Morgunblaðið - 30.07.1992, Side 6

Morgunblaðið - 30.07.1992, Side 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 30. JUU 1992 1 Heild III Ný heildsölumiðstöð á horni Skútuvogs og Holta- vegar í hjarta Sundahafnarsvæðisins með alla þjónustu innan seilingar. Til leigu eru 360 fm á tveimur hæðum sem skiptast í 180 fm vöru- geymslu með 3 m lofthæð og góðum innkeyrslu- dyrum og 180 fm skrifstofuhæð. Næg bíla- og gámastæði. Upplýsingar í síma 629044. Tölvur Marinó G. Njálsson Minni, ódýrari og öflugri tölvur Fyrir um tíu árum sló einn tölvu- kennari minn fram svona í gríni, að ef sama þróun hefði átt sér stað í bílaiðnaðinum og í tölvuiðn- aðinum, væru allir bílar eins vand- aðir og Rolls eða Bens, tækju 20 manns í sæti, kæmust 1.000 km á einum lítra af bensíni og hægt væri að leggja þeim á eldspýtu- stokki. Þetta var á tímum fyrstu einmenningstölvanna eða borðtöl- vanna og þróunin hefur sko alls ekki stoppað. Nýjasta nýtt í tölvuheiminum eru alvöru vasatölvur. Ekki svona vasareiknar, eins og við notum til að leggja saman og margfalda. Nei, það sem hér er átt við er tölva, sem er 10 x 15 sm (þ.e. á stærð við seðlaveski) og kemst því auð- veldlega í vasann! Það eru Apple og Toshiba, sem vinna saman að þróun og framleiðslu á þessari nýju tölvu. Hún er byggð á tækni, sem kennd er við Isaac Newton og er þá búið að tengja Newton aftur við eplið (Apple). (Það var þegar Isaac Newton fékk epli í hausinn, að hann uppgötvaði kenn- inguna um þyngdaraflið.) Newton tækni notar margmiðlun (multime- dia) og verður m.a. hægt að skrifa athugasemdir með penna á skjá tölvunnar og sér hún þá um að vista þau á viðeigandi hátt. Segjum sem svo að notandi skrifi á skjáinn „Hringja í Þórð“, geri svo strik undir og skrifi þar „Hádegisverður með Erlu á föstu- dag“. Skrifskynjunartækni tölv- unnar þýðir nú handskriftina yfir í tölvuletur. Notandinn skipar nú tölvunni að vinna úr gögnunum. Hún leitar að símanúmeri Þórðar í nafnaskrá notandans og hringir til hans. Síðan eru upplýsingarnar um hádegisverðinn færðar inn í dagbókina. Þetta er bara lítið dæmi um það hvernig forráðamenn Apple sjá fyrir að þessi lófastóra tölva geti gert. Þeir hjá Apple kenna sína tölvu við Personal Digital Assistant (PDA) eða stafrænan einkaþjón með vísan til þess að hún eigi að létta fólki lífið. (Auglýst er eftir heppilegu íslensku orði fyrir þessa tölvu.) I Bandaríkjunum er áætlað Olía Framboð meira en eftirspum Eftirspurn eftir olíu I helztu iðn- ríkjum heims jókst ekki á öðrum fjórðungi yfirstandandi árs, að sögn Aljijóða orkumálastofnun- arinnar. 124 aðildarríkjum Efna- hags og framfarastofnunarinna, OECD, nam olíunotkunin 37 mil\jónum tunna á dag, sem er óbreytt frá öðrum ársfjórðungi 1991. En meðan olíunotkunin var óbreytt, jókst olíuvinnslan. Hjá aðildarríkjum Samtaka olíu- útflutningsríkja, OPEC, jókst vinnslan fjórða mánuðinn í röð í júní. Hjá OPEC, sem vinnur um þriðjung heildar olíumagnsins á markaðinum, nam vinnslan 23,8 milljónum tunna á dag í júní. Hef- ur vinnsla OPEC ríkjanna stöðugt farið vaxandi þrátt fyrir að ríkin hafi samþykkt á fundi sínum í apríl að halda henni óbreyttri. Auk þessa segir orkumálastofn- unin að fyrrum ríki Sovétríkjanna, sem samanlagt eru mesta olíuríki heims, hafí aukið útflutninginn til Vesturlanda. Þótt nokkuð hafi dregið úr vinnslunni í þessum ríkj- um, jókst útflutningur þeirra um 30% á öðrum ársfjórðungi frá því sem hann var á þeim fyrsta. Þetta aukna framboð hefur þeg- ar leitt til nokkurrar verðlækkunar á olíu. Heimild: Wall Street Journal.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.