarfjöröur
Fullgerðar
íbúðir
á hðfuð-
borgar-
svæðinu
1980-89
Ekki ósjaldan kemur það fyr-
ir, að eigandi húseignar
eða íbúðar þarf að gripa til
meiri háttar viðhalds eða við-
gerða á eign sinni, enda þótt
hann hafi aðeins átt hana til-
tölulegan skamma tíma,
kannski eitt ár eða skemur.
Slíkt er ávallt alvarlegt fjár-
hagslegt áfall fyrir viðkomandi,
því að flestum reynist það ær-
inn fjárhagslegur baggi að fjár-
magna sjálf fasteignakaupin.
í viðtali við Árna Þór Árna-
son byggingatæknifræðing hér
i blaðinu í dag er fjallað um
þetta vandamál. Hann telur,
að það ætti að vera reglan, að
byggingafróðir fagmenn skoði
fasteignir og gefi um þær skrif-
lega umsögn, áður en þær fara
ísölu. Slíkt myndi auka öryggi
í fasteignaviðskiptum. Staðla
mætti skoðunarformið, þannig
að það yrði hnitmiðað og ódýrt.
Sá kostnaður, sem hlýzt af
þessu, myndi sparast annars
staðar. Málaferlum vegna galla
ífasteignakaupum myndi
fækka stórlega, en þau eru
.^^^^_bæði kostnaðarsöm
Bfch^og tímafrek.
Groska í
■búóar-
byggbigum
Reykjavík
Miklar sveiflur hafa verið í
íbúðarbyggingum íein-
stökum sveitarfélögum höfuð-
borgarsvæðins á undanförnum
árum. Á meðfylgjandi mynd
sést hver fjöldi fullgerðra íbúða
var á þessu svæði á árunum
1980-1989 og kemur þar margt
athyglisvert í Ijós. Enda þótt
flestar íbúðir hafi hin síðari ár
verið byggðar í Reykjavík er
mikil gróska í þessum efnum í
nágrannabæjunum og má þar
sérstaklega benda á Hafnar-
fjörð. Þar hafa ný svæði verið
að byggjast upp t.d. syðst í
Hvaleyrarholti og í Setbergs-
landi. Þá hefur aukning verið í
byggingu íbúðarhúsnæðis í
Kópavogi hin síðari ár en árið
1989 voru þar f ullgerðar 193
íbúðir sem er meira en 8 ár
þar á undan. Samanlagt nemur
hlutur þessara tveggja sveitar-
félaga um 30% af fullgerðum
íbúðum á höfuðborgarsvæðinu
á árinu 1989.
í Reykjavík hélst fjöldi full-
gerðra íbúða svipaður á árun-
um 1988 og 1989 eftir mikla
uppsveiflu undangengin þrjú
ár. Þegar litið er yfir ttmabilið
allt er hlutur Reykjavíkur í ný-
byggðu íbúðarhúsnæði um
65%, Kópavogs 10,4%, Hafn-
arfjarðar 8% og Garðabæjar
7,3%, Mosfellsbæjar 4,1 % og
Seltjarnarness 3,7%.
AfiÍlAAl0ll
80 81 82 83 84 35 86 ,87 88 89
Önnur ,
svete- - «131 _ j
^ V
Kjalarneshreppur.