Morgunblaðið - 07.08.1992, Side 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGIJR 7. ÁGÚST 1992
KNATTSPYRNA / UNDANURSLIT MJOLKURBIKARKEPPNINNAR
Fylkir
í Evrópu-
keppni?
2. deildarlið vann
bikarkeppnina síðast
árið 1971
Fylkismenn eygja mögu-
leika á að leika í Evrópu-
keppninni á næsta ári. Ef Fylk-
ir vinnur Val í undanúrslitum
bikarkeppninnar í kvöld gæti
liðið um leið tryggt sér þátt-
töku í Evrópukeppni bikarhafa
á næsta ári. Til að þetta gangi
eftir verður ÍA að vinna KA í
bikamum og verða íslands-
meistari. ÍA tæki þá þátt í
Evrópukeppni meistaraliða
burtséð frá því hvemig úrslita-
leikur bikarkeppninnar færi,
en hitt úrslitaliðið í bikamum
færi í Evrópukeppni bikarhafa.
■Það hefur aðeins einu sinni
gerst að 2. deildarlið hafi
tryggt sér Evrópusæti í knatt-
spymu. Það gerði Víkingur
1971 með því að vinna Breiða-
blik í bikarúrslitum 1:0.
Morgunblaðið/Þorkell
Finnur Kolbeinsson, hefur skorað í öllum bikarleikjum Fylkis. Verður hann
í blómahafí í kvöld?
VISI
i ÞESSUM LANDSLEIK TEFm ISLENDINGAR FRAM STBRKU LIÐI MEÐ
ÖFLUGA ATVINNUMENN INNANBORÐS GEGN ÍSRAELSKA LANDSLIÐINU
OG ÞVÍ MÁ BÚAST VIÐ HÖRKULEIK ÞAR SEM EKKERT VERÐUR GEFIÐ EFTIR.
GERUM LAUGARDALSVÖLL AÐ ALVÖRU HEIMAVELLI FVRIR
HEIMSMEISTARAKEPPNINA.
FORSALA AÐGÖNGUMHDA ER Á BENSÍNSTÖÐVUM ESSO Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU,
KEFLAVÍK, AKRANESI OG AKUREYRI OG Á LAUGARDALSVELLI FRÁ KL. 11 Á LEIKDEGI.
MIÐAVERÐ: 1.000 KR. (EITT VERÐ). FRÍTT
FYRIR BÖRN 12 ÁRA OG VNGRI.
FÉLAGAR í KSÍ-KLÚBBNUM HITTAST Á ÍSÍ KL. 16.30.
MÆTUM A VOLLINIU!
BOÐSMIÐAR: STARFANDI DÓMARAR OG AÐRIR MEÐ AÐGANGSKORT FÁ
AÐGÖNGUMIÐA AFHENTA Á LAUGARDALSVELU Á LEIKDEGI FRÁ KL 11-16.
GARDALSVELU
SAMSTARFSAÐILAR KSÍ
Landsbanki A.
Islands Bankl alira landtmanna Prenlsmiðjan (IJ
EIMSKIP
Skandia
Island
m
ERO
gk
ÍRVAt-ÚTSÝN
Tími til
kominn að
stöðva
Valsmenn
- segir Finnur Kolbeinsson, leikmaður Fylk-
is,um leikinn gegn bikarmeisturum Vals
UNDANÚRSLITALEIKIR Mjólk-
urbikarkeppninnar í knatt-
spyrnu verða f kvöld kl. 19:00.
Á Akureyri tekur KA á móti ÍA
og í Árbænum mætir Fylkir,
efsta lið 2. deildar, bikarmeist-
urum Vals f rá í fyrra.
Leið Fylkis í undanúrslit hefur
verið nokkuð greið ef undan
er skilinn síðasti leikur þar sem liðið
lagði KR-inga 2:1 í skemmtilegum
leik þar sem heimamenn gerðu bæði
mörkin á lokamínútunum. Fylkis-
menn voru með í bikamum frá fyrstu
umferð og hafa leikið fimm leiki.
KR, eins og önnur 1. deildar lið, kom
inní í 16. liða úrslitum.
Tími til kominn að
stöðva Valsmenn
Fylkismaðurinn Finnur Kolbeins-
son hefur skorað fimm mörk í bik-
amum, eitt mark í hveijum leik og
ætlar að halda því áfram. „Við erum
allir klárir í slaginn og ég held við
fömm ansi_ langt með því að gera
eitt mark. Ég er búinn að skora eitt
mark í öllum fimm leikjunum og sé
enga ástæðu til að hætta því,“ sagði
Finnur í samtali við Morgunblaðið.
„Þetta verður erfiður leikur og
við ætlum að halda áfram að gæða
okkur á konfektmolunum. Síðast var
það bara einn moli úr kassanum og
því er nóg eftir. Það er kominn tími
til að stöðva Valsmenn og við erum
litla liðið í þessu og höfum því engu
að tapa,“ sagði Finnur.
Valsmenn hafa ekki tapað bikar-
leik í rúmlega tvö ár. í ár léku þeir
fyrst við Breiðabliksmenn og yfir-
spiluðu þá framan af leik og unnu
3:0. Síðan mættu þeir FH, en liðin
léku til úrslita í bikarnum í fyrra,
raunar þurfti tvo leiki þá til að knýja
fram úrslit, en að þessu sinni þurfti
aðeins einn leik.
Eigum harma að
hefna á Fylkisvelll
Sævar Jónsson, Valsari, er orðinn
sjóaður í bikarkeppninni. Hann hefur
fímm sinnum leikið til úrslita og
þrisvar staðið uppi sem bikarmeist-
ari. „Við förum í þennan leik eins
og hvem annan, nema að þetta er
bikarleikur. Þetta verður erfíður
leikur því Fylkismenn hafa sýnt að
þeir eiga heima í fyrstu deild. Við
eigum harma að hefna frá því við
lékum við þá í fyrstu deild á Fylki-
svelli 1989 og töpuðum 4:1. Við
erum nánast úr leik í keppninni um
íslandsmeistaratitilinn og því verð-
um við að vinna þennan leik. En við
þurfum að koma með rétt hugarfar
í leikinn," sagði Sævar.
KA og ÍA eru dálítið langt frá
hvort öðru í deildinni, KA í þriðja
neðsta sæti með 10 stig, en ÍA í því
efsta með 27 stig. Það munar 17
stigum á liðunum en það er í deild-
inni, en leikurinn í kvöld er í bikarn-
um og það er allt annað mál.
Skagamenn léku fyrsta leikinn
gegn Val á Reyðarfirði og sigruðu
7:0 en í næsta leik fengu þeir Vík-
inga heim og komust í 3:0 í upphafi
fyrri hálfleiks en leiknum lauk með
3:2 sigri ÍA.
Förum alla leið í úrslit
„Ég hef trú á því að við förum
alla leið í úrslit," sagði Luka Kostic,
fyrirliði ÍA. Þrír lykilmenn ÍA, Sig-
urður Jónsson, Alexander Högnason
og Ólafur Adólfsson taka allir út
leikbann í kvöld. En veikir það ekki
liðið? „Það er vissulega slæmt að
missa þessa góðu leikmenn í svona
mikilvægum leik. En ég er sann-
færður um að þeir sem koma inn í
staðinn eru hundrað prósent tilbún-
ir. Við tökum aðeins eitt skref í einu
og nú er það KA. Þó það sé mikill
munur á liðunum í deildinni er það
ekki mælikvarði á einn bikarleik.
Ein mistök geta kostað sigur,“ sagði
Kostic.
KA lagði Þórsara 2:0 í fyrsta
leiknum og í næsta leik sigraði það
Fram 2:1. KA hefur fullan hug á
sigri í kvöld. Liðinu hefur gengið
illa í deildinni og það væri mikil lyfti-
stöng fyrir leikmenn að komast í
úrslitaleikinn. Skagamenn, sem
komu upp úr 2. deild í fyrra, hafa
leikið vel í sumar og eru efstir í
deildinni og hefðu örugglega ekkert
á móti því að komast líka í úrslita-
leikinn.
Þurfum aö lífga
upp á sálartetrið
„Leikurinn leggst ágætlega í okk-
ur, það þýðir ekkert annað. Við
ætlum okkur sigur eins og sjálfsagt
öll liðin, en þetta hefur verið dapurt
í deildinni hjá okkur og því þurfum
við að lífga aðeins upp á sumarið
og sálartetrið, bæði hjá okkur og
stuðningsmönnum okkar,“ sagði
Steingrímur Birgisson, fyrirliði KA
um viðureignina við Skagamenn.
„Ég held við höfum alla burði til
að sýna okkar rétta andlit. Skaga-
menn eru reyndar með besta liðið í
deildinni, en þetta er bikarleikur og
munurinn í töflunni hefur ekkert
með bikarinn að gera,“ sagði Stein-
grímur.
Fá adeins 17 tíma hvíld
Sjö ieikmenn úr liðunum fjórum sem leika í undanúrslitum Mjólkurbikar-
keppninnar í kvöld fá lítinn tíma til að hvfla sig eftir átökin. Þeir
þurfa að vera tilbúnir í leik með U-21 árs landsliðinu gegn ísrael sem hefst
á morgun kl. 14 á Akranesi, sautján tímum eftir að bikarleikjunum lýk-
ur. Það eru þeir Finnur Kolbeinsson, Gunnar Pétursson og Þórhallur Dan
Jóhannesson úr Fylki og Skagamennirnir Þórður Guðjónsson og Bjarki
og Amar Gunnlaugssynir auk Valsarans Ágústs Gylfasonar.
Aðeins tveir úr A-landsliðshópnum fyrir leikinn á sunnudag leika í bik-
arnum í kvöld. Það eru þeir Baldur Bragason úr Val og Baldur Bjamason
úr Fylki. Þeir fá 45 stunda hvfld á milli leikjanna.