Morgunblaðið - 28.04.1992, Side 12

Morgunblaðið - 28.04.1992, Side 12
BORTENNIS Kjartan Briem Kjartan sigraði á sterku móti KJARTAN Briem, borðtennis- maður úr KR, sem stundar nám í Danmörku, sigraði á sterku stigamóti þar ílandi um helg- ina. Þetta er í fyrsta sinn, sem hann sigrar á móti í Danmörku. Mótið var í 1. styrkleikaflokki og var fyrst leikið í riðlum, en síðan með útsláttarfyrirkomu- lagi. Kjartan var í riðli með fjórum Dönum og sigraði þá alla, en eftir að hafa komist áfallalaust í gegnum átta manna úrslit og undanúrslit mætti hann Dananum Flemming Larsen í úrslitum. „Þetta stóð mjög tæpt,“ sagði Kjartan við Morgunblaðið. „Eg vann fyrstu lotuna 21:12, hann þá næstu 21:18, en ég hafði það af í oddalotu og vann 22:20.“ Kjartan sagðist ekki hafa æft nógu vel í vetur, en Evrópumótið hefði hjálpað sér mikið. „Þá hrökk ég í gang, komst í góða æfingu og hef sjaldan spilað betur en um helg- ina.“ KNATTSPYRNA / NOREGUR Lyn tapaði heima fyrír Rosenborg Lyn beið lægri hlut, 0:2, gegn Rosenborg í fyrsta leik liðanna í norsku úrvalsdeildinni. Leikmenn Rosenborg gerðu Erlingur mörkin í fyrri hálf- Jóhannsson leik, bæði eftir horn- skrifarfrá spyrnu. noægi Tejtur Þórðarsoni þjálfari Lyn, sagði eftir leikinn að jafntefli hefði verið sanngjarnt. „Við fengum tvö mörk á okkur eft- ir vamarmistök, en ég var með tvo unga og óreynda varnarmenn sem þoldu greinilega ekki álagið sem fylgir því að leika í úrvalsdeild," sagði Teitur. Hann sagði að í næsta leik yrðu allir bestu leikmenn Lyn tilbúnir í slaginn, nema Ólafur bróðir hans. „Meiðsli hans hafa tekið lengri tíma en við bjuggumst við. Ólafur verður trúlega ekki með okkur fyrr en í lok maí,“ sagði Teitur. Frank Strandlí, sem Leeds keypti nýlega frá Start, og fer til ensku meistaranna í haust, gerði öll fjögur mörk Start þegar liðið vann Sognd- al 4:1. KNATTSPYRNA / SVIÞJOÐ Hlynurlékvel með Örebro HLYNUR Stefánsson, landsl- iðsmaður úr Vestmannaeyjum, og samherjar hans í Örebro unnu efsta lið sænsku úrvals- deildarinnar T relleborg 1:3 á útvelli um helgina. Hlynurátti mjög góðan leik og lagði upp annað mark liðsins, sem er nú í 3. sæti deildarinnar á eftir Trelleborg og Öster. Hlynur lék hægra megin á miðj- unni og vann vel fyrir liðið. Hann fær góða dóma í sænsku BIRGIR Mikaelsson, þjálfari og leikmaður Skallagríms, og Val- ur Ingimundarson, þjálfari og leikmaður Tindastóls, fara í haust ásamt Teiti Örlygssyni til Bahamaeyja í boði körfu- knattleikssambands eyjanna. Birgir og Valur tryggðu sér far- seðlana í Njarðvík um helgina, en þá sigraði Birgir í þriggja stiga keppni og vítaskotum og Valur tróð knetti manna best í körfuna. Njarðvíkingar héldu uppá 50 ára afmæli kaupstaðarins með því að leggja landsliði í körfuknattleiksleik um helgina. Eftir venjulegan leik- tíma var staðan 105:105 og því þurfti að framlengja. Njarðvík sigr- aði 120:119. Ástþór Ingason og Friðrik Ragnarsson voni bestir heimamanna og gerðu m.a. 11 HBBIIHI blögðunum sem Frá Magnúsi segja þetta besta Einarssyni leik hans til þessa. 1 viþjo Trelleborg er efst í deildinni og hafði ekki tapað leik í deildinni fyrr en gegn Örebro á sunnudaginn. Pólveijinn Miroslav Kubisztal gerði öll mörk Örebro. Annað mark- ið kom eftir frábæra sendingu frá Hlyn, sem hafði splundrað vörn Trelleborg, áður en hann gaf á Kubisztal sem var fyrir opnu marki og átti því auðvelt með að skora. þriggja stiga körfur í fyrri hálfleik, en þá gerði UMFN 60 stig. Þeir styrktu lið sitt með Vali Ingimund- arssyni og Hermanni Haukssyni. Bakverðirnir Jón Kr. Gíslason og Páll Kolbeinsson voru veikir og sátu á varamannabekk landsliðsins. Þriggja stiga/vítakeppnin var æsispennandi. Fimm komust í úr- slit, þeirra bestur Hrafn Kristjáns- son úr KR, sem hitti úr 11 af 15 þriggja stiga skotum. Þegar allir höfðu lokið sér af nema Birgir Mikaelsson var ljóst að hann yrði að hitta úr öllum tíu vítaskotunum til að jafna við Guðjón, Skúlason. Það tókst og í aukakeppni við Guð- jón endurtók Birgir leikinn og sigr- aði. Guðmundur Bragason og Valur Ingimundarson háðu harða keppni í troðslunni og Valur kom á óvart, tróð með miklum ágætum og vann. ■ VALERY Lobanovsky hefur samþykkt _ að taka við þjálfun landsliðs Úkraínu í knattspymu í sumar, þegar samningur hans í Sameinuðu arabísku furstadæ- munum rennur út. Lobanovsky var áður landsliðsþjálfari Sovét- ríkjanna. ■ PARK Yung-Kyun frá Suður- Kóreu endurheimti um helgina heimsmeistaratitil sinn í fjaðurvikt í hnefaleikum. Hann vann Koji Matsumoto frá Japan. H SUÐUR-afríksir frjálíþrótta- menn geta keppt á öllum mótum á vegum alþjóðasambandins (IAAF) frá og með 1. júní. Primo Nebiolo forseti IAAF tilkynnti þetta um helgina. ■ SAMBANDIÐ í Suður-Afríku voru fljótir að taka við sér og krefj- ast þess nú að fá að senda 125 keppendur á Ólympíuleikana í Barcelona í sumar. Þeim hafði verið tjáð að þeir mættu senda 50 keppendur. ■ FRANKIE Fredericks frá Namibíu sigraði bæði í 100 og 200 m hlaupi á Afríkuleikunum sem fram fóru um helgina til að halda uppá endurkomu Suður-Afríku í alþjóðlegri keppni í frjálsíþróttum. Namibíumaðurinn hljóp 200 metr- ana á 20,09 sekúndum sem er besti tími ársins. ■ HEIMSMET var sett í 4x200 metra boðhlaupi um helgina. Það var sveit Badaríkjanna sem það gerði, hljóp á 1:19.11 sekúndum, en þeir sveitin átti eldra metið 1:19.38, sett 1989. í sveitinni voru Carl Lewis, Leroy Burrell, Floyd Heard og Mike Marsh. ■ MASASHI Ozaki frá Japan sigraði á sínu fyrsta móti í ár á opna Duniop mótinu í Tokyo um helgina. Hann lék á 286 höggum eins og Brent Franklin frá Kanada. Ozaki sigraði í bráðabana á fyrstu holu. ■ BORIS Becker og Michael Stich sigruðu í tvíliðaleik í Monte Karló um helgina og verða greini- lega skæðir á Ólympíuleikunum í sumar, en þar ætla þeir félaga að leika saman. ■ JOHN Aldridge, sem nú leikur með Tranmere Rovers í 2. deild mun leika tvo leiki á einum sólar- hring, annan með liði sínu en hinn með írska landsliðinu. Aldridge vantar aðeins tvö mörk til að jafna markamet Tranmera. KORFUKNATTLEIKUR Birgir og Valur til Bahamaeyja BADMINTON IMú er bara að bíða og vona - sagði Broddi Kristjánsson um hugsanlegt ólympíusæti BRODDI Kristjánsson og Árni Þór Hallgrímsson komust i undanúrslit ítvíliðaleik karla á opna austurríska meistara- mótinu í badminton sem fram fór í Pressbaum í Austurríki um helgina. Þeir urðu að gefa undanúrslitaleikinn þar sem Broddi átti við meiðsli að stríða og treysti sér ekki í leikinn. Broddi tók þátt í einliðaleiknum og mætti Bandaríkjamann- inum, Chris Jogis, í 1. umferð og tapaði 5:15 og 13:15. „Ég datt illa og tognaði við það í hnésbót- inni, en náði þó að klára leikinn,“ sagði Broddi í samtali við Morgun- blaðið. „Ég hélt að ég hefði slitið allt í hnénu, en þetta var svona slæm tognun.“ Árni Þór ákvað að sleppa einl- iðaleiknum og einbeita sér að tvíl- iðaleiknum með Brodda. Þó svo að Broddi væri meiddur náðu þeir að komast í undanúrslit. Þeir sátu yfir í 1. umferð, unnu síðan aust- urrískt par í spennandi leik, 17:15 og 17:15. í 3. umferð mættu þeir Frakka og Þjóðveija og unnu ör- ugglega 15:4 og 15:8. 1 undanúr- slitum áttu þeir að mæta Þjóðverj- um en gáfu leikinn. „Ég var orðinn mjög kvalinn og treysti mér ekki í leikinn gegn Þjóðveijunum. Ég vissi að leikur- inn yrði mjög erfiður og við þurft- um að ná toppleik til að vinna. Þar sem ég var ekki 100 prósent var eins gott að gefa leikinn,“ sagði Broddi. -Ert Jiú vongóður um að kom- ast á Olympíuleiknana í Barcel- ona? „Nú er bara að bíða og vona. Broddl Kristjánsson. Endanlegur styrkleikalisti kemur út á fimmtudaginn og þá kemur það í ljós hvort ég er inni eða úti. Annars eru þetta svo fáran- legar reglur að erfitt er að skilja þær.“ Þess má geta að ef Broddi og Árni Þór öðlast keppnisrétt í tví- liðaleik fá þeir sjálíkrafa keppnis- rétt í einliðaleik.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.