Morgunblaðið - 22.11.1991, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991
C 3
Unglingar
syngja fyrir
börn og aldraða
á sjúkrastofnunum
UNGLINGAR sera starfandi
eru í Æskulýðssamtökum
kirkjunnar munu á morgun,
laugardag, safnast saman í
Hallgrímskirkju og ræða um
vináttuna og tengsl milli
fólks. Um kaffileytið fara
þeir í heimsóknir á Hrafnistu,
Hafnarbúðir, barnadeildina á
Landakoti, Kvennadeild
Landspítalans, Barnaspítala
Hringsins, Borgarpsítalann,
Grund og Droplaugarstaði,
þar sem þeir munu syngja og
flyija stutta dagskrá.
Vináttusamveran er á vegum
Æskulýðssambands kirkjunnar í
Reykjavíkurprófastsdæmum. Inga
Rut Karlsdóttir, sem sæti á í undir-
búningsnefndinni sagði í samtali
við Morgunblaðið að Æskulýðsfé-
lögin stæðu fyrir árlegri haust-
samveru. „Núna vildum við nota
tækifærið vegna þeirrar vináttu-
umræðu, sem hefur verið undan-
farið og leggja okkar af mörkum.
Okkur hefur verið sýndur mikill
áhugi og skilningur af starfsfólki
spítalanna og öldrunarheimil-
anna.”
Samverustundinni lýkur með
vináttumessu kl. 21, þar sem dr.
Sigurbjörn Einarsson biskup préd-
ikar. Unglingar munu syngja og
annast ritningarlestur. Vináttu-
móssan er öllum opin.1 b ú qquBI
fidír fargjðld Flugleiöa til
Luxemburgar ekki í boði nú
1 FRÉTT Morgunblaðsins á miðvikudag segir frá fargjaldalækkun
flugfélaga frá Bandaríkjunum til Evrópu og Flugleiðir hafi verið
í hópi þeirra félaga sem kom fram með tilboð; 346 dollara eða
20.241 króna frá New York til Luxemborg og til baka. Þar sem
lægsta fargjald héðan til Luxemborgar og heim er 31.460 kr,
þótti Ferðablaðinu ástæða til að leita skýringa.
Hjá Flugleiðum fengust þau
svör að þessi fargjöld væru ekki
í boði nú. Einar Sigurðsson, blaða-
fulltrúi sagði að nokkurt magn
farmiða á þessu nefnda verði hefði
verið sett á markað í ágúst og
september. „Aðallega var það til
að reyna að koma Flugleiðum á
blað, sem sagt meira í auglýsinga-
skyni,” sagði Einar. Hann sagði
hugsanlegt að nokkrir væru að
fljúga á þessum miðum nú og
fréttin þannig til orðin. Þessa miða
varð að greiða löngu fyrirfram og
þeir fengust ekki endurgreiddir.
Þó um lítið magn væri að tefla
þótti Ferðablaði fýsilegt að reikna
verðmun skv. þessari upphæð. Frá
New York til Luxemborg, um
Keflavík og til baka eru 12.980
flugkm. Frá Keflavík til Luxem-
borg og til baka eru 4.666 flugkm.
Þetta þýðir að sá sem keypti ódýru
miðana til Luxemborg í New York
greiddi 1,56 kr á flugkm en verð
á flugkm héðan til Luxemborg er
samkvæmt þessu 6.74 kr. ■
Bæklingur Sögu um vöiusýningar 1992
FERÐASKRIFSTOFAN Saga
hefur gefið út bækling um vöru-
sýningar í Evrópu og Banda-
ríkjunum fyrir árið 1992. Þar
segir í formálsorðum að mikil-
vægi vörusýninga aukist jafnt
og þétt og stór hluti viðskipta
í heiminum nú orðið fari fram
á vörusýningum. Þar komi oft
fram í fyrsta skipti nýjungar á
ýmsum sviðum.
Ef gluggað er í bæklinginn má
sjá að þar kennir ýmissa grasa.
Vörusýningar um auglýsingar,
bakstur og kökugerð, báta og bíla,
fasteignir, heilsu og heimilishald
svo nokkuð sé nefnt. ■
Til Amsterdam
með Doru
í FRÉTTATILKYNNINGU frá
ferðamiðstöðinni Veröld er sagt
frá því að Dóra Einarsdóttir
hönnuður verði leiðsögumaður í
fjögurra daga hópferð til Amst-
erdam 5. desember.
Hún mun standa fyrir ferðum á
flóamarkaði, leikhús og listasöfn
og sérkennilega veitingastaði og
verða þeim innan handar sem vilja
gera innkaup. Gist er á Scandic
Crown Victoria sem er í hjarta mið-
borgarinnar. Verðið er tæpar 28
þúsund krónur í tvíbýli, miðað við
staðgreiðslu. Við bætist flugvall-
arskattur og forfallatrygging, um
1.800 krónur. ■
Verðvilla leiörétt
í SÍÐASTA Ferðablaði var frétt um
verð á hótelherbergjum á ýmsum
hótelum í Reykjavík og úti á landi.
Þar slæddist inn villa um hvað gist-
ing kostar á Hótel Borgarnesi; 2ja
manna herbergi með baði kostar
5.500 og eins manns 4.100. Beðist
■er velvirðingar á mistökunum og
þau i leiðréftt hér með. ■
Frá Hrísey.
Myndabók og almanak nm
ísland eftir Max Schmid
ÞÝSKA bókaforlagið Ellert & Richter hefur
sent frá sér myndabókina ISLAND eftir þekkt-
an ljósmyndara og Islandsvin, Max Schmid,
og almanak í stóru broti með miklum fjölda
litmynda frá Islandi.
Bókin ISLAND er 160 bls. í stóru broti og útgáfa
mjög vönduð. í bókinni er aragrúi fágætlega fallegra
mynda eftir Schmid en hann er þekktur víða um heim
fyrir myndir sínar. Schmid er búsettur í Sviss en hef-
ur verið mikið á faraldsfæti og einatt komið hingað
til myndatöku. Texti bókarinnar er eftir Gerald Mart-
in sem þekkir einnig vel til hérlendis og hefur verið
ritstjóri Iceland Report í Þýskalandi mörg undanfarin
ár. Martin skiptir texta í nokkra kafla, fjallað um
ísland - töfraland norðursins - dýralíf og náttúru,
eld og orku, veðurfar og fleira. Nokkrar tilvitnanir
eru birtar í íslandsbækur frá fyrri tíð. Texti er á
frönsku, ensku og þýsku.
Almanakið 1992 með ljósmyndum Schmid er 47x45
sm að stærð. ■
n Ultra
Hampers
BLEIUR
Rakadrœgur kjarni
ad framan
Rakadrægur kjarni
í miöju
Þó bleian sé vot er barnið þurrt
Anægðir strákar og stelpur í Pampers-bleium
Pampers bleiur eru hannaöar meö vellíöan barnsins aö markmiði.
Við framleiöslu þeirra er leitast viö aö spara dýrmætar auðlindir
jarðarinnar og aö spilla ekki umhverfinu meö skaðlegum úrgangi.
~ Ulti-a
mmpers
AUKA VELLlÐAN BARNANNA
AÐ UMHVERFISVERND
Isljgnslr/////
Tunguhóls 11.