Morgunblaðið - 02.11.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.11.1991, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991 Sjðnvarpsmynd um Sverri Haraldsson: TÆKIFÆRI TIL AÐ META VERK SVERRIS OG STÖÐU HANS Viötal við Þorstein Helgason og Hjálmtý Heiddal Sunnudaginn 29. desember næstkomandi verður á dag- skrá Sjónvarpsins 55 mín- útna löng heimildarmynd þar sem fjallað er um Sverri Har- aldsson, manninn og málarann. Sverrir var fæddur í Vestmanna- eyjum árið 1930 og var í hópi hæfileikaríkustu myndlistar- manna þjóðarinnar. Hann lést um aldur fram, eða aðeins 55 ára gamall, árið 1985. í myndinni er gerð grein fyrir lífi Sverris og þróun myndlistar hans. Meðal annars greina mynd- listarmennirnir Eiríkur Smith og Sigurður Guðmundsson frá kynn- um sínum af Sverri og viðhorfum til verka hans. Þóra Kristjánsdótt- ir listfræðingur lýsir viðhorfum til Sverris og þeim áhrifum sem ákveðið málverk hafði á hana á unga aldri. Kunnugt fólk segir frá uppvexti hans í eyjum. Verksmiðj- an h/f stendur að gerð myndarinn- ar. Af þessu tilefni mælti blaða- maður Morgunblaðsins sér mót við aðstandendur myndarinnar. - Hver voru tildrög þess að þið réðust í þessa heimildarmynda- gerð? Þorsteinn verður fyrir svörum. „Við höfðum reifað hugmyndina okkar á milli í nokkur ár en tókum þó ekki að vinna að henni fyrr en síðastliðið vor. Ég viðaði að mér heimildum úr ýmsum áttum og vann að frumhandriti á Listasafni íslands þar sem er ágætt úrklippu- safn. Þetta er spennandi verkefni því að það hefur ekki verið gerð nein úttekt á Sverri Haraldssyni þó að til sé ágæt viðtalsbók. Mynd- in er ekki upphaf að þáttaröð held- ur er hún unnin eingöngu af áhuga okkar á Sverri og verkum hans. Sjónvarpið hentar að mörgu leyti mjög vel til að kynna myndlist. Verk Sverris eru mjög dreifð, þau eru lítið á listasöfnum og koma því ekki mikið fyrir almennings- sjónir. Það er að mínu mati æski- legt að safna þeim saman eins og við gerum í þessari mynd. Með því móti skapast gott tækifæri til að kynna verkin. Sverrir þaulvann myndir sínar þannig að einstakir hlutar eru jafn athyglisverðir og heildin. Sjónvarpið er góður miðill til að draga fram eingangraða hluti, hlaupa eftir mótívum og at- huga myndefnið. Eg þekkti Sverri vel og um- gekkst hann verulega mikið á tímabili þannig að þetta er mjög persónulegt áhugamál líka. Þó að ég hafi þekkt hann þá er margt í fari hans sem kemur mér skemmtilega á óvart þegar ég kanna ýmis tímabil í lífi hans.” - Hvernig er uppbyggingu myndarinnar háttað? „Við tókum þá ákvörðun í upp- hafi að fylla ekki myndina af við- tölum við kunnugt fólk sem sæti í stólum og talaði,” svarar Hjálm- týr. „Það vill oft brenna við að heimildarmyndir verði undirlagðar af viðtölum. Við vissum nokkurn veginn hvað við vildum fá fram í viðtölum og takmörkuðum okkur við tiltekið efni hveiju sinni. Viðt- ölin falla stundum inn í umfjöllun- ina og koma í staðinn fyrir saminn texta sem annars væri lesinn af þuli. Viðtölin eru öll fremur stutt og hnitmiðuð. Það hefur verið fiskað eftir ákveðnum þáttum t.d. Iýsir Elías Mar rithöfundur að- Sverrir Haraldsson myndlistarmaður. draganda þess að Sverrir teiknaði af honum mynd auk þess sem hann segir frá gerð myndarinnar. Við fórum á staði til að mynda svo sem til Vestmannaeyja, að Selsundi, og víðar. Við erum einn- ig búnir að mynda á þriðja hundr- að verka Sverris og mörg þeirra koma fram í kvikmyndini. Éinnig erum við búnir að viða að okkur fjölda ljósmynda, tveimur sjón- varpsviðtölum auk auglýsinga- myndar frá Radíóbúðinni sem Sverrir kom fram í.” „Eftir að tökum lauk höfum við leitast við að finna mótívin sem Sverrir notaðist við í náttúrunni,” segir Þorsteinn. „En það getur reynst erfitt því að hann Ijósmynd- aði oft staði og síðan vann hann mjög fijálslega með mótívin. Hann færði hluti til á myndfletinum auk þess sem landið hefur breyst svo Sem í Vestmannaeyjum. Margt myndefnið er komið undir hraun og þó að hann hafi málað dálítið af nýja hrauninu þá hefur það einnig tekið breytingum. Þó að Sverrir færi oft frjálslega með myndefni þá bjó hann yfir- leitt ekki til landslag upp úr þurru. Hann var stundum mjög nákvæm- ur með myndefni.” „Þorsteinn”, blýantsportret eftir Sverri Haraldsson. Úr upptökusal Verksmiðjunnar h/f. Þor- steinn Helgason stjórnandi, Hjálmtýr Heiðdal og Guðmundur Bjartmarsson kvikmyndatökumaður. - Hvernig er að fást við heim- ildamyndagerð á íslandi? „Það hefur verið erfitt að stunda vandaða heimildarmyndagerð hér- lendis vegna þess hversu lítill markaðurinn er,” svarar Hjálmtýr. „íslenski markaðurinn er að mestu leyti bundinn við Sjónvarpið og Námsgagnastofnun sem kaupir sum verk. Námsgagnastofnun hefur yfirleitt keypt verk um ís- lenska listamenn sem hafa staðið undir gæðakröfum stofnunarinn- ar. Við gerðum kostnaðaráætlun með vandað verk í huga og þó að Sjónvarpið hafi keypt sýningarétt í desembermánuði þá vantar nokk- uð upp á að endar nái saman. Stór hluti af starfi okkar hefur verið að reyna að fá styrktaraðila. Það var í fyrstu mjög erfitt að fá einhveija til að styrkja okkur og það fór í reynd ekki að ganga að neinu marki fyrr en menn gátu séð að Sjónvarpið hafði tekið myndina til sýningar. Við höfum fundið að það er talsverður hljóm- grunnur fyrir þessari mynd í Vest- mannaeyjum,” segir Þorsteinn „enda líta menn á Sverri sem Vestmannaeyjalistamann. Við höfum fengið stuðning nokkurra einstaklinga og samtaka. En það er dýrt að gera mynd á borð við þessa og er það von okkar að menn leggi okkur frekara lið þann- ig að myndin geti orðið sem vönd- uðust. Myndin verður sýnd á einstak- lega góðum tíma það er að segja á milli jóla og nýárs.” „Það stóð einhvem tíma til að gera heimildarmynd um Sverri,” segir Þorsteinn „en úr því varð aldrei sökum heilsuleysis hans. Hann hafði áhuga á að taka þátt í þeirri heimildamyndagerð og þá vakti fyrir honum að sýna þau vinnubrögð sem hann hafði tileink- að sér. Hann var mjög iðinn við að gera tilraunir af ýmsum toga. Þessi mynd ætti að vera tæki- færi til að meta svolítið verk Sverr- is og stöðu hans í íslenskri mynd- list. Staða hans hefur i raun verið mjög á huldu og menn hafa ekki vitað hvernig eigi að taka á hon- um. Hann var vinsæll, seldi mikið og mikil aðsókn var á sýningar hans. En það hefur verið allur gangur á því hvernig safnafólk, kollegar og fræðingar hafa metið hann. Sigurður Guðmundsson myndlistarmaður kemur mjög skemmtilega að því í viðtali hvað myndir hans hafa verið vanmetnar af þessum hópi og finnst að það þyrfti að skoða þær aftur og finnst þær í reynd geta talist nýtískuleg- ar. Það er ekki fráleit hugsun eins og listastefnurnar hafa verið núna. Listasafn íslands á þijár ab- straktmyndir, eina sprautumynd og eina landslagsmynd. Lands- lagsmyndatímabilið stóð reyndar yfir í tuttugu ár. Hann gerði gey- simikið af myndum á þvi tímabili og það eru myndir sem hann vildi sjálfur helst kannast við. Safnið hefur náttúrulega takmörkuð flár- ráð og kemst ekki yfir að kaupa alla hluti en þetta endurspeglar samt að mínu mati viðhorfið hveiju sinni gagnvart listastefnum og hreyfingum, og hvernig þær ná inn í söfnin. Fulltrúar safna geta verið blindaðir eins og aðrir.” Viðtal: Einar Orn Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.