Morgunblaðið - 07.08.1992, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.08.1992, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ 999 BARCELONA ’92 FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1992 MORGUNBLAÐIÐ OO BARCELONA ’92 FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1992 B 7 TENNIS Kevin Young fagnaði heimsmeiti sínu geysilega, eins og sést á myndinni hér til hægri, en á myndinni fyrir ofan veifar hann til áhorfenda - með banda- ríska fánann á öxlunum. „Eina sem égsávar marklínan" - og það var aðeins spurning hvenær ég setti heimsmet ekki hvort, sagði Kevin Young „ÉG setti stefnuna á heims- metið fyrir löngu, vissi að það var einungis spurning hvenær það félli. Eg var mjög upplagð- ur í hlaupinu, leið vel alla leið. Gerði mér hins vegar ekki grein fyrir því hve hratt ég hljóp nú. Aðalatriðið var að vinna hlaup- ið, eina sem ég sá var mark- línan, metið var ánægjulegur bónus," sagði Kevin Young, nær tveggja metra hár félags- fræðingur frá Los Angeles, eft- ir að hafa slegið heimsmetið í 400 metra grindahlaupi og sigrað með yf irburðum í gær. Er þetta fyrsta heimsmetið sem fellur í frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna. Hlaupabrautimar eru hluti af skýringunni, þær gefa mikið, menn taka 12 skref þar sem þeir þurfa 13 á öðmm völlum," sagði John Smith þjálfari Youngs en hann er fyrmm heimsmethafi í 440 stiku hlaupi. Vissulega fór Young greitt því einn af keppinautum hans, Bret- inn Kriss Akabusi, fannst sem hann stæði í stað er Young þaut fram úr. „Mér fannst ég rúlla vel, en þegar ég- sá Kevin leið mér eins og ég stæði nánast kjúrr,“ sagði Akabusi. Young sigraði með miklum yfir- burðum, kom sex metmm á undan næsta manni í mark en hægði vem- lega á sér undir lokin er hann fagn- aði sigri. Annar varð Jamaíkumað- urinn Winthrop Graham á 47,66 og Akabusi þriðji á 47,82 en hann er Evrópumeistari og varð þriðji á HM í fyrra, einu sæti á undan Young. Bæði Graham, sem varð annar á HM í fyrra, og Akabusi settu persónuleg met í hlaupinu. Það gerði einnig Frakkinn Stephane Diagana sem varð fjórði á nýju frönsku meti en árangur þessa 23 ára hlaupara er afar athyglisverður. Hann hljóp best á 51,60 1989, bætti sig í 48,92 árið eftir og varð þá 5. á EM, var fjarver- andi vegna meiðsla í fyrra og slær nú í gegn. Einnig bættu Rússinn Oleg Tverdolkhleb og Frakkinn Step- hane Caristan árangur sinn en þeir urðu í 6. og 7. sæti. Með afreki sínu er Kevin Young fyrstur allra til þess að ljúka 400 metra grindahlaupi á innan við 47 sekúndum. Tími hans var 46,79 sek- úndum en heimsmet Moses, sem sett var í Koblenz í Þýskalandi fyrir níu ámm, var 47,02 sekúndur. Met Mo- ses var eitt elsta heimsmetið í frjáls- um. ■ LEIKMENN Taiwan töpuðu úrslitaleiknum í hafnaboltakeppn- inni gegn Kúbu 14:1. Þeir fengu þó talsverðar sárabætur frá hinu opinbera. Menntamálaráðuneytið í Taiwan veitir hvetjum leikmanni liðsins námsstyrk að upphæð 13 milljónir ísl. króna. Heildampphæð- in sem ráðuneytið greiðir er um 242 milljónir ísl. kr. og geta leikmenn ráðstafað fénu eins og þeim þókn- ast. íþróttamenn frá Taiwan hafa ekki verið sigursælir á Ólympíuleik- um og árangur hafnaboltaliðsins er sá besti síðan að tugþrautarmað- urinn C.K. Yang vann silfurverð- launin í Róm 1960. ■ PENINGA GREIÐSL UR til þeirra íþróttamanna sem vinna til verðlauna er ekki lengur undan- tekning, heldur miklu frekar regla. Samveldisríkin tólf sem eiga kepp- endur á leikunum bjóða íþrótta- mönnum sínum 180.000 kr. ísl. fyr- ir gull, 120.000 fyrir silfur og 60.000 fyrir bronsverðlaun. íþrótta- menn frá Kenýu sem vinna til gull- verðlauna fá svipaða upphæð í sinn hlut en minna fyrir silfur og brons. ■ AUÐUGUSTU íþróttamenn- irnir á leikunum em án efa milljóna- mæringamir sem leika með banda- ríska körfuknattleiksliðinu. Þeir fá ekki svo mikið sem krónu fyrir að taka þátt í leikunum. Það segir þó ekki alla söguna. Til að mynda sagði umboðsmaður Scottie Pippen ný- lega að Ólympíuleikarnir myndu óbeint færa leikmanninum á milli 120-170 milljónir í auknum auglýs- ingatekjum. Ekki er að efa að Mich- ael Jordan og Earwin Johnson muni fá meira fyrir sinn snúð. ■ BORIS Jeltsin, forseti Rúss- lands afsakaði sig við Juan An- tonio Samaranch, forseta IOC í gær yfir að hafa ekki komist til að vera viðstaddur Ólympíuleikana eins og hann hafði ráðgert. Jeltsin, sem er mikili áhugamaður um tenn- is sagðist vonast til að geta tekið leik við Samaranch fljótlega. Urslitaleikur kvenna: Undrabamið gegnGraf Það var á Spáni fyrir þrettán árum sem Stefano Capriati rétti dóttur sinni Jennifer, þá þriggja ára að aldri, tennis- spaða, til að sjá hvort hún hefði einhverja hæfileika. Þrettán árum síðar er fjölskyld- an aftur komin til Spánar, nú til að fylgj- ast með dótturinni, sem leikur til úrslita í einliðaleik kvenna í tennis gegn Steffi Graf, á sjálfum Ólympíuleikunum í dag. Jennifer Capriati er aðeins sextán ára gömul og sannkallað undrabam í tennis, en það verður á brattan að sækja fyrir hana á móti Steffi Graf, sem ekki hefur tapað leik á Ólympíuleikum til þessa. Capr- iati hefur hins vegar sótt í sig veðrið á síðustu mánuðum. „Eg held ég hafi lagt harðar að mér að undanförnu og mér finnst ég vera í góðu formi. Ég held að þétta sé stærsta stund ferilsins, ásamt því að leika í undanúrslitunum á Opna bandaríska mótinu," sagði Capriati. Capriati er sjötta á heimslistanum, og er þrátt fyrir ungan aldur orðin margfald- ur milljónamæringur. Á sama tíma og jafn- aldrar hennar reyna hvað þeir geta til að láta vasapeningana duga út vikuna, þá er hún líklega ríkasti 16 ára unglingur í heim- inum og þarf ekki að hafa áhyggjur af vasapeningum, allt vegna frammistöðunn- ar á tennisvellinum. Graf varð með sigri sínum í undanúrslit- unum sigursælasti tennisleikari á Ólympíu- leikunum. Hún sigraði í Los Angeles árið 1984 þegar tennis var sýningargrein, og tryggði sér síðan gullverðlaunin f Seoul fyrir fjórum árum. „Ég er með sérstakt herbergi þar sem ég geymi verðlaunapeningana mína, og gullverðlaunin á Ólympíuleikunum eru ein- hverra hluta vegna miðpunkturinn þar,“ sagði Graf. „í sannleika sagt þá kem ég ekki oft þangað, en leit eitt andartak þang- að inn áður en ég kom hingað,“ sagði Graf. En þrátt fyrir að hafa verið á fulli keyrslu nær allt árið er Graf ekki orðin þreytt. „Það getur verið erfitt fyrir tennisleikara að halda einbeitingunni út árið, en það hefur ekki verið erfitt fyrir mig því ég hef svo gaman að þvi að spila tennis. Það skipt- ir ekki máli við hvem ég spila, bara það að fara út á völlinn er nóg fyrir mig,“ sagði hin sigurstranglega Steffí Graf. Reuter Steffi Graf hefur leikið ákaflega vel á Ólympíuleikunum til þessa, og er sigur- stranglegri en sextán ára undrabarnið Jennifer Capriati, sem verður andstæð- ingur hennar í úrslitaleiknum í dag. Barcelona ’92 OQO Zmelik konungur tugþrautarinnar Tókforystu ífyrstu grein seinni dagsins og varaldrei ógnað Tékkinn Robert Zmellk vann með yfirburðum í tugþrautinni. Hér á hann á fullri ferð í 110 m grindahlaupi. Reuter TÉKKINN Robert Zmelik sigraði með miklum yfirburðum ítug- þrautinni í gærkvöldi og náði sínum næstbesta árangri frá upp- hafi, hlaut 8.611 stig. Zmelik var konungur gærdagsins, tók for- ystu í fyrstu grein seinni dagsins í gær og jók hana jafnt og þétt, sigraði með glæsibrag. Þjóðverjinn Paul Meier sem hafði forystu eftir fyrri dag keppninnar átti lakari dag í gær og endaði í sjötta sæti en náði engu að síður sínum besta heildarárangri. Fimmtán keppendur náðu 8.000 stigum eða meira. Iöðru sæti og við miklar vinsæld- ir áhorfenda varð Spánveijinn Antonio Penalver en hann varð í 23. sæti á leikunum í Seoul. Var hann þriðji eftir fyrri daginn en komst strax í gær í annað sætið og hélt því þótt Bandaríkjamaður- inn Dave Johnson drægi um tíma verulega á hann. Johnson hefur náð bestum árangri í ár, 8.727 stigum en átti aldrei möguleika á að ná Zmelik, var í níunda sæti eftir fyrri dag, alltof mörgum stigum á eftir fyrstu mönnum. Reyndar gekk Johnson ekki alveg heill til skógar, leið miklar kvalir í gær og taldi álagssprungur hafa myndast í beinum í hægra fæti. Sýndi hann mikla keppnishörku og gafst aldrei upp. Silfurhafmn frá heimsmeistara- mótinu í fyrra, Mike Smith frá Kanada, mætti ekki til leiks í gær, hætti vegna hömlungsmeiðsla. Zmelik er 23 ára frá iðnaðarborg- inni Vítkovice í vesturhluta Tékkó- slóvakíu. Hann varð fjórði á Evr- ópumótinu í hitteðfyrra og sama sæti á HM í Tókíó í fyrra, setti persónuleg stigamet á báðum mót- um. Þá vann hann silfurverðlaun á heimsmeistaramóti unglinga í Kanada 1988. HOgrind Tékkinn Robert Zmelik byijaði daginn glæsilega með því að ná langbesta tímanum í 110 metra grindahlaupi. Hljóp á 13,95 sekúnd- um en næstbesti tími dagsins var rúmri hálfri sekúndu lakari. Með þessu tók Zmelnik 83 stiga forystu en Þjóðveijinn Paul Meier varð síð- astur í hans riðli á 15,22 sek. Dave Johnson hljóp í sama riðli og þeir á 14,76, varð næstur á undan Mei- er. Bandaríkjamaðurinn Aric Long var dæmdur úr lauk og varð því ekki uip áframhald á keppni að ræða hjá honum. Spánveijinn Pena- lver styrkti stöðu sína í toppsætun- um, hljóp á 14,58 sek. Kringlukast Robert Muzzio Bandaríkjunum og William Motti Frakklandi köst- uðu einir yfir 50 metra, sá fyrr- nefndi færðist upp í 11. sæti fyrir vikið og Motti í það níunda. Pena- lver styrkti enn stöðu sína og færð- ist upp í annað sætið með 49,68 metra kasti. Paul Meier kastaði hins vegar aðeins 42,14 metra sem var 18. lengsta kastið, féll úr öðru sæti í það þriðja í stigakeppninni. Dave Johnson var með fjórða lengsta kast dagsins, 49,12 metra, færðist upp um tvö sæti í það sjöunda. Bilið milli efstu manna minnkaði einkum þar sem Zmelik kastaði ein- ungis 45,00 metra sem var 10. besti árangur dagsins. Hélt hann 61 stigs forystu en bilið milli þeirra Johnson minnkaði um 85 stig, úr 383 í 298 stig. Keppendum fækkaði í 30 því Brasilíumaðurinn Filho Da Silva Ferreira gerði öll köstin ógild og féll úr. Stangarstökk Ungveijinn Dezso Szabo stökk hæst eða 5,30 og fékk fyrir það 1.004 stig. Dave Johnson stökk 5,10 en bilið milli þeirra Zmeliks hélst óbreytt því Tékkinn stökk sömu hæð. Frakkinn Alain Blondel, sem varð sjötti í Seoul, stökk þá hæð einnig og fímmti maðurinn yfir 5,00 metra var Erki Nool frá Eistlandi. Stjarna Pauls Meiers hneig enn því hann stökk aðeins 4,60 sem var 15.-17. besti árangur- inn í stönginni. Enn fækkaði kepp- endum því Bandaríkjamaðurinn Aric Long felldi byijunar hæð sína. Spjótkast David Johnson færðist upp í þriðja sætið (7.607) með næst lengsta kasti dagsins, 62,86 metr- um, en munurinn hélst nær óbreytt- ur milli Zmeliks (7.848) og Pena^ lvers (7.719) sem köstuðu 59,06 og 58,64 metra. Meier hélt áfram för sinni niður stigatöfluna með þvi að kasta aðeins 55,44 metra. Frakkinn Motti kastaði langlengst eða 67,50. Níu köstuðu lengra en 60 metra. Eistlendingurinn Erki Nool gerði öll köstin ógild og féll úr. 1500 metramir Langlélegasta grein tugþrautar- manna en Zmelik lauk deginum með glæsibrag með því að auka forystu sína á Penalver og Johnson. Þeir gerðu sér fulla grein fyrir því að þeir ættu enga möguleika lengur gegn Tékkanum og sættu sig við silfur- og bronsverðlaun. Langbest- um tíma náði Svisslendingurinn Beat Gahwiler 4:12,07 mín. Reuter Dave Johnson keppti með sólgler- augun, en hann sá ekki til sólar í keppninni við Zmelik. Hægðiásér ogdró úr heimsmetinu Kevin Young hefði líklega getað bætt heimsmetið í 400 metra grindahlaupinu enn betur, um 2/10 úr sekúndu hefði hann hlaupið á fúllu yfir marklínuna. Young gerði sér hins vegar grein fyrir því að allt stefndi í öruggan sigur og kunni sér ekki læti af gleði; lyfti hægri hendi upp yfir höfuð sér af fögnuði þegar hann átti 6-7 metra eftir á mark. Ennfremur rakst hann nokkuð illa í 10. og síðustu grindina sem dregið hefur líklega örlítið úr hrað- anum. Má því ljóst vera að meira býr í honum. „Mig hafði lengi dreymt að geta lyft höndum til sigurs á stórmóti. Eg gat ekki sleppt því nú, enda himinlifandi af gleði og vissi ekki að heimsmetið væri að falla," sagði Young eftir hlaupið. Með sigrinum og metinu bætir Young vel fyrir þau vonbrigði sín að verða Ijórði í greininni bæði á Ólympíuleikunum í Seoul og á HM í fyrra. Eftir hlaupið fagnaði hann sigrinum með því að leggjast á hlaupabrautina vafinn bandaríska fánanum og sprikla með fótunum. Þessi 26 ára félagsfræðingur frá Los Angeles bætti sinn besta árang- ur í hlaupinu um tæpa sekúndu, átti 47,72 sekúndur frá því 1988. FRJALSIÞROTTIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.