Morgunblaðið - 03.12.1991, Side 7
6 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991
B 7
KNATTSPYRNA / ENGLAND
¥
ÞYSKALAND
■
Gudni lék
mjög vel
Guðni Bergsson lék vel í vörn Tott-
enham á sunnudag gegn Arsenal
í ensku 1. deildinni, en varð þó að
sætta sig við tap, 0:2, á Highbury.
Þetta var sjónvarpsleikur helgarinnar.
Arsenal var mun sterkara liðið, sótti
af miklum krafti og Guðni og félagar
í vörninni höfðu því nóg að gera. Tott-
enham saknaði enska landsliðsfyrirlið-
ans, Gary Linekers, og því var lítill
broddur í sóknaraðgerðum liðsins.
GuðniBergsson
Giggs frábær
- sagði George Best um drenginn sem
nú fetar ífótspor hans hjá Man. United
George Best, fyrrum leikmaður Manchester United og goðsögn í
lifanda lífi, hældi táningnum Ryan Giggs á hvert reipi eftir að
United sigraði Crystal Palace á laugardag. „Hann var frábær í dag,
enn einu sinni. Það fer kliður um áhorfendaskarann í hvert skipti sem
hann fær boltann — það segir meira en mörg orð um það hversu
góður hann er,” sagði Best, sem var meðal áhorfenda á Selhurst Park.
Margir hafa líkt Giggs, sem varð 18 ára sl. föstudag, við Best, sem
var einn besti knattspyrnumaður heims þegar hann var upp á sitt
besta með United, á árunum fyrir 1970. „Ég sé enga ástæðu til ann-
ars en hann verði stórstjarna,” sagði Best um strákinn.
ÍÞRÓmR
FOLK
Tíminn nýttur
til hins ýtrasta
Rod Wallace gerði sigurmark Leeds gegn Everton á elleftu
stundu og liðið hélttoppsætinu — United fylgirfast á eftir
■ STEVE Sedgley, varnarmaður
sem ekki hefur komist í lið Totten-
ham að undanfömu, hefur óskað
eftir því að verða settur á sölulista.
wm—m—mm H KEN Bates for-
Frá Bob seti Chelsea kom í
Hennessy i búningsklefann fyrir
Englandi leikinn við Forest
og sagði mönnum
sínum ekki að hafa áhyggjur af
vandræðum félagsins utan vallar.
■ BATES verður að útvega 23
milljónir punda á næstu fjórum vik-
um til að tryggja það að félagið
haldi velli sínum, Stamford Bridge.
Fyrirtækið sem á völlinn vill kaupa
Fulham, fyrir 11 miljónir punda,
og láta bæði spila á Stamford Bridge
frá og með næsta vetri. Fyrirtækið
hyggst íbúðir á svæðinu þar sem
Craven Cottage, völlur Fulham,
stendur nú. Það er á einum vinsæl-
asta stað Lundúnaborgar, á bökkum
Thames-árinnar.
■ KERRY Dixon gerði sigurmark
Chelsea gegn Nott. Forest. Hafði
ekki skorað í 12 leikjum.
■ PETER Reid, stjóri Manchest-
er City, leitar nú að framheija til
að stilla upp við hlið Nialls Quinn.
Sagan segir að hann hafi mestan
áhuga á Steve Bull hjá Wolves,
en Ulfarnir láta hann varla fara
fyrir minna en tvær milljónir punda.
■ JIM Leighton, fyrrum lands-
liðsmarkvörður Skotlands, lék á
laugardag fyrir Reading gegn
Stockport í 3. deild. Hann hefur
veri lánaður í mánuð frá Manchest-
er United.
■ LIAM Brady, stjóri Glasgow
Celtic, setti landa sinn, írska lands-
liðsmarkvörðinn Pat Bonner, út úr
liði sínu aðra vikuna í röð. Bonner
gæti verið á leiðinni burt fyrir eina
milljón punda.
■ GUÐMUNDUR Torfason lék
ekki með St. Mirren á laugardag i
1:1 jafnteflinu gegn Dundee Un-
ited.
■ ROY Keane, hinn ungi miðju-
maður Nottingham Forest, hefur
verið orðaður við Liverpool að
undanfömu — jafnvel í skiptum fyr-
ir framheijann Dean Saunders skv.
blaðafrengum. Souness, stjóri Li-
verpool, hefur þó neitað að Saund-
ers væri á förum, þó sá sami stjóri
hafi lýst því yfir fyrir skömmu að
Saunders væri til sölu.
H SOUNESS virðist hugsa sér
Keane sem arftaka Ronnies Whel-
an á miðjunni hjá Liverpool — en
vafasamt virðist að Whelan nái sér
nokkurn tíma að fullu á eftir af
hnjámeiðslunum sem hijá hann.
Hann fer til sérfræðings á næstunni
og fljótlega ætti að vera Ijóst hvert
framhaldið verður hjá honum.
■ JAPANIR segjast staðráðnir í
að fá fleiri góða leikmenn en Gary
Linekér frá Englandi til að leika í
nýju atvinnumannadeildinni í knatt-
spyrnú sem hleypa á af stokkunum
þar í lanai 1993. Bryan Robson fer
hugsanlega þangað og nú segir sag-
an að Japanir hafi einnig sýnt Bruce
Grobbelaar, markverði Liverpool,
áhuga.
LEEDS hélt toppsæti ensku 1.
deildarinnar, með því að sigra
Everton 1:0 á heimavelli á laug-
ardag. Það var Rodney Wallace
sem gerði eina mark leiksins
skömmu fyrir leikslok. Man-
chester United gefur heldur
ekkert eftir, liðið sigraði Cryst-
al Palace 3:1 útivelli og var
mjög sannfærandi.
Allt stefndi í það að Manchester
United næði toppsætinu á ný,
liðið var með örygga forystu á Sel-
mmmmmmmmm hurst Park í London
Frá Bob gegn Crystal
Hennessyí Palace, en lengst af
Englandi var markalaust á
Elland Road í Leeds.
Það virtist heldur ekki bæta úr skák
að leikmenn Leeds voru einum færri
síðustu 21 mínútuna því Chris Fair-
clough var rekinn af velli. En þeir
gáfust ekki upp og Rod Wallace
gerði eina markið þegar þijár mín.
voru eftir. Skoraði þá af stuttu
færi eftir glæsilega fyrirgjöf Gor-
dons Strachans.
Leikurinn var mjög harður og
Fairclough var rekinn út af eftir
að hafa lent í útistöðum við Mark
Ward. Sá síðarnefndi braut reyndar
gróflega á Fairclough, sem stóð upp
og ýtti við honum. Fékk að líta
rautt fyrir en Ward var sýnt gula
spjaldið. Og Howard Wilkinson,
stjóri Leeds, var ekki hress með
ákvörðun dómarans. „Þessi dómari
er alltaf eins. Það er ótrúlegt að
annar leikmaðurinn skyldi fá gult
en hinn rautt!” sagði Wilkinson.
Everton fékk bestu færi leiksins,
bæði Tony Cottee og Peter Beards-
ley fengu ákjósanleg færi en náðu
ekki að koma knettinum í netið.
Giggs frábær
Ryan Giggs, sem varð 18 ára á
föstudaginn, var frábær í liði Man-,
chester United gegn Crystal Palace.
Paul Mortimer náði að vísu foryst-
unni fyrir Palace á 17. mín. en
Neil Webb jafnaði fljótlega. Markið
var algjörlega Giggs að þakka —
hann komst í gegnum flata vörn
Palace og þrumaði í þverslá, en
Webb fylgdi vel á eftir og þurfti
ekki að gera annað en ýta knettin-
um yfir línuna með höfðinu. Webb
og Giggs voru eftir á ferðinni fljót-
lega eftir hlé. Webb átti þá glæsi-
lega sendingu á Giggs út á vinstri
kantinn, útheijinn sendi fyrir mark-
ið þar sem Brian McClair tók knött-
inn á bijóstið og afgreiddi hann
síðan með fallegu skoti í markið.
Aðeins einni mín. síðari nýtti svo
sovéski landsliðsmaðurinn Andrej
Kantsjelskís sér varnarmistök
Palace og skoraði auðveldlega.
Gordon Strachan hinn síungi leik-
maður Leeds, lagði upp sigurmarkið
gegn Everton.
Þetta var fimmti útisigur United
á tímabilinu. „Þetta var öruggur
sigur þegar upp var staðið. Verk-
efnið var erfitt en við stóðumst
prófið. Leikmenn mínir eru orðnir
ákveðnari og þolinmóðari en áður,”
sagði Alex Ferguson, stjóri United
á eftir.
Coppell hrifinn
Steve Coppell, stjóri Palace og
fyrrum leikmaður United sagðist
ekki hafa neinar afsakanir fyrir
tapainu. „Ég ber mikla virðingu
fyrir United um þessar mundir. Lið-
ið er mjög sterkt, leikmenn þess
fljótir að hugsa, og hópurinn er
mjög sterkur.” Og hann hældi Pet-
er Schmeichel, danska markverðin-
um hjá United. „Ég vil ekki tala
illa um fyrrum markmenn á Old
Trafford, en menn vissu að þeir
áttu alltaf vissa möguleika gegn
þeim. En þessi náungi er mjög góð-
ur. Það var eins og hann væri að
plokka epli af tré þegar hann varði
frábæran skalla Geoffs Thomas.”
Mölby í ham
Daninn Jan Mölby lék sérlega
vel með Liverpool er liðið sigraði
Norwich 2:1 á heimavelli. Hann
byijaði á því að skora með glæsi-
legu bogaskoti af 25 m færi eftir
aðeins þrjár mín. og írski landsliðs-
maðurinn Ray Houghton gerði
seinna markið eftir hálftíma leik.
Potaði í netið eftir að Bryan Gunn,
markvörður Norwich, hafði varið
mjög vel glæsilegt skot Mölbys.
„Maður gerir ekki nema eitt eða tvö
svona mörk á ferlinum,” sagði Dan-
inn eftir leikinn um mark sitt. Og
anstæðingarnir urðu að hæla hon-
um: „Þetta er eitt besta mark sem
ég hef séð,” sagði Robert Fleck,
framheiji Norwich. Darren Beck-
ford skallaði í mark Liverpool
skömmu fyrir hlé, og þar við sat.
Sheffield Wednesday komst í
ljórða sæti deildarinnar með 2:1
sigri gegn West Ham í London.
Arsenal komst reyndar upp fyrir
Sheffield-liðið á sunnudag með sigr-
inum á Tottenham, liðin eru jöfn
að stigum en Arsenal hefur lokið
einum leik færra.
Nigel Jemson gerði sigurmark
Wednesday fimm mín. fyrir leikslok
eftir að bandaríski landsliðsmaðurin
John Harkes hafði komið liðinu yfir
á 24. mín. West Ham jafnaði tíu
mín. fyrir leikslok en Jemson
tryggði sigurinn.
Leikurinn á Upton Park var vel
spilaður og skemmtilegur. Ljótt at-
vik í upphafi seinni hálfleiks setti
þó slæman blett á hann. John
Sheridan og Carlton Palmer, miðju-
menn Wednesday, höfðu ráðið ferð-
inni í fyrri hálfleik. Martin Allen
kom inn á sem varamaður í hléinu
hjá West Ham, og eftir aðeins 22
sek. í seinni hálfleik hafði hann
brotið svo gróflega á Palmer að
hann var borinn af velli. Lengi vel
var óttast að hann hefði fótbrotnað
en svo var ekki.
Billy Bonds, stjóri West Ham, var
í öngum sínum vegna framkomu
Allens. „Við gerum ekki svona hjá
West Ham — ég get ekki liðið svona
framkomu,” sagði hann, og greindi
blaðamönnum frá því eftir leikinn
að hann hefði íhugað að taka vara-
manninn út af. Ekkert varð þó úr
því, en eftir leikinn baðst Allen af-
sökunar á framferði sínu.
Sharp með tvö
Aston Villa náði tvívegis foryst-
unni í Oldham, en nýliðarnir neituðu
að gefast upp og sigruðu. Gamla
kempan Graeme Sharp jafnaði í
fyrra skiptið á 34. mín. úr víta-
spyrnu og það var einmitt hann sem
gerði sigurmarkið átta mín. fyrir
leikslok.
Leikmenn Man. City urðu að
gera sér markalaust jafntefli að
góðu gegn Wimbledon á heimavelli.
Þetta var sannariega ekki dagur
írska landsliðsmiðheijans Nialls
Quinn, því hann fékk þijú dauða-
færi en náði ekki að skora.
Sanngjarnt á Highbury
Arsenal komst í fjórða sætið sem
fyrr segir, með 2:0 sigri á Totten-
ham á heimavelli sínum á sunnu-
dag. Það voru þeir Ian Wright og
Kevin Campbell sem gerðu mörkin
í síðari hálfleik.
Arsenal var mun betri aðilinn í
leiknum, sótti af miklum krafti og
sigurinn mjög svo sanngjarn.
Eyjólfur Sverrisson lék mjög vel með Stuttgart á laugardaginn og gerði glæsilegt
mark með skalla.
Gaman þegar
velgengur
- segir Eyjólfur Sverrisson sem gerði glæsilegt skallamark
EYJÓLFUR Sverrisson gerði
glæsilegt mark með skalla er
Stuttgart sigraði Duisburg 2:0
á heimavelli i'þýsku úrvaldeild-
inni á laugardaginn. Stuttgart
er í efsta sæti ásamt Frankfurt
og Dortmund þegar 20 umferð-
um er lokið.
Eyjólfur skoraði fyrra mark
Stuttgart á 8. mínútu. „Við
fengum aukaspyrnu á miðjum vall-
arhelmingi þeirra. Boltinn var send-
ur út á vinstri kantinn og síðan kom
há fyrirgjöf frá Frontzek á ijær-
stöngina. Ég kom á fullri ferð og
skallaði efst í markhornið Ijær af
tíu metra færi,” sagði Eyjólfur um
markið.
„Það hefur gengið mjög vel hjá
okkur að undanförnu og það er
gaman þegar svona vel gengur. Ég
hef fundið mig vel og er í góðri
æfingu,” sagði Eyjólfur, sem fékk
góða dóma í þýsku blöðunum fyrir
leik sinn. Gaudino var sagður best-
ur en síðan hafi Eyjólfur, Buchwald
og Immel átt góðan Ieik. Eyjólfur
hefur leikið á miðjunni vinstra meg-
in í síðustu leikjum, en þeir Fritz
Walter og Gudino, sem gerði síðara
mark liðsins á 75. mínútu, frammi.
Frí verður gefíð í þýsku úrvals-
deildinni yfir jólin. Eyjólfur sagðist
koma heim í frí 17. desember og
færi síðan út aftur 2. janúar. „Við
eigum að leika gegn Karlsruher á
útivelli um næstu helgi og það verð-
ur erfiður leikur því þeir eni mjög
erfiðir heim að sækja. En við erum
ákveðnir í að standa okkur og halda
okkur í toppbaráttunni,” sagði Ey-
jólfur, sem hefur gert tvö mörk í
síðustu þremur deildarleikjum liðs-
ins.
Mikil spenna
- á toppnum í Þýskalandi. Enn tapar Bayern Munchen
ÞÝSKA knattspyrnan hefur
sjaldan verið eins spennandi
og nú. Þrjú lið, Frankfurt,
Stuttgart og Dortmund, eru
efst og jöf n með 26 stig eftir
20 umferðir. Ekkert gengur enn
hjá stórliðinu Bayern Munchen
og um helgina tapaði liðið fyrir
Werder Bremen í fyrsta sinn á
heimavelli í 23 ár.
Frankfurt virðist vera að gefa
eftir, en liðið byijaði mjög vel
á þessu keppnistímabili. Liðið mátti
teljast heppið að
sleppa með jafntefli
gegn Diisseldorf,
sem er í næst neðsta
sæti. Sven Demandt
Frá
Jóni Halldóri
Garöarssyni
i Þýskalandi
gerði mark Dússeldorf með skoti
af 14 metra færi á 74. mínútu, en
Ralf Weber bjargaði öðru stiginu
fyrir Frankfurt 8 mín. fyrir leikslok.
Leikmenn Kaiserslautern sýndu
að þeir eiga góða möguleika á að
veija titilinn. Liðið hefur verið á
mikilli siglingu og er aðeins stigi á
eftir efstu liðum. Stefan Kuntz,
fyrirliði, fór á kostum auk þess sem
hann gerði tvö mörk í 4:1 sigri
gegn Dynamo Dresden.
Bayern Múnchen er í hinu mesta
basli. Liðið tapaði fimmta heima-
leiknum, nú gegn Werder Bremen,
og er í 12. sæti deildarinnar. Þrátt
fyrir að búið sé að skipta um þjálf-
ara, markvörð og tveir kunnustu
leikmenn þýskalands fyrr á árum,
Franz Beckenbauer og Karl-Heinz
Rummenigge hafi komið til aðstoð-
ar, virðist ekkert ganga. Liðið lék
einn lélegasta leik sinn í manna
minnum gegn Werder Bremen á
laugardaginn. Bremen vann 4:3 og
komst í 3:0 áður en Bayern náði
að svara fyrir sig á Ólympíuleik-
vanginum. Þetta var fyrsti sigur
Bremen í Múnchen í 23 ár.
Willi Lemke, stjórnarformaður
Werder Bremen, sagðist aldrei hafa
séð eins lélegt lið hjá Bayern. Lykil-
mennirnir hjá Bayern, Effenberg
og Olaf Thon, fengu lægstu ein-
kunn, 6, hjá þýsku blöðunum og
segir það kannski meira en nokkuð
annað um ástandið hjá þessu forn-
fræga félagi.
FOLK
■ DARKO Pancev, framheijinn
frábæri hjá Evrópumeisturunum í
knattspyrnu, Rauðu Stjörmmni frá
Júgóslavíu, tilkynnti fyrir helgi að
hann myndi leika með AC Milan á
ítalíu næsta vetur. Hann er 26 ára
og segist þegar hafa skrifað undir
bráðahirgðasamning við ítalska
félagið.
■ PANCEV sagði einnig að félagi
hans hjá Rauðu Stjömunni, Dejan
Savicevic, væri og á förum til AC
Milan. Hann hefur áður verið orð-
aður við ítölsku féiögin Juventus og.
Roma.
I ITÖLSK félög mega einungis
nota þijá erlenda leikmenn hveiju
sinni og fyrir hjá AC Milan eru Hol-
lendingarnir Marco van Basten,
Ruud GuIIit og Frank Rijkaard.
■ LINFORD Christie, breski Evr-
ópumeistarinn í 100 m hlaupi, hefur
hætt við að hætta og segist ætla að
keppa á Ólympíuleikunum í Barcel-
oria á næsta ári. Og í fyrsta skipti
æt\ar hann að sleppa Evrópumeistar-
amotinu innanhúss, þar sem hann á
titil að veija, til að undirbúa sig sem
best undir Ólympíuleikana. Christie
er 31 árs.
■ JUAN Jose Borrelli knatt-
spyrnumaður hjá argentínska félag-
inu River Plate er að öllum líkindum
á leiðinni til Panathinaikos í Grikk-
landi. Hann er 22 ára framheiji.
Kaupverðið verður 2,5 miljónir doll-
ara — tæpar 147, milljónir ÍSK.
■ BERNARD Gallacher, sem ver-
ið hefur liðfestjóri evrópska liðsins í
Ryder bikarkeppninni í golfi, hefur
samþykkt að gegna embættinu í
næstu baráttu við Bandaríkjamenn,
1993. Tom Watson tók nýverið við
liðsstjórninni hjá Bandaríkjamönn-
um.
förnu.
M FRANCKjSauzee, landsliðsmað-
ur Frakklands, var með Marseille
að nýju um helgina er liðið gerði
markalaust jafntefli við Lyon á
heimavelli. Hann hafði verið frá
vegna meiðsla í tvo mánuði.
■ RUI Aguas, framherjinn kunnþi
hjá Benfica meiddist í hné Evrópu- -
leiknum gegn Dynamo Kiev í vik-
unni og var skorinn upp fyrir helgi.
Hann verður varla með á ný fyrr en
eftir nokkra mánuði.
FRAKKLAND_____
Arnór og fé-
lagar standa
vel að vígi
Amór Guðjohnsen og samheijar í
Bordeaux standa vel að vígi f B-
riðli frönsku 2. deildarinnar eftir marka-
laust jafntefli gegn Strasbourg á heima-
velli á laugardagskvöld. 40.000 áhorfend-
ur fylgdust með viðureign liðanna.
„Leikurinn var í járnum allan tímann
og mjög lítið um að vera. Ekta toppslagur
þar sem bæði lið voru mjög varkár og
fengu nánast engin tækifæri,” sagði Arn-
ór við Morgunblaðið.
„Við vorum betri í fyrri hálfleik en
þeir sóttu sig mikið í seinni hálfleik án
þess þó að fá nein markverð færi,” sagði
Arnór. Bordeaux hefur nú þriggja stiga
forskot á Strasbourg.
Tveir leikir eru eftir fyrir jólafrí: Borde-
aux mætir fyrst Istres á útivelli um næstu
helgi og fær síðan Nice í heimsókn. „Þetta
verða hvort tveggja erfiðir leikir. Lið Is-
tres er mjög gott og gerði til dæmis jafn-
tefli í Strasbourg um síðustu helgi. Við
verðum að halda vel á spöðunum fram
að jólum — verðum að koma vel út úr
þessum tveimur leikjum. Þá förum við í
góðri stöðu í fríið.”
Marseille er enn efst í 1. deild og Món-
akó í öðru sæti.
ITALIA
Juventus
dró á Milan
AC MILAIM hélt toppsætinu í ít-
ölsku 1. deildinni í knattspyrnu,
er liðið gerði jafntefli, 1:1, við
nágranna sína í Internazionale
á sunnudag. Juventus dró á
Mílanóliðið — er nú aðeins einu
stigi á eftir, eftir 2:1 sigur AS á
Roma.
að var mikið fjör á San Siro leik-
vanginum í Mílanó þegar borg-
arliðin mættust. Leikmenn AC höfðu
mikla yfirburði í fyrri hálfleik og
Hollendingurinn Marco Van Basten
gerði eina mark hálfleiksins eftir
glæsilega sókn, og sendingu Massa-
.ros. Ruud Gullitt, sem Iék mjög vel,
var nálægt því að bæta marki við
fljótlega eftir að landi hans skoraði.
Átti þá hörkuskalla í þverslá.
Seinni hálfleikurinn var jafnari,
en ekki eins skemmtilegur. Og þau
fleygu orð, Loksins, loksins hafa
eflaust hrokkið af vörum einhverra
stuðningsmanna Inter þegar tíu mfn.
voru liðnar af hálfleiknum. Þá jafn-
aði nefnilega Þjóðverjinn Júrgen
Klinsmann, og var þetta fyrsta mark
hans í deildinni í vetur. Enda var
fögnuður Klinsmanns og félaga hans
mikill. Og stigið sem hann tryggði
Inter dýrmætt, þó það sé varla nóg
til að Iiðið blandi sér í toppbarátt-
una. Liðið hefði þurft að vinna á
sunnudag.
Leikmenn AC voru einum færri í
tæpan hálftíma því fyrirliða liðsins,
Franco Baresi, var vikið af velli á
66. mín. Felldi þá varamanninn
Stefano Desideri og fékk gult spjald
fyrir, en hafði áður fengið gult í
leiknum. Það var einmitt Desideri
sem lagði upp jöfnunarmarkið fyrir
Klinsmann aðeins mínútu eftir að
hann kom inn á.
Fabio Capello, þjálfari AC Milan,
var ánægður með úrslitin. „Þetta var
kröftugur leikur fyrir karla, ekki
drengi. Við fengum færi til að ganga
frá þessu með því að komast í 2:0
en nýttum okkur það ekki,” sagði
hann. „Síðan, eftir að Baresi var
rekinn út af gátum við einfaldlega
ekki tekið áhættu með því að sækja.”
Juventus er aðeins einu stigi á
eftir AC Milan eftir 2:1 sigur á AS
Roma. Það var sjálfsmark varnar-
mannsins Antonio De Marchi, tveim-
ur mín. fyrir leikslok, sem gerði út
um leikinn. Það var Salvatore
Schillaci sem kom Juventus yfir, með
öðru marki sínu í vetur, en Giuseppe
Giannini jafnaði með glæsilegu lang-
skoti. Markið í lokin var svo hroða-
lega klaufalegt. Markvörðurinn
missti af fyrirgjöf, knötturinn hrökk
Marco Van Basten
í De Marchi og í netið.
Napolí er í þriðja sæti. Liðið var
1:3 undir gegn Lazio í Róm en náði
að jafna. Sardiníubúinn litli,
Gianfranco Zola, var enn einu sinni
hetja liðsins — jafnaði 3:3 á síðustu
mínútunni og hafði áður lagt upp
annað mark liðsins fyrir franska
varnarmanninn Laurent Blanc. Þjóð-
veijinn Karlheinz Riedle gerði tvö
mörk fyrir Lazio og Ruben Sosa frá
Uruguay eitt úr víti.
Enski landsliðsmaðurinn David
Platt gerði fjórða mark sitt í vetur
fyrir Bari, en liðið tapaði níunda
leiknum af 12 í deildinni og hefur
ekki enn unnið leik. Valeriano Fiorin
og Tékkinn Tomas Skuhravy gerðu
mörk Genoa gegn Bari.
■ Úrslit / B10
■ Staðan / B10
SPANN
Real óstöðvandi
REAL Madrid er besta lið Spán-
ar í dag, það sönnuðu leikmenn
þess eftirminnilega á sunnu-
dag er þeirtóku Espanol í
kennslustund á útivelli. Sigr-
uðu 5:1 og settu þar með tvö
met í spænskri knattspyrnu.
Liðið hefur sigrað í sex fyrstu
útileikjum sínum ívetur —
nokkuð sem engu liði hefur
áður tekist, og hefur fengið 23
stig úr 12fyrstu leikjunum. Það
er besta byrjun liðs í deildar-
keppninni til þessa.
Fernando Hierro gerði þrennu
fyrir Real og þeir Michel Gonz-
alez Luis Enrique sitt markið hvor
á Sarria-vellinum í Barcelona. Það
var einmitt á þessum sama velli sem
Real tapaði síðast deildarleik, í apríl
sl. Síðan hefur stórliðið leikið 21
leik í deildinni án taps.
SVISS
Grasshoppervann
Grasshopper, sem Sigurður Grétarsson leikur með, sigraði Wettingen
3:0 á útivelli í svissnesku 1. deildinni í knattspyrnu á sunnudag og er
í öðru sæti — þremur stigum á eftir Lausanne. Lokaumferð fyrri hluta
deildarkeppninnar er um næstu helgi og Grashopper fær þá Lausanne í
heimsókn. „Ef við vinnum þann leik verða liðin jöfn að stigum þegar
úrslitakeppnin hefst í mars,” sagði Sigurður við Morgunblaðið. Stigin, sem
liðin ná í deildarkeppninni, eru helminguð fyrir úrslitakeppnina — Lausanne
hefur 30 og með sigri um næstu helgi kæmist Grasshopper upp í 29.
Manolo Sanchez hjá Atletico
Madrid gerði einnig .þrennu, er/lið
hans vann Real Valladolid 5:1 á
heimavelli. Þjóðveijinn frábæri
Bernd Schuster gerði hin mörkin
tvö.
Meistarar Barcelona eiga í erfið-
leikum í deildinni um þessar mund-
ir. Liðið hefur aðeins unnið einn af
sex leikjum á útivelli og er í fimmta
sæti, sjö stigum á eftir Real. Barcel-
ona gerði aðeins jafntefli, 1:1, á
útivelli gegn nýliðunum í Álbacete.
Hollendingurinn Ronald Koeman
var rekinn af velli í síðari hálfleik
fyrir ljótt brot á Delfín Geli.
Leikmenn Barcelona virkuðu
þreyttir eftir Evrópuleikinn gegn
Sparta Prag í síðustu viku. Francis-
co Catali kom nýliðunum yfír á 26.
mín. en Búlgarinn Hristo Stoichkov
jafnaði skömmu fyrir hlé.