Morgunblaðið - 29.12.1991, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.12.1991, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. DESEMBER 1991 SÍÐASTA FERÐ Hannelore Dylia sem kom með skipi frá Hamborg til að finna staðinn þar sem afi hennar varð skipreika og fólkið sem hlynnti að skip- verjum. VIÐTAL V I Ð HANNELORE DYLI A ann 11. desember 1920 kl. 6 að morgni strandaði „Martha" á Méðal- landssandi. Vindur var á suðaustan, mjög hvass með köflum. Hinn mikli öldugangur, sem lék um skipið, hafði skorðað það á sand- hrygg. Eftir árangurslausar neyðarsendingar var ákveðið að vera um borð til birtingar. Strandið hafði átt sér stað í niðamyrkri, og með köflum gerði haglhríð og vindskúrir. Þegar mesta hræðslan var liðin hjá var gert manntal í skutnum og allir reyndust vera þar.“ Hannelore Dylia tók sér í sumar far með Laxfossi frá heimaborg sinni Ham- borg með dagbók afa síns í farteskinu, til að freista þess að líta staðinn þar sem afi hennar varð skipreika á strönd Is- lands. Hún ætlaði að vera hér í hálfan mánuð milli ferða. Vinkona hennar var með í för með bílinn sinn, svo þeim voru ailir vegir færir. Varla voru þær komnar í hlað hjá Þórði safnverði á Skógum og hún nefnt að skip afa hennar hefði farist þarna á Suðurströndinni á árinu 1920, þegar Þórður sagði: „Martha!“ Það þótti henni vænt um. Þórður sýndi henni í safn- inu á Skógum bréf frá skipstjóranum með þakklæti til björgunarmanna. Martha hafði lagt af stað frá Cuxhaven 4. desember 1920 með hálfan farm, 370 tonn af salti, og stefndi tii Reykjavíkur. Afínn C. Silck, sem var skipstjóri, var í þetta sinn 1. stýrimaður, en skipstjórinn hét, Woker. Hannelore kvaðst hafa heyrt mikið um sjóferðir afa síns. Hann hafði verið skipstjóri í ferðum 'til Ástralíu og ýmissa eyja þar um slóðir og póstkort frá ýmsum hornum heims voru til á heimil- inu. M.a. hafði hún með sér ýmis skemmti- leg gömul póstkort frá Islandi, m.a. af Þorvaldi lögregluþjóni á Grána, lögreglu- mótorhjóli þeirra tíma. Dagbók afans gekk henni í fyrstu illa að lesa, því letrið var henni framandi. En eftir að frænka henn- ar hafði vélritað upp handritið, fékk hún mikinn áhuga á frásögninni frá Islandi. Og vinkona hennar fékk íslenska stúlku til þess að þýða það á íslensku, svo hún gæti haft það með sér til að sýna fólki hér. Afí hennar er látinn. Hann hafði keypt skip 1926 og sigldi til Svíþjóðar. Þaðan skrifaði hann konu sinni og kvaðst vera á heimleið. Ekki spurðist til hans meir. Skipið hvarf í hafið. Hann lét eftir sig tvö böm, móður Hannelore og son sem féll í stríðinu 1944. Þegar þær vinkonurnar höfðu fengið bílinn í land í Reykjavík óku þær rakleið- is til Víkur í Mýrdal, þar sem þær ætiuðu að hafa bækistöð á Höfðabrekku. Blö- skraði vegurinn undir Eyjafjöllunum og fóru að fá nasasjón af þessu hijúfa landi, þar sem afí hennar hafði í hópi annarra óhestvanra skipbrotsmanna riðið yfír fljót og óvegi. I Vík hittu þær stúlku sem gat talað einhverja Jiýsku og úr því voru eng- in vandkvæði. Á elliheimilinu hitti Hanne- lore 96 ára gamlan mann, sem mundi eftir strandinu, og gamla konu, sem þá hafði verið 15 ára gömul. Hannelore Dylia var með í fórum sínum póstkort með nöfnum Guðfinnu Bjöms- dóttur og Lofts Guðmundssonar á Strönd í Meðallandi, næsta bæ við strandstaðinn þar sem hlynnt var að skipbrotsmönnunum 13 og þar sem þeir dvöldu, eins og segir frá í dagbókinni. Þangað hélt hún og hitti Loft og Guðlaugu Loftsdóttur móður hans, sem 1920 var 12 ára gömul heimasæta á bænum. „Hún tók fram mynd af afa, sem hann hafði áletrað og gefíð heimilisfólk- inu. Og mikið var ég glöð að sjá skipsbjöll- una með áletruninni Martha í kirkjunni á staðnum," sagði hún. En í dagbókinni stendur:„Skipsklukkan var ánöfnuð nýrri kirkju í Meðallandi og tóku innfæddir við henni af þakklæti. Það gat maður lesið úr svip manna. Húsfreyjan á bænum var glöð. Þegar við sögðum að nú væru jólin okkar og tókum upp hálfmislukkaðar jóla- gjafir og deildum þeim með íslendingunum fór hún út og grét. Túlkurinn sagði okkur að hún gæti ekki tjáð með orðum tilfinn- ingar sínar. Augljóst var að við höfðum æignast okkar annað heimili á þessum stað, en slíkt er sjaldgæft í heimi hér. Jólagjöf sem jafnast á við gjöf ^rá ástvin- um að heiman,“ skrifaði stýrimaðurinn í dagbók sína áður en skipbrotsmenn héldu frá þessum afskekkta hlýlega sveitabæ á ströndinni. Hlynnt að skipbrotsmönnum Þýska skipið Martha var í flutningum til Reykjavíkur í mesta skammdeginu í desember. Þetta var skömmu eftir fyrri heimsstyijöldina og skipveijar þurftu að vara sig á tundurduflum bæði í flóanum út af Cuxhaven og eins þegar þeir nálg- uðust Hjaltlandseyjar. „Því eins og allir reyndir sjómenn vita geta straumar ver- ið miklir þarna norðurfrá", eins og segir í dagbókinni. Eftir að skipið var komið frám hjá tundurduflabeltunum töldu þeir að hættan væri liðin hjá. „Oþægilegt var að næturnar lengdust og dagarnir voru orðnir afar stuttir. Lítið sást til sólar; hún var horfín áður en maður vissi af. Á nóttunni var alskýjað. Það var óþægi- legt fyrir stýrimennina því þá var ekki hægt að ákvarða staðsetningu út frá stjörnum. Slíkt hefði og gert kleift að átta sig á stefnu vinds og strauma. Að- faranótt 9. desember varð léttskýjað dálitla stund og við athuguðum stjarn- stöðuna: Pólarstjörnuna, Arcturus, Wega og Júpiter. Um hádegi sást til sólar og þá gátum við áttað okkur vel á staðsetn- ingu sem reyndist 60,5 gráður norðlæ- grar breiddar og 8,16 gi'áður vestlægrar iengdar. Hér eru veður óútreiknanieg, stundum var stormasamt en síðan aftur lygnt. Sjórinn ólgaði. Við stefndum á Vestmannaeyjar þar sem stendur viti er dregur 18 sjómílur. I austsuðaustur það- an 33 sjómílur er Dyrhólaey með vita. Ætlun okkar var að geta greint annan- hvorn þessara vita um nóttina eða í birt- ingu. Samkvæmt siglingabók mátti bú- ast við sterkum vestlægum straumum á þessu svæði. Þar eð einnig mátti reikna með segultruflunum á áttavitanum þurftum við að vera vel á verði og taka mið af stjörnum ef mögulegt var. Skipið var á 8-9 sjómílna hraða. Þar sem við nálguðumst ströndina æ meir var höfð vakt úr mastrinu frá því kl. 3.45 aðfara- nótt 11. desember. Veðrið var skírt þó skýjað væri. Kl. 6 kom brotsjór yfir skip- ið aftan frá. Það hrikti í þvi. Þeir sem Morgunblaðið/Bje Silck stýrimaður á Mörthu, sem í dagbók sinni segir frá því er skipið strandaði við Meðallandið. voru á frívakt voru kallaðir upp. Nokkrum sekúndum síðar flæddi um allt skipið og það virtist taka niðri. Öldurnar fóru í masturshæð og skullu á þöndum seglunum og féllu svo af krafti. Varla heyrðist mannsins mál. Nokkrum sekúndum síðar rykktist skipið til og við viss- um að nú hefði Martha siglt sína síðustu ferð. Skipið stóð á grunni og sjórinn flæddi yfir það. Þetta varð allt á örfáum sekúndum. Þeg- ar skipið hafði strandað kom í ljós, okkur til léttis, að öli áhöfnin var saman komin í skut. En allir hugs- uðu með kvíða til þess sem færi í hönd. Á örskammri stund mundu náttúruöflin eyðileggja mannanna verk. Öllum var ljóst að Martha hafði sungið sitt síðasta. Þetta var síðasta ferðin.“ Strandið varð í niðamyrkri og með köflum gerði haglhríð og vindskúrir. „Nú fjaraði og við það skullu bylgjurnar ekki eins á skip- inu, og á stjórnborða var þurrt. í birtingu var okkur ljóst að sand- hryggurinn hlyti að vera ofansjávar á flóði einnig því þarna var sjóreki. Við nánari athugun sá ég þarna hluta úr strönduðum skipum, sem að mestu leyti voru grafin í sandinn. Þar sem hvergi var von um björgun fór ég aftur um borð. Allir reyndu að upphugsa einhveija lausn en árangurslaust. Matarforðinn var ónýtur og káetudekkið rifið.“ Ákveðið var að draga einn björgun- arbátinn upp á hæsta sandhrygg og þar sem vatnsbirgðir myndu aðeins endast 13 mönnum tvær vik- ur voru flöskur fylltar og reynt að pakka einhverri fæðu inn. Klukkan eitt sást eitthvað á hreyfingu í fjör- unni. Þetta reyndust véra tveir ís- lendingar, ríðandi og með hunda. Þegar þeir komu auga á skipið komu þeir yfir þurran sandinn á valhoppi og veittu okkur fyrstu hjálp. Þar sem við skildum ekki hvorir aðra ákvað sá eldri að fara að sækja hjálp, en sá yngri ætlaði að verða eftir hjá okkur. Hinn eldri fékk síðar nafnið „koníaksdrengur- inn“ og hann gladdist alltaf þegar hann fékk „meðal“. Eftir fjóra tíma komu menn með söðlaða hesta og eftir tveggja og hálfs tíma reið náðu þeir til fyrstu íslensku bæj- anna. Á býlinu Strönd var þeim komið fyrir og tekið af mikilli gest- risni. Skipstjórinn fór við annan mann á næstu símstöð í Vík, tveggja daga reið. En hinir gerðu dagsferðir á strandstað, þar sem Martha var að síga í sandinn á bakborða og sjór kominn í skipið. „Á þriðja degi frétt- um við að skip hefði strandað fyrir austan okkur og enginn mannskap- ur væri um borð. Eg ákvað að fara með iækni og hreppstjóra á stað- inn. Eftir klukkutíma reið komumst við að skipinu. Það hafði lent í því sama og Martha. Það hét Elísabet og var frá Saxköbing í Danmörku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.