Morgunblaðið - 27.09.1991, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1991
B 7
Robert Guerlain
l
Að f æðast
ætta.
- snyrtivörufyrirtækið sem hann
stjórnar var stofnað af langa-
langa-langafa hans fyrir
1 63árum.
Grásprengt örstutt hárið er
greitt í spíss fram á enni herra
Guerlains, sem er viðmælandi
Daglegs lífs. Jakkafötin eru óað-
finnanleg, grá úr fínlegu ullar-
efni, skyrtan rauðröndótt og
bindið rautt með Ijósum doppum.
Sokkarnir rauðir og svörtu leður-
skórnir vel burstaðir. Svipur
þessa manns er svolítið hörku-
legur þó glettni bregði fyrir á
andlitinu öðru hvoru. Rolex-úrið
sómir sér vel á úlnlið hans. Hann
er heimsborgari fram í fingur-
góma. Hann fæddist í Parfs fyrir
rúmlega 50 árum inní efnaða fjöl-
skyldu, sem hafði átt og stjórnað
einu þekktasta snyrtivörufyrir-
tæki heims.
Robert Guerlain segir að starfs-
menn fyrirtækis hans séu nú um
2.500. Það eru hins vegar ekki
nema þrír fjölskyldumeðlimir í
ábyrgðarstöðum innan fyrirtækis-
ins, segir hann og útskýrir að ef
fyrirtæki af þessari stærðargráðu
einblíndi á að koma fjölskyldumeð-
limum í ábyrgðarstöður, væri það
dauðadómur yfir fyrirtækinu.
„Nefið" hefur síðasta
orðið
Við veljum hæfasta starfsfólkið
í hvert starf, en ég viðurkenni að
við viljum þó ekki að stjórn fyrir-
tækisins sé einvörðungu í höndum
utanaðkomandi aðila. Hann segir
að „nefið“ svokallaða, sá aðili sem
sker endanlega úr um hvort ilm-
vatn verður markaðsett eða ekki,
beri Guerlain-ættarnafnið og
þannig hafi það verið frá upphafi.
Það þýðir hins vegar ekki að þann-
ig verði það alltaf. Stöðnun er
dauðadómur og finnist ekki nýtt
„nef" í hverjum ættlið, verður sá
aðili einfaldlega að koma annars
staðar frá. Guerlain er ákveðinn á
svip þegar hann mælir þetta, svo
við vendum okkar kvæði í kross
og spjöllum um snyrtivörur og ilm-
vötn, „sem er stórkostlega gaman
að tala um, en erfitt að vinna við,“
eins og hann segir sjálfur.
— Eitt af elstu ilmvatnstegund-
umykkar, Shailimar, erennþá upp-
istaðan í ilmvatnssölu ykkar. Er
upprunalegu formúlunni ennþá
fylgt, eða hefur henni verið breytt
með tímanum?
Upprunalegu formúlunni er enn-
þá fylgt, því þegar fólk kaupir ilm-
vatn með ákveðnu nafni, það rétt
á sömu vöru og það keypti mánuði
eða áratug áður. Ilmvatn á alltaf
að vera eins. Það er erfitt að halda
ilmvatni nákvæmlega eins áratug-
um saman, enda freistast margir
til að breyta ilmvötnum sínum lítil-
lega með árunum. Ilmgjafarnir
geta verið misjafnir frá ári til árs
og það getur stundum verið erfitt
að fá hinn hárfína og nákvæma tón
í ilmvatnið, en hann verður að vera
til staðar. Þá reynir á „nefið" sem
Robert Guerla-
in: „llmvötnum
er fyrst og
fremst ætlað að
vekja dulúð og
munúð.“
fúslega að þegar ég geng fram hjá
konu, sem ilmar vel, langar mig
ósjálfrátt að koma nær henni. Það
gleður eiginmann, kærasta, ást-
mann eða hver sem það nú er,
þegar kona hans ilmar vel.
—Hvert er uppáhalds-ilmvatnið
þitt?
Liu, alla vega þegar konan mín
ber það á sig. Það er eingöngu
selt í Guerlain-húsum, en Island
er undantekning, þvi hér er þetta
ilmvatn selt í snyrtivörubúðum.
—Hvers vegna er sama itmvatnið
misjafnt, eftir þvi hver ber það á
sig?
Ein helsta ástæðan er misjöfn
útgufun frá líkömum mannanna.
—Hvernig á kona að velja sér ilm-
vatn?
Þegar hún fer í snyrtivörubúð til
að kanna ilmvötn, á hún alls ekki
að hafa ilmvatn á sér. Síðan prófar
konan einn ilm, ekki fleiri, því ann-
ars brenglast lyktarskynið. Líki
henni ilmurinn, kaupir hún minnstu
fáanlegu pakkningu, eða fær
prufu, og notar ilmvatnið í nokkra
daga eða mánuð. Á þeim tíma
reynir hún að veita því athygli
hvernig henni líður með þennan
ilm við ólíkar kringumstæður.
Kannski kann hún vel við sig i vinn-
unni, en ekki heima með mannin-
um sínum, eða öfugt. Mismunandi
ilmvötn geta oft hentað við ólík
tækifæri, og þá ætti alltaf að taka
tillit til þess. Ef konan kann jafnvel
við ilminn, eða jafnvel betur, eftir
prufutímann, hefur hún hitt nagl-
ann á höfuðið. Annars fer hún aft-
ur í leiðangur og prófar nýtt ilm-
vatn þar til hún finnur það sem
hentar henni.
Víða í Evrópu eru seldar eftirlíking-
sker endanlega úr um hvort ilmur-
inn er hárréttur eða ekki.“
Þefað í tíu ár
—Segðu mér svolítið um „nef-
ið Hvernig verða menn „nef“ hjá
ilmvatnsframleiðendum?
Með þjálfun, segir hann og aftur
er pínulítil harka komin í röddina
og andlitið. Það tekur um það bil
tíu ár að þjálfa nefið og lyktarskyn-
ið aður en fólk fer að sýna þann
árangur sem þarf. í þessi ár þarf
að þefa af óteljandi ilmgjöfum,
leggja ilminn og keiminn á minnið,
og geta greint hinn rétta tón frá
10-20 mismunandi tónum. Þetta
er nákvæmnisvinna sem krefst
feykilegrar ögunar og þolinmæði.
Við leyfum engin mistök og gerum
miklar kröfur til þeirra sem starfa
hjá okkur
Þegar Guerlain er spurður hvort
í næstu kynslóð séu efnileg „nef“,
svarar hann því til að nú séu tveir
ungir drengir innan fjölskyldunnar
sem hugsanlega gætu verið efni-
legir. Tíminn á eftir að leiða í Ijós
hvort þeir verða tilbúnir að starfa
innan fyrirtækisins. Hann segir að
minnið skipti mestu máli hjá „nefj-
unum“, rétt eins og hjá þeim sem
smakka víntegundir og leggja öll
smáatriði vínsins á minnið.
Engin þrýstingur frá
foreldrum
—Hvernig var uppeldi þitt? Miðað-
ist það að einhverju leiti við að þú
tækir við stjórn fyrirtækisins?
í rauninni ekki. Ég ólst upp á
stríðsárunum, miklum krepputím-
um og var þeirrar gæfu aðnjótandi
að eiga vel efnaða fjöjskyldu sem
gat klætt sig og fætt. Ég lærði við-
skiptafræði í Bretlandi og hóf svo
störf hjá Guerlain þegar ég var 25
ára. Fyrst var ég í starfsþjálfun og
síðan tók ég við sölustjórn í Bret-
landi og Austurríki. Sem barn velti
ég því aldrei fyrir mér hvers vegna
ég fæddist inní þessa fjölskyldu
frekar en einhverja aðra og ég
varð ekki fyrir miklum þrýstingi af
hálfu foreldra minna að vinna fyrir
fyrirtækið. Það er.í rauninni tæki-
færi sem meðlimir Guerlain-fjöl-
skyldunnar hafa, en ekki skylda,
og því síður réttur. Þeir sem vinna
hjá fyrirtækinu verða að vera færir
í sínu fagi, hvort sem þeir heita
Guerlain eða eitthvað annað.
— Hvers vegna eru ilmvötn jafn
auðseljanlegur varningur og raun
ber vitni?
Vegna þess að þau eru tiltölulega
ódýr gleðigjafi. Eitt ilmvatnsglas,
sem endist í mánuð, kostar jafn
mikið og ein kampavínsflaska sem
drukkin er á tveimur klukkutímum,
og jafnmikið og einn vöndull af
blómum sem skrælna á þremur
dögum. Þannig er þetta núna þó
áður fyrr hafi ilmvötn verið lúxus-
varningur, þegar heldri borgarar
pöntuðu snyrtilínu með nýjum ilmi,
sem var þá hönnuð sérstaktega
fyrir viðkomandi. Það var ekki óal-
gengt á upphafsárum Guerlain, að
fyrirtækið væri beðið um að hanna
sérstakan ilm fyrir stórveislur
ríka fólksins.
Við viljum vera seiðandi
—Hefur þú hugmynd um hvers
vegna bæði karlar og konur sækj-
ast eftir því að lykta öðruvisi en
náttúran býður?
Já, vegna þess að við viljum
höfða á kynferðislegan hátt til
gagnstæðs kyns. Konur vilja laða
að sér karlmenn og öfugt, með
seiðandi ilmi. Ég viðurkenni það
ar af þekktum ilmvötnum og snyrti-
vörum, að ekki sé talað um fatnað
frægra hönnuða. Það eru gjarnan
götusalar sem bjóða þennan varn-
ing til sölu. Hafa ilmvatnsframleið-
endur reynt að stemma stigu við
þessari þróun?
Já, það hefur svo sannarlega verið
reynt. Margir hafa verið dregnir
fyrir rétt, og stórir lagerar hafa
verið gerðir upptækir. Eftirlíking
af þessu tagi er ekkert annað en
þjófnaður á hugmyndum og vinnu
annars fólks.
Dulúð og munúð
—Öðru hvoru koma á markaðinn
ilmvötn með sérkennilegum ilmi,
sem sumir kalla karakter. Hins
vegar virðist megnið af ilmvötnum
á markaðnum dæmigerð fyrirmeð-
almennsku. Það eru ilmvötn sem
hafa þokkalegan ilm og eru áreið-
anlega auðseljanleg. Afhverju rey-
nið þið framleiðendur ekki meira
að skapa sérstöðu, gera sérkenni-
legri ilma, sem yrðu persónulegri?
Það er rétt að mikið af ilmvötn-
um sem standa til boða eru í þess-
ari meðalkúrfu. Hins vegar eru
ekki nema 30 tegundir sem eru
70% af markaðnum. Ég held að
meðalmennskan í ilmvatnsfram-
leiðslu sé að hverfa, enda veit hún
aldrei á gott.
—Hvaða ilmgjafar eru vinsælastir
i ilmvötnum núna?
Blómailmur ýmiskonar er sígildur
og alltaf vinsæll. Hins vegar njóta
mildir austurlenskir ilmgjafar, sem
eru seiðandi, síaukinna vinsælda,
enda er ilmvötnum fyrst og fremst
ætlað að vekja dulúð og munúð.
Brynja Tomer
1