Morgunblaðið - 29.09.1991, Side 9

Morgunblaðið - 29.09.1991, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ GLER OG GLUGGAflflufiMíbAÍuMÍ)* áElí3TEMBElR i'991 't *> Ingimar Karlsson (t.v.) og Alexander Benediktsson. á sýningu í Hannover sl. vor. Með tilkomu hennar myndu afköst og nákvæmni aukast sem liggur í því að með henni er fljótlegra að saga niður í nákvæma lengd, hefla og yfirleitt smíða gluggann sem síðan yrði límdur saman. Við getum feng- ið hana á mjög hagstæðu verði með nauðsynlegum fylgihlutum og ef við hefðum ekki orðið að taka á okkur tap vegna gjaldþrota fyrirtækja hér á Akureyri værum við búnir að ákveða kaupin. En þetta verður afráðið á næstu dögum. Eins og fyrr segir selst fram- leiðslan einna mest úr bænum. Tals- vert er selt í Eyjafirði og nálægar byggðir en Tré-ex í Keflavík og frá því í vor Iðnverk í Reykjavík eru nú söluaðilar fyrir Börk og má segj að þar starfi níundi starfsmaður fyrirtækisins. Það hefur sýnt sig í útboðum að Börkur býður mjög svipað verð og gluggasmiðjur á höfuðborgarsvæðinu og er fyrir- tækið því fyllilega samkeppnisfært á þeim markaði þrátt fyrir fjarlægð- ina. En hveiju hefur þátttaka í gler- og gluggasamstarfinu breytt hjá Berki? -Til þessa hefur hún þýtt ýmsar breytingar innanhúss varðandi gæðamál og fleira og okkur hefði fyrir ári til dæmis ekki dottið í hug að þrýstiveija og sprauta glugga en við erum nú búnir að setja upp sprautuklefa og þrýstigagnvarna- búnað. Við teljum okkur nú tilbúna til að ganga af fullum krafti inn í þessa nýju aðferð sem við teljum bæði æskilegt og líklegt að komist á smám saman. Betri meðferð Þegar hafa gluggar verið settir fullbúnir í nokkur hús á Akureyri og segja þeir félagar það komið frá viðkomandi arkitektum. -Þeir læra þessi vinnubrögð í náminu og það er því eðlilegt að þeir viíji koma þeim á hér. Hugsanlega finnst verk- tökum höggvið eitthvað nærri sér með þessu en byggingameistarar eru þó farnir að sjá þessi vinnu- brögð. Menn verða að skoða þessa aðferð í stærra samhengi. Ef við hugsum aðeins um uppsláttinn og uppsteypu hússins er vissulega ódýrara að steypa gluggana í með hefðbundinni aðferð. Ef við lítum hins vegar lengra teljum við fást meiri endingu ef gluggar eru settir í eftir á og það er vegna betri með- ferðar þeirra. Morgunblaðið/Arni Sæberg Gluggi glerjaður á verksmiðjugólfinu hjá Mosfelli. Kristján Y. Óskarsson hjá Mosfelli: Byltíng í framleiösl- unni síðustu árín SIÐUSTU árin hefur náttúrlega orðið algjör bylting á fram- leiðslu allra þessara fyrirtækja nú þegar hún er orðin stöðl- uð og undir eftirliti Rannsóknastofnunar byggingaiðnaðar- ins, segir Kristján V. Óskarsson hjá Mosfelli hf. í Mosfells- bæ. Mosfell er glugga og útihurðaframleiðandi og starfa 12 manns hjá fyrirtækinu sem síðustu árin hefur fjárfest í fullkomnum vélakosti. Kristján V. Óskarsson segir að eftirlit Rb á gæðum og vinnubörgðum þýði að nú verði framleiðendur að standa sig í því að uppfylla skilyrðislaust þær kröfur sem gerðar eru til framleiðslunnar. -Ef við stönd- um okkur ekki og í ljós kemur að framleiðslan er ekki eins og við höfum gefið upp og lofað er málið falið sérstakri dóm- nefnd til skoðunar. Hún getur annað hvort gefið framleiðand- anum tækifæri til að bæta úr ög bæta fyrir það sem kann að hafa misfarist eða hreinlega bannað okkur frekari þátttöku í að framleiða undir þessum gæðamerkjum, segir Kristján. Mosfeli hefur til þessa einkanlega gleijað opnanleg fög og hurðir en Kristján segir að ekkert sé því til fyrirstöðu að bjóða alla glugga fullbúna. -Oft eru gluggar hins vegar of stórir til að hægt sé að meðhöndla þá með góðu móti þegar glerið er komið í þannig að aðferðin á ekki við alltaf. Okkur líst vei á þessa breytingu því við teljum alla meðferð glugganna betri. Eflaust líður talsverður tími áður en hún nær útbreiðslu en mikilvægast er að koma þessu viðhorfi á framfæri og ýta und- ir að menn prófi þeása aðferð. Gluggi settur í eftir á með DAFA-þéttiefnum 'r'E'5.EMA'ro (S. SILICONJE 'CÍTTI DAFA J=>É.TT |PUÚ f5. ILLPfSESS ELIKlAKlGiV5.UNJAt5 &L> F2. Ð I dafa eutvl_ KiTTI£>l_ís»TI IU-MSD njCiuBAWÐ SÚMMÍLÍSTI tsAFA VCC-ONJ SLEEDUNABB.OI5C 1 I 1 EFFFi .Richter 210 Garðabæ, sími 40900, fax 656878.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.