Morgunblaðið - 26.07.1992, Page 2

Morgunblaðið - 26.07.1992, Page 2
2 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1992 EFNI Islensk leikkona í sænskri sjónvarps- þáttaröð ÍSLENSK leikkona, Bára L. Magnúsdóttir, hefur fengið hlutverk í sænskum sakamála- myndaflokki „Polisen og dom- armordet." Þættirnir fjalla um fjóra lögreglumenn sem vinna að rannsókn morðs á dómara. Útitökur fara fram í Svíþjóð í september, en hér á landi í októ- ber. Bára segir söguþráðinn vera skemmtilegan og „morðin pen“. Leikur hún ungan lögfræðinema sem var í starfsþjálfun hjá dóm- ara. Þegar farið er að gruna hana um morðið á honum er hún komin heim til foreldra sinna í Mývatns- sveit, og berst þar með eltingaleik- urinn hingað til lands. Margir kunnir leikarar Svía leika í þáttunum að sögn Báru, en myndin er sú fjórða sem gerð er eftir sögum Gösta Unesed. Leikstjóri er Arne Lifmark. Sjá Fólk í fréttum á bls. 28. Nobuyasu irnúí erí 1-1 Óttast fjöldagjald- þrot í sauðfjárrækt BÆNDASTÉTTIN óttast nú að verði ekkert að gert megi horfa upp á gjaldþrot fjölmargra sauðfjárbænda. I ályktun sem stjórnir Búnaðarfélagsins og Stéttarsambandsins sendu nýlega frá sér koma m.a. fram þungar áhyggjur vegna þess að fyrirsjá- anlegur er 20% flatur niðurskurð- ur á framleiðslurétti bænda. fjárveikivömum kleift að standa við skuldbindingar sínar. Fleiri leiðir eru nefndar svo sem þær að gengið verði til samninga við þá bændur sem hyggjast fækka fé. Að mati bændastéttarinnar ætti einnig að efla atvinnuráðgjöf í dreif- býlum byggðum. í ályktuninni er og mælt með því að Framleiðnisjóður veiti aðstoð við markaðsleit og vöru- þróun fyrir erlenda markaði. Loks telja bændur brýna þörf á endur- skipulagningu á vinnslu- og sölu- kerfí landbúnaðarafurða. NOBUYASU Yamagata opnaði í gær myndlistarsýningu í Gall- erí 1-1 við Skólavörðustíg. A sýningunni eru 8 verk sem lista- maðurinn kallar „lýsingar", unnar með olíu á striga. Verkin eru að sögn hans öll látin hanga á hvolfi til heiðurs andfætling- um vorum, er fyrir 32 þúsund árum máluðu elstu þekktu hellamálverk í híbýlum sínum í Ástralíu. Nobayasu er Japani, en hefur búið á Islandi í rúm 19 ár. Hann kveðst mála út frá þróunarferlinu myndir-tákn-orð, og kallar hann verk sín lýsingar. „Þama sýni ég meðal annars mynd sem ég hlaut Grand Prix-verðlaun fyrir í Japan í fyrra,“ sagði Nobuyasu. Hann kvaðst hafa heillast af árþúsunda menningarþróun mannkyns, og kæmi það fram í verkum hans. Sýningin stendur til 6. ágúst og er opin daglega milli kl. 13.00 og 18.00. Fyrirtækið Sól hf. með samkeppni í breskum blöðum: Danskir teygjustökkvarar sýna listir sýnar næstu vikurnar: Fólki gefst kostur á að reyna sig FIMM danskir teygjustökkvar- ar eru staddir hér á landi um og munu þeir halda sýningu á teygjustökki við Hard Rock Café kl. 17 í dag, sunnudag. Almenningi verður gefinn kost- ur á að reyna teygjustökkið og kostar hvert stökk 4.900 krón- ur en 3.900 ef tiu manns kaupa saman jafnmörg stökk. Við stökkin er notaður krani sem er minnst 50 metra hár frá körfu niður að jörðu. Karfan rúmar tvo menn, aðstoðarmann og stökkvara. Við stökkvarann er síðan bundin teygja, um 20 metra löng, sem strekkist á þegar hann stekkur. Að sögn Jóhannesar Þórðarson- ar, sem skipulagt hefur ferð teygjustökkvaranna hingað, á teygjustökkið rætur að rekja til Afríku þar sem það var notað sem manndómspróf. Undanfarin ár hefur teygjustökkið hins vegar verið að ryðja sér til rúms sem vinsæl íþrótt víða um heim. Jóhannes segir að stökkbúnað- urinn sem Danirnir séu með hér sé þýskur og viðurkenndur fyrir öryggi. Gerðar séu kröfur til þeirra sem tækin kaupi að minnst fímm starfsmenn vinni við þau. „Hópurinn sem er hér núna kem- ur frá Kaupmannahöfn en hann ferðast um og hafa upp undir 30.000 manns stokkið hjá hon- um,“ segir Jóhannes. Mest geta tveir stokkið í einu og hefur það stundum verið gert í brúðkaupum erlendis, að sögn Jóhannesar. Teygjustökkvaramir verða við Reykjavíkurhöfn frá 20 til 24 á kvöldin út vikuna en um verslun- armannahelgina verða þeir á Laugarvatni. 15. ágúst nk. munu þeir svo halda sýningu við Reykja- víkurhöfn í tilefni af 75 ára af- mæli hafnarinnar. Morgunblaðið/Bjarni Danirnir prófuðu hluta af útbúnaðinum, sem notaður er í teygju- stökkinu, í Perlunni í gær. Draumahelei á Islandi verður fyrsti viiuiingur TVEIR Bretar munu upplifa „Draumahelgi á íslandi" í september næstkomandi. Það var íslenska fyrirtækið Sól hf. sem stóð að sam- keppninni og var hún auglýst í bresku útgáfu tímaritsins Cosmopolit- an fyrir nokkru. Nýlega birtist önnur auglýsing um samkeppni í breska tímaritinu Hello! og hljóta vinningshafar þar vikudvöl á Spáni. Er þetta liður í auglýsingu á Seltzer-gosdrykkjum Sólar hf. 1 sameiginlegri ályktun stjórna Búnaðarfélags Islands og Stéttar- sambands bænda kemur fram að þær telja ennfremur að slæmt efna- hags- og atvinnuástand geri illt verra. Fáir tekjumöguleikar séu fyr- ir hendi og því blasi ekki annað við bændum en að bregða búi. Búnaðarfélagið og Stéttarsam- bandið sjá fram á að ef ekkert verði að gert megi horfa upp á gjaldþrot fjölmargra bænda. Þess vegna er hvatt til þess að allir taki höndum saman. Jafnframt e'r skorað á ríkis- stjórnina að grípa til allra tiltækra ráða til að mæta niðurskurðinum. í ályktuninni er bent á leiðir til að milda áhrif hins fyrirsjáanlega samdráttar í sauðfjárrækt. í fyrsta Iagi er talin brýn þörf á að viður- kenna rétt bænda til atvinnubóta. Einnig er hvatt til þess að leita á erlenda markaði með það kjöt sem fellur utan nýja kvótakerfísins, greiðslumarksins. Ennfremur er þess krafist að stjórnvöld geri sauð- Að sögn Jóns Schevings Thor- steinssonar, framkvæmdastjóra ís- lensks bergvatns, er slík samkeppni í erlendum blöðum ekkert nýnæmi hjá SóL hf. Hann sagði að fyrirtækið hefði staðið fyrir ámóta uppátæki fyrir ári en þá hefðu 40 fjallahjól verið í verðlaun. „Núna í ár eru það hins vegar ferðavinningar í stað hjóla,“ sagði Jón. Þegar Jón var spurður hvers vegna öllum vinningshöfum væri ekki boðið til íslands svaraði hann að það hefði verið ætlunin. Hann kvað Sól hf. alltaf reyna að nota ísland sem mest í auglýsingum sín- um erlendis en „Draumahelgin" mundi kost sitt. Til samanburðar gat hann þess að það kostaði jafnmikið að senda þessa tvo lesendur til ís- lands og það mundi kosta fyrirtækið að bjóða átta lesendum til Spánar. Jón sagði að hugmyndin væri af- rakstur samvinnu fyrirtækisins við bresku auglýsingastofuna Flash Bang Wall Up. Hún hefur, að sögn Jóns, nýlokið 11 milljóna króna Seltzer-auglýsingaherferð hjá bresku sjónvarpsstöðinni ITV- Thames og stóð hún í þijár vikur. Aðspurður kvaðst Jón vera mjög ánægður með þátttökuna í sam- keppnum Sólar hf. Hann sagði enn- fremur að hann gæti ekki sagt til um hversu mikil áhrif svona uppá- tæki hefðu en salan hefði verið góð það sem af væri ári. Opið bréf tii dóms- málaráðherra ►Drífa Kristjánsdóttir deilir á lög- reglu og dómsmálayfírvöld fyrir meðferð og rannsókn á sifjaspells- og nauðgunarbrotum. Af því tilefni ræðir Morgunblaðið við Boga Nils- son rannsóknarlögreglustjóra og Gísla Pálsson lögreglufulltrúa./lO Galdramennirnir í Oz ►Mitt í öllum umræðum um sam- drátt og kreppu hafa þrír ungir og stórhuga menn fjárfest fyrir tæpar 30 milljónir króna í tölvum og forritum og sett á stofn þrívítt tölvuteiknifyrirtæki sem þeir nefna OZ./13 Umhverfismál í önd- vegi ►Ef A1 Goré verður næsti varafor- seti Bandaríkjanna má búast við auknum áhersium á umhverfísmál í Hvíta húsinu./14 Allir í strætó ? ►Leiðakerfi almenningsvagna á höfuðborgarsvæðinu verður sam- ræmt 15. ágúst næstkomandi um leið og nýtt fyrirtæki, Almennings- vagnar byggðasamlag, hefur starfsemi sína./16 Útsýn aftur í ísaldir ►Hjónin Sigfús Johnsen og Pálína Kristinsdóttir hafa nýverið lokið borun í gegnum íshettu Grænlands og þau segja hér frá sérstæðri dvöl sinni á jöklinum og rannsókn- um á því hvað jökullinn hefur að geyma./20 BAVINNA/RAD OQ SMÁA UOL ÝSINQAR FASTEIGNIR ► l-12 ►Þrátt fyrir að vera á áttræðis- aldri axlar Gunnar Pálsson tví- hleypuna oggildrupokann á hveiju sumri og leggst út í von um að klófesta mink./l Hittust á heysátu ►í umtöluðustu bók ársins, Díana - Sönn saga, fjallar blaðamaðurinn Andrew Morton áopinskáan hátt um hjónaband Karls og Díönu./6 Dyggðin og sannleik- urinn ►Sagan af Önnu Betúelsdóttur frá Kaldá í Önundarfirði./8 Listin þekkir engin landamæri ►Bubbi Morthens er búinn að vera í sviðsljósinu í rúman áratug og leggur nú síðustu hönd á breið- skífu sem hann hljóðritaði á Kúbu, fyrstur vestrænna tónlistarmanna þar í 34 ár./12 Af spjöldum glæpa- sögunnar ►Rauði baróninn, James Addison Reavis, átti ekki þau landsvæði sem hann þóttist eiga. Hins vegar var hann snillingur í að falsa skjöl og blekkja menn og komst upp með það árum saman./14 íslenskt tónlistarsum- ar ►íslensk tónlist er nú allsráðandi á plötumarkaði hér á landi./15 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Leiðari 18 Helgispjall 18 Reykjavíkurbréf 18 Minningar 24 Fólk f fréttum 28 íþróttir 30 Útvarp/sjónvarp 32 Gárur 35 Mannlífsstr. 4c Dægurtónlist lOc Kvikmyndir llc Myndasögur 16c Brids 16c Stjömuspá 16c Skák 16c Bíó/dans 17c Bréftilblaðsins 20c Velvakandi 20c Samsafnið 22c INNLENDAR FRÉTTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.