Morgunblaðið - 02.04.1992, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.04.1992, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1992 1992 6 C Hvaða tryggingar eru okkur nauðsynlegar? ÞESSARI spurningu hljóta flestir einhverntíma að velta fyrir sér, því vissulega eru einstakar tryggingar fólki misnauðsynleg- ar, þótt á heildina litið megi segja að tryggingar vegna heimil- is og fasteignar, bifreiða og svo sjúkra-, slysa- og örorkutrygg- ingar séu flestum æskilegar. Til að átta okkur betur á trygg- ingaþörf fólks almennt var ráðgjöfum tryggingafélaga send fyrirspurn frá „hjónum“, hafa einungis greitt skyldutrygging- ar, þ.e. ábyrgðartryggingar af bifreiðum og brunatryggingu fasteignar, en eru að endurskoða sín tryggingamál og spyija hvaða tryggingar séu sér nauðsyn- legar, hverjar æskilegar og hvað þær kosti. Þar sem skilmálar einstakra trygginga eru mismunandi á milli tryggingafélaga, s.s. varðandi bótaskyldu, sjálfsábyrgð ofl., sem og þau atriði sem lögð er áhersla í svörum ráðgjafanna, skal tekið fram að liér er ekki um beinan samanburð á milli tryggingafélaganna að ræða. VE TRYGGING Núverandi tryggingar hjóna eru: Ábyrgðartrygging Lada Samara, árlegt iðgjald kr. 25.355, ábyrgðar- trygging Toyota Touring, árlegt ið- gjald kr. 28.741, auk brunatrygg- ingar fasteignar (innif. í opinb. gjöldum í Rvík). Af tryggingum sem hjónunum yrðu ráðlagðar nauðsynlegar er heimilisvernd fyrst, því umtals- * verðar fjárhæðir liggja í innbúi þeirra, sem m.v. núverandi tekjur og skuldir, tæki langan tíma að safna á ný, skemmdist innbúið veru- lega eða eyðilegðist t.d. í bruna. Heimilisverndin er fyrst og fremst •innbústrygging v. bruna, vatns, inn- brots og óveðurs. Aðrir innifaldir bótaþættir eru: Þjófnaður á reið- hjóli, ofhitun í þvottavél, þiðnun á matvælum í frystikistu/skáp, tjón v. hraps loftfars/hiutar frá því, frí- tímaslysatrygging f. alla fjölskyld- una, ábyrgðartrygging, ferða- sjúkra- og ferðarofstjón, farangurs- tjón, greiðslukortamisnotkun, ský- falls- og asahlákutjón, snjóþunga- tjón, skemmdarverkatjón, tjón á heimilistækjum v. skammhlaups, þjófnaður á barnakerrum og -vögn- um og vatnstjón af völdum vatns- rúma og fiskabúra. Árlegt iðgjald hjónanna væri kr. 10.789. Þvínæst kemur húsvernd. Stærstur hluti eigna fjölskyldunnar er bundinn í fasteigninni, sem á hvíla miklar skuldir. Tjón á fasteign getur því valdið hjónunum veruleg- um fjárhagsvanda. Þá eru fleiri íbúðir í húsinu, þannig að í sam- eiginlegu tjóni reynir á að hver eig- andi geti staðið við sinn hlut gagn- -vart hinum. Húsverndin bætir eftirfarandi tjón á fasteigninni: Vatnstjón, gler- tjón, óveðurstjón, innbrotstjón, sót- fallstjón, húsaleigutjón, skýfalls- og asahlákutjón, frostsprungutjón, snjóþungatjón, brot á hreinlætis- tækjum, tjón vegna brots/hruns á innréttingum, tjón af völdum hraps loftfars eða hlutar frá því, vatnstjón af völdum vatnsrúma og fiskabúra. Að auki er ábyrgðartrygging hús- eigenda innifalin í tryggingunni. Árlegt iðgjald er kr. 13.230. Hjónunum er ráðlagt að kaupa kaskótryggingu á Toyotuna, því skuld hvílir á bílnum, sem að auki er nýlegur og verðmætur. Sjálfs- ábyrgð er kr. 77.621. Ársiðgjald er kr. 22.400. Hjónunum er ráðlögðhjónalíf- trygging (skv. skilmálum Alþjóða líftryggingafélagsins). Þannig geta þau fyrirbyggt veruleg fjárhags- vandræði eftirlifandi maka, falli annað þeirra frá. Þeim er ráðlögð vátryggingafjárhæð kr. 3 millj. fyrir hvoit um sig. Það er nógu hátt til að ná yfir meira en helming skulda, en nægilega lágt til að árl. iðgjald verði kr. 16.977, þ.e. innan marka sem þau ráða við. Þessar tryggingar teljum við hjón- unum nauðsynlegar. Þá er þeim bent á að ígrunda vel þörf sína fyr- ir sjúkra- og slysatryggingu. Sem launþegar eiga hjónin rétt á 3ja mán. launum v. slysa eða veikinda. En með hliðsjón af aðstæðum þeirra er hyggilegt að fyrir þau að taka sjúkra- og slysatryggingu að auki, sem tekur við að þremur mánuðum liðnum og greiðir vikulegar bætur í allt að þrjú ár, auk bóta vegna varanlegrar örorku. Þeim er ráðlögð eftirfarandi trygging: Örorkubætur v. slysa og sjúkdóma kr. 5 millj. Dagpeningar v. slysa kr. 25 þús. á viku, biðtími 12 vikur og bótatími 2 ár. Dagpeningar vegna sjúkdóma kr. 25 þús. á viku, biðtími 12 vikur og bótatími 3 ár. (Biðtími dregst frá bótatíma). Árlegt iðgjald þessarar trygging- ar væri 61.424 krónur. SJÓVÁ-ALMENNAR Til að mæta vátryggingaþörf hjónanna er þeim fyrst bent á nauð- syn þess að tryggja innbú og heim- ili. Þar sem hjónin eru að kaupa tryggingar í fyrsta sinn, fyrir utan skyldutryggingar, þarf að greiða stimpilgjöld, sem leggjast af við endumýjun. Hjónunum eru eindreg- ið ráðlagðar fjölskyldutrygging og fasteignatrygging. Fjölskyldutryggingin er fyrst og fremst vátrygging fyrir bruna, vatns- og innbrotsþjófnaðartjónum. Að auki er innif. farangurstrygging á ferðalögum erlendis og er vátrygg- ingarfjárhæð 10% af verðmæti inn- bús. (Þ.e. sé innbú tryggt fyrir kr. 3 'h millj. er farangurstrygging upp á kr. 350 þús. Einstakir hlutir í far- angri eru bættir sem nemur að há- marki 10% af verðmæti farangurs- tryggingar, þ.e. í þessi dæmi er há- markstrygging fyrir hvern hlut kr. 35 þús. I fjölskyldutryggingunni er einnig innifalin slysatrygging í frí- tíma, vátryggingaQárhæðir, dánar- bætur kr. 290 þús. og örorkubætur kr. 1 millj. og 391 þús.; greiðslukort- atrygging með kr. 87.600 vátrygg- ingu, þ.e. glati eigandi korti og finnandi misnoti það. Þá er innifalin ábyrgðartrygging v. skaðabótaskyldu fjölskyldumeð- lima gagnvart 3ja aðila. Vátrygg- ingafjárhæð í hveiju tjóni kr. 23 milljónir og 348 þúsund og sjálfs- áhætta 10%, lágm. kr. 10.200, há- mark kr. 102 þús. Þetta eru helstu ástæður þess að hjónunum er ráð- lögð fjölskyldutrygging, sem m.v. vátryggingarupphæð innbúsins (3‘/2 millj.) kostar kr. 11.638 (innif. br./viðl.gjald + st.gj. + afsl.) Fasteignatrygging er hjónunum einnig nauðsynleg. Hún nær til hús- eignarinnar sjálfrar og naglfastra innréttinga s.s. í eldhúsi og bað- herb., parkets, dúka, flísa ó.fl. Fast- eignatryggingin bætir eftirfarandi: Vatnstjón, tjón v. skýfalls/asahláku, tjón v. frostsprungna, snjóþunga- tjón, tjón v. foks/óveðurs, tjón v. brottflutnings og húsaleigutrygg- ingu, innbrotstjón, glertjón, tjón v. brota/hruns, sótfallstjón og tjón á heimilistækjum, auk ábyrgðartrygg- ingar húseigenda. Hjónin eiga þijá valkosti í fast- eignatryggingunni varðandi vatns- tjónsáhættu, þ.e. trygging með eða án sjálfsáhættu, eða trygging þar sem undanskilin eru vatnstjón v. leka úr rörum sem eru í veggjum, gólfum eða loftum. Þeim er ráðlögð fasteignatrygging m. kr. 30 þús. sjálfsáhættu í vatnstjónum. Ársið- gjald ra.v. brunabótamat íbúðar hjónanna er samt. kr. 14.612 (innif. stimpilgj + afsl.) Hjónin þurfa líftryggingu. Með því að líftryggja hvort um sig fyrir kr. 6 millj. er ársiðgjald samtals kr. 36.180 (innif. st.gj.+ 10% hjóna- afsl.). 10% aukaafsl. er veittur eftir 1 árs tryggingu. Þá er mælt með að þau kaupi almenna slysatryggingu, sem gild- ir allan sólarhringinn, alls staðar í heiminum. Tryggingin er með kr. 6 rnillj. örorkubótum og kr. 35 þús. vikulegum bótum og 12 vikna bið- tíma. Þessi trygging með 40 vikna bótatíma myndi kosta eiginmanninn kr. 17.441 (innif. 10% afsl. + stimp- ilgj.) Konunni er ráðlögð svipuð trygging, þ.e. kr. 6 millj. örorkubæt- ur og kr. 15 þús. vikulegar bætur, með 12 vikna biðtíma og 40 vikna bótatíma. Hennar trygging kostar kr. 15.636 (innif. 10% afsl + stimp- ilgj-) Þá er komið að bifreiðum heimilis- ins. Ábyrgðartryggingar öku- tækjanna kosta hjónin v. Lada Sam- ara samtals kr. 31.609 (m. 65% afsl. slysatr. ökum./eiganda og framr- úðutr.) Ábyrgðartrygging fyrir Toy- ota Touring árg. 1990 er kr. 30.162 (innif. 6.000 kr. afsl. v. Ijölda trygg- inga). Hjónin þurfa að kaskó- tryggja Toyotuna sem kostar þau kr. 21.123 (m. 50% afsl. + stimpilgj.) Loks ráðleggjum við hjónunum að kaupa ferðasjúkratryggingu sem greiðir lækniskostnað erlendis v. slysa/veikinda fjölskyldumeðlima í 2 vikur. Vátryggingaupphæð fyrir hvern einstakling er kr. 1 millj. og 500 þús. og iðgjaldið þá samtals kr. 2.524 (innif. 10% afsl + stimpilgj). Ofangreindar tryggingar eru ráð- lagðar nauðsynlegar m.v. forsendur í fyrirspurn. TRY GGIN G AMIÐSTÖÐIN Greiði hjónin skyldutryggingar hjá Tryggingamiðstöðinni, er ársið- gjald af ábyrgðartryggingu á Lada Samara, árg. 1987, kr. 25.441 og af Toyota Corolla 1600 Touring árg. 1990, kr. 28.853. Vegna skuldar og fjárhags heimilisins er nauðsynlegt að kaskótryggja Toyota-bifreiðina, sem kostar kr. 17.110 ári, m.v. eig- in ábyrgð fyrir kr. 77.700, 40% bón- us og akstur á Stór-Reykjavíkur- svæði. (Gjalddagar ábyrgðartrygg- inga eru 1.3. og 1.9. ár hvert og ekki er innheimt sjálfsábyrgð v. ábyrgðartryggingatjóna.) Hjónunum er eindregið ráðlagt að fá sér fjölskyldutryggingu. Fjöl- skyldutryggingin innifelur innbús- tryggingu gegn tjónum v. bruna, skammhlaups, tjóna á persónulegum munum sem eru í ökutæki sem lend- ir í umferðaróhappi, innbrotsþjófn- aðar, þjófnaðar úr ólæstri íbúð, barna- eða unglingaskóla, ráns, skemmdarverkatjóns, s.s. v. inn- brota, tjóns v. útstreymis vatns, olíu eða annars vökva úr leiðslum húss- ins eða leka frá vatnsrúmum eða fiskabúrum, óveðurs, skemmda á frystikistu/kæliskáp/matvælum v. skyndilegs rafstraumsrofs, ofhitun- ar á þvotti og tjóns v. brots/hruns s.s. málverka eða heimilistækja. Hjónunum er bent á að kynna sér vel skilmála innbústryggingarinnar s.s. undanþágur, takmarkanir, sjálfsábyrgð, sem er mismunandi. T.d. er engin sjálfsábyrgð í vatns- tjónum. Önnur tryggingasvið fjölskyldu- tryggingar eru ábyrgðartrygging v. mögulegrar skaðabótaskyldu gagnv. 3. aðila, sem einnig gildir í allt að 3 mánuði á ferðalögum um Evrópu. Slysatrygging í frítíma, sem gildir í frístundum, við heimilisstörf og við skólanám. Bætur eru greiddar v. varanlega örorku, kr. 1 millj. og 200 þús. á einstakling, 100% örorku, dánarbætur eru kr. 250 þús. á hvern einstakling. Þriðja svið tryggingar- innar eru bætur vegna tannbrots skv. ákveðnum skilmálum. Einnig er innif. greiðslukorta- trygging og farangurstrygging. Miðað við vátryggingafjárhæð inn- bús (3‘/2 millj.) kostar fjölskyldu- tryggingin kr. 8.907 (ekki innif. 0.6% st.gj.) Einnig er fasteignatrygging nauðsyn, ekki síst þar sem hjónin búa í eldra húsi og fleiri eigendur eru að. Fasteignatryggingin nær yfir tjón á húseign, v. óvænts og skyndilegs leka úr vatnsleiðslu, hita- kerfi og frárennslislögnum, tjóns á fasteign v. vatnsflæðis frá hreinlæt- istækjum, auk vatnstjóns v. leka frá vatnsrúmum/fiskbúrum. Vatnstjón v. leka úr leiðslum í sameign bætist í hlutf. við eignarhluta hjónanna. Einnig eru innifaldar skýfalls/asa- hlákutrygging, frostsprungutrygg- ing, fok/óveðurstrygging, brott- flutnings/húsaleigutrygging, þ.e. húsaleigukostnaður ef nauðsynlegt reynist að flytja úr íbúðinni vegna bótaskylds tjóns, innbrotstrygging, glerti-ygging, brots- og hrunstrygg- ing, ábyrgðartrygging húseigenda, sótfalTstrygging og hreinlætistækja- trygging. Fasteignati-yggingin grundvallast á brunabótamati íbúðar (lO'/amillj. króna) og er ársiðgjald kr. 15.120, (ekki innif. st.gj., engin sjálfsábyrgð í vatnstjónum). Vilji hjónin taka kr. 30.000 sjálfsábyrgð í vatnstjónum, lækkar iðgjaldið um 22%. í ofangreindum iðgjöldum af fast- eigna- og fjölskyldutryggingu er innif. 10% afsl., v. gildandi öku- tækjatrygginga. Fjórða nauðsynlega tryggingin er Iíftrygging. Við ráðleggjum þeint að hafa kr. 5 millj. vátryggingafjár- hæð, m.v. núverandi íjárhagsað-. stæður. Slík trygging kostar með hjónaafsl. og bónusafsl. kr. 26.800 á ári. Þetta eru hjónunum nauðsynlegar fryggingar, en tvær aðrar koma mjög nærri því að vera nauðsynleg- ar. Það er annars vegar sjúkra- og slysatrygging, örorkubætur kr. 5 millj., dagpen. kr. 25 þús. á viku með 12 vikna biðtíma og 40 vikna bótatíma. Ársiðgjald án stimpilgj. er kr. 21.974. Hins vegar er það ferðaslysa- trygging sem innif. sjúkra- og ferð- arofstryggingu að fjárhæð kr. IV2 millj. Ársiðgjald er kr. 660 á ein- stakling. Þegar sjúkra- og slysatrygging er tekin er yfirleitt lagður til grund- vallar samningur viðkomandi ein- staklings við vinnuveitanda. Gert er ráð fyrir að hjónin eigi rétt á 3ja mánaða greiðslum frá vinnuveitend- um. Vikulegar bætur er reynt að hafa sem næst 75% launa trygginga- taka. Þegar ferðaslysatrygging er tekin verður að hafa margt til hliðsjónar. Sé ferð t.d. greidd að 50% eða meiru með greiðslukorti er innif. ferða- trygging, en þá þarf að meta þörf á viðaukatryggingu. Athuga þarf mismunandi reglur um ferðatrygg- ingar v. greiðslukorta. í fjölskyldu- tryggingu hjónanna er innif. farang- urstrygging kr. 350 þús., örorku- bætur vegna 100% örorku kr. 1 millj. og 400 þús. og dánarbætur kr. 290 þús. (í frítíma). SKANDIA ÍSLAND Við gerum ráð fyrir að konan hafi 40 þús. króna mánaðarlaun, en maðurinn 210 þús. krónur. Misjafnt er hvaða tryggingar menn telja sér nauðsynlegar, en við byrjum for- sendu fjölskyldulífsins, heimilinu. Hjónunum er ráðlögð heimilis- trygging. Helstu tjónin sem hún bætir eru tjón á innbúi af völdum eldsvoða, innbrots, vatnsleka úr leiðslukerfí hússins, tjón vegna straumrofs á frystikistu og reiðhjól- astuldi, svo nokkuð sé nefnt. En- fremur nær tryggingin til heimilis- meðlima sem eru tryggðir í frítíma með örorkubætur, 1 millj. og 200 Aiikinn áhugi á líftryggingum IIEDFBUNDNAR líftryggingar eru í hoði hjá tryggingafyrirtækj- um, þar sem tryggingartaki kaupir tryggingu fyrir ákveðna upp- hæð sem greidd er út ef hann fellur frá fyrir sjötugt. Þá er fáan- leg svonefnd lífeyristrygging, heilsutryggingar sem greiða bætur sem svara til launa lendi menn í langvarandi veikindum. Fulltrúar tryggingafélaganna eru sammála um að almennt hugi fólk betur að líftryggingum nú en áður. „Viðhorfsbreyting hefur orðið á sí. 5 til 7 árum, fólk er farið að láta tryggingamálin fá meiri forgang þar sem menn eru farnir að sjá að lífeyrissjóðir og almannatryggingakerfið ná ekki að mæta öllum þörfum,“ segir Ólafur H. Jónsson deildarstjóri hjá Líftryggingafélagi íslands. „Aðal- tilgangur líftryggingar er að taka af þyngsta fjárhagslega áfallið sem mcnn verða fyrir við fráfall maka, þannig að ekki þurfi þess vegna að selja húsnæði, taka börn úr skóla eða slíkt. Því er tiygg- ingafjárhæð oftast miðuð við skuldir viðkomandi og fram- færslu. Meðaltryggingarfjárhæð er um 3 milljónir og ég hygg að hjá okkur séu flestir með 2 til 5 milljónir." Reykvísk endurtrygging býður hefðbundna líftiyggingu en Skandia-Islar.d hefur um tíma boðið sérstaka lieilsutryggingu sem tryggir mönnum laun í veik- inda- og slysatilvikum. „Menn velja upphæðina sjálfir, en viðmið- unarreglan er 75% af launum. Iðgjöldin ráðast af upphæðinni og biðtíma, sem er minnst 13 vikur, segir Hildur Kjartansdóttir hjá Skandia-ísland. „Bætur eru greiddar mánaðarlega til 60 eða 65 ára aldurs." Önnur h'ftryggingafélög eru Alþjóða líftryggingafélagið og Sameinaðra líftiyggingafélagið. Ólafur Jón Ingólfsson hjá því síð- arnefnda segist sjá fyrir sér þá breytingu að iðgjöld fari lækkandi og að annar hugsunarháttur sé áberandi varðandi lfftryggingal• með nýrri kynslóð. Ólafur N. Sigurðsson hjá Al- þjóða líftryggingafélaginu áætlar um 30% íslendinga á aldrinum 25 - 50 ára líftryggða nú og seg- ist eiga von á að að iðgjöld lækki að mun næstu árum í samræmi við fjölgun tryggingataka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.