Morgunblaðið - 30.07.1992, Page 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1992
Fyrirtæki
Ágætt sumar hjá gróðrastöðv-
um þrátt fyrir að Reykjavík-
urborg takmarki samkeppnina
FORSVARSMENN gróðrastöðva á höfuðborgarsvæðinu virðast sátt-
ir við sölu sumarsins þrátt fyrir leiðindaveður í júnímánuði. Mikil
velta í júlí hafi bætt það upp. Þeir eru hins vegar ósáttir við hversu
markaðurinn er þröngur og að stærsti viðskiptavinurinn, Reykjavík-
urborg, skuli nær eingöngu versla við Skógræktarfélag Reykjavíkur
og fyrir utan það að vera með ræktun í eigin gróðrastöðvum. Borgar-
sljóri sagði í upphafi ársins að stefnt væri að því að hefja útboð á
a.m.k. einhverjum hluta af þeim tijám og runnum sem borgin þyrfti
að planta á þessu sumri. I viðtali við Morgunblaðið segir Markús
Öm Antonsson borgarstjóri að þegar málin hefðu verið skoðuð bet-
ur hefði komið í ljós að útboðin þyrfti að gera með töluvert löngum
aðdraganda. „Þvi mun Reykjavíkurborg taka þau mál til athugunar
á nýjan leik seint í sumar eða haust þannig að hægt sé að fá tilboð
í sumarblóm og tijáplöntur fyrir næsta sumar. Þetta var hins vegar
svo seint á ferðinni í vetur að ekki var hægt að koma útboðum í
gang fyrir þetta sumar,“ segir Markús.
Bjarni Finnsson í Blómavali, Pét-
ur N. Ólason í Mörk og Einar Þor-
geirsson í Alaska og Birkihlíð eru
sammála um að leiðinlegt veður
hafi haft mikil áhrif á að draga úr
viðskiptunum í maí og júní. Þau
hafí hins vegar orðið líflegri í júlí
og því geti salan nálgast það sem
var í fyrra þegar hún var mjög
góð. Hins vegar segir Einar að
minna seljast af tijám og runnum
þar sem peningarnir liggi. „Al-
mennt er verðið hjá okkur svipað
og í fyrra en sumt er á lægra verði.
Blómin seljast alltaf þar sem fólk
með garða kaupir sinn árlega
skammt fyrir 3.000-5.000 krónur.
Fólk sem er að byggja fer hins
vegar hægar í sakirnar en áður
þegar þekktist að keypt voru tré í
heilu lóðimar. Nú þekktist þetta
varla en þess í stað eru keypt tré
og runnar í eitt og eitt beð.“
Svipað magn en lægra verð
Þó að salan sé svipuð og fyrri
ár þá segir það ekki alla söguna
þar sem verðið á blómum og trjá-
plöntum er sagt fara lækkandi frá
ári til árs. „Verðið hefur farið lækk-
andi undanfarin 4 ár og því höfum
við reynt að fá aukin viðskipti til
að halda veltu okkar. Eftirspumin
eftir plöntum hefur aukist og meira
er um það að lóðir séu skipulagðar
þó að nú virðist minna um að að
fólk setji fyrirfram eyrnamerktan
pening í lóðir sínar,“ segir Pétur í
Mörk
Bjarni í Blómavali segir hins veg-
ar að verð á sumarblómum hafa
haldist eitthvað hærra en í fyrra
þegar mikið verðstríð var, líklega
vegna minna framboðs og vegna
knlda í byijun júní. Hins vegar seg-
ir hann verð á tijáplöntum og runn-
um líklega vera heldur lægra en sl.
sumar. „Plöntur eru vara sem er
mjög viðkvæm fyrir framboði og
eftirspum. Það þarf að selja þær á
mjög stuttum tíma og sölutímanum
lýkur að mestu leyti um mánaðar-
mótin júlí/ágúst. Ef mikið er af ein-
hverri ákveðinni vörutegund lækkar
verðið og öfugt.“
Verðlækkanir hafa mestar verið
í garðhúsgögnum að mati Bjarna
og segir hann að verðstríð hafí ríkt.
Verðið telur hann lægra en í fyrra
og framboðið mikið. „Erfitt er að
liggja með lager af garðhúsgögnum
í heilt ár og því eru nú útsölur á
garðhúsgögnum þar sem mikill af-
sláttur er oft. Framboðið og veðrið
í júní hefur haft mest að segja um
þessa verðlækkun en salan er
15-20% minni en í fyrra.“
Samkeppni úr öllum áttum
Pétur segir samkeppnina vera
mjög vaxandi hjá gróðrastöðvunum
og hún komi víða að. „Einkareknar
gróðrastöðvar eru t.d. útlokaðarfrá
einum stærsta kaupanda á landinu,
þ.e. Reykjavíkurborg. Skógræktar-
félag Reykjavíkur hefur þar einok-
unarstöðu og við erum mjög óhress-
ir með það þar sem viðskiptin eru
upp á tugi milljóna króna án þess
að spurt sé um verð. En verðið hjá
einkareknu gróðrastöðvunum er
mjög samkeppnishæft. Skógrækt
ríkisins er einnig með umtalsverða
garðplöntuframleiðslu sem heftar
það að einkastöðvar um allt land
geti þrifíst eðlilega."
Breytingar á grænmetissölu
blómasala hafí einnig gert gróðra-
stöðvum erfitt fyrir og aukið sam-
keppnina. Tollabreytingar hafí leitt
til þess að stór hluti af grænmetis-
framleiðendum hafi farið út í fram-
leiðslu á blómum og það hafi aukið
samkeppnina. Einnig hafí tollar
Flugtímarit andlit flug-
félaga gagnvart farþegum
Rætt við Harald J. Hamar ritstjóra Iceland Review sem gefur út
flugtímaritið Atlantica fyrir
Flugleiðir en íslenskt flugblað hefur verið gefið út í 25 ár
í MILLILANDAFLUGI stendur valið oftast á milli þess að ræða við
sessunaut, fá sér blund eða lesa. Flestir sem ferðast með Flugleiðum
milli landa hafa teygt sig í Atlantica, blaðið sem liggur í sætisvasan-
um fyrir framan og látið tímann líða við lestur en líklega eru ekki
margir sem hafa áttað sig á að íslenskt flugtímarit hefur verið gef-
ið út síðastliðin 25 ár. Haraldur J. Hamar ritstjóri hefur séð um
útgáfu flugtímaritsins allt frá fyrstu tíð þegar blaðið kom út á veg-
um Loftleiða. Iceland Review gefur Atlantica út fyrir Flugleiðir og
segir Haraldur að frá upphafi hafi stefnan verið að láta ísland vera
í fyrirrúmi í efnisvali blaðsins þannig að áhugi á íslandi vakni með-
al þeirra sem leið eiga um hafið en jafnframt að I tímaritinu sé
fræðandi efni um ferðalög, menningu og viðskipti.
Tildrög flugútgáfunnar má rekja
til þess þegar Sigurður Magnússon
blaðafulltrúi Loftleiða kom að máli
við útgefendur Iceland Review árið
1967 með hugmyndir að blaði sem
dreift væri meðal flugfarþega líkt
og var hjá bandarísku flugfélögun-
um. Með Haraldi í útgáfustarfinu
fyrstu árin var Heimir Hannesson
sem hvarf þó fljótlega frá útgáf-
unni. A þeim tíma var aðeins eitt
evrópskt flugfélag, KLM, með slíkt
flugtímarit sem nefnt er Holland
Herald og er því íslenska flugútgáf-
an sú næst elsta í Evrópu.
í fyrstu var nafn blaðsins Trans-
Atlantic Traveller en eftir að flugfé-
lögin tvö, Loftleiðir og Flugfélag
íslands, sameinuðust 1973 var
nafni blaðsins breytt í Atiantica.
Blaðið hefur tekið miklum breyting-
um frá fyrstu útgáfu en Haraldur
segir að aldrei hafi verið gerðar
stökkbreytingar heldur hefur blaðið
breyst með tímanum þannig að les-
andinn verði ekki var við breyting-
amar. „Þróun á alltaf að vera í
gangi en það eiga aldrei að vera
svo stór stökk að fólk missi tengsl-
in við fortíðina," segir Haraldur.
Á fyrstu árum blaðsins var ekki
reglubundin útgáfa heldur voru
gefin út 100.000 eintök og þegar
fór að ganga á þær birgðir var
hafíst handa við útgáfu næsta
blaðs. Núna kemur Atlantica út 5
sinnum á ári og heí'ur upplag farið
upp í 55.000 eintök. Þijú blöð hafa
þegar verið gefin út á þessu ári,
nýtt-blað er væntanlegt á næstunni
og fyrir jólin kemur fimmta blaðið
út. Blaðinu sem er á ensku er ein-
ungis dreift meðal farþega í flugvél-
um Flugleiða í millilandaflugi en
margir farþeganna taka eintak með
sér þegar þeir yfírgefa vélina þann-
ig að blaðið fer víða. Auglýsingar
bæði innlendra og erlendra aðila
standa undir kostnaði við útgáfuna.
Tímarit flugfélaga sé
upplýsandi og áhugavert
Haraldur segir að það hafi verið
með þetta blað eins og önnur ný
blöð að það hafi verið mikið starf
að ryðja brautina. „Núna er það
orðin venja að flugfélög hafi slíka
útgáfu. Mikilvægt er fyrir hvert
flugfélag að tímarit þess sé upplýs-
andi og áhugavert fyrir farþegana
því blaðið er að vissu leyti andlit
flugfélagsins gagnvart farþegun-
um. Tímaritið er þá eins og einn
af tengiliðum þess við viðskiptavin-
ina og í því á að vera sambland af
skilaboðum félagsins til farþega og
almennu lesefni. Frá upphafi hefur
það verið stefnan að láta ísland
vera í fyrirrúmi en einnig eru í blað-
inu greinar um aðra staði sem Flug-
leiðir fljúga til. Þá hefur þáttur ljós-
myndarinnar alla tíð verið mikill og
ekki síst þegar um er að ræða að
sýna ísland.“ Haraldur bætir við
að Ijósmyndir Páls Stefánssonar
ljósmyndara blaðsins sem starfað
hefur hjá Iceland Review síðastliðin
10 ár setji óneitanlega svip á blaðið.
Haraldur segir að samskiptin við
bæði flugfélögin, fyrst Loftleiðir og
nú Flugleiðir, hafi verið ákaflega
ánægjuleg og samstarfið mjög gott
FORSVARSMENN — Gróðrastöðva virðast sammála um
að verðin á blómum og tijáplöntum hafi farið lækkandi undanfarin ár
en deila hins vegar um það hvort verðið sé lægra hjá einkareknum
gróðrastöðvum eða hjá hinum opinberu.
lækkað á garðplöntum og því hafi
samkeppni erlendis frá aukist.
Reykjavíkurborg var hins vegar
einungis með eitt útboð í vor en
það var á kálplöntum fyrir Skóla-
garðana. Gróðrastöðin Mörk bauð
lægst og fékk útboðið.
Pétur segir útboðið á kálplöntum
fyrir skólagarðana vera lið í að
breyta þeim viðskiptaháttum sem
borgin hefur verið með. „Einka-
reknar gróðrastöðvar fá ekki að
vita á hvaða verði Reykjavíkurborg
kaupir blóm og tijáplöntur frá skóg-
ræktinni. Hin mikla framleiðsla hjá
skógræktinni gerir okkur erfitt fyr-
ir vegna þess að eftir því sem mark-
aðurinn er minni þeim mun minna
svigrúm er til að þróa ræktunarað-
ferðir og gera ræktunina hagkvæm-
ari.“
í gegnum árin. En þegar hann er
spurður að því hvort Atlantica sé
góð kynning fyrir Flugleiðir og Is-
land svarar hann því til að það sé
eins og að spyija bakara hvort kök-
urnar hans séu ekki góðar. „Bakar-
inn myndi halda því fram að hann
væri betri en bakarinn á næsta
horni. Við teljum að okkur hafi tek-
ist vel upp við það sem við erum
að fást við enda leggjum við okkur
Einar í Alaska og Birkihlíð segir
vandamál gróðrastöðvanna að
miklu leyti vera vegna Skógræktar-
félags Reykjavíkur og Reykjavíkur-
borgar. „Borgin dælir miklum fjár-
munum í Skógræktarfélagið og því
skiptir litlu máli hvaða verð þeir
hafa á sínum plöntum. Borgin rétt-
ir félaginu verkefni upp í hendur
án tillits til hvað aðrar gróðrastöðv-
ar hafa upp á að bjóða. Það er
mikil ólga vegna þessara vinnu-
bragða þar sem aðrar gróðrastöðvar
hefðu einnig geta tekið að okkur
þau verkefni sem skógræktin fékk
í sumar
Opinberar gróðrastöðvar
umsvifameiri en einkareknar
Skógræktarfélag Reykjavíkur
selur mikið af plöntum til borgar-
mjög fram og viðbrögðin við blaðinu
hafa verið jákvæð."
Atlantica hluti af stærri heild
En Atlantica er aðeins lítið brot
af því sem útgáfufyrirtækið Iceland
Review gefur út af efni á erlendum
tungumálum. Hjá fyrirtækinu sem
hefur verið starfrækt í tæp 30 ár
starfa nú um 26 manns og segir
Haraldur að það sé samhent og
- m Morgunblaðið/KGA
UTGAFA — Iceland Review
hefur verið starfrækt í nær 30 ár
og hefur á þeim tíma verið gefið
út á fjölda tungumála tímarit, blöð,
bækur og bæklingar um efni sem
tengist Islandi á einhvern hátt.
RITSTJÓRI — Haraldur
J. Hamar ritstjóri segir að nú séu
flest flugfélög komin með flug-
tímarit fyrir farþega sína. Margir
hafa lesið flugtímarit Flugleiða,
Atlantica, á ferð sinni um hafíð
en eflaust eru þeir færri sem vita
að íslensk flugútgáfa er sú næst
elsta í Evrópu.