Morgunblaðið - 22.11.1991, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991
C 5
Bílstólar
og sessur
MIKILVÆGT er að bílstóll sé vel
festur með þar til gerðum fest-
ingum. Noti maður bílstól sem
festa á með bílbelti er mikilvægt
að það sé gert rétt. Við kaup á
barnabílstól á að kynna sér
hvernig festa eigi hann með bíl-
beltinu þannig að hann geti ekki
kastast til né beltin skorist inn í
barnið við árekstur. Belti verða
að vera örugg og falla þétt að
líkamanum og stólinn á að ná
yfir höfuð barnsins, þannig hllfir
hann því betur.
Bílsessur þarf að velja með tilliti
til þess að þær séu ekki harðar.
Börn vilja oft ekki sitja á þeim á
lengri vegalengdum séu þær harð-
ar. Bílsessan þarf ávallt að vera
staðsett þannig að hæð bílbeltisins
sé rétt á líkama barnsins. Foreldrar
þurfa að athuga í hvert sinn sem
barnið sest á sessuna, að hún hafi
ekki færst til.
Frá Slysavarnafélagi Islands
Rjómi
í súpuna eða sósuna
d EF TIL er afgangur
af rjóma sem ekki á
QX að nota er um að gera
að frysta hann í klaka
'Z) og setja í frystinn.
X Rjómaklökunum má
síðan skella út í súpu eða
sósu þegar vantar. ■
Interni.
Við hittum Þorstein að máli og
spurðum hvort hann sæi fyrir sér
framleiðslu á stólnum á íslandi.
„Ekki í fjöldaframleiðslu, en hugs-
anlega sem módelstólar,” segir hann.
„Hins vegar hafði ítalskt húsgagna-
fyrirtæki samband við mig vegna
hugsanlegrar framleiðslu á stólnum,
en ég veit ekki hvað úr því verður.
Stóllinn þykir of villtur til að geta
náð almenningshylli, en hins vegar
mætti reyna að temja skepnuna svo
hún höfði til stærri hóps.”
í ítölsku blaðagreininni er stólnum
hampað fyrir frumleika, formfegurð,
þægindi og hagnýtt gildi. Þar er á
fræðilegan hátt fjallað um uppbygg-
ingu stólsins og um notagildið segir
meðal annars: „Það er eðlilegt að
maðurinn haldi áfram að hreyfa sig
þó hann setjist. Mannslíkaminn þarf
á hreyfingunni að halda til að hvíla
til skiptist hina ólíku vöðva; og koma
þannig í veg fyrir að blóðrásin stöð-
vist. Það er því boðið upp á mögu-
leika á að sitja í mörgum mismun-
andi stellingum í stólnum, nánast að
kanna stólinn með lfkamanum.” g
Kirkjugarður fyrir hunda finnst við uppgröft
FORNLEIFAFRÆÐINGAR í ísrael
hafa fundið stærsta hunda-kirkjugarð
sem vitað er um. Mörg þúsund beina-
grindur af hundum hafa fundist við
uppgröftinn og allt bendir til þess að
dýrin hafi verið grafin á þessum stað
á 50 ára tímabili á fimmtu öld fyrir
Krist, eða fyrir um það bil 2.400 árum.
Lawrence Stager prófessor í fornleifafræði
við Harvard-háskóla stjórnar uppgreftrinum
og í viðtali við tímaritið National Geographic
sagði hann að dýraleifarnar væru í ótrúlega
góðu ástandi. „Öllum dýrunum, hvort sem það
voru ungviði eða fullornir hundar, ^ar haglega
komið fyrir í litlum grafreitum,” sagði prófess-
FORNLEIFAR. Dauðum hundum var hag-
lega komið fyrir í litlum grafreitum og
flest bendir til þess að fyrir 2.400 árum
hafi hundar verið í miklum metum, jafn-
vel dýrkaðir, af Föníkumönnum.
orinn. „Þau hafa verið lögð á hliðina og kom-
ið þannig fyrir að þau litu úr fyrir að sofa.”
Ashkelon, þar sem fornleifarnar fundust,
var á þessum tíma (fyrir u.þ.b. 2.400 árum)
hafnarborg í Persaveldi. Þar hjgr fólk frá mið-.
austurlöndum sem Lawrence Stager telur að
hafi dýrkað hunda' í tengslum við föníska
lækningatrú, og þeir hafi fengið að ráfa um
* borgina óáreittir þar til þeir drápust af eðlileg-
um orsökum.
Lawrence Stager segir að í kjölfar fornleifa-
fundarins komi stöðugt upp nýjar hugmyndir
um líf í Ashkelon á þessum tíma. Hann segist
sannfærður um eitt; að hundar hafi verið í
miklum metum meðal Fönikíumanna, annars
hefði ekki verið haft jafn mikið fyrir greftrun
þeirra og raun ber vitni.
HALLAND leburhúsgögnin eru framtíðar-
fjárfesting sefn œtlað er að standast tímans tönn.
Þau eru unnin úr óverkuðu vísundaleðri sem
gefurþeim sérstœtt yfirbragð. íþeim samramist
vel IKEA gœði og verð. Þér býðst ekki betri
kostur.
HALLAND leðurhúsgögn fást einnig t
dökkbrúnum og Ijósbrúnum lit.
• möbelfakta gœðastimpillinn tryggir
vandaða vöru. Líttu við og kynntu þér afborgunar-
skilmála IKEA.
Raðgreiðslur tilallt að 18 mbmða efverslað er
fyrir meira en 60.000,-
KRINGLUNNI 7 SÍMI 91 -6 8 6.6 5.0 -
s
tz
s
n
1