Morgunblaðið - 25.08.1992, Síða 1

Morgunblaðið - 25.08.1992, Síða 1
1992 C ÞRIÐJUDAGUR 25. AGUST1992 BLAD KNATTSPYRNA / BIKARURSLIT adidas Þeir bestu í Hollandi Hollandsmeistarar Eindoven leika í Adidas GOLF Morgunblaðið/Bjarni Anthony Karl Gregory fagnar hér öðru marki sínu í bikarúrslitaleiknum gegn KA. Hann gerði þijú mörk í æsispennandi leik sem lauk með 5:2 sigri Vals en til þess þurfti framlengingu. Anthony jafnaði fyrir Val þegar sjö sekúnd- ur voru til loka venjulegs leiktíma. " ' Bikarkeppnin / C4-C5 og C7-C9. Frábært hjá Úlfari Ufar Jónsson, kylfingur úr Keili, náði frábærum árangri á Evrópumótinu í golfi sem lauk á Le Querce golfvellinum í Róm á Ítalíu á sunnudaginn. Úlf- ar varð í 15. sæti og lék síðasta hringinn á 68 höggum sem er fjórum höggum undir pari vallarins. „Ég er mjög ánægður með að ná fimmtánda sæti og síðasti hringurinn er trúlega sá besti sem ég hef leikið um dagana, allavega síðustu 12 holurnar. Ég fékk fugl á 1., 7., 8., 9., 13., 14. og 16 holu en skolla á 4., 5. og 6. holu. Á hinum átta fékk ég par og þetta dugði mér til að ná fimmtánda sæti,“ sagði Úlfar í gær. Þess má geta að Úlfar og ítali, sem sigraði á mót- inu, áttu besta skorið á vellinum í mótinu. „Ég byrjaði illa og lék í raun ekki vel fyrstu tvo dagana, 79 og 75 og var þá í 57. sæti en náði niðurskurðinum. Þriðja daginn lék ég á 73 og var í 39. sæti og náði aftur í gegum niðurskurðinn og svo kom þessi fíni hringur. Það skipti sköpum að Siguijón [Amarsson] benti mér á hvað ég gerði rangt í upphafshöggunum og þegar ég hafði lagað það gengu þau vel. Það er mikilvægt að upphafshöggin séu í lagi á þessum velli því hann er langur, 6.500 metrar, og mjög þröngur. Þetta er sami völlur og heimsbikarkeppnin var haldin á í fyrra," sagði Úlfar og var að vonum ánægður með árangurinn. FRJALSIÞROTTIR / SPJOTKAST Gjöf mín til borgarinnar - sagði Einar Vilhjálmsson sem bætti íslandsmetið um 1,22 m ífyrsta kasti í Laugardal í gærkvöldi EINAR Vilhjálmsson setti glððsiiegt íslandsmet í spjót- kasti á Laugardalsvelli fgær- kvöldi. Hann kastaði 86,70 metra og bætti eldra metið sem hann átti sjálfur um 1,22 metra, en það setti hann á Evrópumeistaramótinu f Split í Júgóslavíu fyrir réttum tveimur árum. Einar sagðist í samtali við Morgunblaðið t gærkvöldi helst þakka nýja frjálsíþróttavellinum f Laug- ardal þetta met, sem hann sagði að væri hreint frábær, og þetta met væri þakkargjöf hans til Reykjavíkurborgar fyrir völlinn. Eg var búinn að lofa Júlíusi Hafstein [formanni ÍTR] því að það yrði tekið á á þessum velli ef hann kæmist í gagnið fyrir haustið. Þetta met er gjöf mín til Reykjavíkurborgar fyrir þennan glæsilega völl,“ sagði Einar. Og hann var ekkert að skafa utan af því þegar hann var spurður að því hvernig honum líkaði völlur- inn: „Þetta er besti völlur í heimi. Hér er magnþrungið andrúmsloft, frábær braut og íslensk sál,“ sagði hann. Einar sagði einnig að vind- kringumstæður hefðu verið kjöm- ar fyrir vinstri handar kastara í gærkvöldi, og það hefði einnig hjálpað tií Þá hefði hann notað svonefnt Dick Held spjót af pacer gerð, eins og hann hefði gert í mest allt sumar, en hann hefði fundið sig vel með slíku spjóti. Þau eru mýkri en önnur spjót og fara betur með skrokkinn að sögn Einars, og henta honum vel. Spjót af þessari gerð voru ekki til stað- ar í forkeppni Ólympíuleikanna fyrir mistök, sem kom sér mjög illa fyrir Einar og fleiri og eru framleiðendumir að undirbúa málaferli vegna þess. Kastsería Einars í gærkvöldi var óvenju glæsileg. Hann setti metið í fyrsta kastinu, kastaði 85,28 metra í öðru, gerði síðan þrisvar ógilt og kastaði í síðasta kasti 84,18 metra. Hann heldur í dag áleiðis til Þýskalands, en hann mun keppa á móti í Koblenz síðar í vikunni. Spjótkastkeppnin í gær var boðsgrein á Unglingameistara- móti Fijálsíþróttaráðs Reykjavík- ur, og var Sigurður Einarsson einnig meðal keppenda. Vindurinn var hins vegar ekki hagstæður honum í gærkvöldi og varð hann annar með 77,86 metra. Morgunblaðið/Ami Sæberg Einar Vilhjálmsson bætti íslandsmetið sem hann átti sjálfur um 1,22 metra, og stendur hér við töfluna á Laugardalsvellinum sem sýnir nýja metið. REYKJAVÍKURMARAÞON: METÞÁTTTAKA / C2, C12 - C15

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.