Morgunblaðið - 26.07.1992, Blaðsíða 36
Hraðori póstsendingar
milli landshluta
KJÖRBÓK
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
20 ára afmæli ein-
vígis aldarinnar;
Hugmyndin
að fá Fischer
hingað sem
heiðursgest
— segir Guðmundur
G. Þórarinsson for-
seti Skáksambandsins
GUÐMUNDUR G. Þórarinsson
forseti Skáksambandsins segir
að það hafi verið rætt lauslega
innan sambandsins hvort mögu-
leikar væru á að fá Bobby Fisc-
——her hingað til lands sem heið-
ursgest í tengslum við 20 ára
afmæli einvígis hans og Spassk-
ís. „Það er ekki útilokað að
skoða þessa hugmynd nánar
fari svo að Fischer tefli við
Spasski í Júgóslavíu í haust,“
segir Guðmundur. Sæmundur
Pálsson, sem aðstoðaði Fischer
1972, segir að hann telji góðar
líkur á að Fischer fari að tefla
opinberlega ef hann á annað
borð mætir til leiks í Júgó-
slaviu.
Að sögn Guðmundar G. Þórar-
inssonar segir að oft hafi komið
upp sögusagnir um að Fischer
ætli að tefla á ný og ef hann tefli
við Spasskí nú séu það sérlega
ánægjuleg tíðindi. „Við reyndum
að fá hann hingað til lands í tengsl-
um við 10 ára afmæli einvígisins
og það bar engan árangur," segir
Guðmundur. „Við höfðum heldur
ekki bundið miklar vonir við að fá
hann nú, að minnsta kosti ekki til
að tefla. En í framhaldi af þessu
tafli þeirra Spasskís í Júgóslavíu
er vert að skoða þá hugmynd nán-
ar hvort hægt sé að fá hann sem
heiðursgest hingað til lands.“
Sæmundur Pálsson segir að
hann hafi ekki rætt við Fischer í
10 ár en hann fékk kveðju frá
honum í fyrra í gegnum Kavelek
forstöðumann heimsbikarmót-
anna. „Það er ánægjulegt ef Fisc-
her teflir við Spasskí nú og ég tel
að ef Fischer mætir til leiks geti
það orðið upphafið að því að hann
fari að tefla á ný,“ segir Sæmund-
ur. „Ég veit að Spasskí hefur ver-
ið að vinna að því í rólegheitum
undanfarin ár að fá Fischer aftur
að skákborðinu og það virðist hafa
tekist nú. Sennilega eru það hinar
háu flárhæðir sem í boði eru sem
freistað hafa Fischers enda er hann
blankur um þessar mundir."
Sjá nánar um einvígi aldar-
innar á bls. 6.
Bifreiðin
endastakkst
Borg, Miklaholtshreppi
Umferðaróhapp varð hér
á þjóðveginum í Miklaholts-
hreppi aðfararnótt laugar-
dagsins er bifreið lenti utan
vegar og endastakkst.
I bflnum voru tveir farþegar
auk bflstjóra. Þeir voru í belt-
um og sluppu að mestu
ómeiddir en bfllinn en er ónýt-
ur.
-Páll .
Lögreglan
amast við
bjórdiykkju
utandyra
Fólk þykist vera
að drekka pilsner
þegar spurt er
LÖGREGLAN hefur á undan-
förnum dögum þurft að grípa
í taumana þar sem vínveitinga-
staðir hafa veitt áfengan bjór
utandyra í görðum og á gang-
stéttum í góðviðrinu. Sam-
kvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa gestir sumra
veitingahúsa fengið þau fyrir-
mæli að segjast vera að drekka
pilsner ef farið væri með bjór-
kolluna út undir bert loft og
einhver sýndi innihaldinu
áhuga. I reglugerð er kveðið
á um, að áfengisveitingar megi
einungis fara fram innan
veggja veitingahúsanna.
Ómar Smári Ármannsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn hjá Lög-
reglunni í Reykjavík segir að ekki
sé um sérstaka herferð að ræða
þessa dagana, heldur sé hér á
ferðinni reglulegt eftirlit. Ef lög-
regla fái ábendingu um, að á
ákveðnum veitingastað fari fólk
með bjórkollu út undir bert Ioft,
sé haft samband við veitingamann
og reglugerðarákvæðin áréttuð.
Yfirleitt leysast málin með áminn-
ingu, en ef menn láta sér ekki
segjast, er gripið til frekari að-
gerða, að sögn Ómars Smára.
í máli Ómars Smára kemur
fram að enn sem komið er af þessu
sumri hafi ekki komið til vand-
ræða vegna bjórdrykkju utandyra
á veitingahúsum.
Ingimar Skjóldal hjá lögregl-
unni á Akureyri segir að borið
hafi á því að undanfömu að veitt
væri áfengi utandyra. Það hefði
þá verið talað við viðkomandi að-
ila og málin leyst.
Miklar breytingar framundan á strætisvagnakerfi höfuðborgarinnar:
Almenningssamgöngfur
samræmdar frá 15.
LEIÐAKERFI almenningsvagna á höfuðborgarsvæðinu verður
samræmt 15. ágúst nk. um leið og nýtt fyrirtæki, Almenningsvagn-
ar byggðasamlag, hefur starfsemi sína. Fyrirtækið er sameigin-
legt fyrirtæki sex sveitarfélága, Bessastaðahrepps, Garðabæjar,
Hafnarfjarðar, Kjalarneshrepps, Kópavogs og Mosfellsbæjar. Með
nýja leiðakerfinu verða ferðir í þessum sveitarfélögum víðast
hvar tíðari og verður leiðakerfið tengt leiðakerfi Strætisvagna
Reykjavíkur auk þess sem það mun tengjast innbyrðis.
Á milli Hafnarfjarðar, Garða-
bæjar og Kópavogs annars vegar
og Reykjavíkur hins vegar mun
ganga hraðleið og munu innanbæj-
arleiðir í hverri byggð aka að
skiptistöðvum, þar sem farþegar
geta tekið hraðvagninn. Þá mun
hraðleið ganga á milli Reykjavíkur
og Mosfellsbæjar. Leiðakerfið
verður samræmt leiðakerfi Stræt-
isvagna Reykjavíkur og munu
vagnarnir því aka til allra aðal-
skiptistöðva SVR í Reykjavík. Þá
verða vagnár Almenningsvagna
bs. mjög líkir vögnum SVR, gulir
og svipaðir að stærð.
Að jafnaði munu vagnar Al-
menningsvagna bs. aka á 20 mín-
útna fresti. Undantekningar verða
leiðir í Mosfellsbæ, en þangað
verður ekið á 30 mínútna fresti,
og í Bessastaðahrepp á 60 mín-
útna fresti. Á kvöldin og um helg-
ar verða vagnamir yfirleitt á 30
mínútna fresti í stað 20 mínútna.
Fram til áramóta verður gerð
tilraun með að láta vagn aka fram
til kl. 4 aðfaranætur laugardaga
og sunnudaga. Ekið verður frá
miðbæ Reykjavíkur til Kópavogs,
Garðabæjar og Hafnarfjarðar.
Fargjald í vagninn verður 200
krónur.
Að öðru leyti verður verð á far-
gjöldum það sama og gert er ráð
fyrir í verðskrá sem taka mun gildi
hjá Strætisvögnum Reykjavíkur í
haust. Eitt far mun kosta 100
krónur en afsláttarmiðar verða á
ágúst
90 krónur. Fyrir böm á aldrinum
6 til 11 ára mun hvert far kosta
50 krónur en einnig verður hægt
að kaupa afsláttarmiða á 25 krón-
ur. Sveitarfélögin munu hvert fyr-
ir sig taka ákvörðun um verð á
miðum fyrir aldraða og öryrkja.
Græn kort munu gilda í vögnum
Almenningsvagna eins og í vögn-
um SVR.
Tvö fyrirtæki munu sjá um
akstur hjá Almenningsvögnum
næstu 5 ár. Hagvagnar hf. í Hafn-
arfirði, Garðabæ, Bessastaða-
hreppi, Kópavogi og á leiðum milli
Hafnarfjarðar og Reykjavíkur en
Meiriháttar hf. í Mosfellsbæ og
milli Mosfellsbæjar og Reykjavík-
ur' Sjá grein á bls. 16 og 17.