Morgunblaðið - 22.11.1991, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 22.11.1991, Qupperneq 1
Loðfeldir úr selskinni EFTIR margra ára hlé eru loðfeldir úr selskinni að koma aftur á markað hér á landi. Sniðin eru nýtískuleg og litaúrval- ið mikið. Eggert Jóhannsson feldskeri, sem segist hafa sel- skinn á heilanum, er í viðtali við Daglegt líf á bls. 6 í dag. Hraunfossar. Þar væri áform- að að girða og útbúa gönguieið- ir. Að fossinum koma um 15 þús- und gestir á sumri. KAFFISOPI inni i Langjökli, gönguferðir um upplýsta hella Hallmundarhrauns og stígar upp á Baulu í Norðurárdal. Þetta eru nokkrar af þeim hugmyndum sem undirbúningsnefnd að samtökum um náttúruvernd og ferðamál í Borgar- firði er að ræða og verður ráðist í þessar og fleiri framkvæmdir ef samkomulag næst við eigendur landa og styrkir fást til undirbúningsvinnu. Kristleifur Þor- steinsson, hreppstjóri á Húsafelli sagði Ferðablaðinu að Borgfirðingar teldu að þeir ættu náttúrudjásn sem ekki stæðu öðrum að baki og skynsamleg kynning og leiðsögn væri efst á blaði. Kristleifur sagðist hafa hug á að laga aðgengi að Langjökli, höggva í sprungur í jaðrinum 5-6 metra nið- ur, ryðja þar ísnum í og gera stofu inn í jökulinn. Þar mætti byija á Skrcming hafin á verði BIFREIÐAINNFLYTJENDUR og Bilgreina- sambandið vinna nú að gerð verðskrár yfir notaða bíla. Er tilgangur hennar að samræma verðlagningu á notuðum bílum og að umboð- in geti gefið upp svipað viðmiðunarverð sem yrði sem næst raunverði. I þessu sambandi er einnig verið að taka upp notkun sérstakra eyðublaða við skoðanir og mat á notuðum bílum. Skráning á söluverði notaðra bíla hjá bílaum- boðunum hófst fyrir nokkrum vikum en stærstu umboðin selja milli 100 og 200 notaða bíla á mánuði. Auk tegundar og árgerðar er skráður akstur og ýmsar lágmarksupplýsingar um bílinn og síðan hið raunverulega söluverð. Ráðgert er að eftir nokkurra mánaða upplýsingasöfnun verði til stofn að verðskrá sem síðan er hægt að halda 'við með tiltölulega einföldum hætti. Verðskráin geti síðan legið frammi hjá bílaumboðum og þar geti kaupendur nýrra bíla séð með talsverðri nákvæmni hvað þeir fengju fyrir eldri bíla sína. svona 50 fermetra vistarveru og stækka síðar ef vel gengi. „Þarna inni er hiti líklega við frostipark og gólfið spegilslétt en við setjum dregla á gólfið svo menn steypist ekki á hausinn. Þarna kem ég fyrir mótor til ljósa og langborði þar sem fólk getur sest niður og drukk- ið kaffisopann sinn. Líka má íhuga snjó- sleðaferðir upp á jökul og koma fyrir lyftum.” Þá hafa verið ræddar hugmyndir um að setja öruggari stíga í hellana í Hallmundarhrauni og lýsa þá upp. Kristleifur sagði að fólk ætti oft í erfið- leikum með að finna hellana eða legði ekki í að fara um þá. Surtshellir er hvað þekktastur en Víðigelmir hjá Fljótstungu, sem mun vera annar stærsti hraunhellir í heimi, hefur nú verið opnaður með því að brotinn var klakinn fyrir hellismunanum. Hellin- um var lokað því ferðamenn höfðu á brott með sér dropasteina og hraunmyndanir en Kristleifur sagði að nauðsynlegt væri að fyrirbyggja slíkt þar sem annars staðar með því að leiðsögumenn væru með ferða- fólkinu, bæði til upplýsinga og ekki síður til að sjá um að gengið væri sómasamlega um. Enn ein hugmyndin er að girða Hraunfossa af, gera útskot fyrir bíla og göngustíga og reisa þjónustuhús. Þá hefur verið rætt um að gera að- stöðu við Deildartunguhver þar sem ekkert er nú og loks að merkja göng- uleiðir upp á Baulu í Norðurárdal og skipuleggja tjaldstæði þar í grennd. Kristleifur ítrekaði að þetta væri allt á umræðustigi. „Við viljum taka þetta allt í fangið en vinna svo að framkvæmdinni stig af stigi. Fyrir okkur vakir þrennt: veita þeim sem sækja héraðið heim góða þjónustu, vernda gróður og náttúrundur og að innanhéraðsmenn fái atvinnu við þetta svo arðurinn haldist hér.”

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.