Morgunblaðið - 28.04.1992, Qupperneq 1
1992
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL
BLAD
B
adidas
...annað ekki
HANDKNATTLEIKUR
FH-ingar fögnudu sigri gegn ÍBV
Morgunblaðiö/Árni Sæberg
FH-ingar sigruðu Vestamanneyinga 22:19 í þriðja leik liðanna í undanúrslitum íslandsmótsins í handknattleik í Kaplakrika í gær-
kvöldl. Það verða því FH og Selfoss sem leika til úrslita um íslandsmeistaratitilinn og verður fyrsti leikur liðanna í Kaplakrika á
fimmtudagskvöld. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leikl hlýtur meistaratitilinn. Á myndinni hér fyrir ofan fagna FH-ingarnir Hans Guð-
mundsson, Gunnar Beinteinsson, Guðjón Arnason og Haraldur Ragnarsson sigrinum gegn ÍBV. ■ Nánar / B2 og B3
KNATTSPYRNA
Vandas
meðKA
Pavel Vandas,
tékkneski
leikmaðurinn sem
lék með KA í fyrra
sumar, mun einn-
ig leika með liðinu
í sumar. Gengið
var frá samning-
um í gær og kem-
ur Vandas til
landsins 1. júní og
getur því leikið
með KA gegn Þór
á Akureyri í þriðju
umferð íslands-
mótsins.
Vandas
Ormarr
gefur ekki
kostásér
í landsliðið
Ormarr Örlygsson, leikmaður
KA á Akureyri, hefur ákveðið
að gefa ekki kost á sér í knatt-
spyrnulandsliðið í sumar vegna
anna í vinnu.
Ormarr var valinn í landsliðshóp-
inn á dögunum eftir tveggja ára
fjarveru, og tók þá þátt í vináttu-
landsleik í ísrael, en hefur nú til-
kynnt Ásgeiri Elíassyni, landsliðs-
þjálfara, að hann geti ekki tekið
frekari þátt í verkefnum liðsins.
KORFUKNATTLEIKUR
Péturekki
með landsliðinu
Pétur Guðmundsson körfubolta-
maður úr Tindastóli verður
ekki með íslenska landsliðinu á
Norðurlandamótinu í körfuknattleik
sem fram fer í Noregi 7.-10. maí.
Pétur hafði ætlað sér að vera með
en þegar hann mætti á æfingu í
síðustu viku kom í ljós að hann er
það slæmur í mjöðminni að hann
treystir sér ekki til að leika með
liðinu.
Það er óneitanlega missir af Pétri
því hann er okkar stærsti maður
og þegar komið er í alþjólega keppni
veitir ekki af hávöxnum leikmönn-
um.
Pétur Guðmundsson.
Jóhann Ingi með Hauka
Jóhann Ingi Gunnarsson hefur ver-
ið ráðinn þjálfari meistaraflokks
Hauka í handknattleik fyrir næsta
keppnistímabil og tekur hann við af
Viggó Sigurðssyni. Hann verður
einnig yfirþjálfari félagsins og hefur
umsjón með þjálfun allra flokka.
„Við sömdum við Jóhanna Inga
um eitt ár í einu. Hann byrjar hjá
okkur strax í maí og það verða æf-
ingar í maí og júní, frí í júlí og síð-
an byrja æfingar aftur í ágúst,"
sagði Þorgeir Haraldsson formaður
handknattleiksdeildar Hauka í sam-
tali við Morgunblaðið.
„Við vitutn ekki annað en við verð-
urn með sama mannskap og í vetur,
það fer alla vega enginn og ætlunin
er að byggja liðið upp á þeim mann-
skap. Jóhann lngi á að halda áfram
því starfi sem Viggó hefur skilað
með miklum ágætum. Það fer að
koma að því að strákar sem eru
uppaldir í Haukum fari að taka við
Jóhann Ingi og Þorgeir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar
Hauka, handsala hór þjálfarasamninginn.
og þangað til munuin við byggja lið-
ið upp á þeim mannskap setn við
höfurn núna. Við væntum mikils af
starfi Jóhanns Inga,“ sagði Þorgeir.
Jóhann Ingi er þaulreyndur þjálf-
ari. Hann hefur verið landsliðsþjálf-
ari Islands og var um árabil þjálfari
í Vestur-Þýskalandi hjá Kiel og síðan
Tusem Essen og einnig hefur hann
séð um þjálfun hjá KR-ingum.
SKÍÐI: ANDRÉSAR AIMDARLEIKARIMIR / B80GB9