Morgunblaðið - 30.07.1992, Blaðsíða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1992
Hlutabréf
Fáir nýta, lágtgengi
á hlutabréfamarkaði
ÞRÁTT fyrir að nú sé hægt að gera hagstæð kaup á hlutabréfamark-
aði vegna þess hve gengi hlutabréfa hefur farið lækkandi að undan-
förnu eru fáir sem virðast notfæra sér það og viðskipti hafa sjaldan
verið minni. Skúli G. Sigfússon, hjá Landsbréfum, sagði að um aukn-
ingu væri að ræða í fyrirspumum frá fjárfestum, en ekki eins mikla
og eðlilegt mætti telja miðað við lágt gengi.
Eins og kunnugt er tók Opni tilboðs-
markaðurinn, (OTM), til starfa
snemma í maí sl. Frá þeim tíma
má merkja aukningu í hlutabréfa-
viðskiptum og að sögn Skúla má
líta á hana sem vissa vísbendingu
um að viðskiptin glæðist á næst-
unni. í maí námu viðskipti á OTM
Fyrirtæki
Umbúðamið-
stöðin kaupir
Hverfiprent
UMBÚÐAMIÐSTÖÐIN hf. hefur
keypt rekstur umbúðafyrirtækis-
ins Hverfíprents hf. Umbúðamið-
stöðin er í alhliða öslgufram-
leiðslu, en framleiðir þó einkum
öskjur undir sjávarútvegsafurð-
ir, auk allrar almennrar prentun-
ar. Hverfiprent hf. framleiðir
einkum plast sem sett er í öslqur
undir afurðir í sjávarútvegi,
brauðpoka fyrir bakarí, plast-
poka og umbúðir fyrir sælgætis-
iðnaðinn. Fyrirtækið er með
18-20% markaðshlutdeild í inn-
lendri framleiðslu í tonnum talið.
Umbúðamiðstöðin hf. tekur
formlega við rekstri Hverfíprents
hf. um miðjan september nk. Guð-
mundur Karlsson, framkvæmda-
stjóri Umbúðamiðstöðvarinnar,
sagði að með kaupunum á Hverfí-
prenti geti Umbúðamiðstöðin eflt
starfsenii sína og boðið viðskipta-
vinum upp á aukna og fjölbreyttari
þjónustu.
Hverfíprent er 25 ára fyrirtæki
í eigu hjónanna Ólafs Magnússonar
og Helgu Kristinsdóttur. Að sögn
Olafs er ástæðan fyrir sölunni sú
að þeim hjónum hafi fundist rétti
tíminn kominn til að draga sig í
hlé frá atvinnurekstri enda séu þau
bæði komin yfír miðjan aldur.
og meðal skráðra félaga á Verð-
bréfaþingi alls 11.7 milljónum
króna. I júní var upphæð hluta-
bréfaviðskiptanna um 20,7 milljónir
og 28. júlí var upphæð viðskipta í
þessum mánuði orðin um 36,4 millj-
ónir króna skv. upplýsingum frá
Verðbréfaþingi íslands.
„Ástæða þess að viðskiptin auk-
ast ekki í kjölfar lækkandi gengis
er sú að markaðurinn er ekki enn
orðinn þróaður hér og menn lesa
hann «kki nógu vel. Þá má nefna
að á þróuðum mörkuðum erlendis
eiga stofnanafjárfestar eins og líf-
eyrissjóðir og stærri fjárfestar um
30% af hlutafé á markaði, en um
70% af veltunni er vegna kaupa og
sölu hjá þeim. Hér á landi eiga stofn-
anafjárfestar líklega um íjórðung
hlutaflár, en eru langt frá því að
vera nógu virkir,“ sagði Skúli. „Þess-
ir aðilar eru stórir á frummarkaði
en við bíðum eftir að þeir láti til sín
taka á eftirmarkaði við kaup og
sölu bréfa,“ sagði Skúli.
Aðspurður sagði Skúli að búast
mætti við að hlutabréfaverð ætti enn
eftir að lækka hjá einhveijum fyrir-
tækjum og þá helst í sjávarútvegi.
Tilboð og viðskipti á hlutabréfamarkaði 29.05.92 Heildar- 30.06.92 Heildar- 28.07.92 Bestu tilboð viðsk. í mai, Bestu tilboð viðsk. í júní, Bestu tilboð VERÐBRÉFAÞING: Kaup Sala þús. kr. Kaup Sala þús. kr. Kaup Sala Heildarviðsk. 1.07-29.07, þús. kr.
Eimskip 4,30 4,77 2.523 3,90 4,29 4.951 4,10 4,43 10.491
Fluqleiðir hf. 1,38 1,68 6.728 1,40 1,68 1.787 1,51 1,68 3.452
OLÍS 1,55 - 81 1,55 - - 1,50 - -
Fiárfestinqarfélaqið hf. - - - 1,18 - - 1,18 -• -
Hlutabréfasi. VÍB hf. 1,04 1,10 - 1,04 1,10 - 1,02 1,08 -
ísl. hlutabréfasj. hf. - - - - - - 0,98 1,09 -
Auðlind hf. 1,05 1,10 - 1,03 1,09 - 1,03 1,09 -
Hlutabréfasjóðurinn hf. - - - - ■ - - - 1,42 -
Marel hf. 1,80 - - - - - - 2,00 -
OPNI TILBOÐSM.:
Ármannsfell hf. - 1,95 - 1,20 1,90 - ■ - 1,70 -
Ámes hf. - 1,85 400 1,20 1,85 - - - -
Ehf. Alþýðubankans hf. 1,33 1,60 - 1,30 1,58 - - 1,58 115
Ehf. Iðnaðarbankans hf. 1,60 1,80 411 1,40 1,60 1.088 - 1,60 6.700
Ehf. Verslunarbankans hf. 1,25 1,30 215 1,25 1,57 409 - 1,35 -
Grandi hf. - 2,70 336 1,60 2,50 - 2,10 2,50 285
Hampiðjan hf. 1,00 1,59 - 1,10 1,46 - - 1,35 220
Haraldur Böðvarsson hf. - 2,94 - 1,50 2,94 - 2,00 2,94 -
islandsbanki hf. 1,45 - - 1,45 - - - - -
fsl. útvarpsfélagið hf. 1,05 - 161 1,15 - - 1,40 - -
Olíufélaqið hf. 4,20 4,60 220 4,00 4,60 10.604 4,00 4,50 6.563
Samskip hf. - - - 0,80 1,12 - 1,06 1,12 -
S.H. Verktakar hf. - 1,10 - - 1,10 - - 0,80 -
Síldarvinnslan hf. - 3,10 - 1,70 3,10 - 2,80 3,10 -
Sjóvá-Almennar hf. 4,30 6,50 - 1,50 - - 4,00 - -
Skaqstrendinqur hf. 3,80 4,00 - 2,50 3,89 765 - 4,00 -
Skeljunqur hf. - 4,82 200 3,10 4,00 - 4,00 4,50 6.870
Sæplast hf. 3,30 4,20 - 3,00 3,50 1.060 - 3,50 i
Tollvöruqeymslan hf. 1,25 - - 1,20 1,22 - - 1,30 200 f,
Tæknival hf. - 1,10 - 0,50 0,89 - - 0,85 - ■ i!
Tölvusamskipti hf. - - - 2,50 4,50 - - 3,30 1
Útg.fél. Akureyrinqa hf. - 3,90 - 2,60 3,70 - - 3,30 s
Útg.fél. Eldey hf. - - - - - - - - 1
Þróunarfélag fslands hf. - - - - 1,80 - - 1,65 i
Hlutabréf Bmskipa voru skráð é Verðbréiaþingi t byrjun júní og hlutabréf Rugteiða voru skráð á Verðbréfaþingi i lok júní. Upplýsingar um siðustu viðskipti. dagsetníngu og gengi, má sjá í peningamarkaði
Hugbúnaður
Þróunarfélagið hf. kaupir 15% í
hugbúnaðarfyrirtækinu Hughf.
ÞRÓUNARFÉLAG íslands hf.
hefur keypt rúmlega 15% af
hlutafé í hugbúnaðar- og raf-
eindafyrirtækinu Hugur hf. í
Kópavogi. Hlutaféð er keypt á
genginu 2,1. Þróunarfélagið
keypti hlutinn af tveimur fyrrum
starfsmönnum fyrirtækisins. „í
framhaldi af sölu Þróunarfélags-
ins á bréfunum í Marel fór fyrir-
tækið að leita að öðrum fjárfest-
EININGABREF 1
KAUPÞING HF
Löggi/t verðbréfafyrirtœki
Kringlunni 5, sími 689080
í eigu Búnaðarbanka ísiands og sparisjóðanna
ingakostum. Þróunarfélagið hef-
ur nú á skömmum tima keypt
hlut í tveimur fyrirtækjum, þ.e.
HP á íslandi og Hugi hf. Nú erum
við að skoða önnur fyrirtæki,
þ.á.m. fyrirtæki sem við höfum
áður fjárfest í,“ segir Hreinn
Jakobsson aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Þróunarfélagsins.
Hugur hf. hefur m.a. verið í
framleiðslu á hug- og vélabúnaði
tímaskráninga sem er víða kominn
í notkun hérlendis og leysir m.a.
af hólmi stimpilklukkur. Einnig
hefur Hugur verið að þreifa fyrir
sér með útflutning á þessu skrán-
ingarkerfí. Auk þess er fyrirtækið
í mikilli hugbúnaðargerð og að sögn
Gunnars Ingimundarsonar, fram-
kvæmdastjóra Hugs og stærsta
hluthafa fyrirtækisins, vinnur Hug-
ur nú að mjög öflugum viðskipta-
hugbúnaði sem heitir Concorde
XAL. Concorde er að sögn Gunnars
alhliða viðskiptahugbúnaður sem
byggir á nýjustu tækni við hugbún-
aðargerð og má nota á öll algeng-
ustu stýrikerfi.
Gunnar segir rekstur fyrirtækis-
ins hafa gengið mjög vel á sl. ári
og Hugur hf. hafi sýnt hagnað
undanfarin ár. „Útlit fyrir þetta ár
er gott og veruleg veltuauking er
á fyrstu mánuðum þessa árs saman-
borið við sama tíma í fyrra. Einnig
var veltuaukning á milli áranna
1990 og 1991. Það er mjög ánægju-
legt að Þróunarfélagið hafí áhuga
á að koma inn í rekstur fyrirtækis-
ins og ákveðin viðurkenning fyrir
okkur. Það skiptir miklu máli fyrir
starfsmenn að fjárfestingaraðili líti
á fyrirtækið sem vænlegan fjárfest-
ingakost," segir Gunnar.
Hreinn Jakobsson hjá Þróunarfé-
laginu segir þessi viðskipti dæmi
um það þegar frumkvöðlar fyrir-
tækis selji sinn hlut í hendur
áhættufjárfesta sem hafí trú á fyrir-
Aburðarverksmiðjan
tækinu. „Áður stofnuðu menn fyrir-
tæki og þau voru ekki til sölu. Nú
erum við að sjá nýja kynslóð frum-
kvöðla sem leggja meiri áherslu á
hinar fjárhagslegu forsendur.' í stað
þess að ýta ávallt nýjum fyrirtækj-
um af stað stefnum við frekar að
því að kaupa okkur inn í starfandi
og vænleg fyrirtæki til þess að
hjálpa þeim við áframhaldandi þró-
un og vöxt.“
Hugur var stofnað árið 1986 og
eru starfsmenn þess nú 13 talsins.
Samningurinn við
Eimskip hagkvæmari
SAMNINGUR Áburðarverk-
smiðjunnar í Gufunesi við Eim-
skip um flutninga á áburði út á
land er að mati Hákons Björns-
sonar framkvæmdastjóra Áburð-
arverksmiðjunnar hagkvæmari
en þeir samningar sem áður hafa
gilt. Áburðarverksmiðjan mun
greiða Eimskip 2.050 krónur á
tonnið af áburði og innifalið í
því er flutningur, uppskipun og
ÁRMÚLA 13A
IÐNLANASJOÐUR
fyrir íslenskt atvinnulíf
155 REYKJAVÍK SÍMI 680400 TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950
-k—.--1 - .■ .. .
J___________L.
geymsla. Alls hljóðar samningur-
inn upp á 18.000-20.000 tonn.
Samtals er flutningsverðið því
tæplega 40 mil(jónir króna.
Hákon segir að áður hafí Áburð-
arverksmiðjan verið með samning
við Skipaútgerð ríkisins en þegar
hún hafi verið lögð niður hafí verið
samið við Samskip. Skipaútgerðin
og Samskip sáu einungis um flutn-
ingana en aðrir aðilar sáu um upp-
skipun og geymslu. Áður kostuðu
þessir þrír þættir samtals 2.279
krónur sem er um 10% hærra verð
en Eimskip býður nú.
„Þar sem samningurinn við Eim-
skip hljóðar upp á alla þessa þijá
þætti þá er erfitt að bera saman
verðið nú og áður. Það sem hins
vegar er hægt að bera saman eru
þau tilboð sem við nú fengum í
flutningana. Annað hljóðaði upp á
2.050 krónur frá Eimskip en hitt
er upp á 2.750 krónur frá Samskip-
um. Samskipsverðið er hærra en
við bjuggumst við en Eimskipsverð-
ið lægra,“ segir Hákon Björnsson.