Morgunblaðið - 03.12.1991, Page 3

Morgunblaðið - 03.12.1991, Page 3
KNATTSPYRNA / ÞYSKALAND MORGUNBLAÐIÐ ÍÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991 foám FOLK ■ GÚSTAF Ómarsson, sem lék með knöttspyrnuliði UBK sl. keppn- istímabil, hefur verið ráðinn þjálfari Vals á Reyðarfirði. Ómar, sem er fæddur þar, hóf feril sinn með Valsmönnum, sem leika nú í 4. deild. ■ SOVÉSKI þjálfarinn Valeri Mutagarov, þjálfari Gróttuliðsins bí handknattleik, hefur sagt starfi sínu lausu. Björn Pétursson, að- stoðarmaður hans og Stefán Arn- arson sjá um þjálfun liðsins - þar til nýr þjálfari verður ráðinn. ■ BRYNDÍS Guðmundsdóttir hefur verið valin fimleikamaður ársins 1991 af stjórn Fimleikasam- bandsins. Bryndís, sem er 17 ára Armenningur, er Islandsmeistari í fimleikum. Il SIGURÐUR Grétarsson og félagar hans hjá Grasshopper fá frí frá 9. til 28. desember. Síðan verður tekið þátt í innanhússmót- um; fyrst í Ziirich 1. og 2. janúar og síðan í Dortmund og Stuttgart í Þýskalandi. Liðið verður síðan í æfingabúðum síðari hluta febrúar- mánaðar og úrslitakeppnin hefst í byrjun_ mars, sem fyrr segir. ■ SÖREN Lerby á ekki sjö dag- ana sæla hjá Bayern Miinchen og segja blöð í Þýuskalandi að hann hafi ekkert gert nema mistök síðan hann gerðist þjálfari hjá Bayern. Sagt er frá því að ef félagið tapi fyrir Rostock um næstu helgi, verði hann látinn taka pokann sinn. ■ NECKAR-leikvangurinn í Stuttgart, verður yfírbyggður fyrir Evrópumeistaramótið í fijálsum íþróttum, sem verður 1993. ■ STUTTGART, Bayern MUn- chen og Dortmund hafa mikinn áhuga á að fá þýska landsliðsmark- vörðinn Bodo Illgner hjá Köln. Akureyringar sterkarií fyrsta leiknum Anton Benjaminsson skrifar Skautafélag Akureyrar bar sig- urorð af Skautafélagi Reykja- víkur í fyrsta leik íslandsmótsins í íshokkíi, 5:3, á Ak- ureyri á laugardag. Akureyringarnir komust yfir 2:0 en Reykvíkingar höfðu jafnað, 2:2, áður en fyrsta leikhluta lauk. Mikill barningur var í öðrum leikhluta, en ekkert skorað. Mark- menn beggja liða vörðu þá mjög vel, eins og reyndar allan leikinn. En í þriðja og síðasta leikhluta tryggðu Akureyringar sér sigurinn — þá fór „fyrsta línan” hjá Akur- eyringum að skora, þ.e. bestu leik- mennirnir, hjá Akureyringum, fór að skora og það gerði gæfumuninn. En leikurinn var annars jafn og hefði sigurinn getað lent hvorum megin sem var. Heiðar Ingi Ágústs- son gerði þijú mörk fyrir Akur- eyringa, Sigurgeir Haraldsson og Heiðar Gestur Smárason sitt mark- ið hvor. Fyrir Reykvíkinga gerði Sovétmaðurinn Nikolaí Nefedov tvö mörk og Stefán Mikaelsson eitt. Morgunblaðið/Rúnar Þór Akureyringar sœkja að marki Reykvíkinga á Akureyri. Eyjamenn enn á ferðinni Fjórði sigurleikur þeirra á tíu dögum |jjjyjamenn unnu sinn fjórða leik í röð á tíu dögum þegar þeir fengu HK í heimsókn í gærkvöldi, 25:22. Leikurinn var ekki upp á það besta, en góð markvarsla var það sem- gladdi augu áhorfenda. Alls voru varin 30 skot í leiknum. Bjarni Frostason, besti leikmaður HK, varði sautján og Sigmar Þröstur Óskarsson, mark- Sigfús Gunnar Guðmundsson skrifar vörður Eyjamanna, varði þrettán. Eyjamenn, sem voru með fimm marka forskot í Ieikhléi, 14:9, sofn- uðu á verðinum í seinni hálfleik og náðu leikmenn HK að minnka mun- inn í eitt mark, 20:19, þegar fimm mín. voru til leiksloka. Þá vöknuðu heimamenn við vondan draum og náðu að tryggja sér öruggan sigur og tvö dýrmæt stig. Staðan / B10 Eyjólfur knattspymu- maðurársins Eyjólfur Sverrisson, leikmaður með Stuttgart í Þýskalandi var kjörinn knattspymumaður ársins af stjórn Knattspyrnusambands ís- lands. Hann lék fyrsta A-landsleik sinn á árinu, gegn Albaníu í maí, og var síðan með í öllum landsleikj- um ársins, nema í vináttuleiknum gegn Tyrklandi og skoraði gegn Spáni og Frakklandi í Evrópu- keppninni. að ég færi, enda er ég samnings- bundinn Stuttgart út þetta keppnis- tímabil. United vildi fá mig strax eftir jól, en það kemur ekki til. Enda er ég ekkert spenntur fyrir að fara frá Stuttgart meðan ég er í liðinu og gengur svona vel.” Bikarkeppni HSÍ: Valur gegn Eyjamönnum Islandsmeistarar Vals mæta bikarmeisturum ÍBV í 8-liða úrslitum karla f bikarkeppni HSÍ, en dregið var í sjónvarpinu á laugardag. Eftirtalin lið drógust saman í karlaflokki - það lið sem fyrr er talið upp fær heimaleik: Þór Ak. - FH, Valur - ÍBV, Grótta-b - Víkingur og Valur-b - ÍR. í kvennaflokki drógust eftir- talin lið saman: Fram - KR, ÍBK - Grótta, ÍB- V/Valur - Víkingur og Ármann - FH. Eyjólfur hefur leikið betur og betur eftir að þjálfarinn Chri- stoph Daum færði hann aftur í stöðu varnartengi- liðs á vinstrr vængn- um á miðjunni, þar sem hann leikur við hliðina á Michael Frá JóniHalldúri Garðarssyni ÍÞýskalandi Eyjólfur Sverrisson SUND Ragnheiður náði sér ekki áslrik Eg náði mér ekki á strik. Hef verið veik og þá sagði þreyta til sín, þar sem ég hef lítið hvílt að undanförnu,” sagði Ragnheiður Runólfsdóttir, sem tók þátt í opna bandaríska meistaramótinu í sundi í Minneapolis í Minnesota um helgina. Ragnheiður varð í tutt- ugusta sæti í 100 m bringu- sundi á 1:14,08 mín., en hún komst í úrslit í 200 m bringu- sundi - hafnaði í sextánda sæti á 2:39,02 mín. Eyjólfur á séræfingum „BREYTING sem heppnaðist tekinn úr fremstu víglínu og gerður að vinnuhesti á miðj- unni,” segir í grein um Eyjólf Sverrisson i„Kicker”í gær. Sagt er f rá því að Eyjólfur sé á séræfingum til að lagfæra tækni sína. Frontzeck. Eyjólfur hljóp mikið um í leiknum gegn Duisburg - skoraði fallegt mark og þar að auki bjarg- aði hann oft vel inn í vítateig hjá Stuttgart,” segir I greininni. „Eg kann mikið betur við mig í þessu hlutverki á miðjunni. Nú þarf ég ekki að vera frammi og býða eftir knettinum,” sagði Eyjólfur. í greininni er sagt frá því a tæknin sé ekki sterkasta vop Eyjólfs og því væri knötturinn ekl besti vinur hans. „Hann vikrí klunnalegur þegar hann er me knöttinn.” „Ég veit um þetta. Ég er á séræ: ingum til að ná upp betri tækni. sagði Eyjólfur. United vildi fá Eyjólf strax [anchester United hefur sýnt Eyjólfi Sverrissyni áhuga. „Menn frá félaginu hafa verið að spyijast fyrir um mig hjá Stuttg- art. En Daum þjálfari hefur sagt við mig að það kæmi ekki til greina ISHOKKI / ISLANDSMOTIÐ HANDKNATTLEIKUR KORFUKNATTLEIKUR Dan Krebs Guðjón Skúlason Afall fyrir Grindvíkinga: Krebsmeð slftin liðbönd Guðjón Skúlason á heimleið? Grindvíkingar urðu fyrir miklu áfalli í leik sínum gegn KR, en þá meiddist Dan Krebs. í læknis- skoðun í gær kom fram að, hann er með slitin liðbönd. „Þetta er mikil blótaka fyrir okkur og einnig Krebs sjálfan. Hann hefur leikið mjög vel að undanförnu,” sagði Margeir Guðmundsson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur í viðtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. „Við verðum að fá annan leik- mann frá Bandaríkjunum og förum strax að vinna í því.” Pálmar Sig- urðsson meiddist einnig í leiknum gegn KR - tognaði á ökkla. Hann mun ekki leika með Grindvíkingum gegn Haukum í kvöld. Guðjón á heimleið? Guðjón Skúlason, landsliðsmaður frá Keflavík, er óhress með hvað hann fær lítið að leika með skóla- liði sínu í Bandaríkjunum. Miklar líkur eru á því að hann komi alkom- in heim 19. desember og gangi til liðs við félaga sína í Keflavík. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um að Guðjón myn styrkja leik- mannahóp Keflvíkinga geysilega í lokabaráttunni um íslandsmeistara- titilinn. KNATTSPYRNA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.