Morgunblaðið - 26.07.1992, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1992
JALLABIL
sviss
Lax osr brenni-
vín á hestasýningu
Texti: Anna Bjarnad6ttir
Svissneska hestakonan og ís-
landsvinurinn Simone Rubli
var fyrir nokkru önnum kafín við
að undirbúa íslandsdaga á stærstu
hestasýningu Sviss sem haldin var
í Bern frá 17. til 21. júní. Hesta-
sýningin hefur hingað til verið
hluti af risastórri landbúnaðarsýn-
ingu í Bern (BEA) annað hvert
ár en var nú haldin sjálfstætt i
fyrsta sinn. „Það var reiknað með
allt að 60.000 gestum,“ sagði Sim-
one „og við létum það ekki fara
fram hjá neinum að ísland var
aðallandið að þessu sinni.“
Um 800 manns eru í Félagi ís-
lenskra hestaeigenda í Sviss og
talið er að um 3.000 hestar af ís-
lenskum uppruna séu í landinu.
Simone segir að flestir sem falla
fyrir íslenskum hesti falli einnig
fyrir landinu. „Það fer bara sam-
an,“ segir hún, en sjálf á hún ís-
lensku hestana Hrapp, Vin og
Kol, nokkrar íslenskar hænur og
hana.
Lönd eins og Þýskaland og
Frakkland, með „klassíska“ hesta,
hafa hingað til verið aðallöndin á
hestasýningunni. íslenski hestur-
inn og heimaslóðir hans voru sér-
staklega kynnt að þessu sinni. Það
felst í því að íslenskir hestaeigend-
ur fengu meiri tíma en aðrir til
að sýna hesta sína og reiðmenn á
íslenskum hestum fóru um sýning-
arsvæðið nokkrum sinnum á dag
til að vekja athygli á kynningar-
bási íslensku hestaeigendanna.
Hann var stærri en kynningarbás-
ar annarra og þar voru veittar
upplýsingar um íslenska hesta,
land og þjóð.
Það gegnir enn nokkurs mis-
skilnings um íslenska hestinn er-
lendis þrátt fyrir vinsældir hans.
Hann er oft kallaður „pony“, en
það er auðvitað rangnefni af því
að hann er enginn smáhestur þótt
hann sé stuttur til hnésins; sumir
halda að hann sé bara hentugur
börnum og ekki nógu sterkur til
að bera fullorðna; og enn aðrir
halda að það sé verið að fara illa
með hann þegar hann kýs að híma
úti í kulda og snjó frekar en að
hanga inni í hesthúsi.
Simone sagði að fyrst eftir að
íslenski hesturinn kom til Sviss
hefði stundum verið haldið að eitt-
hvað væri athugavert við göngulag
hans þegar hann tölti eða brá á
skeið. Nú vita flestir betur og
kunna að meta íslenska hestinn
fyrir meðfædda hæfni hans. Hans
Pfaffen, hestaeigandi og dómari á
mótum íslenskra hesta eins og
Simone, stóð fyrir sérstakri göngu-
sýningu og -keppni á hestasýning-
unni 20. júní. Sérgáfa íslenskra
hesta var þá borin saman við
göngulagsex„útlendra“ hestastofna
SP/CER
itetiva BorgWnmer
6m> Automonve
timken
Engiii tilraimadýr notuð hjá No Name
Fyrirtækið Rek-ís hf, sem er
m.a. umboðsaðili fyrir snyrti-
vörulínuna „No Name“ stóð fyrir
sumarkynningu á vörunum fyrir
nokkru. Kristín Stefánsdóttir
snyrti- og förðunarfræðingur og
einn eigenda Rek-ís segir að hér
sé um amerískar vörur að ræða
og séu þær ofnæmisprófaðar og
ilmefnalausar. Og að dýr á til-
raunastofum séu ekki notuð í vöru-
þróuninni.
Kristín segir að No Name sé
eingöngu litalína sérstaklega valin
fyrir íslenskar aðstæður og íslenskt
kvenfólk og að fáar f litalínur
geti staðið við slíkar fullyrðingar.
Þær stúlkur sem kynnt hafa No
Name eru Elín Reynisdóttir fyrrum
ungfrú Hollywood, Jóna Björk fyr-
irsæta, Linda Pétursdóttir fyrir-
sæta og fyrrum ungfrú heimur og
Unnur Steinson fyrirsæta. Sumar-
stúlka No Name nú er hins vegar
Laufey Bjarnadóttir sem að auki
er forsíðustúlka Sam-útgáfunnar
1992.
Til sölu Ford Econoline E-250 með framdrifi, 35“ dekkjum,
álfelgum, tvöföldu rafkerfi, bensínmiðstöð, geislaspilara,
CB-talstöð, innréttaður o.fl. o.fl. o.fl. Bílnum var breytt hjá
Fjallabílum/Stáli og stönsum hf.
Mjög fallegur og vandaður bíll.
UpplýsingargefurJón ísímum 91 -671412 og 985-36119.
Frá kynningunni, Laufey er
lengst t.v. og Kristín Stefánsdótt-
ir lengst t.h.
SNYRTIVÖRUR
KVIKMYNDALEIKUR
„Léttur
sveitakrimmi“
Þetta er léttur sveitakrimmi," seg-
ir Bára L. Magnúsdóttir, leik-
kona, um sænsku sakamálaþáttaröð-
ina „Polisen och domarmordet". Bára
fer með hlutverk íslenskrar stúlku
sem flækist inn í morðmál í smábæn-
um Strömstad í Svíþjóð en hún er
grunuð um að hafa myrt virtan dóm-
ara. Upptökur fara fram í Svíþjóð
og á íslandi. Það er TV-2 í Gauta-
borg sem framleiðir þáttaröðina en
hún er sú fjórða sem gerð er eftir
sögum Gösta Unesed. Bára var í
Svíþjóð í byijun júní við innitökur
en útitökur fara fram í september í
Svíþjóð og í október á íslandi.
Bárá segir þáttaröðina fjalla um
fjórar ólíkar löggur sem vinna að
morðmáli í Strömstad. Löggurnar
fjórar hafa allar verið í aðalhlutverki
í hinum þáttaröðunum þremur. Virt-
ur dómari fínnst myrtur og fljótlega
berast böndin að ungri konu sem er
að læra til lögfræðings og var í
starfsþjálfun hjá dómaranum. Kon-
an, sem heitir Ulrika Tómasdóttir,
er íslensk og áður en ljóst er að hún
er sú grunaða hefur hún farið heim
til foreldra sinna sem búa norður við
Mývatn. Lögreglan þarf því að elta
hana alla leið til íslands til þess að
komast að hinu sanna í málinu.
Bára segir söguþráðinn skemmti-
legan og góðan húmor vera í þátt-
unum. „Það er ekkert ógeðslegt í
þessum þáttum og morðin eru mjög
pen. Þetta er allt venjulegt fólk sem
á í sínu daglega amstri og það á sinn
þátt held ég í vinsældum þessara
þátta í Svíþjóð. Frá Stokkhólmi
streyma núna spennuþættir af am-
eríska taginu þar sem mikill hraði
og ofbeldi ráða ríkjum og fólk er
bara orðið þreytt á því.“
Bára mun seint teljast hávaxin
kona og segir hún leikstjórann hafa
farið að hlæja þegar hann hitti hana
í fyrsta skipti úti í Svíþjóð. Ástæðan
er sú að mótleikari Báru er yfír tveir
metrar á hæð og 150 kg!
Margir kunnir leikarar Svía leika
í þáttunum um lögguna og dómara-
morðið en Bára segir það ekki hafa
verið erfítt að koma inn í hópinn.
„Það var tekið yndislega á móti mér
og þetta var allt mjög afslappað.
Leikstjórinn, Arne Lifmark, er frá-
bær og ég treysti honum strax frá
byrjun. Hópurinn er mjög samheld-
inn enda hafa flestir einnig verið
með í hinum þáttaröðunum þremur.
Sænskan er mitt annað mál svo það
var ekkert erfítt fyrir mig að leika
á sænsku.
Sjónvarpsvinnan er auðvitað tals-
vert öðruvísi en vinna í leikhúsi þar
Bára L.
Magnús-
dóttir leikur
íslenska
stúlku í Sví-
þjóð sem
grunuð er
um morð
á virtum
dómara.
Morgunblaðið/Bjarni
með sýninguna „Bannað að hlæja“
og afleiðingar stríðsins blöstu við.
„Það var áfall að koma til Króatíu,
við bjuggum á hóteli með 4-500
flóttamönnum og mikil eymd og alls-
leysi var ríkjandi. Upp um alla veggi
voru auglýsingar um týnd ættmenni,
sum höfðu ekki sést í ár og maður
fann til mikils vanmáttar. Það var
eins og listin yrði allt í einu hégómi
einn, þrátt fyrir það veit maður að
listin blómstrar ekki hvað síst á erfið-
um tímum og áhorfendur í Zagreb
voru mjög þakklátir."
Bára segist hafa fengið leikhús-
brúðudellu eftir hátíðina í Ljubliana
og segir hún möguleikana í brúðu-
leikhúsinu óþrjótandi en talsvert sé
enn í land að það njóti sömu virðing-
ar hér heima og það geri víðs vegar
annars staðar.
Bára er formaður Samtaka um
bama- og unglingaleikhús á íslandi
ög þau samtök eru meðlimir í alþjóð-
legum samtökum barna- og ungl-
ingaleikhúsa, ASSITE. Jafnframt því
sem hún vinnur að málefnum þeirra
samtaka heldur hún áfram vinnu hjá
sænska sjónvarpinu. I september
verða útitökur á „Polisen och domar-
mordet" í Strömstad og í október
færist leikurinn til íslands en hér
verða tökur bæði í Keflavík og svo
norður við Mývatn. Áætlað er að
þáttaröðin verði tilbúin í febrúar og
væntanlega verður hún sýnd
sænska sjónvarpinu fljótlega upp úr
því. gþg
- segir Bára L.
Magnúsdóttir um
sænska sakamála-
þáttaseríu sem hún
leikur í og er að
hluta tekin upp hér
á landi
sem atburðarásin er ekki tekin í réttri
röð í sjónvarpsupptökunni og maður
getur líka leyft sér að nostra meira
við smáatriði. Leiktæknin er þó alltaf
sú sama og ég hugsa aðallega um
að gera þessa persónu trúverðuga."
Með Leikbrúðulandi í Zagreb
Bára getur ekki kvartað yfir til-
breytingaleysi það sem af er þessu
sumri. Þegar hún hafði lokið við að
leika í Svíþjóð í júní fór hún beint
til Júgóslavíu ásamt öðrum meðlim-
um Leikbrúðulands. Þar tók Leik-
brúðuland þátt í UNIMA-hátíðinni
sem er stærsta og virtasta brúðuleik-
húshátíð í heimi. Hátíðin var haldin
í Ljubliana í Slóveníu og segir Bára
að hörmunga borgarastyijaldarinnar
hafi lítið kennt þar og fólk hafi allt
verið mjög alúðlegt og hjálplegt.
Leikbrúðuland fór einnig til Zagreb