Morgunblaðið - 26.07.1992, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 26.07.1992, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1992 5 Island-Færeyjar: Ráðstefna um sameig- inlegar rannsóknir RÁÐSTEFNA, þar sem kynntar verða niðurstöður rannsóknar- verkefna, sem Islendingar og Færeyingar hafa unnið að saman síðastliðinn tvö ár, verður haldin í Reykjavík 20.-21. ágúst nk. Það eru heimspekideild Háskóla Is- lands og Fróðskaparsetrið í Fær- eyjum sem standa að þessari ráð- stefnu. Ráðstefnan er öllum opin. Svavar Sigmundsson, lektor við Háskóla íslands, sagði að aðdrag- andinn að þessar ráðstefnu væri sá að árið 1990 hefði komið fram áhugi í heimspekideildinni um að hefja formlegt samstarf við Fróð- skaparsetur Færeyja um að rann- saka málefni sem snertu báðar þjóð- irnar. Hugmyndin með þessum rannsóknarverkefnum væri sú að draga fram það sem þjóðirnar ættu sameiginlegt. Skipaðar hefðu verið tvær nefndir, ein við heimspeki- deildina hérlendis og ein á Fróð- skaparsetrinu, til þess að vinna að þessu máli. Að sögn Svavars kom- ust nefndirnar að þeirri niðurstöðu að gott væri að halda ráðstefnu til þess að fá yfírsýn yfir rannsóknar- sviðin sem þjóðirnar eiga sameigin- lega. Fyrirkomulagið á ráðstefn- unni væri þannig að tveir fyrirlesar- ar, einn íslendingur og einn Færey- ingur, fjölluðu um sama efnið frá sjónarhóli sinnar þjóðar. Svavar sagði að bókasafnsfræðingur hefði unnið að undirbúningi ráðstefnunn- ar dg hefði hann m.a. aðstoðað fyr- irlesara við að viða að sér efni. En stefnt væri að því að gefa fyrirlestr- ana út ásamt ítarlegri bókaskrá sem kæmi að gagni við áframhaldandi rannsóknir í fleiri greinum. Rannsóknarverkefnin sem kynnt verða eru m.a. um Færeyingasögu, kvæði og dansa, samanburð á fær- eysku og íslensku, þýðingar á milli þessara tungumála, viðtökur fær- eyskra bókmennta á íslandi og við- tökur íslenskra bókmennta í Fær- eyjum, veiðar Færeyinga við Island, mannanöfn á íslandi og í Færeyjum, og hernám Breta á íslandi og í Færeyjum í seinni heimsstyijöld- inni. Einnig verður umfjöllun um þróun íslands og Færeyja í átt til nútímaþjóðfélags, og viðhorf þjóð- anna til hvor annarar. Svavar sagði að það væri stefnt að því að halda aðra ráðstefnu í Færeyjum þar sem hægt yrði að fara yfir fleiri sameig- inleg efni t.d. byggðasögu, forn- leifarannsóknir, og samgöngur. Fyrirlestrarnir verða fluttir á færeysku og íslensku, og til þess að aðstoða áheyrendur verða út- drættir úr fyrirlestrunum látnir liggja frammi. Ráðstefnan er öllum opin. Skútu hvolfdi á Hafravatni SKÚTU, með tvo menn innbyrð- is, hvolfdi á miðju Hafravatni sl. föstudag. Lögreglunni barst til- kynning um óhappið kl. 18.13 og var bíll sendur á vettvang til aðstoðar. Mönnunum tveimur var þó aldrei nein hætta búin og tóku þeir lögregluaðstoðinni ekki vel. Þeir voru báðir undir áhrifum áfengis. Mennirnir voru í björgunarvest- um og höfðu verið nokkrar mínútur í vatninu þegar lögreglan kom á staðinn. Þeir voru færðir á lögreglustöð- ina í Reykjavík en sleppt að lokinni yfírheyrslu. Odin Air: Morgunblaðið/PPJ Ein af flugvélum Odin Air af Jetstream-gerð, en vélarnar hafa nú verið teknar af félaginu. Grænlandsflug- áfram ODIN AIR, flugfélag Helga og Jytte Jónsson, mun halda áfram áætlunarflugi til Kulusuk á Grænlandi, þótt samþykkt hafi verið innsetning I þrjár Jetstream-skrúfuþotur félagsins. Að sögn Jytte mun félagið unblaðsins hafa eigendur Odin halda áfram flugi, en hún vildi Air fullvissað samgönguráðu- ekki svara spurningum um með neytið um að áætlunarfluginu hvaða hætti það yrði gert. verði haldið áfram. Samkvæmt heimildum Morg- kiarskógi um vcrslunarmannahelgina RADDBANDIÐ SVERRIR STORMSKER BMÍMðlfL4UMIðH BARNALEIKHÚS §ON€VARAKiPPNI PÁLMIMATTHÍASSON BARHACANÍLIIKIft RISA kaníhur Hóðflokkurinn KeAiiuóh'iSVtmu 06 MARGT, MARGT FLEIRA. Stormsker ÆVINTYilALAND

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.