Morgunblaðið - 26.07.1992, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1992
GOLF / LANDSMOT
Fellur
Björgvins?
Sex meistaratitlar og þar af fimm í röð
KEPPNI í meistaraflokkum á
Landsmótinu í golfi, því 51. í
röðinni, hefst á Grafarholts-
velli Golfklúbbs Reykjavíkur á
þriðjudaginn og lýkur á föstu-
daginn. Björgvin Þorsteinsson
úr Golfklúbbi Akureyrar hefur
oftast allra orðið íslandsmeist-
ari, sex sinnum, og íslands-
meistari síðustu þriggja ára,
Úlfar Jónsson úr Keili, getur
jafnað það met ef hann sigrar
nú.
Björgvin Þorsteinsson á tvö met
í golfinu. Hann hefur oftast
orðið íslandsmaistari eða sex sinn-
•■■■■■ um alls og hann er
Eftir sá eini sem hefur
Skúla Unnar orðið íslandsmeist-
Sveinsson ar; fimrn sinnum í
röð. Hann varð fyrst
íslandsmeistari árið 1971 og síðan
árin 1973-1977. Úlfar Jónsson get-
ur jafnað fyrra metið með sigri á
mótinu að þessu sinni. Hann varð
fyrst íslandsmeistari árið 1986 og
aftur 1987. Síðustu þijú ár hefur
hann einnig orðið íslandsmeistari.
Það þarf varla spámannlega vax-
inn mann til að veðja á að Úlfari
takist að veija íslandsmeistaratitil-
inn. Hann virðist vera vel á boltan-
um þessa dagana og hefur sýnt það
og sannað á undanförnum árum að
hann er besti kylfingur landsins.
Hann hefur rétta skapið og lætur
mótlætið ekki fara í taugarnar á
sér heldur eflist hann við mótlætið.
Slíkt hefur ekki lítið að segja í fjög-
urra daga móti þar sem mikilvægt
er að halda haus því það þarf ekki
mikið útaf að bera til að menn missi
af lestinni.
En það eru fleiri góðir kylfingar
sem koma til greina sem Islands-
meistarar þó það sé mín spá að það
verði Úlfar sem veiji titilinn. Sigur-
jón Arnarsson úr GR er trúlega þar
efstur á blaði, en hann er með núll
í forgjöf sem er næst lægsta for-
gjöf kylfinga. Úlfar er með + 1 í
forgjöf. Siguijón hefur leikið vel í
sumar og á dögunum varð hann í
18. sæti á Opna þýska meistaramót-
inu. Hann hefur örugglega fullan
hug á að verða íslandsmeistari því
titillinn sá er einn af fáum titlum
sem hann á eftir að krækja í. Hvort
það hvetur hann til dáða eða setur
of mikinn þrýsting á hann verður
að koma í ljós.
Nokkrir félagar Úlfars úr Keili
gætu einnig blandað sér í toppbar-
áttuna. Guðmundur Sveinbjömsson
er með 1 í forgjöf og Björn Knúts-
son er stigahæstur eftir „landsliðs-
mótin“ í sumar og þá er Tryggvi
Traustason einnig ofarlega á blaði.
Björgvin Þorsteinsson íhugar næsta leik
reynir örugglega að halda metum sínum.
Morgunblaðið/Óskar Sæmundsson
stöðunni. Hann verður í eldlínunni á Grafarholtsvelli næstu dagana og
Margir ungir kylfingar gætu
staðið sig vel á mótinu þó svo þeir
verði varla sigurvegarar að þessu
sinni, en þeirra tími kemur. í þess-
um hópi eru m.a. Sigurpáll G.
Sveinsson frá Akureyri og Akumes-
ingarnir Birgir Leifur Hafþórsson,
Þórður Emil Ólafsson og Kristinn
G. Bjarnason. Tryggvi Pétursson
úr GR mun einnig láta að sér kveða.
Fleiri kylfinga má nefna. Þor-
steinn Hallgrímsson úr Vestmanna-
eyjum hefur blandað sér í baráttuna
á toppnum í sumar og það verður
fróðlegt að sjá hvort hann gerir það
á Landsmótinu. Ekki má gleyma
,,gömlu“ kempunum. Þar er Ragnar
Ólafsson úr GR líklegur til alls.
Hann varð íslandsmeistari 1981 og
hefur allar götur síðan verið nærri
titlinum. Nýkrýndur Reykjavíkur-
meistari, Sigurður Hafsteinsson,
GR, hefur aldrei leikið eins vel og
í sumar. Sveinn Sigurbergsson úr
Keili er einnig í þessum hópi svo
og íslandsmeistarinn frá 1988, Sig-
urður Sigurðsson úr GS. Og auðvit-
að má ekki gleyma Björgvini Þor-
steinssyni úr GA.
Þrátt fyrir þessa upptalningu
held ég að baráttan muni standa á
milli Úlfars Jónssonar og Guðmund-
ar Sveinbjörnssonar úr Keili og
þeirra Siguijóns Amarssonar og
Sigurðar Hafsteinssonar úr GR.
Morgunblaðið/Óskar Sæmundsson
Úlfar Jónsson úr Keili hefur verið besti kylfíngur landsins undanfarin ár. Hann
telur að hart verði barist á Landsmótinu og segir að ekki dugi annað en leika
vel ætli hann sér sigur.
Sá besti
Líklegt
að Karen
setjinýtt
met
ÞAÐ er ekki hægt að segja að
konurnarfjölmenni á Lands-
mótið í golfi. Aðeins sjö kepp-
endur eru í meistaraflokki og
alls eru konurnar 18 að þessu
sinni. íslandsmeistarinn Karen
Sævarsdóttir úr Golfklúbbi
Suðurnesja verður að teljast
sigurstranglegust og ef hún
sigrar setur hún nýtt met, verð-
ur sú eina sem hefur orðið ís-
landsmeistari fjögur ár f röð.
Karen er með 4 í forgjöf og
ætti því að eiga tvö högg á
hveijum hring á Ragnhildi Sigurð-
ardóttur úr GR og þrjú högg á
Þórdísi Geirsdóttur úr Keili. En
forgjöfm segir ekki allt og þó svo
Karen hafi verið í nokkrum sér-
flokki síðustu ár, eða allt frá því
hún varð fyrst íslandsmeistari árið
1989 þá aðeins 16 ára gömul, verð-
ur hún engu að síður að leika vel
til að halda titilinum. Bæði Raghild-
ur og Þórdís eru líklegar til að skjót-
ast fram fyrir hana ef eitthvað fer
úrskeiðis.
Karen er íslandsmeistari þriggja
síðustu ára en Jakobína Guðlaugs-
dóttir úr Vestmannaeyjum hefur
fjórum sinnum orðið íslandsmeist-
ari og getur Karen því jafnað það
met ef hún sigrar í ár. Þijár konur
auk Karenar og Jakobínu hafa þrí-
vegis orðið íslandsmeistar. Þær em
Guðfinna Sigþórsdóttir, GS, sem er
móðir Karenar, Jóhanna Ingólfs-
dóttir GR og Sólveig Þorsteinsdótt-
ir, GR. Jakobína, Jóhanna og Sól-
veig unnu allar þijú ár í röð og
Karen lék það eftir síðustu þrjú
árin og ef hún sigrar í ár þá jafnar
hún met Jakobínu, og verður fyrsta
stúlkan til að sigra fjögur ár í röð.
Morgunblaöið/Óskar Saemundsson
Su besta ■ ■ ■
Karen Sævarsdóttir hefur verið í nokkrum sérflokki íslenskra kvenna í golfi
undanfarin ár. Hún á von á spennandi keppni í meistaraflokki kvenna að þessu
sinni og vonar hið besta.