Morgunblaðið - 26.07.1992, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1992
7
Morgunblaðið/KGA
Gasbrennarar eins og þeir sem
notaðir eru til að hita vatn.
Gasbrennar-
ar geta ver-
ið varasamir
FRONSKU konurnar sem misstu
meðvitund í sturtuklefanum í Sig-
urðarskála í Kverkfjöllum, eins
og skýrt var frá í Morgunblaðinu
síðastliðinn þriðjudag, voru ekki
þær fyrstu sem lent hafa í slíku.
Fyrir tveimur árum leið yfir mann
í sama klefa en ekki er þó víst
að sami gasbrennari og nú er
notaður hafi þá verið í skálanum
Að sögn Skúla Magnússonar hjá
Vinnueftirliti Austurlands notast
mikið súrefni við bruna gass þótt
lítið af aukaefnum myndist við brun-
ann. Þegar konurnar lokuðu fyrir
loftstreymið að klefanum minnkaði
súrefnið en ekki köfnunarefnið í loft-
inu og við það fer bruni gassins að
verða óhreinn og myndar meðal ann-
ars kolsýrling. Það getur skýrt að
konurnar duttu nánast allar út af
um leið, sagði Skúli.
Hjá Skeljungi hf., sem flytur inn
gasbrennarana sem notaðir eru í
Kverkfjöllum, fengust þær upplýs-
ingar að þeir hafi verið seldir í mörg
ár og aldrei hafi neinar óánægju-
raddir borist inn á borð til Skelj-
ungs. Engir sérstakir staðlar ríki hér
á landi um þessa gasbrennara og
því sé farið eftir skandinavískum
stöðlum, sem þyki mjög áreiðanlegir.
Skeljungur setur tækin ekki upp
en þeim sem það gera ber skylda
til að tilky.nna það til Vinnueftirlits-
ins á svæðinu. Skúli segir að sú til-
kynningaskylda hafí verið vanrækt
í þessu tilfelli.
Ekki er vitað til þess að neins
staðar í heiminum hafi þótt ástæða
til að banna þessa gasbrennara og
tilfelli sem þessi virðast mjög sjald-
gæf. Skúli vinnur nú að skýrslu um
þetta atvik, sem hann afhendir síðan
Vinnueftirliti ríkisins og mun málið
þá vera í þeirra höndum.
Norðurlandamót í rallakstri haldið fyrsta skipti hér á landi í haust:
Tugir keppenda
spreyta sig á ís-
lenskum vegum
FYRSTA Norðurlandamótið í rallakstri sem haldið er hér á
landi, fer fram í október n.k. og mun laða að tugi erlendra
keppnisbíla og hundruð manna frá Norðurlöndum, sem keppa
munu um Norðurlandameistaratitilinn í rallakstri. Skipuleggj-
endur keppninnar hafa sett stefnuna á að gera hana það stóra
í sniðum að hún gæti átt möguleika á að verða hluti af Evrópu-
meistaramótinu í rallakstri í framtiðinni, sem þýða mundi tugi
keppenda frá öðrum Evrópulöndum og aukinn ferðamanna-
straum utan venjulegs ferðamannatíma.
„Það er stórt skref fram á við
að alþjóðarallið er til Norður-
landameistara, en hugur okkar
stefnir enn hærra í framtíðinni
ef vel tekst til. Það er búin að
vera draumur lengi að fá keppn-
ina til Norðurlandameistara, sem
þýðir heilu flugvélarnar af kepp-
endum og aðstoðarmönnum, tugi
keppnisbíla og gjaldeyri og
skemmtun fyrir landsmenn,"
sagði Olafur Guðmundsson hjá
Landsambandi íslenskra akst-
ursíþróttamanna, en hann er
einn af þeim sem hefur fylgt því
fast eftir að fá keppnina hingað
til lands síðustu ár.
„Við höfum vegina til að bjóða
útlendingum, sem keppa í rall-
akstri. Þeir eru orðnir hundleiðir
á sömu skógarleiðunum í Evrópu
og vilja meiri fjölbreytni. Rall-
akstur er geysilega vinsæl íþrótt
á Norðurlöndum og sem dæmi
þá mætir hálf milljón manna til
að fylgjast með 1000 vatna rall-
inu fínnska á ári hverju, fólk
labbar út í skóg til að sjá rallbíl-
ana æða um, enda hafa Finnar
átt marga af fremstu ökuþórum
heims síðustu áratugi. Finnarnir
Saku Viierima og Hasse Kalls-
tröm unnu í íslenska alþjóðarall-
inu í fyrra af miklu öryggi. Ef
okkur tekst að skipuleggja gott
Norðurlandamót, þá er ekkert
að vanbúnaði að halda enn stærri
keppni síðar,“ sagði Ólafur.
Tryggvi M. Þórðarson hjá Bif-
reiðaíþróttaklúbbi Reykjavíkur
er keppnisstjóri rallsins og hefur
haft nægan starfa síðustu mán-
uði við undirbúning, fór m.a. á
suður-sænska rallið til að kynna
keppnina en sú keppni er ein af
þeim stærri á Norðurlöndum.
„Það var upplifun að sjá svona
stóra keppni. Það voru 125 bflar
og flestir fjórhjóladrifnir. Sagt
var að allt að 200.000 manns
hefðu komið til að fylgjast með
képpninni sem var við Kristian-
stad,“ sagði Tryggvi í símtali við
Morgunblaðið.
„Það mun þurfa margt starfs-
fólk á mótið héma, líklega þurfa
hátt í þúsund manns að tengjast
keppninni á einn eða annan hátt
og því ekki seinna vænna að fá
áhugasmt starfsfólk. Við erum í
sambandi við björgunarfélögin,
en samkvæmt alþjóðlegum staðli
verðum við helst að manna björg-
unarbfla á 15 km fresti á keppn-
isleiðunum, í það minnsta á
hverri sérleið. Varðandi tímatöku
í keppninni þurfum við 60 klukk-
ur og sjö undanfara á undan
sjálfum keppnisbflunum, í stað
tveggja sem við notum í venju-
legum rallmótum. Við þurfum á
fjórða tonn af bensíni á bíla á
vegum keppnisstjómar fyrir utan
allt sem keppendur og aðstoðar-
menn nota. Það þarf eitthvað að
athuga með farsímakerfíð, því
líklegt má telja að flestir kepp-
endur og viðgerðarbílar verði
með farsíma í gangi og rásimar
eru fátæklegar úti á landi miðað
við það. Þetta er því risavaxið
verkefni að skipuleggja."
Tryggvi kvaðst hafa trú á því
að hátt í 70 bílar yrðu í rallinu
og að utan kæmu líklega m.a.
fjórhjóladrifnir Nissan, Toyota,
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Norðurlandamótið verður stærsta verkefni akstursíþróttamanna
hérlendis á árinu en það er liður í íslandsmótinu í rallakstri.
Finnarnir Saku Viierima og Hasse Kallström unnu í þessari keppni
í fyrra sem þá var alþjóðleg, en nú verður Norðurlandatitillinn
einnig í húfi.
Mitsubishi, • Mazda og Suzuki.
„Fyrirspurnir hafa verið margar
frá Norðurlöndum, Bretlandi og
Þýskalandi, en landslið allra
Norðurlandanna munu senda
keppnislið skipað nokkmm bíl-
um,“ sagði Tryggvi.
Norðurlandamótið hefst við
Perluna í Öskjuhlíð og vemdari
þess er Markús Örn Antonsson
borgarstjóri, sem mun ræsa
keppendur af stað. Keppninni
lýkur síðan við Hjólbarðahöllina
eftir þriggja daga akstur. Kumho
er aðalstyrktaraðili keppninnar,
en það er söluhæsta umboðið
fólksbfladekkja hérlendis.
SEM BER SAMAN KJÖR, REYNSLU OG ÞJÓNUSTU
Það er engin tiiviljun að Stúdentaráð Háskóla íslands og Samband íslenskra námsmanna erlendis gengu til samstarfs
við Búnaðarbankann!
Allt að 100% lánshlutfall af væntanlegu láni frá LÍN. § Lánsumsóknir og gögn frá LÍN fyrirliggjandi í útibúum bankans.
1 % lægri vextir, ekkert lántökugjald eða annar kostnaður. * Námslokalán, yfirdráttaheimild, skipulagsbók,
Gengið frá lánveitingu fyrir allt árii, meí einni ferð i bnnkann. V™*#"*. 9™»ÞlánMn, mnheimmÞiónnsra,
Sveigjanlegar endurgreiðslur.
Alþjóðlegt hraðbankakort fyrir námsmenn erlendis.
Gjaldeyrisþjónusta á námsmannakjörum.
Námsstyrkir á hverju ári.
Lán vegna búslóðaflutninga að loknu námi erlendis.
5% afsláttur af flutningsgjaldi búslóða með Samskipum hf.
fjármálaráðgjöf og fleira.
Námsmannalínan er fyrir
alla námsmenn
18 ára og eldri.
NAMS
BUNAÐARBANKINN
-svarar kröfum námsmanna
LINAN A
HVÍTA HÚSIÐ / SlA