Morgunblaðið - 13.12.1991, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1991
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1991
Fyrir þá sem vilja
búa til sitt eigið stjörnukort
UNDANFARIN ár hefur áhugi fólks á stjörnuspeki
farið vaxandi og margir eiga í fórum sínum stjörnu-
kort sem þeir hafa látið búa til fyrir sig.
Hins vegar er nú kominn á markaðinn pakki frá Emi
og Örlygi undir nafninu Spáð í stjörnurnar. Hann er ætlað-
ur þeim er sjálfir vilja búa til sitt stjörnukort. í pakkanum
er að finna bók með inngangsköflum og plánetutöflum
yfir árin 1900-1999 og skrifblokk til að skrá afstöðu plán-
eta og aðalgreinar fyrir sérhvern tiltekinn einstakling. Að
lokum er að finna spjald með dýrahringnum, sérstakan
blýant og bók til að lesa úr niðurstöðunum.
Það tekur ekki mjög langan tíma að finna út stjörnu-
kort fyrir fólk, það er bara að setja sig í stellingar, fylgja
leiðbeiningum skref fyrir skref og reikna út og lesa síðan
úr niðurstöðunum. ■
Listin að kyssa!
„KENNDU mér að kyssa
rétt og hvernig á að
faðma nett.“ Þetta eru
upphafslínur á gömlu
vinsælu dægurlagi sem
ungmeyjar og sveinar
sungu hástöfum hér um
árið. Eflaust hefur um
árin vafist fyrir mörgum
hvernig bera á sig að við
að kyssa, sérstaklega á
táningsárum.
Ut er komin bók frá
Skjaldborg sem heitir Listin
að kyssa og þár er að fínna
allt mögulegt um kossa.
Þar kemur í ljós að kossa-
tegundirnar eru margar. Til
dæmis er hægt að kyssa
bitkossi, sælgætiskossi, raf-
mögnuðum kossi, köfunar-
kossi, lofttæmikossi og tón-
listarkossi.
I einum kafla bókarinnar
er ijallað um ráð við feimni.
„Slakaðu á og njóttu
kossins. Það er ekki til nein
rétt aðferð til að kyssa og
þessvegna þarftu ekki að
vera hræddur um að gera
einhveija vitleysu."
„Gerðu það bara. Maður
lærir af reynslunni.“
„Losaðu um hömlur og
hafðu engar áhyggjur af því
hvernig þú lítur út í nær-
mynd:, oftast er sá sem þú
kyssir með lokuð augun.“
„Skelltu þér bara í það.“
„Farðu þér hægt, vertu
blíður, gefðu gaum að svör-
un þeirrar sem þú ert að
kyssa og svaraðu henni á
sama hátt.“
„Ekki gera það nema þú
sért tilbúin."
„Byijaðu hægt og slepptu
smátt og smátt fram af þér
beislinu; losaðu um höml-
urnar.“
„Hafðu kossinn hægan
og blíðan og taktu vel eftir
öllu.“
„Vertu ófeimin; það er
ekki til neitt frábærara."
„Settu bara stút á varirn-
ar og smelltu einum á
hana.“
„Ekki hugsa um það.
Láttu það bara gerast.“
„Slakaðu á og vertu ekki
uppspenntur. Þetta gengur
sinn gang. Ef þú hugsar of
mikið um það gætirðu
klúðrað öllu.“... ■
BÆKUR
Nudd
getur verið
mótvægi við vinnuálag
NUDD getur verið mót-
vægi við sífellt vinnuálag
auk þess að geta leitt til
„sjálfsþekkingar". I þús-
undir ára hefur nuddi eða
yfirlagningu handa verið
beitt til að græða og líkna
hinum sjúku, stendur
meðal annars í inngangi
bókarinnar Allt um nudd
sem nýlega kom út. Bókin
er í bókaflokknum „Lykill
að lífshamingju" og kenn-
ir vestrænar og austræn-
ar nuddaðferðir.
í bókinni er í stuttu máli
rakin saga nudds, áhrifa
sem það er talið hafa á lík-
amsstarfsemina, auk þess
sem hin ýmsu nuddafbrigði
eru kynnt. Fjöldinn allur af
Ijósmyndum og teiknuðum
skýringarmyndum er í bók-
Fóturinn strekktur
A) Takið annarri hendi
um ökklann og þrýstið á
meðan með hinni neðan á
tær og táberg þannig að
tær teygist uppávið.
B) Þrýstið þar næst ofan
á ristina með annarri
hendi meðan hinni er
haldið þétt um hælinn.
inni, þar sem hreyfingar og
strokur eru útskýrðar. Með-
al þess sem fjallað er um,
er í hvaða röð ber að nudda
líkamshlutana, svæðanudd,
Shiatsu, ungbarnanudd,
nudd á efri árum, og áhrif
og mikilvægi snertingar.
Lítillega er komið inn á líf-
færafræði og einnig er í
stuttu máli fjallað um árur
og orkustöðvar. ■
Þegar börnin eru
komin í heiminn þarf að
útskýra fyrir þeim hvernig það gerðist
y
SÍGILT vandamál hjá for-
eldrum er: Hvernig á ég
að upplýsa barnið mitt um
hvernig það varð til, eða
á ég yfirhöfuð að gera
það? Er kannski best að
barnið komist að því hjá
skólafélögunum?
Misjafnar stefnur og
straumar í uppeldi ráða því
hvernig foreldrar ákveða að
leysa þetta mál. Flestir nú-
tímaforeldrar eru þó sam-
mála um að rétt sé að út-
skýra fyrir börnunum
hvernig líf verður til, það
er að segja að því marki sem
við getum.
Við getum rakið lífssög-
una aftur á bak og áfram,
en endum samt alltaf á því
að vita ekki grundvallar-
svarið: Hvernig varð lífið
upphaflega til? Þegar að
þeirri spurningu er komið*
• leita flestir í trúna, þar sem
sumir finna svörin sem þeir
leituðu að.
Storkurinn og býflugan
Kannski eru ennþá til
foreldrar sem segja börnun-
um frá storkinum, eða bý-
flugunum, en að öllum lík-
indum eru þeir agnarsmár
minnihluti. Reglulega koma
út bækur, sem foreldrar
geta stuðst við er þeir upp-
lýsa börn sín um það hvern-
ig stendur á því að þau eru
til. Nýlega kom út bókin
Hver bjó mig til? þar sem
reynt er í myndum og máli
að höfða til foreldra og
barna við að svara spurn-
ingunni.
Við grípum niður í bók-
inni þar sem búið er að út-
skýra líkamlegan mun kynj-
anna, virkni og tilgang sæð-
isfruma og eggja, og sam-
farir:
„Þúsundir sáðfruma
safnast að egginu og sú sem
er fyrst að komast alla leið
að egginu vinnur!
Þegar sáðfruman og egg-
ið hittast gerist dálítið stór-
kostlegt. Þau sameinast og
verða eitt. Á sama andar-
taki vérður til nýtt líf, sem
á eftir að verða að barni.
Þetta er kallað getnaður.
Þegar ástarleiknum er
lokið eru pabbinn og mam-
man oft dálítið þreytt. Þessi
fullorðinsleikur er lýjandi
eins og allir aðrir leikir.“
Miðstýring í
sænska skólakerfinu fellur
fyrir auknu frelsi og dreifðu valdi
„HELSTU ástæður þess að horfið er frá miðstýringu í sænska skóla-
kerfinu eru þær að við teljum að betri árangur náist með valddreif-
ingu, að skólarnir njóti sín betur með auknu fijálsræði. Foreldrar
geta með því móti gert meiri kröfur og veitt skólunum meira að-
hald. Síðast en ekki síst sjá menn fram á að sænskar auðlindir
duga ekki til eilífðar og því verður þjóðfélagið að byggja enn meira
en áður á þekkingu og hugviti í samkeppni sinni við aðrar þjóðir.
Þetta segir prófessor Ulf Lundgren frá Svíþjóð sem til skamms
tíma var starfandi við Kennaraháskólann í Stokkhólmi.
Ulf Lundgren er yfirmaður
stofnunarinnar Skolvárket,
sem fer með yfirstjóm
■■ sænskra skólamála. Þessi
BS stofnun kemur í staðinn fyrir
Sþá deild í sænska mennta-
málaráðuneytinu sem áður
annaðist skólamál. Ulf Lund-
gren flutti fyrirlestur á ráð-
stefnu í Reykjavík í síðustu
viku um breytingarnar í sænska
skólakerfinu og ræddi m.a. um
gæðamat á skólastarfi. Hann hefur
ritað mikið um skólamál og haldið
fyrirlestra víða um lönd.
Umræður og deilur
Áður en Ulf Lundgren lýsir þessu
gæðamati er hann beðinn að greina
í nokkrum orðum frá því hvernig
þessi breyting í skólakerfinu hefur
gengið fyrir sig:
„Hún hefur náttúrlega ekki
gengið hljóðalaust fyrir sig og mikl-
ar umræður og deilur hafa orðið
um þessi mál. Menn eru þó sam-
mála um að hvérfa frá miðstýringu.
Hins vegar hefur verið deilt um
ýmsar afleiðingar þessarar breyt-
ingar og útfærslu hennar. Það er
mjög ólíkt Svíum að breyta á þenn-
an hátt þar sem allt samfélag okk-
ar hefur byggst mjög á miðstýringu.
Það var til dæmis fljótlega ákveð-
ið að leggja niður þá deild í mennta-
málaráðuneytinu sem annaðist
skólamál og fela nýrri stofn-
un verkefni hennar. í deild-
inni í ráðuneytinu störfuðu 750
manns og þeim var öllum sagt upp.
Hluti þeirra var ráðinn til Skolvár-
ket sem hefur aðeins 230 manns í
þjónustu sinni. Þetta eitt vakti deil-
ur en það var frá upphafi ljóst að
einn tilgangur breytingarinnar var
að ná fram hagræðingu og spam-
aði. Slíkar uppsagnir hafa hins veg-
ar átt sér stað víðar í sænska ríki-
skerfinu, til dæmis hjá Símanum,
þar sem um tvö þúsund manns var
sagt upp.
Kjör kennara, sem nú eru allir
settir undir sama hatt, hafa einnig
vakið deilur. Háskólakennurum hef-
ur þótt örla á að kennarar á lægri
skólastigum hafi fengið meiri kjara-
bætur en þeir.
Það sem uppúr stendur er að
meirihluti skólamanna er fylgjandi
því að hvérfa frá miðstýr-
ingu að valddreifingu og
að fela sveitarfélögum
og skólunum sjálfum
aukna ábyrgð í öllu
skólakerfinu.“
Aukið frelsi og aukin ábyrgð
Ulf Lundgren segir að þessi
ábyrgð felist m.a. í því að sveitarfé-
lögin fái nú ákveðið fjármagn til
ráðstöfunar í skólamálum. Upp-
hæðin fari eftir nemendaijölda og
sveitarfélögin ráðstafi þeim eins og
henta þykir, auk þess að geta bætt
við upphæðina sé vilji fyrir hendi.
Breytingarnar
fela til dæmis í sér ■■■■■■■
að gerð námskrár
og mótun stefnu
er í höndum hvers
skóla fyrir sig.
Hluti af sparnaði
ríkisins felst þar
af leiðandi í því
að sveitarfélögin
taki að sér aukinn
kostnað. Einstakir
skólar njóta í senn ■■■■■■■■
aukins frelsis og
aukinnar ábyrgðar. Skólakerfíð
starfar eftir heildarnámskrá þar
sem markmiðin verða fá og skýr
og mjög hefur verið dregið úr hvers
konar reglugerðum og tilskipunum. fara fram stöðugt gæðamat."
Skólornir f ó ákveöió ráð-
stöfunarf é frá ríkinu. Síðan sjá
sveitarf élögin um að ráðstafa
peningunum og geta bætt við
upphæðina, sé áhugi á því.
Sænska miðstýringin hefur nú
sungið sitt síðasta i skálamál-
um.
„Þetta leggur bæði skólastjórn-
endum og kennurum nýjar skyldur
á herðar og þýðir aukna vinnu fyr-
ir kennara. Jafnframt því sem
ákveðið var að hverfa frá miðstýr-
ingu var ljóst að finna þurfti leið
til að samræma og meta skólastarf-
ið. Á það við um kennsluefni en þó
aðallega um aðferðir og árangur.
Heildarúttekt og gæðamat á að
fara fram á þriggja ára fresti en
fyrsta úttektin verður gerð árið
1993. Gæðamat í skólum er vanda-
samt og flókið og spurningin snýst
um það hvað á að meta og fyrir
hvern.
Skolvárket hefur aðsetur í Stokk-
hólmi og þar starfa 120 manns.
Aðrir 110 starfsmenn eru á skrif-
stofum þess út um landið og ann-
ast bein tengsl við skólana, eftirlit
og ráðgjöf. Eins og fyrr segir kom
hluti starfsmanna úr menntamála-
ráðuneytinu en aðrir, t.d. viðskipta-
fræðingar, endurskoðendur og aðrir
sem annast fjármál komu úr
atvinnulífinu.“
Ulf Lundgren
■■■■■■■ undirstrikar að
lokum -að allt
skólakerfíð verði
einfaldara. „Færri
reglugerðir draga
úr skriffinnsku.
Við teljum að
þessi endurskoðun
hafi verið nauð-
synleg. Við þurf-
um í framtíðinni
■■■■■■■ að byggja enn
meira á hugviti og
tækniþekkingu þegar auðlindir fara
þverrandi og það verður ekki gert
nema skólakerfið skili árangursríku
starfi. Þess vegna þarf einnig að
Snyrtivörur
framleiddar án þess
að tilraunadýr séu notuð
DYRAVERNDUNARSINNAR
hafa látið prenta bækling þar
sem upplýsingar er að finna
um snyrti- og hreinlætisvörur
sem framleiddar eru án dýratil-
rauna.
Það var starfshópur Sambands
dýraverndarfélaga íslands sem lét
prenta fyrir sig bæklinginn, en
þar eru nöfn 225 fyrirtækja sem
framleiða snyrti- og hreinlætis-
vörur án þess að nota tilraunadýr
við framleiðslu sína. Upplýs-
ingarnar eru byggðar á könnun
sem Norræn samtök gegn dýratil-
raunum gerðu á árunum 1987-
1991.
í frétt frá Sambandi dýravernd-
arfélaga segir meðal annars: „Ár-
lega þola mörg dýr óbærilegar
þjáningar og loks dauða við próf-
anir á ýmsum vorurn." Þar segir
ennfremur að á næsta ári verði
sams konar bæklingur éndur-
prentaður og muni sambandið
afla upplýsinga um aðra íslenska
framleiðendur eða innflutningsað-
ila, sem telja að nafn þeirra eigi
heima í bæklingnum. ■
VIÐ HJALPUM - HJALPAÐU OKKUR!
Munið heimsendan gíróseðil.
HJÁLPARSTOFNUN KIRKJUNNAR
Þeir sem þjást bíða hjálpar þinnar.
Framlag þitt getur ráðið úrslitum.
I.ítil upphæð kemur lika að gagni.
■ -
mm
Kryddaðu
tilveruna.
Hejur jní kynnt þér liiii
jjölbreytta úrval kryddjurta sem
Hdlsuhúsib býbur uppá og selur í
grammavís beint úr sekkjunum?
Kiyddiii kemurferskþunkab og ilmandi
beina leib frá helst.u kiyddframleibendum
heims. Safran og salíva, kanilstangir,
rósapipar. fafnt f ramandi sem
kunnugle.gar kiyddblöndur.
Komdti ogfinndu ilminn. Vid
adstoðum góðfúslega við valið og
gefum góð ráð um notkun.
Éh
eilsuhúsið
Kringlan s: 689266. Skólavörðustíg s: 22966
Vinnan má bíða meðan þú
sýnir barni þínu regnbogann.
En regnboginn bíður ekki
eftir því að þú Ijúkir verkinu
Undurfalleg dagbók
eftir Ragnheiði Gestsdóttur
fyrir nýbakaða foreldra
sem geta skráð í hana minningar
um barnið, fyllt út ættartréð
og límt inn myndir.
Prýdd myndum höfundar
og spakmælum frá
ýmsum tímum og löndum.
Mál IMI og menning
Laugavegi 18, sími: 24240. Síðumúla 7-9, sími: 688577