Morgunblaðið - 30.07.1992, Blaðsíða 1
GARÐYRKJUSTÖDVAR: Gagnrýna vinnubrögð Reykjavíkurborgar /4
TÖLVUR: Newton, nýjasta nýtt í tölvum /6-7
Pttjr^iunWíií»iií>
VIÐSKIFn AIVINNULIF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 30. JULI 1992
BLAÐ
B
Tryggingar
Skandia á íslandi flytur
íHeklu-húsið
SKANDIA á íslandi hefur tekið húsnæði Heklu hf. að Laugavegi
170-172 á leigu frá 1. október nk. Fyrirhugað er að hafa þar höfuð-
stöðvar fyrirtækjanna þriggja, Vátryggingafélagsins Skandia hf.,
Líftryggingafélagsins Skandia hf. og Fjárfestingarfélagsins Skandia
hf. Ætlunin er að þar fari fram sala á tryggingum en söludeildirnar
í Kringlunni og Hafnarstræti verða væntanlega óbreyttar. Gísli Orn
Lárusson forstjóri sagði að stefnt væri að því að flylja í október.
Húsnæðið sem Skandia leigir er
þriðja hæðin í Heklu-húsinu og
hluti af annarri hæðinni, samtals
um 1.500 fm. Ætlunin er að flytja
alla starfsemina sem er núna á
Sóleyjargötu 1 og í Tryggvagötu.
Hugsanlegt er að hluti af starfsem-
inni í Hafnarstræti og Kringlunni
verði einnig fluttur. Starfsstöðvum
fækkar því úr fimm í þijár. Fyrir-
tækin þrjú verða rekin sem sjálf-
stæðar einingar en með flutning-
unum er möguleiki að samnýta
ýmislegt í rekstrinum.
Helstu ástæður fýrir flutningun-
um sagði Gísli Örn vera að það
væri markmið nýrra hluthafa að
ná sem hagkvæmastri rekstrarein-
ingu og þar sem húsnæðið á Sóleyj-
argötunni væri orðið alltof lítið.
væri þetta mjög hagkvæmur kost-
ur. „Við álítum einnig að staðurinn
sem varð fyrir valinu sé góður og
liggi vel við viðskiptavinum okkar.
I leiðinni erum við að aðlaga okkur
að þeirri aukningu sem orðið hefur
í rekstrinum og búa okkur undir
frekari aukningu sem virðist vera
í augsýn.“
Gísli Öm sagði að það hefði
verið hagkvæmara að leigja hús-
næði en kaupa og að leigusamning-
urinn við Heklu væri hagstæður
fyrir báða aðila. Hjá Skandia á
íslandi starfa um 45 manns.
Hlutabréf
Sölu á hlutabréfum í
Glóbus frestað
SÖLU á hlutabréfum í Glóbus
hf. að söluvirði 50 milljónir hefur
verið frestað til haustsins. Búið
var að selja hlutabréf fyrir 100
milljónir í vor í lokuðu hluta-
bréfaútboði en fyrirhugað var
að selja fyrir 150 milljónir. Pálmi
Sigmarsson f ramk væmdastj óri
Handsals segir að nú sé almennt
litill áhugi á kaupum á hlutabréf-
um og nánast engin viðskipti
hafi verið á hlutabréfamarkaðn-
um að undanförnu, því hafi ver-
ið ákveðið að fresta sölunni þar
til aðstæður á markaðnum verða
hagstæðari og efnahagsástand
hefur skýrst.
Pálmi segir að lífeyrissjóðirnir
haldi að sér höndum varðandi
hlutabréfakaup í bili og kaupi frek-
ar skuldabréf. „ Aðstæður hafa lík-
lega aldrei verið eins slæmar frá
því að hlutabréfamarkaðurinn fór
af stað. Samdrátturinn í efnahags-
lífinu hefur sitt að segja og það
hræðir menn frá kaupum á hluta-
bréfum.“ Pálmi segir að þrátt fyrir
að hægt sé að gera hagstæð kaup
á hlutabréfum vegna lágs verðs
hafi mjög fáir hér á landi nýtt sér
það. „Helsta ástæða þess er án efa
sú óvissa sem er framundan vegna
skerðingar á kvóta og áframhald-
andi samdráttar í þjóðfélaginu."
FYRIR ÞÁ SEM GETA ÁKVEÐIÐ FERÐIR SÍNAR MEÐ MEIRA ÉN FJÖGURRA DAGA FYRIRVARA
i SAGA Nýja Saga Class sérgjaldið,* sem er 20% lægra en fullt Saga Business Class
“W'“fwí“14‘
M
»”■ ******
BUSINESS fargjald , gildir frá öllum áfangastöðum innanlands. Saga Class sérgjald er
CLASS bundið því skilyrði að bókað sé og greitt samtímis a.m.k. fjórum dögum fyrir
brottför. Saga Class sérgjald gildir einungis báðar leiðir í beint flug og er miðað við að flogið
sé fram og til baka á sömu flugleið. Heimferð þarf að bóka með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.
20%
og
QUQD
Saga Class sérgjald gildir til eftirtalinna áfungastaóa:
Kauptnannahöfn, Ósló, Gautaborg, Stokkbólmur,
Helsinki (1.6. - 7-9.), Glasgow, London, Amsterdam, Lúxemborg.
*báð samþykki yfirmlda. Gildistimi til 31.10.1992
FLUGLEIDIR
Traustur tslenskur ferðafélagi