Morgunblaðið - 28.04.1992, Qupperneq 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROI I IRpRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1992
HANDKNATTLEIKUR / URSLITALEIKUR KVENNA
Slær altt út
- sagði Sigrún markvörðurVíkings
Eg hef orðið íslandsmeistari í
öllum flokkum en þetta slær
allt út,“ sagði Sigrún Ólafsdóttir
markvörður Víkings i sjöunda himni
eftir að þær stöllur höfðu tekið við
íslandsbikarnum.
„Þetta fyrirkomulag með úrslita-
keppni er mjög gott, það er meiri
umfjöllun og það koma áhorfendur.
Til dæmis byrjuðu krakkar og
starfsfólk úr félagsmiðstöðinni Bú-
stöðum að mæta í bikarúrslitunum
og það hefur mjög góð áhrif að sjá
svona margt fólk fylgjast með.
Gústaf er frábær þjálfari, hann
heldur uppi góðum aga og við þurf-
um á því að halda. Ég og Heiða
Erlingsdóttir erum í Iþrótta-
kennaraskólunum að Laugarvatni
og höfum mætt vel í vetur en þeir
kílómetrar skipta engu máli núna.“
Líkamlega og andlega þreytt
„Þetta er búið að vera mjög erf-
itt og ég er orðin mjög þreytt,
bæði andlega og líkamlega. Við
settum okkurtakmark, við ætluðum
að blanda okkur í baráttuna en eft-
ir bikarinn kom doði og það var
spuming hvort við værum á toppi
á réttum tíma. Líklega verða engar
breytingar en það er náttúrulega
spurning um þjálfara. Nú verður
farið í frí og spáð í framhaldið eft-
ir það,“ sagði fyrirliði Víkings, Inga
Lára Þórisdóttir.
Þær voru betri í þessum leik
„Þær voru betri í þessum leik að
minnsta kosti. Við vorum sex mörk-
um undir og mjög á brattann að
sækja hjá okkur. Það er spuming
hvort við skiptum of seint um vörn.
Við hefðum getað jafnað undir lok-
in og það er það jákvæða við leik-
inn hjá okkur að við börðumst allan
tímann og gerðum okkar besta,“
sagði Guðný Gunnsteinsdóttir fyrir-
liði Stömunnar eftir leikinn og
sagðist ánægð með annað sætið
miðað við hversu ungt liðið væri.
Er að reyna að hætta
„Ég er orðin þreytt á að segja
að ég sé hætt þannig að ég segi
ekkert um það. Ég er að reyna að
hætta, en það er ekkert hlustað á
mann,“ sagði Erla Rafnsdóttir, sem
hefur verið í eldlínunni lengi. „Það
er frábært að fá svona marga áhorf-
endur á leiki. Þetta er búið að vera
svona í 2-3 ár hér í Garðabæ en
þetta breytta fyrirkomulag vekur
meiri athygli og fleiri koma að sjá
leiki. Þegar fólk hefur einu sinni
komið kemur það aftur, því kvenna-
handboltinn er orðinn það góður,"
sagði Erla.
Frábærvetur
„Þetta er búinn að vera frábær
vetur. Fimm leikir í úrslitum, fullt
hús af áhorfendum og góður hand-
bolti. Þetta er góð kynning á
kvennahandboltanum sem er í stöð-
ugri sókn. Stelpumar æfa eins og
strákarnir og þetta er að komast á
jafnréttisgrundvöll. Stelpurnar
hætta bara of snemma í handbolt-
anum miðað við strákana,“ sagði
Magnús Teitsson þjálfari Stjöm-
unnar.
„Ég er sáttur við veturinn, við
urðum deildarmeistarar og í öðru
sæti, sem er gott. Liðið er ungt og
óreynt, margar eru að leika í fyrsta
sinn þar sem þær bera einhveija
ábyrgð. Staðan í vetur gegn Víking-
um er 3:3 og eitt jafntefli. Þær
voru í betra formi í dag og ég óska
þeim til hamingju," sagði Magnús,
sem sagði allt óráðið með framhald-
ið hjá sér sem þjálfara.
l»joimsl;i
I; IU111; n 111.1
Savar Kitií ()Utson
ti n K :* I i t i ‘t
Morgunblaðið/RAX
Inga Lára Þórísdóttlr, fyrirliði
Víkings hampar hér eignarbikarnum
sem fylgir íslandsmeistaratitlinum.
Fyrirtækið Nýheiji gaf þennan bikar,
en það styrkti úrslitakeppnina í hand-
knattleik.
Víkingar fagna! Jóna H. Bjarnadóttir, Andrea Atladóttir, Svava Ýr Baldvinsdóttir, Val
Víkingss
að sigrinu
Gústaf Björnsson
IMúhættiég
í stelpunum
ogsnýmérað
strákunum
Nú hætti ég í stelpunum og sný
mér að strákunum," sagði
Gústaf Björnsson, þjáifari íslands-
og bikarmeistaranna, en hann verð-
ur aðstoðarmaður Asgeirs Elíasson-
ar landsliðsþjálfara í knattspyrnu
og hættir sem þjálfari í handboltan-
um.
„Ég var mjög hissa þegar fyrir-
spurnin kom frá KSÍ en hugsaði
sem svo að þetta tækifæri fengi ég
bara einu sinni á ævinni og yrði
frábær reynsla. Það er annars aldr-
ei að vita hvort ég kem aftur, ég
kveð nú eftir mjög ánægjulegttíma-
bil en við sjáum til. Við settum
okkur það markmið að kveðja þriðja
sætið sem hefur verið viðloðandi
stelpurnar lengi á meðan Fram og
Stjarnan hafa einokað toppsætin,
minna á okkur og blanda okkur
alvarlega í þetta. Við bytjuðum í
júní að lyfta lóðum, síðan tók Evr-
ópukeppnin við þar sem við stóðum
okkur vel því norska liðið sem sló
okkur út komst í 8 liða úrslit".
BIKARMEISTARAR Víkings bættu
við sig íslandsmeistaratitli f 1.
deild kvenna með 21:24 sigri á
Stjörnunni f Garðabæ á laugar-
daginn f spennandi leik þar sem
leikinn var góður handbolti, ekta
úrslitaleikur. Leikurinn einkennd-
ist af þvf hversu vel liðin þekkjast
enda var þetta fimmti leikur þeirra
átíu dögum.
Jafnræði var með liðunum í fyrri
hálfleik en eftir hlé náðu Víkings-
stúlkurnar fljótlega sex marka forskoti
WSKWtKtW °£ héldu því þar til
Stefán Stjarnan gerði fimm
Stefánson mörk í röð þegar 10
skrifar mínútur voru til leiks-
loka og minnkaði mun-
inn í tvö mörk.
„Við fórum á taugum þegar þær
tóku tvær úr umferð og þreytan var
farin að segja til sín. Við keyrðum á
sama liðinu en þær gátu skipt inná.
Það er ekki vegna þess að við höfðum
ekki mannskap heldur er erfitt að koma
inná í svona leik. En þetta hafðist,"
íslands- og bikar
Aftari röð.frá vinstri: Eiríka Ásgrímsdóttir, liðsstjóri, Gústaf Björnsson, þjálfari, H
dóttir, Svava Ýr Baldvinsdóttir, Jóna H. Bjarnadóttir, Siguijón Frirðiksson, framl
formaður handknattleiksdeildar. Fremri röð frá vinstri: Heiða Erlingsdóttir, Valdís E
og Hanna M. Einarsdóttir.