Morgunblaðið - 01.07.1992, Page 8

Morgunblaðið - 01.07.1992, Page 8
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG ______________ MIÐVIKUDAGUR 1.JÚLÍ 1992 Selimir aftur á leiðinni til Finnmerkur STÓRAR selavöður hafa að undan- förnu verið á leið upp að ströndum Finnmerkur í Noregi og er óttast, að sagan frá síðasta áratug sé að endurtaka sig. Þá olli selurinn miklu fjóni með því að éta og skemma fisk í veiðarfærum, auk þess sem tálið er, að hann fæli burt fískinn. Norskir sjómenn hafa siglt í gegnum selavöður, sumar allt að þriggja kíló- metra breiðar, en talið er, að selurinn sé að leita að þorski. Það fer því eftir því hvar þorskurinn heldur sig hvort selurinn kemur upp að ströndinni en honum fylgir „svart haf ‘ eins og norsk- ir sjómenn segja, fískileysi og eyðilegg- ing. í svipinn hafa menn mestar áhyggjur af, að selurinn spilli ýsuveið- unum við ströndina. Yerður öll þorskveiði við Nýfundnaland bönnuð? ÚTLENDINGUM FÆKKAR í FISKVINNSLU Morgunblaðið/Þorsteinn Briem NOKKRIR útlendingar hafa unnið hjá sjávarafurðadeild KASK, sem Borgey hf. tekur yfir í dag, 1. júlf, og hér er einn þeirra, hún Lárina frá Trángisvági á færeysku eynni Suðurey, að læra að snyrta flök. Um 500 útlendingar voru í fiskvinnslu hér í vetur en horfur eru á að mun færri útlendingar fái atvinnuleyfi í fískvinnslu næsta vetur, því margir íslendingar eru atvinnulausir. ÁSTAND þorskstofnsins við austurströnd Kanada og mikill niðurskurður á kvóta hefur neytt eitt stærsta fiskiðnaðarfyrirtækið þar, National Sea Produets Ltd., NatSea, til að selja alla starfsemi sína í Bandaríkjunum. í Kanada virðist nú vera vaxandi áhugi á að banna alveg þorskveiðar við Nýfundnaland um árabil til að ná upp stofninum en í viðtali við Morgunblaðið sagði Bene- dikt Sveinsson, framkvæmdastjóri íslenskra sjávarafurða hf., að það væru í sjálfu sér slæmar fréttir fyrir okkur íslendinga. Stórminnkað framboð gæti haft slæm áhrif á markaðinn vestanhafs Fyrir dreifíngarkerfið í Bandaríkjun- um fékk NatSea greiddar rúmar fimm milljónir Bandarílqadollara og 20 milljón- ir fýrir birgðir og annað. Er kaupandinn FPI, Fisheries Products Intemational Ltd. í St. John’s á Nýfundnalandi, og lagar þessi sala skuldastöðu NatSea all- verulega. Námu þær næstum 130 millj- ónum dollara og vaxtakostnaðurinn var mikill. Þá fylgdi það einnig með í kaup- unum, að FPI mun nú taka við markaðs- setningu fyrir NatSea í Bandaríkjunum. Frá 1984 hefur þorsk- og ýsukvóti NatSea minnkað úr 80.000 tonnum á ári i um 25.000 tonn en á síðasta ári var heildarsala fyrirtækisins 438,9 millj- ónir Bandaríkjadala en tapið 35,9 millj- ónir. Henry EÍemone, aðalframkvæmda- stjóri NatSea, sagði nýlega í blaðavið- tali, að hann væri hlynntur framkomnum hugmyndum um algjört bann við þorsk- veiðum við Nýfundnaland ef það gæti orðið til að endurreisa stoftiinn og tryggja ömgga veiði eftir fimm eða tíu ár. Benedikt Sveinsson, framkvæmda- stjóri íslenskra sjávarafurða, segist hafa frétt af þessum breytingum hjá NatSea en telur ekki, að þær hafi nein áhrif hér heima út af fyrir sig. Hér sé um að ræða lið í almennum vamaraðgerðum kanadísku fiskiðnaðarfyrirtækjanna á austurströndinni í kjölfar hmnsins í þorskveiðunum. Benedikt kvaðst líka hafa heyrt um þá umræðu, sem nú á sér stað, um algert bann við þorskveið- um við Nýfundnaland og hann taldi, að hún væri meira en orðin tóm. Við fyrstu sýn mætti ætla, að afleið- ingin af slíku banni væri góð fyrir aðra framleiðendur, til dæmis Islendinga, en með tilliti til þess, að þorskurinn ætti í mikilli samkeppni við aðrar fisktegundir og aðra matvöm væri ólíklegt, að minna framboð yrði til að hækka verðið sem einhvetju næmi. Það hefði hins vegar þau áhrif, að kaupendur þorsksins snem sér annað og það gæti haft alvarleg á markaðinn í heild. FÓLK Jóhannes Már tilDalvíkur ■ JÓHANNES Már Jóhann- esson hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Fiskmiðlunar Norðurlands á Dalvík með Hilmari Daníelssym, en Jó- hannes var áður hjá íslenzkum sjávarafurðum hf. og sá þar um skreiðarsölu. ÍS hafa keypt 40% hlutaíjár í Fiskmiðlun Norðurlands og samkvæmt þeim kaupsamningi mun skreiðarsala ÍS flytjast norður og verður skreiðin því áfram viðfangsefni Jóhannesar. Með þessari ráðstöfun verður FN líklega stærsti útflytjandi skreiðar til Nígeríu. Jóhannes er Dalvíkingur að uppmna, sonur Jóhannesar Kristjánss- onar frá Hellu, fyrrverandi hreppstjóra á Dalvík, ogeigin- konu hans, Ingunnar Kristjánsdóttur. Aðstoðar nefnd ummótun stefnu í sjávarútvegi V ANDRI Teitsson hefur verið starfsmaður nefndar um mótun sjávarútvegsstefnu frá október síðastliðnum. Andri varð ■ stúdent ftá MA árið 1986. Hann tók próf í vélaverk- 1 fræði frá Há- NRí;" JPii skóla íslands árið 1990 og Andri Teiteson masterspróf í iðnaðarverkfræði frá Stanford-háskóla í Kali- fomíu árið 1991. Sumarið 1990 gerði Andri fyrir Aflanýtingar- nefnd sjávarútvegsráðuneyt- isins hermilíkan af rekstri fiyst- itogara með tilliti til mögulegra vinnsluleiða. Únnusta Andra er Auður Hörn Freysdóttir laga- nemi en foreldrar hans em Teit- ur Jónsson tannlæknir og Val- gerður Magnúsdóttir sálfræð- ingur. Saltfisksúpa ÚLFAR Eysteinsson matreiðslumeistari heldur hér áfram að kynna saltfiskuppskriftir á afmæiisárí SÍF og kemur nú með uppskríft að saltfisksúpu. UndirbúninguK 20 mínútur. Eldunartími: 30 minútur. í réttinn þarf: Soðið af saltfiskinum 2 blaðlauka (púrrur), 2 eða 3 gulrætur 1 rófu/næpu 3 kartöflur 1 hvítlauksrif 1 negulnagla 1 kryddjurtaknippi 1 eða 2 litlar, rauðar paprikur (eða kryddið súpuna meira) 1 msk. snqör ristaða brauðteninga SOÐNINGIIVl Ef vill má bæta út í súpuna 2 msk. af sýrðum tjóma. Þessi uppskrift er til þess ætluð að nýta soðið af saltfískinum. Að sjálfsögðu er ekki hægt að gera hana nema saltfískurinn hafi veríð vandlega afvatnað- ur fyrir suðu. Setjið allt grænmetið, niðursneitt og skáskor- ið út í sjóðandi soðið. Bætið út í hvítlauk, negulnagla og kryddjurtaknippinu. Þegar súpan er soðin, fjarlægið þá kryddjurtaknippið og bætið smjörínu út í. Látið bullsjóða í nokkrar sekúndur. Berið fram í súpuskál með ristuðum brauðteningum og ef vill sýrðum ijóma. í síðasta Veri var misritun í uppskrift að saltfiski í ofni með spaghettii og því birtist uppskriftin hér aftun Undirbúningur: 15 minútur. Eldunartími: 30 mínútur. í réttinn þarf: 500 g saltfisk 250 g spaghetti eða núðlur 150 g af rifnum gruyereostí (óðalsosti) 3 msk. af bræddu smjörlíki (salt), pipar Sjóðið afvatnaðan saltfískinn i 3 mínútur og plokkið sundur (beinhreinsið). Sjóðið spaghettíið/núðlumar á með- an. Setjið síðan til skiptis i ofnfast fat eitt lag af spag- hettíi/núðlum og eitt lag af saltfíski og hellið bráðnu suyöri yfir áður en aftur er sett eitt Jag af spaghettíi ojs.frv. Hellið bráðnu smjöri yfír efsta lagið, dreifið ostínum yfír, setjið í 180 gráðu heitan ofn og látíð brúnast (gratínerast) þar til yfírborðið er orðið faUega (jósbrúnt. Gámur, 40 fet. + 2°C. Perskur lax. Afhending Boulogne. Á mánudag kl.02:00

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.