Morgunblaðið - 11.08.1991, Blaðsíða 2
2 B
t«ei T8O0A .ti fluoA(rjKvrj8 HH/1£)I3T3A^ qiqAja/uoflOM
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 1991
Framlcvæmdlr hafii-
ar á ný vi<> Alviðru
BYGGÐAVERKI hf. í Hafnarfirði hefur nú verið falið að ljúka smiði
hins fræga mannvirkis, Alviðru í Garðabæ. Gert er ráð fyrir, að
íbúðum þar verði skilað tilbúnum undir tréverk eigi síðar en 15.
marz á næsta ári. Það er starfandi húsfélag. Sjávargrund 1-15, sem
bauð út byggingarframkvæmdirnar að tiibúnu undir tréverk og
fullfrágenginni sameign, þar með talinni lóð. Nýverið er búið að
semja við lægstbjóðanda, Byggðaverk hf. um að ljúka verkinu fyrir
128,3 millj. kr.
Viðerum þegar byrjaðir. Að und-
anförnu hefur hópur verka-
manna verið þarna að störfum við
að hreinsa og síðustu daga hefur
verið unnið að því að háþrýstiþvo
mannvirkið, sagði Gísli Rafnsson
tæknifræðingur og innkaupastjóri
hjá Byggðaverki, en hann sér um
öll innkaup og verksamninga varð-
andi Alviðru. — Innan skamms hefj-
ast svo múrviðgerðir, en Steinprýði
hf. mun annast það verkefni. Þar
á eftir munu iðnaðarmenn frá okk-
ur hefjast handa við að setja í
glugga og loka þakinu sem fyrst.
Gísli kvað húsið vera í ótrúlega
góðu ástandi miðað við, hvað það
væri búið að standa lengi, en fimm
ár eru síðan húsið var steypt upp
og nær 7 ár liðin, frá því að byijað
var þar á framkvæmdum. — Við
gerðum tilboð í allt mannvirkið fyr-
ir tveimur árum, en því var hafnað
og það varð til þess að húsið stóð
bara óhreyft tvö ár í viðbót, sagði
Gísli. Yfirborðsskoðun hefði samt
sýnt litlar steypuskemmdir, en bú-
ast mætti við, að einhveijar slíkar
skemmdir kæmu í Ijós, eftir að
húsið hefði verið háþrýstiþvegið.
— Við gerum okkar samt vonir
um, að þær verði tiltölulegar litlar
og húsið þarf engar sérmeðferðar
með af þeim sökum, sagði Gísli
ennfremur. — Við munum skila því
tilbúnu undir tréverk og eru áætluð
verklok í marz-apríl á næsta ári.
Gera má ráð fyrir því, að fljótlega
verði 30-40 manns starfandi við
Alviðru á okkar vegum. Við vinnum
verkið í umboði húsfélagsins sam-
kvæmt tilboði, sem við gerðum.
Alviðra í Garðabæ. 5 ár eru síðan húsið var steypt upp.
Gísli sagði að lokum, að aðeins
yrðu gerðar litlar breytingar á hús-
inu miðað við upphaflega hönnun
þess. Aðalbreytingin væri sú, að
yfirbygging úr gleri, sem átti að
verða yfir garðinum í miðju, myndi
hverfa. Aðrar breytingar væru smá-
vægilegar.
Þrjátíu og tvær íbúðir
Alviðra er töluvert mannvirki eða
nær 6.000 fermetrar alls að flatar-
máli. íbúðir þar verða þijátíu og
tvær og í mismunandi stærðar-
flokkum. Á jarðhæð verða fimmtán
3-4ra herb. íbúðir á bilinu 110-140
fermetrar að stærð. Þá verða 15
íbúðir á 2. hæð, en þeim fylgir ris.
Þessar íbúðir eru með tvennum
svölum. Snúa aðrar inn að miðgarð-
inum en hinar út. Inn í neðri íbúð-
irnar er gengið í gegnum forgang
°g fylgir þeim verönd, sem snýr inn
að miðgarðinum, en húsið er byggt
í hring utanum hann. Allar eru íbúð-
irnar með bílgeymslu í kjallara, en
auk þess fylgja íbúðunum sameigin-
leg bílastæði á lóð.
Það voru arkitektarnir Örn Sig-
urðsson og Kristinn Ragnarsson,
sem hönnuðu húsið, en þeir voru
báðir á meðal stofnenda Alviðru hf.
Nú er íslandsbanki eigandi að 1/3
af íbúðunum og ýmsir lífeyrissjóðir
eiga einnig 1/3. Nokkrir kröfuhafar
í þrotabú Alviðru eiga svo afgang-
inn.
Hlutafélagið Alviðra hf. var
stofnað í júní 1985. — Eiginfjár-
staða fyrirtækisins var mjög sterk
fram yfir árið 1987, en eftir það
tók að halla undan fæti, sagði Ás-
mundur Ásmundsson verkfræðing-
ur hússins og einn af stofnendum
Alviðru hf. — Um það leyti sem
byggingaframkvæmdir hófust,
myndaðist óvissa um húsnæðis-
stjórnarlán, sem olli því, að hús-
næðismarkaðurinn dróst saman og
kaupendur urðu færri, en ráð var
fyrir gert. Það leiddi til þess, að
þrátt fyrir góða eiginfjárstöðu 1987
skorti fyrirtækið lausafé. Því tóku
hluthafar það til bragðs að selja
hluti sína fjársterkari aðilum. Hlut-
irnir söfnuðust þá flestir á eina
hendi, en sá aðili missti síðan tök
á rekstri fyrirtækisins á skömmum
tíma 0g það varð gjaldþrota haustið
1989.
Að sögn Asmundar námu skuld-
irnar þá 20-30 millj. kr. og vógu
skuldir vegna efniskaupa þar
þyngst að sögn Ásmundar.
SMIÐJAN
STOLL
Skemmtilegt verkefni getur
það verið að smíða sér góðan
stól og ef vel tekst til með hinn
fyrsta, þá má smíða einn — tvo
— þijá — eða fleiri til viðbótar.
Við reynum við smíði gamaldags
stóls í smiðjunni í dag. Hann
á að vera einfaldur og góður svo
að við þreytumst
ekki á að sitja á
honum, sígildur
eða „klassískur".
Efni
Hvaða efni vilj-
um við nota?
eftir Bjarna Ég geng út frá
°Msson að notuð verði fura
í stólinn, en auðvitað getið þið not-
að þann við sem þið viljið sjálf.
Helst þarf að velja kvistalausa
furu og er hæfilegt að fætur stóls-
ins séu 40x35 mm að gildleika.
Kjósir þú að smíða stól úr harð-
viði, þá verður það erfiðari smíði,
en hann kann að endast lengur.
Einkum á það við ef samsetningar
takast vel svo að límið haldi vel.
En pússning og frágangur á yfir-
borði viðarins kann að verða erfið-
ari.
Ég ræð smiðjugestum frá því að
nota grenivið í stól.
Útlitshönnun
Hvernig notum við stól? Gáfuleg
spurning þetta!
Auðvitað notum við stóla til að
sitja á þeim. Já, rétt er það en hef-
ur það ekki hent þig er þú hefur
gengið til sængur að kvöldi að þig
vantaði stól til að hengja fötin á
yfir nóttina?
Stundum notum við stól tii að
stíga upp á er við þurfum að líta í
háan skáp. Nú hefi ég nefnt þrenns-
konar notkun og er margt ónefnt.
Mikilvægast er að stóllinn verði
góður til að sitja á.
Beinar línur
Þessi stóll byggist eingöngu á
beinum línum, lóðréttum og lárétt-
um. Fæturnir standa beinir upp og
niður og enginn halli er heldur á
setunni né öðrum þverstykkjum.
Mörgum er hætt við bakverkjum
ef þeir sitja lengi á stól með hal-
landi setu, sem er hærri að framan
en að aftan. Seta þessa stóls verður
því jafnhá að framan sem að aftan.
Bak stólsins er í hærra lagi og kem-
ur það sér vel ef föt verða hengd
á hann. Að hafa bakið rétt upp er
gert í þeim tilgangi að hjálpa þeim
er á stólnum situr til að sitja upp-
réttur. Það er góður siður, er betra
fyrir bakið og fallegt að reyna til
að sitja beinn í baki.
Efnislisti
2 stk. 40x35 mm fætur 105 cm
langir
2 stk. 40x35 mm fætur 45 cm 1.
2 stk. 55x22 mm þv.stk. undirsetu,
1. 37 cm.
3 stk. 55x22 mm þv.stk. undir setu,
1. 28 cm.
30 stk. dýlar 10 mm lengd 5 cm.
6 stk. sívöl sköft 22 mm lengd 31
cm þverslár
2 stk. sívöl sköft 22 mm lengd 40
cm þverslár
5 stk. fjalir 90x30 mm lengd 35
cm í setuna.
Samsetningar
Ég reikna með að flestir sem
grípa í að smíða heima við eigi
borvél. Einföld samsetningaraðferð
á svona stólgrind er að bora göt
fyrir dýlum og nota þá sem tappa.
Því er reiknað með að í hvern enda
þverstykkjanna séu límdir þrír dýl-
ar, sem síðan eiga að ganga 20 til
22 mm inn í lappimar. Það er áríð-
andi að vanda sig við að bora beint
inn í enda þverstykkjanna, um það
bil 30 mm djúpt inn, þrjú göt í
hvem enda. Að því loknu má líma
dýlana í götin og gæta þess að slá
þá ekki lengra inn en svo að þeir
standi 20 til 22 mm út úr enda
þverstykkisins. Munið að þurrka
allt lím af endunum á meðan það
er óharðnað.
Pússning
Þegar lokið er við að festa dýlana
í enda þverstykkjanna er rétt að
ljúka við að pússa öll þessi stykki
sem nota skal í stólinn. Best er að
nota vel brýndan pússhefil til að
stijúka af öllum flötum og að hefla
sárustu brúnirnar svolítið rúnnaðar.
Þegar hver hlið stykkjanna hefur
verið hefluð skal hún pússuð yfir
með sandpappír nr. 90 til 100.
Á sama hátt þarf að pússa vel
efri enda lappanna og rúnna brún-
irnar vel á endunum.
OIl keflin sem nota skal í þver-
slár í efri hluta bakksins, þ.e.a.s. 4
slár, þarf að hefla eða tálga til svo
að þau gefi betri stuðning fyrir
.bakið á þeirri hlið sem snúa skal
fram. Sjá mynd A á teikningu. Til
þess verks er best að ntoa
tvískeftan tálguhefil, en sé
hann ekki við hendina má
nota beittan hníf og sand-
pappír.
Frekari samsetningar
Nú er næst fyrir hendi
að festa saman öll stykki
sem eiga að koma á milli
bakfótanna tveggja.
í efsta stykkið getur verið prýði
af því að bora stórt gat í miðju
stykkisins. Slíkt gat getur einnig
komið sér vel til að hengja herðatré
í. Fyrir breiðu stykkin tvö, sem
hafa 3 dýla í hvorum enda, verður
að vanda vel merkingu á dýlagötun-
um.
Stundum eru negldir litlir naglar
í miðju á dýlaendunum og þeim
síðan þrýst fast niður á þann stað
sem stykkið á að koma í löppina.
Naglarnir merkja þá hvar miðja
borsins á að vera þegar borað verð-
ur. B-N.
Borinn sem notaður verður þarf
að hafa góðan odd í miðju svo að
hann skriki ekki til að við borun.
Nota skal 10 mm bor fyrir dýlana
og 18 mm bor fyrir slámar. Gert
er ráð fyrir að endar kefla-slánna
gangi 15 mm inn í götin. Við skul-
um gera okkur grein fyrir a,ð stólinn
verður við að líma saman eftir
ákveðinni röð:
Límið bakið saman fyrst, fram-
hliðina næst. Helst þarf að spenna
líminguna saman með þvingu eða
í hefilbekk. Gætið þess vel að þver-
stykkin séu í rettum vinkli við fæt-
urna, þ.e. 90” horn. Þegar þessu er
lokið og límið hefur verið hreinsað
af, ef eitthvað hefur pressast út,
skal líma hliðarnar saman á þann
hátt að endar þverstykkjanna
límast fyrst í bakfæturna og síðast
í framfæturna, báðar hliðar
samtímis.
Skreyting
Ef ástæða þykir til má skreyta
stólinn með því að bora 1 gat ofan
í hvorn bakfótinn og líma þar kúlu
eða skraut-topp.
Setan
Fjalir setunnar er gott að líma
saman um leið og þær verða límdar
ofan á þverstykki stólgrindarinnar.
Gæta verður þess að nákvæmt sé
skorið úr hornum setunnar fyrir
fótunum. Einnig þarf að hefla set-
una og pússa vel. Rúnnið vel brún-
ir hennar að framan og á hliðunum.
Fallegt er að festa sessu, — púða,
á setuna og á bakið má einnig
hengja púða.