Morgunblaðið - 29.12.1991, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.12.1991, Blaðsíða 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. DESEMBER 1991 BRIÐURNAR HENNAR eftir Urði Gunnarsdóttur. Mynd: Árni Sæberg í listaskólanum í Barcelona var bannað að hoppa, því flamengó- dansararnir voru búnir að dansa svo mikið að skólahúsið var að hruni komið. Dansararnir urðu því að þykjast stökkva og aðrir nemendur skólans fóru sömuleiðis varlega. Meðal þeirra var Helga Arnalds, sem var við nám í öllu því sem tengist brúðuleikhúsi. Hún er nú útskrifuð úr skólanum, flutt heim og farin að vinna við brúðugerð og brúðuleikhús. Hún hefur unnið að uppsetningu sýningar Leikbrúðulands „Bannað að hlæja“ sem frumsýnd var fyrr í mánuðinum og unnið lausavinnu af ýmsu tagi eins og títt er með listafólk. Hlutur Helgu í sýningunni þótti afbragðsgóður, í leik- dómi Morgunblaðsins sagði að vænta mætti margra og skemmtilegra hluta af henni í framtíðinni. Það er freist- andi að bæta við að hæfileikana eigi hún ekki langt að sækja, dótt- ir Hallveigar Thorlacius og Ragn- ars Arnalds. Helga segist fremur kjósa að vera metin af eigin verk- um en ættum. „Það var til dæmis ekki staðföst ætlun mín að læra leikbrúðugerð, heldur hafði ég áhuga á ýmsum listgreinum, m.a, myndlist, og hef enn. Að loknu stúdentsprófi fannst mér kominn tími til að skoða mig aðeins um í heiminum og leiðin lá til Barcel- ona. Þar var listaskóli sem mér leist svo vel á, að ég sótti um inn- göngu,“ segir Helga. „I skólanum var hægt að læra hvaðeina er tengdist leikhúsi; þar á meðal brúðuleikhús og brúðgerð og ég ákvað að láta slag standa. Við lærðum raddbeitingu, líkams- þjálfun, m.a. Alexanderstækni, grímugerð, teikningu, textíl, leik- myndagerð og svo mætti lengi telja. Það er einn ánægjulegasti þátturinn í svona námi hversu fjöl- breytt það er, við fáum nasasjón af svo ótalmörgu. Ég lærði til dæmis dálítið í járnsmíði þegar við byggðum leikramma úr járni á stærð við rúmgott herbergi. Þá var okkur kennt að klæðskera- sauma fötin á brúðurnar; sauma- kennarinn var sonur skraddara og taldi að sú kunnátta myndi koma okkur að mestum notum. En það var nú ef til vill fulllangt gengið, þar sem brúðurnar eru alls ekki í sömu hlutföllum og maðurinn. Svo lærðum við látbragðsleik, sem er óskaplega erfiður. Að baki honum liggur flókin athugun á mannslíka- manum, sérstaklega liðamótunum, og til að geta eitthvað í látbragðs- leik er nauðsynlegt að hafa góða tilfinningu fyrir takti." Helga var í þrjú ár í skólanum og dvaldi í hálft ár til viðbótar í Barcelona að því loknu. Asamt nokkrum vinum sínum úr skólan- Nýr lidsmaður hefur bæst í hópinn sem stendur aö Leikbrúdulandi, Helga Arnalds. Hclga er nýkomin heim úr námi á Spáni, þar sem hún lagði stund á leikbrúðugerð og uppsetningu brúöuieikhúss um ferðaðist hún milli barnaskóla með skuggaleikhús sem var nógu fyrirferðarlítið til að hægt væri að komast milli staða í strætis- vagni. Að sýningu lokinni héldu þau svo námskeið fyrir börnin. Á þessum árum kom Helga þó alltaf heim á sumrin og setti upp sýn- ingu ásamt móður sinni undir heit- inu „Sögusvuntan". Þær hafa flutt söguna um músina Rúsínu yfir 300 sinnum á barnaheimilum á síð- astliðnum þremur árum. Með sýn- ingunum kenndi Helga brúðugerð við Þroskaþjálfaskólann og Fjöl- brautaskólann við Ármúla og hélt námskeið fyrir kennara Laugar- nesskóla um hvernjg hægt væri að tengja brúðugerð kennslu. Þá hefur undirbúningur fyrir sýning- una „Bannað að hlæja“ tekið óhemju tíma. Helga segir að það sem taki ótrúlega mikinn tíma við brúðu- gerðina sé efnisöflunin. „Hér er svo lítið tii af efnum sem henta í brúður. Áður en ég fór frá Barcel- ona hafði ég því samband við verslunareigendur, sem lofuðu að senda mér efni þegar mig vant- aði. Sá samningur hefur komið sér vel, meirihluti efnisins í brúðurnar Helga með sínar brúður og ann- arra; Ask, Emblu og son þeirra Búa, úr sýningunni „Bannað að hlæja" og Frelsisstyttuna og Eifelturninn. er frá Barcelona. Þar finnst allt milli himins og jarðar, nema þá helst venjulegir hlutir á borð við heilhveiti, sem er vandfundið þar. „Já þú ert alltaf að föndra,“ segir fólk gjarnan í hjartans ein- lægni við Helgu. Fyrir þann sem hefur lært brúðugerð í þijú ár og lagt ómælda vinnu í uppsetningu sýninga er vinnan við brúðurnar öllu meira en föndur eitt. En skýr- ingarinnar er sjálfsagt fyrst og fremst að leita í því að hefð fyrir brúðuleikhúsi er mun minni á ís- landi en til dæmis sunnar í álf- unni. „Brúðuleikhúsið á meðal annars rætur sínar að rekja til Commedia dellarte leikhússins á Ítalíu. Þaðan er upprunin brúða sem þekkt er undir ýmsum nöfnum í Evrópu, við köllum hana meist- ara Jakob. Maríonetturnar; eða strengjabrúðurnar; eru einnig hluti af brúðuleikhúsinu og þær • eru upphaflega kirkjumunir. Það- an er nafnið dregið; „litlu Maríur" voru styttur og hluti af helgileik sem fluttur var í kirkjum til að laða fólk að. Til að gera þær enn- þá meira spennandi datt kirkjunn- ar mönnum í hug að gera stytturn- ar hreyfanlegar. Brúður hafa bæði ' verið skemmtun ríkra og fátækra í gegnum aldirnar. En þegar þær voru fyrst kynntar fyrir íslending- um, þótti sumum litið til koma. Það var danskur maður sem fyrst- \ur mun hafa sýnt brúðuleikhús hér á‘ landi í byijun aldarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.