Morgunblaðið - 02.04.1992, Qupperneq 5
4 C
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1992 1992
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1992
c
Mainma,
kauptu bara
pening
Þegar unglingur hættir í skóla og fer að afla eigin tekna án þess að flytja að
heiman veldur það oft vandamálum, vangaveltum og viðkvæmni. Á hann að
taka þátt í heimiliskostnaði? „Engum einstaklingi er hollt að lifa við óraunveru-
leg skilyrði, afla jafnvel verulegra tekna án þess að greiða nokkum framfærslu-
kostnað" segir í heimilisbókhaldi Neytendasamtakanna frá 1988. Þar var birt
þessi tillaga sem hefur hér verið framreiknuð m.v. framfærsluvísitölu. Upphæð
og hlutföllum getur hver fjölskylda breytt skv. sínum aðstæðum þannig að
niðurstaðan sýni nokkuð raunhæfa mynd af framfærslukostnaði unglingsins.
Vörutegund Verð/Magn á mánuði Hlutfall Greiðslaunglings
Nýlenduvörur 47.000 kr. 25% 11.750 kr.
Sími 2.400 kr. 30% 720 kr.
Útvarp, sjónvarp, blöð 4.000 kr. 25% 1.000 kr.
Húsnæði, húsmunir 38.000 kr. 15% 5.700 kr.
Brfreið 28.000 kr. 10% 2.800 kr.
Samtals: 119.400 kr. 21.970 kr.
uppfræðsla um gildi peninga hefur
þjónað sínum tilgangi. Unglingar í
grunnskóla þurfa ákveðið reiðufé
sem sjaldnast verður sótt annað en
í vasa foreldra. En hvað á fjárhæð-
in að vera há og innan hvaða tak-
marka getur unglingurinn ráðstaf-
að henni?
HVAR EIGA MÖRKIN AÐ
VERA?
„Það er með vasapeningana eins
og útivistina, að þetta eru mál sem
foreldrar velta fyrir sér á hveiju
hausti. Hvar eiga mörkin að vera?“
segir Arthúr Farestveit, formaður
Foreldraráðs Garðaskóla í
Garðabæ, en foreldraráðið hefur á
hverju hausti gengist fyrir umræð-
um um þessi mál.
„Það hefur aldrei fengist niður-
staða sem allir eru sáttir við, enda
em viðhorf foreldra mjög misjöfn í
þessum efnum. Bæði hvað varðar
upphæðir og í hvað þær eiga að
fara. En með þessu móti skapast
umræður og hvaða leið sem foreldr-
ar ákveða að fara í þessum efnum,
þá vita þeir a.m.k. hvað aðrir for-
eldrar eru að hugsa. Það er nefni-
lega ekki ósvipað með foreldra
unglinga, fremur en unglingana
sjálfa, að þeir vilja ekki verða öðru-
vísi en allir hinir," segir Arthúr.
Hann bendir einnig á að með
þessu móti sé reynt að fyrirbyggja
að foreldrar ákveði vasapeninga og
útivistarreglur samkvæmt því sem
unglingarnir segji að að aðrir megi.
„Samt sem áður er þetta mjög mis-
munandi. í 8. og 9. bekk eru dæmi
allt frá því að unglingar fái 300
krónur í vasapening vikulega og
upp í 2.000 krónur, en skilyrðin sem
fylgja vasapeningunum eru mjög
mismunandi. Sumir eiga að nota
þá til að mæta öllum sínum þörfum,
aðrir mega nota peningana í sæl-
gæti, bíófet'ðir og annað aukreitis.
Eins hefur það verið regla fyrir t.d.
ferðalög nemenda að kennarar kalli
foreldra saman á fund og þar séu
lagðar línur um hvað unglingarnir
eigi að hafa meðferðis, hversu mik-
ið af vasapeningum og hve mikið
af sælgæti, til dæmis.“
UNGLINGAR VILJA
AÐHALD
Aðspurður um hvaða skoðanir
unglingar hafí sjálfir á samráði for-
eldra, segir Arthúr að undantekn-
ingalítið hafi viðbrögð unglinga
verið jákvæð. „Við megum ekki líta
framhjá því að unglingar vilja hafa
aðhald, þótt þeir séu auðvitað jafn
mannlegir og allir aðrir og reyni
að ganga eins langt og komist verð-
ur. En þeir vilja geta treyst sínum
foreldrum og flestum þykir gott að
vita að foreldrar sínir eru ekkert
öðruvísi en aðrir. Þetta byggir ekki
bara á kröfuhörku unglinganna.“
ÞAKKLÁTIR UNGLINGAR
Talandi um kröfuhörku þá spurð-
umst við fyrir í tískuvöruverslun
hvort starfsfólk merkti kröfuhörku
unglinga í garð foreldra. Lára Birg-
isdóttir hjá Karnabæ varð fyrir
svörum og sagðist hún ekki geta
sagt að unglingar sem kæmu að
versla með foreldrum sínum t.d.
þessa dagana fyrir fermingar, væru
svo óskaplega kröfuharðir. „Það
sem kemur mikið meira á óvart er
að sjá hvað þessir unglingar eru
yfirleitt þakklátir og ófeimnir við
að sína það með því að kyssa for-
eldra sína inni í versluninni."
MINNA UM VINNU MEÐ
SKÓLA
Arthúr segir að núorðið sé lítið
um að nemendur í Garðaskóla vinni
með skólanum, enda erfitt fyrir
krakka á þessum aldri að verða sér
úti um aukavinnu. „Flestir fá ein-
hvetja vasapeninga að heiman og
sjálfur held ég að einna farsælasta
leiðin sé að leyfa þeim sjálfum að
bera ábyrgð á því hvernig þeim er
ráðstafað. Þau verða að finna að
þeim sé treyst og vita innan hvaða
marka vasapeningarnir eiga að
duga. Að þessu leyti er ég hlynnt-
ari því að unglingar fái ákveðna
upphæð til vikulegrar ráðstöfunar,
en að engir ákveðnir vasapeningar
séu greiddir, heldur geti þeir geng-
ið í sjóði foreldranna eftir þörfum.
Á hinn bóginn er ég ekki sammála
þeirri skoðun að vasapeningar eigi
að duga fyrir öllum þörfum ungl-
ingsins. Að minnsta kosti sýnist
mér að þá þyrftu upphæðirnai' að
vera mjög háar. Sem dæmi getum
við nefnt að ef unglingur er í íþrótt-
um og þarf að endurnýja íþróttaskó
sem kosta á bilinu 5.000-7.000
krónur af vasapeningum sínum, þá
þurfa þeir að vera dtjúgir," segir
Arthúr.
Eitt atriði sem foreldrar þurfa
að velta fyrir sér þegar ákvarðanir
eru teknar um vasapeninga er á
hvaða degi þeir skulu greiddir. Nú
er það svo að eyðsla unglinga er
oft nokkuð meiri um helgar en á
virkum dögum og vilji foreldrar
nota vasapeningana sem grunn að
fjármálaskilningi unglinga er
kannski óvitlaust að greiða vasa-
peningana út á sunnudagskvöldi,
þannig að unglingurinn verði að
leggja það niður fyrir sig hvernig
hann ætli að spara við sig yfir vik-
una, vilji hann t.d. eiga nóg af-
gangs fyrir bíóferð, strætó og sæl-
gæti á laugardagskvöldi.
UNGLINGAREIKNINGAR
Annars verður æ algengara að
unglingar eigi eigin bankareikning
og eigið hraðbankakort og inn á
reikninginn séu vasapenmgarnir
lagðir. Unglingareikningur íslands-
banka, UK-17, er reikningur sem
hefur verið í gangi um tíma fyrir
unglinga á aldrinum 13-17 ára og
Búnaðarbanki íslands bauð í sl. viku
upp á samskonar þjónustu fyrir
unglinga á aldrinum 13-18 ára, sem
ber heitið „Vaxtalínan". Þá breytti
Landsbanki íslands námsmanna-
reikningi sínum, Námunni, á sl. ári
þannig að þjónustan stóð ungling-
um 16 ára og eldri til boða.
Eitt foreldri með tvo unglinga í
UK-17 sagðist leggja vasapeninga
þeirra vikulega, sínar 1.500 krón-
urnar hjá hvorum, inn á reikning-
ana og staðreyndin væru sú að
peningarnir entust betur. Einfald-
lega vegna þess að áður hefðu þeir
verið greiddir út í seðlum og krakk-
arnir haft alla upphæðina í vasanum
frá vikubytjun. En með tilkomu
hraðbankakortanna tækju þeir yftr-
leitt ekki út nema 500 krónur í einu
og satt best að segja þætti þeim
svolítið flott að fara í hraðbankann.
Eftir að unglingareikningarnir
komu til sögunnar hafa misjafnar
skoðanir manna á þeim heyrst. En
viðhorf bankanna er m.a. að því
fyrr sem skilningur unglinga á
starfsemi bankastofnanna hefjist,
því betra, þat' sem fáir fullorðnir
landsmenn komist hjá því að eiga
viðskipti við banka síðat' meir. Og
vissulega fá unglingar meira en
hraðbankakortið. Við inngöngu í
UK-17 fæt’ viðkomandi penna,
spólu og skóladagbók, sem í er að
finna ýmsa fræðslu um peninga-
mál, hugtök og skýfingar þar að
lútandi, kynfræðslu og svo einfalt
bókhald, sniðið að þörfum unglinga,
svo eitthvað sé nefnt.
Við inngöngu í Vaxtalínuna fær
unglingurinn m.a. afsláttarkort, bol
og fjármálabók, sem þjónar tvenn-
um tilgangi, annars vegar því að
fylgjast með stöðu á reikningum
og hins vegar að færa inn útgjöld
og gera áætlanir. Þá fá unglingarn-
ir einnig skóladagbók með ýmsum
fróðleik og ársfjórðungslega verður
þeim boðið að taka þátt í hug-
myndasamkeppni þar sem 10 bíl-
prófsstyrkir eru í boði. Að sögn
Eddu Svavarsdóttur, markaðsstjóra
Búnaðat'bankans, er tilgangurinn
með Vaxtalínunni ekki síst að halda
fjármálanámskeið fyrit' unglinga í
útibúum bankans um allt land. Slík
námskeið hafa einnig verið haldin
í einstökum útibúum sparisjóðanna
þar sem mismunandi ávöxtunarleið-
ir eru útskýrðar, krökkunum kennt
um ávísanareikninga, greiðslukort,
lántökur og fleira. Og víst er að
öll fræðsla um þessi efni hlýtur að
skila sér þegar unglingsát'in eru að
baki og alvara lífsins tekin við.
En þótt bankastofnanir og í sum-
um tilvikum skólanir séu í auknum
mæli að taka að sér fjármála-
fræðslu unglinga, breytir það eigi
að síður staðreyndinni sem nefnd
var hér í upphafi, það er fyrst og
fremst á ábyrgð foreldra að kenna
börnum sínum að verða fjárhags-
lega ábyrgir einstaklingar.
VE
SJOÐSBREF 7
Eignir sjóðsins eru ávaxtaðar í
þýskum hlutabréfum.
Góð áhættudreifmg fyrir þá
sem eiga nokkurt sparifé.
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavlk. Simi 68 15 30.
4-
„Hvað ef bankinn
verður gjaldþrota?u
ÞÆR RADDIR heyrast oft að
unglingar nú til dags þyki þurftaf-
rekir á fé og hugsi lítt út í það
hvað hlutirnir kosti. Það er margt
sem glepur og ntargur unglingur-
inn hefur áreiðanlega oftar en
ekki staðið frammi fyrir því að
sumarhýran sem átti að endast
eitthvað fram á veturinn er uppur-
inn þegar á fyrstu skóladögunum.
Undanfarið hafa bankar þó séð
ástæðu til þess að leita eftir við-
skiptum við þennan aldurshóp og
höfðað til þeirra með sérstökum
unglingaklúbbum. Nemendur tí-
unda bekkjar á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu hafa auk þess átt þess
kost á því að kynna sér starfsemi
bankanna og þjónustu þeirra við
unglinga á námskeiði á vegum
Islandsbanka.
Námskeiðið er valfijálst innan
skólanna, svo kölluð stai'fsfræðsla. í
upphafi leituðu skólarnir til Banka-
mannaskólans en hann sá sér ekki
fært að sinna þessu og ákvað Islands-
banki þá að taka þetta að sét' og
hefur haldið þessi nántskeið í tvö ár,
ekki aðeins í Reykjavíl? því í fyrra
voru skólar á Norðurlandi heimsóttir
og einnig hafa námskeiðin verið hald-
in á Suðurnesjunum. Svavar Svav-
arsson og Sigrún Kjartansdóttir hjá
íslandsbanka hafa haft veg og vanda
af þessu námskeiði og þróað það
kennsluefni sem þar et' notað. Nám-
skeiðin eru yfirleitt fimnt tímar að
lengd og segir Svavar aðsókn hafa
verið góða og krakkana hafa verið
ánægða.
Blaðamaður brá sér á eitt nám-
skeið ásamt nemendum tíunda bekkj-
ar úr Austurbæjarskóla. Svavar hóf
kennsiuna á því að gefa öllum kver
með kennsluefninu, penna og ópal
og bað síðan nemendur að skrifa
niður allt það sem þeim dytti í hug
tengt orðinu banki. Krakkarnir voru
frekar seinir í gang, enda oft erfitt
að hugsa á mot'gnanna, en svo fóru
að heyrast orð eins og peningar, lán,
vextir, víxlat' og skuldir. Ekki stóð
hins vegar á svari þegar Svavar
spurði hvað þau myndu gera ef eng-
ir bankar væru til að geynta pening-
ana þeirra; „Nú bara eyða þeim“!
Svavar benti þeim þá á að þau gætu
samt þurft að geyma peningana sína
eitthvað og ekki væri það trygg að-
ferð að stinga þeim undir koddann
eða fela þá úti í gat'ði en það kom
í ljós að sumum þóttu bankarnir
ekki endilega of traustvekjandi stofn-
anir: „En hvað ef bankinn verður
gjaldþrota?" spurði snaggarleg
stelpa og bætti við „það var banki í
Japan sem fór á hausinn um daginn
og fullt af fólki varð gjaldþrota".
Eftir að hafa leitt í ljós að ekki væru
miklar líkur á því að svona atburðir
gerðust hér á landi þar sem hér giltu
reglur sem kvæðu á um ákveðna
ábyrgð banka gagnvatt viðskiptavin-
um hélt Svavar áfram að fjalla al-
mennt um hlutverk banka og spari-
sjóða og hvers konar innlánsþjónustu
bankarnit' byðu upp á. Það kom í ljós
að talsvert margir nemendur voru
meðlimir í UK-17 og Svavar benti
þeim á það að foreldrai' þeirra gætu,
ef þeir væru með reikning í íslands-
banka, látið færa vasapeningana
Finnst pen-
ingamál flókin
„MÉR FINNST frekar flókið að fylgj-
ast með peningamálunum, sérstak-
lega ot'ðum eins og
víxlum, iánum og
skuldabréfum,"
sagði Katrín Helga
Hallgrímsdóttir úr
10. bekk Austur-
bæjarskóla. Hún
var þó dugleg að
spvrja á námskeið-
inu og áhugasöm.
Sagðist fylgjast
svolítið með fréttum, en hefði annars
litla fræðslu hlotið nema helst í bók-
færslutímum. Katrín er í UK-17 og
sagði það kost að geta notað hrað-
bankann um helgat' ef sig vantaði
pening. Hún freistaðist þó aldrei til
að fara yftr strikið og fylgdist með
innistæðunni. Sumarkaupið setti hún
inn á trompbókina sína. „Mamma
lagði peninga inn á hana þegar ég
var sex ára og svo hef ég bara hald-
ið áfram." Hvað um vexti? „Ég er
ekki viss, held þó að það séu 12,9%
vextir." Sumarpeningamir eru að
vetða búnir, en hún fær 2.500-3.000
kr. í vasapeninga á mánuði, sem fara
jafnóðum í eyðslu, föt, skemmtanir,
bíó og nammi. Hún segist stundum
passa börn gegn greiðslu. Katrínu
finnst að unglingar eigi að fá að ráða
hvernig þeir ráðstafi peningum sem
þeir sjálfir afla.
mánaðarlega inn á reikning barna
sinna. Einn drengurinn ’gerðist þá
afar áhugasamur utn þessar milli-
færslur og spurði hvort foreldrarnir
þyrftu endilega að samþykkja þær!
Þrátt fyt'ir að krakkarnir vissu
svona sitt lítið af hvetju um banka-
kerfið voru samt ýmis hugtök sem
vöfðust fyrir þeim og að sögn Svav-
ars et' mikið spurt um það hvað er
að vera ábyrgðarmaður og þá þekkja
þau kannski einhvern sem hefur far-
ið illa út úr því að skrifa upp á víxil
fyrir kunningja. Aftast í kennslu-
kverinu er listi yfir algengustu fjár-
mála- og efnahagshugtök og þau
skýrð stuttlega út.
Svavar segir miklu máli skipta að
halda þessi námskeið fyrir utan skól-
ana því þá verði þau að tilbreytingu
í hinu hefðbundna skólakerfi og
áhersla er á örar skiptingar í nánis-
efninu svo krakkarnir missi ekki
áhugann. Ekki vantaði einbeitinguna
í svo kölluðum „hlutverkaleik“ en þá
unnu krakkarnir í hópum við það að
skipuleggja fjármál grunnskólanem-
anda. Grunnskólanemandinn Jóna er
15 ára gömul og fékk 45.000 kr á
mánuði í sumarvinnunni og af þeim
þurfti hún að greiða 6% í skatt. Verk-
efni hópanna var svo að ákvarða
eyðslu Jónu, í hvað peningarnir færu
og hvað hún fengi mikið í vasapen-
inga yftr veturinn. Ákveðið var að
Jóna myndi kaupa sér föt úr pöntun-
arlista og þá þurftu krakkarnir að
ákveða hvað hún myndi kaupa mikið
og finna upphæðina út í íslenskum
krónum. Einnig stefndi Jóna að því
Innbústryggingar
„Varðandi innbústryggingar er hættan alltaf sú að að menn telji
innbúið gamalt og lítils virði, en standi svo frammi fyrir því eftir
tjón að það kostar talsvert að endurnýja þessa hluti,“ segir Jóhann
Björnsson, forstjóri Ábyrgðar og bendir fólki .á að fylgjast einnig
með verðmætaaukningu og auka vátryggingafjárhæðina til samræm-
is við það.
Ólafur Jón Ingólfsson, hjá Sjóvá-
Almennum tekur undir þetta og
segir ágæta viðmiðun að hækka
matið við hver 500 þúsund sem
menn telja að verðmæti innbúsins
hafa aukist um. Hann vekur enn-
fremur athygli á því að hafi menn
tryggt innbú sitt of lágt verði raun-
verulegt tjón meira en flestir halda.
Því sé innbú að verðmæti 10 millj-
ónir króna aðeins tryggt fyrir 5
milljónir og til altjóns komi, verða
tryggingabæturnar 2,5 milljón
króna, þar sem tjónið er bætt hlut-
fallslega miðað við trygginguna.
„Veit ekki hvað
ég fæ í vexti“
„JÚ, JÚ, mér líst ágætlega á þetta
námskeið, fínt að fá frí í skólanum
og svo er þetta ágætis bæklingur sem
við fengum," sagði
Ölvir Gíslason,
nemandi. Hann
sagðist litla
fræðslu hafa fengið
um v peningamál,
sér fyndust þau
frekar flókin og oft
skyldi hann ekki
orð sem væru í
fréttum um peningamarkáðinn.
Sumarkaupið lagði Ölvir tnn á spari-
sjóðsbók en lítið er eftir af því núna.
„Nei, ég veit ekki hvað ég fæ mikla
vexti," sagði hann þegar hann var
spurður út í ávöxtunina en það var
hans ákvörðun að stofna sparisjóðs-
bók fyrir tveimur árum, „það er betra
að geyma peningana þar en heima“.
Ölvir sagðist fá þúsund krónur í vasa-
pening á viku, „en þetta fer allt beint
í nauðsynjar: bíó, kók, föt og þess
háttar. En ef ég græði eitthvað
óvænt legg ég það inn. Ef ég myndi
vinna til dæmis 100.000 kr. í happ-
drætti myndi ég leggja þær inn og
safna fyrit' bíl kannski“. Borgar það
sig þá að spara? „Já, já það borgar
sig örugglega að spara, ég er alveg
viss um það þótt ég eigi kannski
ekki svo mikið í banka núna. Kannski
20.000.“
Morgunblaðið/Þorkell
Það var mikil spenna í kringum það að reikna út eyðsluna hjá henni
Jónu grunnskólanemanda. Svavar Svavarsson leiðbeinir við útreikn-
inga úr vörulista.
að fara í ferðalag með fjölskyldu
sinni næsta vor og þá þurfti að finna
út hvernig ljárhagsstaða Jónu yrði
eftir veturinn og hvort hún hefði
efni á ferðinni og ef svo væri þá var
að skoða ferðabæklinga til þess að
ákveða hvert hún færi og hvað ferð-
in mætti kosta og hvað hún tæki
með sér í gjaldeyri.
Að hópvinnunni lokinni gaf hver
hópur skýrslu um eyðslu Jónu yfir
sumarið, hvað færi mikið í fatakaup
um haustið, hvað hún þyrfti mikið í
vasapeninga á mánuði yfir vetrartím-
ann, hvert hún færi í fet'ðalag og
að lokum hvernig fjárhagsstaða
hennar væri eftir ferðina. Svörin
voru nokkuð mismunandi og t'éði þar
engu um hvort um stráka- eða
stelpuhóp var að ræða. Flest töldu
þau Jónu eyða um 30.000 kr yfir
sumarið, lægst 12.500 og hæst
40.000. Fatakaupin voru allt frá
10.000 kr upp í 45.000. Mikill mun-
ur var einnig á vasapeningaþörfinni,
þannig gaf einn hópurinn Jónu 350
kr í vasapeninga en mest fékk hún
10.000. Allir hóparnir ákváðu að
Jóna kæmist í ferðalagið og var
Mallorca vinsæll ákvörðunarstaður
en fararkostnaður var ákaflega mis-
munandi. Yfirleitt stóð Jóna í núlli
eftir ferðina, hjá einum hópnum var
hún í 16.000 króna mínus en einn
hópurinn hélt vel um spaðana og
Jóna átti ríflega 80.000 kr. í afgang.
Það var greinilegt þegar krakkarnir
voru að skipuleggja eyðslu Jónu að
þau voru ekki alltof vön því að taka
mikið saman í hvað þau eyddu pen-
ingunum nákvæmlega í hvetjum
mánuði og ein stúlka sagði blaða-
manni að hún eyddi bara þegar hún
ætti pening og það væri þá helst á
sumrin annars keypti hún voðalega
lítið.
Hvaða álit sem menn hafa á ungl-
ingum sem íjármagnseigendum er
ljóst að svona námskeið á fullt erindi
inn í skólanna, þó ekki væri’nema
til annars en að gera þeim peninga-
heiminn kunnuglegan og bénda þeim
á kosti sparnaðar. Reyndar voru
flestir á því að það borgaði sig að
spara þrátt fyrir að fæstir þeirra
legðu mikið fyrir í dag og kostnaðar-
vitundinni væri eitthvað ábótavant.
gþgr
Ökutækjatryggingar frá árinu 1988:
Tap tryggingafélag-
anna vel á 3. milljarð
KONNUN tryggingafélaganna á afkomu ökutækjatrygginga bendir
til að tapið í þessari grein nemi vel á þriðja milljarð króna frá árinu
1988 þegar slysatrygging ökumanns og eigenda var fyrst tekin upp.
Endanlegar tölur um afkomuna inunu liggja fyrir á næstu vikum
þegar úrvinnslu könnunarinnar lýkur. Ekkert lát hefur orðið á tap-
inu í greininni þrátt fyrir hækkanir á iðgjöldum í byrjun ársins
1991. Undanfarin ár hefur fjölgað mjög umferðarslysum þar sem
hafa orðið meiðsl á fólki. Einkum hefur svokölluðum hálshnykkja-
áverkum fjölgað og nam aukningin 250% á árunum 1987-1990 sam-
kvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins. Meiðsli hafa
ennfremur í vaxandi mæli verið metin til læknisfræðilegrar örorku
og bætur í framhaldi af því farið hækkandi. Vonir eru bundnar við
að nýtt frumvarp til skaðabótalaga sem lagt hefur verið fram á aL-
þingi muni skapa betri og einfaldari grunn til uppgjörs vegna slysa
og snúa við þróun síðustu ára.
í ársskýrsluin stóru tiygginga-
félaganna,_ Vátryggingafélags Is-
lands (VÍS) óg Sjóvá-Almennra
trygginga, sem lagðar voru fram á
aðalfundutn félaganna nýverið er
gerð sérstök grein fyrir tjónaþróun
qg afkomu ökutækjatrygginganna.
í ársskýrslu VÍS segir m.a að þrátt
fyrir slæma afkomu greinarinnar
hafi iðgjöld ekki hækkað í samt'æmi
við þarfír og hafi greinin því frá
upphafi verið rekin með verulegu
tapi fyrir tryggingafélögin í heild.
Þar kemur einnig fram að öll ís-
lensku bifreiðatryggingafélögin
gerðu með sér samkomulag um
breyttar uppgjörsreglur vegna
skaðabótamála og tóku þær gildi hjá
VÍS þann 1. nóvember sl. Sam-
kvæmt hinum nýju uppgjörsreglum
eru gerðar auknar kröfur til rökst-
uðnings fyrir fjárhagslegu tjóni af
völdum slyss, þegar læknisfræðileg
örorka er metin-15% eða lægra. 1
slíkum tilvikum standa tjónþola til
boða staðlaðar bætur í samræmi við
örorkustig án tillits til tekna viðkom-
andi fyrir slys. Fallist tjónþoli ekki
á uppgjör á þessum grunni er gert
ráð fyrir að uppgjör fari fram 3 árum
eftir tjónsatburð þannig að varanleg
áhrif tjóns geti verið komirt fram.
Hið nýja frumvarp til skaðabóta-
laga er samið með hliðsjón af ákvæð-
um danskra laga en ekki er ljóst
hvort það nær fram að ganga á yfir-
standandi þingi.
I ársskýrslu Sjóvár-Almennra er
á það bent að ýmsit' sem metnir
hafi verið til lágrar örorku hafi ekki
orðið fyrir neinu fjárhagstjóni í sam-
ræmi við þær bætur sem þeir fái.^
Varðandi áhrif hins nýja frumvarps
segir í skýrslunni að tjónsuppgjör
verði einfaldara en áður, miskabæt-
ur hækki en örorkubætur lækki ef
örorkustig sé lágt. Þær hækki hins
vegar hjá þeim sem hljóti mikil var-
anleg örkuml. Þá segir ennfremur:
„Nú fyrir skömmu var frumvarp
þetta lagt fram á Alþingi og er þess
vænst að það tryggi sanngjarnari
skiptingu bóta en áður. Vonandi mun
það stöðva þá stöðugu hækkun á
tjónakostnaði og iðgjaldahækkanir
sem í kjölfarið hafa fylgt."
ISLENDINGAR
sýnum samstöðu
setjum ÍSLENSKT í
öndvegi!
Þegarþú kaupir ís/enska vöru skaparþú atvinnu í iandinu
SÓL
Qpal
HF,-
4
mona
m
^gUs
r 1
LU®
Kaffibrennsla
Akureyrar hf
JJ23
l