Morgunblaðið - 29.09.1991, Qupperneq 5
' MORGUNBLAÐIÐ GLER OG QLUGGARUm.flS]?'?! . SfePTÉMBÉR 1991
Ólafur Magnússon hjá Glerskálanum:
'C f5
Verður þessi aðferð ódýrari en
sú sem hingað til hefur tíðkast?
-Sumir segja að hún sé dýrari og
í raun liggur kannski ekki fyrir
nákvæm úttekt á því ennþá. En hér
verða menn kannski að horfa lengra
fram á við og hugsa um fleira en
stofnkostnaðinn. Við teljum þessa
aðferð gefa mun betri endingu og
því má segja að hún sé ódýrari
þegar til lengdar lætur jafnvel þótt
stofnkostnaðurinn sé eitthvað
hærri.
Iðnlána-
sjóður
styrkir
oglánar
IÐNLÁNASJÓÐUR kemur við
sögu í verkefninu „glerjaðir og
fullmálaðir gluggar fyrir ísetn-
ingu“ á tvennan hátt. Annars veg-
ar styrkir hann verkefnið og hins
vegar eiga viðkomandi fyrirtæki
kost á svokölluðu áhættuláni sem
sjóðurinn veitir fyrirtælqum sem
standa í vöruþróun. Þessi mál
heyra undir vöruþróunar- og
markaðsdeild Iðnlánasjóðs en
Þórður Valdimarsson er forstöðu-
maður hennar.
Iðnlánasjóðir kom inn í dæmið með
þeim hætti að þegar verkefninu
var hleypt af stokkunum í fyrra var
ákveðið að styrkja það um 1,2 millj-
ónir króna, segir Þórður Valdimars-
son. -Þessi styrkur hefur kostað að
nokkru leyti verkefnisstjórnun og
sameiginlegan undirbúning að mótun
gæðastefnu en fyrirtækin sjálf bera
einnig hluta kostnaðarins.
Síðan geta fyrirtækin sótt um
áhættulán vegna sérstakra aðgerða
sem þau þurfa að fara út í til að
laga sig að þessum nýju kröfum og
gerum við ráð fyrir að veita allt að
4,2 milljónum króna í slík lán miðað
við upphaflega áætlun.
Áhættulán Iðnlánasjóðs eru veitt
fyrirtækjum sem standa í vöruþróun
og eiga að standa undir helmingi
kostnaðar á móti helmingi fjár sem
fyrirtækin útvega sjálf. Gangi verk-
efnið upp eins og stefnt er að ber
fyrirtækjunum að endurgreiða þau
en ef þau mistakast breytast þau í
óafturkræfan styrk. Þórður segir að
Iðnlánasjóður hafi úr rúmlega 100
milljónum króna að spila til að veita
áhættulán og styrki til vöruþróunar
og markaðsaðgerða erlendis. Er
þetta fjármagnað með iðnlánasjóðs-
gjaldi sem iðnfyrirtæki greiða.
Yerður að fá arkitekta með
MILLI 9 og 10 manns starfa að jafnaði hjá Glerskálanum í
Kópavogi en fyrirtækið er einn glerframleiðenda landsins. -Þetta
þarf tíma til að þróast hjá okkur en það hlýtur að geta þróast
á sama hátt og gerst hefur í öðrum löndum, sagði Olafur Magn-
ússon hjá Glerskálanum um samstarfið um glerjaða og fullmál-
aða glugga fyrir ísetningu.
að er engin spurning að þessi
aðferð er skemmtilegri og
betri og þess vegna er sjálfsagt
að reyna að breyta þessu og fá
arkitektana til að taka aðferðina
upp á sína arma, segir Ólafur enn-
fremur. Hann segir að ekki hafi
enn komist á sérstakt samstarf
við ákveðinn gluggaframleiðanda
en kveðst eiga von á að verði að-
ferðin útbreidd í framtíðinni hljóti
gler- og gluggafyrirtækin að eiga
með sér meira og skipulegra sam-
starf.
Hjá Glerskálanum hafa farið
fram breytingar og endurskoðun
á starfsháttum eins og hjá öðrum
fyrirtækjum í gler- og gluggasam-
starfshópnum. -Þetta er fyrst og
fremst spuming um vandvirkni og
í sjálfu sér er ekki um stórbreyt-
ingu að ræða því við höfum alltaf
kappkostað að vanda okkur eins
og sjálfsagt er. Gæðaprófun hefur
farið fram hér frá því í fyrra og
eftirlitið sem fólgið er í henni á
að tryggja vandaða framleiðslu.
En hvað segir Ólafur um sam-
keppni nú þegar aðilar hafa sam-
einast um ákveðið samstarf?
-Samkeppni glerframleiðenda hef-
ur verið á verðsviðinu og ég á
ekki von á að það breytist. Hér
er ekki um neina hringamyndun
að ræða heldur eru fyrirtækin að
samræma gæði og framleiðslu-
kröfur en eftir sem áður geta þau
keppt um viðskiptavini á verði og
kjörum.
Fornilundur er heitið á nýju sýningarsvæði
B.M.Vallá að Breiðhöfða 3. Fornilundur er
í raun lítill lystigarður þar sem Fornlína
B.M.Vallá og gamalgróinn trjálundur
skapa andblæ miðaldaborga Evrópu.
I Fornalundi getur þú látið hugann
reika aftur í tímann og fengið
góðar hugmyndir'
varðandi garðinn
Fornilundur hlaut
viðurkenningu
Umhverfisráðs
Reykjavíkurborgar
1991.
Fornlína B.M.Vallá er byggð á aldagömlum
evrópskum hefðum og fyrirmyndum.
Fornlínunni tilheyra meðal annars forn-
steinn, fornklakkur, fornker, myllu-
steinn og garðbekkir. Fornlínan nýtur
sín jafnvel hvort sem umhverfið er
nýtískulegt eða í gömlum stíl og
hún gefur umhverfmu einkar
traust og virðulegt
yfirbragð.
Upplifðu andblæ
miðaldaborga Evrópu
- í Fornalundi B.M.Vallá
Fáðu sendar
upplýsingar um
Fornlínu
B.M.Vallá hf.
S 68 50 06
yyuiÁ! Steinaverksmiðja:
Soluskrirstora og sýnmgarsvæði
Breiðhöfða 3
sími 91 -6850 06