Morgunblaðið - 02.11.1991, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 02.11.1991, Blaðsíða 3
MORGtJNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 19ðl B 3 Hulduheimar, 1991. Olía á striga, 210x180 sm. að hamra á því að það sé ekki nauð- synlegt að hafa nein þjóðareinkenni á neinu, en ég er því algjörlega ósammála. Ég held það hafi sjaldan verið meiri þörf fyrir slíkt en ein- mitt nú. Það er mikilvægt fyrir litl- ar þjóðir að efla ýmislegt sérstakt sem þær eiga, og styrkja sín þjóðar- einkenni. Eg er ekki að tala um að hjakka í gömlum gildum, heldur að finna ný og byggð á þeirri hefð sem við eigum.” Gunnar segist hafa verið mikið úti að mála í sumar, gjarnan í móbergsgljúfrum á Suðurlandi, og hann vatnslitar líka og teiknar og vinnur síðan úr því á veturna. Þótt misvel gangi þegar hann er úti að vinna, þá segist hann aldrei gefast upp. „Það er ekkert jafnaðarmerki milli tíma og árangurs í myndlist, það er misskilningur. Stundum er ég mörg ár að mála sömu myndina, alltaf að taka hana fram annað slagið, en aðrar fæðast bara á hluta úr degi. Mynd sem fæðist á einum degi, og fangar augnablik upplifun- ar, stemmningu og hefur ákveðið flæði, er oftar en ekki betri en mynd sem maður hjakkar í og fer á endanum að mála af einhverskon- ar skynsemi.” — Er þá best að hafa bara hreina tilfinningu en enga skynsemi í myndunum? „Ég er nú svo skrýtinn að ég kalla tilfinningu líka skynsemi. Ég dýrka tilfinninguna i málverkinu, það byggist svo mikið á tilfínninga- gosum. Þannig hef ég unnið meira og minna; verið vitaskuld mishæfur við að skila af mér, og átt mismikl- ar tilfínningar að gefa, en allt bygg- ist þetta á tilfinningunni. Og þeirri athöfn að mála.” Bý í mótífinu — Þúþarftaðsetjaþigístelling- ar til að geta byrjað? „Já, ákveðin innstilling þarf að vera til staðar. Náttúran hjálpar manni utandyra, en tónlistin kemur til hjálpar í vinnustofunni. Þar nota ég tónlistina sem orkugjafa. Oft á ég erfitt með að mála snemma á morgnana en þá er sterkasta ráðið að setja Wagner á,” og Gunnar setur disk undir geislann, hækkar í magnaranum og tónarnir flæða um vinnustofuna; „þá er maður kominn í ævintýri og fljótur að vakna; kominn á eitthvað alheims- svið. Wagner er sérstakt uppáhald. Það er einhver náttúrukraftur sem virkar á mann. Maður hlustar og er bara farinn; svífur yfir öll gluggaumslög og öll vandræði. Og ég vel tónlist eftir því hvað hæfír mér hveiju sinni, er hér í sveitinni með tvílæst að mér, einn á bænum, Wagner á fullu, og gef tilfinningun- um bara lausan tauminn.” — Skiptir búseta þín í sveitinni ekki miklu máli í því hvernig náttúr- an færist alltaf nær í verkunum? „Jú, ég er orðinn svona innstilltur gagnvart náttúrunni, einmitt vegna þess að ég bý í sveit. Ég bý í mótíf- inu. Og ég geri í rauninni ekkert annað en að lifa mínu daglega lífi og ferðast um landið, þannig koma hugmyndirnar af sjálfu sér.” — En þú ert ekkert að verða nein mannafæla um leið? „Nei,” segir Gunnar og brosir. „Það þarf vissan tíma í mannleg samskipti, og vissan tíma í að mála. Málverkið þarf þó mikinn tíma og maður þarf að vera svolítið eigin- gjarn og leiðinlegur stundum. Mað- ur verður að halda vissri virðingu fyrir þeirri athöfn að mála. Það er ákveðin varðveisla sem á sér stað við sköpunina.” Verð að ögra sjálfum mér Við ræðum um sölu á myndum og Gunnar Örn segir að hann hafi aldrei selt mikið, fjöldi málverkanna á vinnustofunni er til vitnis um það, en hinsvegar njóti hann aðstoð- ar eiginkonunnar sem alla tíð hefur unnið úti. Hann segist aldrei hafa gert myndir í því augnamiði að selja. „Ég held ég hafi algjörlega haldið mínu sjálfstæði. í byijun á mínum ferli þegar ég bjó í Sand- gerði, var á sjó og málaði í landleg- um bauðst mér einu sinni að borga háan matarreikning í verslun stað- arins með því að mála ættarbýli kaupmannsins, en ég neitaði því og hef ejginlega haldið mínu striki síð- an. Ég er fullur af prinsippum en hef lent í því að láta myndir í hend- urnar á mönnum sem hafa ekki sömu prinsipp og það getur verið erfítt að takast á við það. Það er kannski skiljanlegt að milliliðurinn sé ekki með sömu prinsipp og mað- ur sjálfur, og álítur þau jafnvel vera óréttmæt og ekki gera manni neitt gott. En það er nú einu sinni þannig að hver og einn þarf að búa til sína lífsspeki í þessu, þann ramma sem heldur best utan um mann. Annaðhvort er kona ófrísk eða ekki, og eins verður maður að vera heill eða ekki. Það er einmitt þetta sem ég dá- ist svo að í verkum sumra naívista; þessi bjarta einlægni og gleði við að tjá sig. Það er mikið farið ef menn missa þá gleði. Hér á landi er gjarnan sagt að menn séu stabíl- ir ef þeir hafa hjakkað í sama far- inu áratugum saman með sitt mál- verk, og sagt að þeir standi á föst- um grunni. En ég er þannig gerður að ég verð alltaf að ögra sjálfum mér í hverri mynd. Ég held það sé mér nauðsynlegt að breytast hægt og rólega. Ég er ekki að segja að ég verði betri, heldur reyni ég að breyta þeim markmiðunum, því það er enginn annar sem setur mér tak- mörk en ég sjálfur. Um leið og ég er búinn að ná einhverri tegund af málverki of auðveldlega er ég líka byijaður að bijóta það upp. Þannig hefur velviljað fólk stundum orðið sárt út í mig þegar ég hef tekið stór stökk, ég hef heyrt upphrópan- ir eins og glapræði og skortur á ábyrgðartilfínningu. En ég get bara aldrei hugsað mér að mála í sömu gömlu sveiflunni það sem eftir er.” Viðtal: Einar Falur Ingólfsson Ég hugsa að ég hafí byijað að nota vatnslitina því það er að mörgu leyti handhægara að nota þá. Vatnslitamyndir eru ekki eins pláss- frekar og maður getur unnið með litina á borðinu hjá sér. Ég hef handavinnukennara- menntun og sú þekking mín varð til þess að ég fór út í textíl- og kjólaframleiðslu á tímabili. Þegar ég byijaði á textílinu þá fannst mér það vera minn staður. Á því tímabili voru fínnskir kjólar úr bómull mjög í tísku. Mér datt í hug að athuga hvort kjólar unnir á íslandi myndu seljast á sama verði og þeir. Sú tilraun gekk upp og við hjónin tókum að framleiða flíkur, m.a. bómullarmussur sem nutu mikilla vinsælda. Þetta var rétti tíminn fyrir þessa gerð fatnaðar sem var einfaldur en samt dálítið skreyttur. Það var engin flík eins en með tímanum vorum við orðin uppiskroppa með hugmyndir að munstri þannig að við ákváðum að hætta þessu. Þetta var líka orðið þreytandi og leiðinlegt. Það veitti á engan hátt útrás fyrir sköpunar- þörfina enda hafði þessi fatagerð tekið á sig mynd verksmiðjufram- leiðslu. Ég fór að kenna og kenni nú við Kvennaskólann í Reykjavík. Eftir að ég byijaði í kennslunni hef ég getað einbeitt mér frekar að fijálsri sköpun og ekki þurft að hugsa eins um afkomuna, þ.e.a.s. markaðinn. Við hjónin höfum haldið áfram að gera batikverk, þjóðlífsmyndir sem höfða mjög til erlendra ferða- manna, en því sinnum við aðeins yfír sumartímann. Ég ákvað að prófq. mig áfram í vatnslitum en í framhaldi af því langaði mig að takast á við stærri verkefni og því valdi ég að sýna olíuverk eingöngu á þessari sýn- ingu. Ég hef alltaf verið fyrir að prófa eitthvað þannig að næsta sýning gæti þess vegna verið á grafíkverkum. Ég held að með aldrinum öðlist maður meiri kjark. Maður hættir að hugsa um hvað öðrum fínnst og gagnrýni virkar ekki eins sterkt á mann. Ég hef lítið verið fyrir að framkvæma gjörninga eða upp- ákomur þó að ég hafí gaman að sjá slíkt hjá öðrum. Mér finnst til dæmis gaman að fylgjast með því þegar nemendur mínir láta hugann virkilega springa út í einhveiju sér- stöku. íslensk náttúra býður upp á mik- ið litaspil og birtan er æði misjöfn. Við höfum úr miklu að moða hér- lendis. Nú er mikill áhugi á útivist og ég heid að fólk sé farið að taka meira eftir litunum í náttúrunni. Hér áður fyrr settist fólk upp í bíla og brunaði á milli staða. Þá var bara horft út um gluggana á fleygi- ferð. Mér fínnst eins og það hafí átt sér stað hugarfarsbreyting í þá veru að fólkið hafi meiri áhuga á að ganga um landið og skoða. Það að mála landslag er hluti af því að skoða landið að mínu mati. Mér fínnst mikilvægt að fólk reyni að sjá fegurðina í umhverfí sínu. Viðtal: Einar Örn Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.