Morgunblaðið - 28.04.1992, Síða 2

Morgunblaðið - 28.04.1992, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROi I IRpRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1992 HANDKNATTLEIKUR Eyjarmönnum tókst það sem þeir ætluðu sér í annari viðureign- inni gegn FH. Þeir sigruðu 28:24 og á tíma í fyrri Sigfús Gunnar hálfleik kafsigldu Guömundsson þeir gestina. skrífarfrá Fremstir í flokki Eyjum Eyjamanna voru Sigmar Þröstur Oskarsson og Zolt- an Belany, sem lögðu grunninn að öruggum sigri. Eg held að góði kaflinn í upp- hafi hafi gert útslagið. Vörnin og markvarslan var góð og við keyrð- um á hraðaupphlaupin. FH-ingar fóru út í allskyns varnarleik sem ruglaði sóknarleik okkar en sem betur fer tapaðist gott forskot ekki niður við það,“ sagði Sigurður Gunnársson þjálfari Eyjamanna eft- ir að ÍBV tryggði sér oddaleik. Eyjamenn hófu leikinn af miklum krafti og komust í 10:3 eftir 20 mínútna leik og eftir það varð ekki aftur snúið. FH-náði reyndar að minnka muninn en ekki að jafna þannig að aldrei var spurning hvort liði færi með sigur af hólmi. Sigmar Þröstur varði vel og Bel- any lék á alls oddi, gerði m.a. 6 af fyrstu 10 mörkum IBV. í síðari hálfleik blómstraði Gylfi Birgisson einnig en annars var liðið jafnt. Hjá FH- náði enginn sér verulega á strik. ÍÞfémR FOLX ■ FH-INGAR voru hissa þegár þeir komu til Eyja í annan leikinn á laugardaginn. „Þetta er í fyrsta sinn í tíu ár sem við lendum hérna í logni,“ sagði Guðjón Árnason og Kristján Arason bætti við að lik- lega hefði það verið lognið á undan storminum. ■ FH-INGAR sögðust vera orðnir leiðir á lagavali lúðrasveitarinnar úr Eyjum og vonuðust til að þeir yrðu með nýtt prógramm í þriðja leiknum. ■ HARALDUR Hannesson hornamaður ÍBV var eitthvað utan við sig þegar verið var að kynna liðin í Eyjum. Þegar nafni hans Ragnarsson markvörður FH var kynntur sté Eyjamaðurinn fram og hneigði sig og beygði. ■ SIGURÐUR Sveinsson mætti tímanlega í Kaplakrikann, en kom engu að síður hálftíma of seint inní klefa. Ástæðan var sú að þegar FH-ingurinn opnaði farangurs- geymsluna á bíl sínum kom í ljós að hann hafði gleymt æfingatösk- unni heima — í vesturbænum í Reykjavík — og varð að snúa við! ■ BIRGIR Björnsson, umsjónar- maður íþróttamannvirkjanna í JCaplakrika sagði að íþróttahús FH hefði í fyrsta skipti verið fullt í gærkvöldi. Áhorfendur voru um 2.500, en fram að því höfðu mest 1.800 áhorfendur mætt á leik í húsinu. Stemmningin í húsinu var gríðarleg. ■ ÁHANGENDUR ÍBV fylltu tvær Fokker-flugvélar frá Vest- mannaeyjum til að fylgjast með sínum mönnum í gærkvöldi. Hljóm- sveitin var með og lék hún undir söng Eyjamanna. ■ SIGURÐUR Gunnarsson, þjálfari Eyjamanna, átti fyrsta skotið í leiknum í gær eftir aðeins 48 sekúndur en Bergsveinn varði skot hans. ■ JÓHANN Pétursson gerði fyrsta mark leiksins fyrir ÍBV þeg- ar tæpar fimm mínútur voru liðnar af leiknum og höfðu liðin þá klúðar samtals 10 sóknum. ■ FH-INGAR gerðu sitt fyrsta mark eftir 10,32 mínútur, en þá hafði ÍBV gert þrjú mörk. Það var Hans Guðmundsson sem braut ís- inn fyrir FH. I ERLINGUR Richardsson, leikmaður ÍBV, varð að fara af leik- velli þegar aðeins 4 mínútur voru liðnar af leiknum. Hann lenti í sam- stuði við leikmann FH og fékk við það blóðnasir. Hann kom ekki inná aftur fyrr en rúmar sjö mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. ■ HANS Guðmundsson jafnaði leikinn fyrir FH í fyrsta sinn úr vítakasti þegar 32 sekúndur voru eftir af fyrri hálfleik. Guðjón Árna- son kom FH í fyrsta sinn yfír í fyrstu sókn síðari hálfleiks, 10:9. ■ HARALDUR Ragnarsson, varamarkvörður FH, kom tvisvar inná til að spreyta sig á vítakasti og varði í annað skiptið - frá Bel- any. Ingólfur Arnarson, vara- markvörður ÍBV, lék sama leikinn í marki IBV - varð frá Hans. Morgunblaftið/Árni Sæberg Stuðningsmenn FH-inga höfðu ástæðu til að fagna. Tveir til þrír spennandi leikir eiga eftir að þenja raddbönd þeirra í íþróttahúsinu í Kaplakrika á næstu dögum. FH-liðið fær Selfoss í heimsókn á fímmtudagskvöldið. Alerfiðasti leikur sem ég hef spilað jr - sagði Guðjón Arnason, fyrirliði FH-liðsins, eftir spennuleik í Hafnarfirði „ÞETTA er einn alerfiðasti leik- ur sem ég hef spilað. Við höfð- um þetta fyrst og fremst á því að við breyttum aldrei leikað- ferð okkar þó svo að illa hafi gengið íbyrjun,11 sagði Guðjón Arnason, fyrirliði FH, eftir leik- inn. Guðjón sagði að Eyjamenn væru með gríðarlega sterkt lið pg hafí þeir sýnt það í úrslitakeppn- inni. „Þeir flýttu sér of mikið á meðan við héldum áfram að spila okkar leik. Það fór aðeins um mig í byrjun en eftir hlé var ég sannfærð- ur um þetta tækist hjá okkur. Það er þungu fargi af okkur létt. Stemmningin var frábær og áhang- ValurB. Jónatansson skrifar endur beggja liða létu vel í sér heyra. Undirbúningur okkar fyrir leik- inn var eins og fyrir alla aðra leiki. Við voru ákveðnir í að halda okkur við flata 6-0 vörn. í leiknum í Eyj- um fórum við að breyta vörninni þegar ekkert gekk í bytjun og það reyndist ekki vel og við ætluðum ekki að brenna okkur á því aftur," saðgi Guðjón. „Duga eða drepast" „Það var rosalegt álag fyrir þenn- an leik og mikil taugaspenna. Ég hef ekki leikið vel síðustu leiki og því var ekkert annað að gera en duga eða drepast," sagði Berg- sveinn Bergsveinsson, markvörður FH. „Mér hefur alltaf gengið best fyrir aftan flata vörn og því fann ég mig vel í þessum leik. Við höfum verið að taka menn úr umferð bæði í leikjunum geng Stjörnunni og fyrri ieikjunum gegn ÍBV og það hefur ekki komið nógu vel út fyrir mig. Við höfum sýnt að við erum með besta liðið. Leikirnir gegn Selfyss- ingum leggjast vel mig. Þeir eru með góðar skyttur og eins mark- verði sem geta varið vel. Selfyssing- ar verða erfiðir en ég er bjart- sýnn,“ sagði Bergsveinn. „Viljinn enn til staðar“ „Margir voru búnir að afskirfa okkur. Sögðu að við værum sáttir við að vera bikar- og deildarmeist- arar. En við sýndum það í þessum leik að viljinn er enn til staðar og við höfum ekki sagt okkar síðasta,“ sagði Kristján Arason, þjálfari FH. „Ég er rosalega ánægður með stemmninguna í liðinu, ólíkt því sem var i Eyjum. Þá gáfumst við upp strax í fyrri hálfleik. Nú voru allir með og gáfu allt í leikinn. Vörnin var góð og við þurftum að hafa mikið fyrir því að skora. Þessi leik- ur kostaði mikið þrek. Þetta var fyrst og fremst spurning um hvort liðið hefði betri taugar en það var skjálfti í leikmönnum í byijun. Eftir að við náðum yfírhöndinni í síðari hálfleik var ég sannfærður um að við myndum sigra,“ sagði Kristján. Um leikina á móti Selfyss- ingum sagði Kristján: „Selfoss hef- ur átt mjög góða leiki og sýndi það gegn Víkingum hversu öflugt liðið er. Þessi leikur var erfiður og það má því segja að Selfyssingar hafí ákveðið forskot á fimmtudagskvöld. Ég hef trú á því að það þurfi fimm leiki til að útkljá úrslit. Heimavöll- urinn skiptir gífurlega miklu máli og það sýndi sig í leiknum í kvöld,“ sagði Kristján Arason. Gunnar tilbúinn að taka við Víkingsliðinu Guðmundur hættur hjá Víking Guðmundur Guðmundsson, þjálfari og leikmaður Vík- ings í handknattleik, verður ekki áfram hjá félaginu. Rætt hefur verið við Gunnar Gunnarsson um að hann taki við liðinu og leiki jafnframt áfram með því. Pálmi Kristinsson, formaður h an d k n attlei ksdeild ar Vík i ngs, sagði við Morgunblaðið að stefnt væri að því að ganga frá þjálfara- málunum á ailra næstu dögum. „Ég hef spurt Gunnar hvort hann sé reiðubúinn að taka við liðinu og hann hefur lýst því yfir að hann sé það.“ „Ég ákvað um helgina að breyta til og tilkynnti Víkingum það á sunnudaginn," sagði Guð- mundur Guðmundsson, þjálfari og leikmaður Víkinga í handknattleik við Morgunblaðið, en hann hefur ákveðið að hætta hjá félaginu. „Ég er búinn að vera í Víkingi frá því ég var sex ára gamall, eða í 25 ár og ef ég breyti ekki til núna, hvenær þá?“ sagði Guð- mundur. Hann tók við Víkingum á miðju síðasta keppnistímabili af Júgó- slavanum Slavko Bambir og var staða liðsins þá slæm. Víkingum tókst að bjarga sér frá falli og í ár voru þeir slegnir út í uridanúr- slitum íslandsmótsins og einnig í bikarkeppninni. m Ovíst hvort Sigurður verði áf ram í Eyjum MT Eg veit ekki hvað ég geri - hvort að ég verði áfram í Eyjum,“ sagði Sigurður Gunn- arsson, þjálfari Eyjamanna, sem hefur verið fjögur keppnistíma- bil í Eyjum. Hann hefur verið þjálfari og leikmaður með Eyja- liðinu sl. tvö ár. „Ég mun taka ákvörðun um það fljótlega hvort að það sé kominn tími fyrir mig að breyta til,“ sagði Sigurður. Glæsileg byrjun Eyjamanna E

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.